Morgunblaðið - 27.07.1979, Side 17

Morgunblaðið - 27.07.1979, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 27. JÚLÍ1979 17 rita fyrir veturinn Hér sést þyrlan koma með gashylki að vitanum. Loksins þarf að nota handafl til að draga hylkin inn í vitann. Þá dugir ekki annað en að taka á honum stóra sfnum, þvf hvert hylki er um 120 kfló að þyngd. Ljósm.: Jón Póll ÁsKeirssun. Norskur línubátur við suðurströndina. Varðskipsmenn um borð í belgíska skipinu Pelagus að mæla vörpu þess. MORGUNBLAÐIÐ sncri scr í gær til talsmanna stjórnmáia- flokkanna og spuröi þá álits á þcim tillögum. scm Matthías Bjarnason lagöi fram í landhclgismálancfnd á mánudaginn um Jan Maycn-málió. cn í tillögunum cru valkostir um norska cða samciginlcga norsk/íslenzka útfærslu við Jan Maycn og hclmingaskipti á gögnum og gæðum ísjó og hotni. Samningaviðræður við Norðmenn verði án taíar teknar upp aftur — segir Geir Hallgrímsson „ÞESSAR tillögur Matthíasar Bjarnasonar f landhelgisnefnd- inni eru í samræmi við stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum málum og við leggjum höfuð- áherslu á, að samningaviðreeð- ur verði án tafar teknar upp að nýju við Norðmenn.“ sagði Geir Hallgrfmsson formaður Sjálf- stæðisflokksins. Hann sagði nauðsynlegt að engum tíma yrði kastað á glæ til að koma í veg fyrir að loðnu- stofninum yrði eytt og að aðrar þjóðir væru að veiðum á þessum slóðum. Það gæti stefnt efna- hags- og fiskveiðihagsmunum okkar í hættu. Geir var spurður að því hvort hann teldi vera grundvöll fyrir breyttri stefnu í Jan Mayen- málinu frá þeirri stefnu sem mörkuð var í viðræðum Islend- inga og Norðmanna í Reykjavík. Geir sagði: „Þetta er ekki breytt stefna af hálfu Sjálfstæðis- flokksins. Það eru einungis opn- aðir nýir möguleikar sem gætu skapað grundvöll að samkomu- lagi.“ Of hörð afstaða okkar í ráðherraviðræðunum — segir Steingrímur Hermannsson „Ég hef alltaf talið að lausn á þessu Jan Mayen-máli hlyti að vera samkomulag við Norð- menn. Ég get ekki séð hvernig við á annan máta getum tryggt nauðsynlegar takmarkanir á fiskveiðum þar. í ráðherravið- ræðunum sem hér voru haldnar var tekin að sumu leyti harðari stefna af hálfu okkar Islend- inga en f þessu felst og haldið fram töluvert stfft af sumum. Ég tel sjálfsagt að okkar fær- ustu sérfræðingar um hafrétt- armál láti í ljós álit sitt á þvf hvað þeir telja að við getum komist langt með rétta kröfu okkar f þessu máli. Mfn skoðun hefur alltaf verið sú, að þetta mál hljóti að leysast með sam- komulagi og við eigum að stefna að því,“ sagði Steingrím- ur Hermannsson, dómsmála- ráðherra og formaður Fram- sóknarflokksins. Spurður að því hvort hann teldi vera grundvöll fyrir breyttri stefnu Islendinga í Jan Mayen-málinu frá því sem var í viðræðunum í Reykjavík, sagði Steingrímur: „Ég held að í raun og veru sé aðstaðan ekkert breytt og að þetta hafi legið fyrir þegar viðræðurnar fóru fram. En það má segja að með þessum viðræðum hafi fengist upplýsingar sem menn geta þá betur byggt á um afstöðu Norð- manna." Allar tillögur eru verdar íhugunar — segir K jartan Jóhannsson „ÉG TEL að allar tillögur séu verðar íhugunar og ég hef verið að velta þessum málum fyrir mér að undanförnu,“ sagði Kjartan Jóhannsson sjávarút- vegsráðherra. Hann sagði að tillögur Matthíasar Bjarnason- ar hefðu verið ræddar í land- helgisnefndinni á mánudag, en menn þyrftu tfma til þess að átta sig á öllum hliðum málsins. Kjartan var spurður að því hvort hann teldi grundvöll vera fyrir breyttri stefnu íslendinga í Jan Mayen-málinu frá því sem var í viðræðunum við Norðmenn í Reykjavík og svaraði Kjartan: „Ég hef ekki tekið endanlega afstöðu um þá hluti, enda veit ég ekki hvort það sem Matthías Bjarnason eða aðrir eru með í þessum efnum, feli í sér breytta stefnu eða ekki,“ Þá var Kjartan spurður að því hvort Jan Mayen-málið hefði komið til umræðu á Hafréttar- ráðstefnunni sem nú stendur yfir í New York og svaraði hann því til að honum væri ekki kunnugt um það. Y f ir vegud sky nsemi ráði ferðinni en ekki stundarupphlaup — segir Ólafur Ragnar Grímsson „MATTHÍAS Bjarnason lagði rfka áherzlu á það, að þær hugmyndir sem hann setti fram f landhelgisnefndinni væru trúnaðarmál, svo ég tel ekki rétt að ræða þær ítarlega opin- berlega fyrr en hann kýs sjálf- ur að gera grein fyrir þeim opinberlega. Enda er í þessum hugmyndum að finna ýmislegt sem að mfnum dómi kynni að skaða málstað fslands, ef fréttir af því bærust til Noregs,“ sagði Ólafur Ragnar Grfmsson for- maður framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins. „Það virðist sem nokkur taugaveiklun hafi gripið um sig hjá ákveðnum öflum, en í þessu máli eru svo miklir hagsmunir í húfi í bráð og lengd að það er mjög nauðsynlegt að yfirveguð skynsemi ráði ferðinni en ekki stundarupphlaup,“ sagði Ólafur. ,Mín skoðun er sú að málstaður Islands hafi styrkzt mjög á síðustu vikum. í fyrsta lagi er það orðin útbreidd skoðun í Noregi að Norðmenn eigi engan sjálfsagðan rétt til einhliða út- færslu við Jan Mayen. í öðru lagi er ljóst að norsk stjórnvöld munu takmarka afla norskra loðnuskipa og íslenzk og norsk stjórnvöld fylgjast í sameiningu með veiðunum. í þriðja lagi er komið í ljós að sögusagnir um hættuna á því að aðrar þjóðir væru að koma þarna inn með stóra loðnuflota eiga ekki við rök að styðjast. Fyrir nokkrum vik- um var sagt að sá floti kæmi í byrjun júlí. Hann er enn ókom- inn og þau skip, sem þarna eru að veiðum, veiða að mestu aðrar tegundir en loðnu. Þau réttindi sem íslendingar geta gert tilkall til á Jan Mayen- svæðinu eru það mikilvæg, bæði í nútíð og framtíð, að sú skamm- sýni, sem mér fannst því miður setja nokkurn svip á hugmyndir Matthíasar, má ekki ráða ferð- inni. Það skal þó tekið skýrt fram að í skjali Matthíasar var boðið upp á ýmsa valkosti og ekki ljóst, hvort hann í raun og veru fylgdi þeim öllum, enda tók hann skýrt fram, að ekki væri um tillögur Sjálfstæðisflokksins að ræða.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.