Morgunblaðið - 03.08.1979, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1979
Eyjamenn komnir
í þjóðhátiðarskap
LEIKMENN ÍBV munu halda
gleðilega þjóðhátíð núna um
helgina, eftir að hafa unnið góð-
an sigur á KA í 1. deild í
gærkvöldi og halda þeir sér þvf
ennþá volgum við toppinn í deild-
inni. KA-menn áttu sér aldrei
viðreisnar von í leiknum í Eyjum
í gærkvöldi og fallhættan blasir
nú við þeim KA-mönnum en enn
hafa þeir tfma til þess að bjarga
sér frá fallinu.
Fyrri hálfleikur var tfðindalft-
ill og lftill hraði, eins og liðin
væru að kanna getu hvors ann-
ars. Það voru helst hinir skæðu
framherjar Elmar Geirsson KA
og Tómas Pálsson ÍBV sem ylj-
uðu áhorfendum f fyrri hálfleik
með skemmtilegum töktum. ÍBV
var öllu sterkari aðilinn f hálf-
leiknum en staðan f lok hans var
0:0.
IBV —
KA
3:0
SEINNI HÁLFLEIKUR
í s.h. kom Sveinn Sveinsson
aftur í lið Eyjamanna eftir meiðsli
og gjörbreyttist leikur ÍBV liðsins
til hins betra eftir að hann kom
inná. Sveinn varð strax afgerandi
á miðjunni, dreifði spilinu mjög
vel og tóku Eyjamenn leikinn
smám saman í sínar hendur. Strax
á 53. mínútu kom fyrsta mark
ÍBV, Viðar Elíasson átti þá jarð-
arskot á mark KA og Valþór
Sigþórsson bætti við og stýrði
boltanum framhjá Aðalsteini.
Annað mark IBV kom svo á 66.
mínútu og var það fallegasta mark
leiksins. Óskar Valtýsson gaf vel
íyrir markið, Sveinn Sveinsson
U
BRlTTAKXPl
UPPHAF TIZKUOLDU SUI
FLAUELIS- OG DENIM BUXUR 26“—38
Ausmrstræti 10 sími: 27211
skallaði út i teiginn á Tómas
Pálsson og viðstöðulaust þrumu-
skot Tómasar hafnaði í netinu,
óverjandi fyrir Aðalstein. Það var
svo á 75. mínútu að ÍBV greiddi
KA náðarhöggið. Tómas Pálsson
komst þá einu sinni sem oftar í
gegnum slaka vörn KA og í þriðju
tilraun tókst Tómasi að koma
boltanum framhjá Aðalsteini, sem
tvisvar varði mjög vel frá Tómasi
en missti ávallt frá sér boltann.
Skot Tómasar fór í stöng og inn.
Varnarmenn KA horfðu aðgerðar-
lausir á þessa viðureign Aðal-
steins við Tómas.
Eyjamenn sóttu síðan nær lát-
laust að marki KA en Aðalsteini
Jóhannssyni fannst nóg komið af
svo góðu og lokaði markinu. Mega
KA-menn þakka honum fyrir að
útreiðin varð ekki verri en þetta.
LIÐIN
Tómas Pársson var bezti maður
vallarins í leiknum í gærkvöldi og
er nú í sínu fínasta formi. Þá átti
Sveinn Sveinsson mjög góðan leik
í s.h. og vona Eyjamenn að hann
hafi nú náð sér eftir meiðslin.
Hjá KA átti Elmar mjög góðan
fyrri hálfleik en fjaraði út er á leið
enda naut hann þá lítillar aðstoð-
ar félaga sinna. Maður kvöldsins
hjá KA var markvörðurinn Aðal-
steinn Jóhannsson. Ágætur dóm-
ari var Magnús V. Pétursson.
Wí'ý- m 4 ,
....... .
Jafn leikur
á Akureyri
ÞÓR, Akureyri sigraði Reyni
Sandgerði 1 — 0, í leik liðanna í 2.
deild í gærkvöldi. Leikurinn fór
fram á Akureyri. í fyrri hálf-
leiknum sóttu norðanmenn öllu
meira og áttu nokkur dauðafæri
sem þeim tókst ekki að nýta.
Besta marttækifæri fyrri hálf-
leiksins kom er Magnús Helga-
son átti geysifast skot sem hafn-
aði í þverslánni og hrökk síðan
niður á marklínuna, og svo út á
völlinn. Þá átti Nói Björnsson
gott færi sem fór forgörðum.
I síðari hálfleiknum var meira
jafnræði með liðunum. Reynis-
menn voru líflegri og leikurinn
jafnaðist nokkuð. Á 50. mínútu
leiksins skutu Reynismenn í stöng
og svo rétt síðar björguðu Þórsar-
ar á línu. Þar voru Reynismenn
óheppnir að skora ekki mark. Eina
mark leiksins kom svo á 60.
mínútu. Þór fékk aukaspyrnu og
Guðmundur Skarphéðinsson skor-
ði með því að skalla í þverslá og
niður.
Besti maður Þórs í leiknum var
Eiríkur markvörður. En hjá Reyni
Júlíus Jónsson í vörninni en á
honum stöðvuðust margar sóknar-
lotur Þórs. sor/þr
Blikarnir sóttu
tvö stig austur
BREIÐABLIK vann 2:0 sigur á
Þrótti austur á Norðfirði í gær-
kvöldi og var sigur Blikanna
eftir atvikum sanngjarn. Mikill
hraði var í leiknum og góð bar-
átta. Sögðu tíðindamenn blaðsins
að þetta hefði hiklaust verið bezti
leikur sumarsins í Neskaupstað.
Þrátt fyrir góð færi í fyrri
hálfleiknum tókst hvorugu liðinu
að skora, en Blikarnir náðu síðan
forystunni með marki Hákonar
Gunnarssonar eftir um 15 mínút-
ur af seinni halfleik. Ekkert var
auðveldara fyrir Hákon en að
skora þetta mark eftir slæm mis-
tök markvarðar og varnarmanna
Þróttar. Síðustu mínútur leiksins
lögðu Þróttarar ofurkapp á að
jafna, en sóttu of djarft og á
síðustu sekúndunum gerði Hákon
annað mark sitt í leiknum. Gott
skot hans hafnaði örugglega í
netmöskvunum. Reyndar skoruðu
Þróttarar eitt mark í leiknum, en
það var réttilega dæmt af af
sæmilegum dónara leiksins, Hjör-
vari Jensyni. Þeim dómi undu
áhorfendur illa og nötruðu bakk-
arnir svo undir tók í fjöllunum.
í heild áttu bæði lið ágætan dag
og í liðunum skaraði enginn sér-
staklega fram úr, allir lögðu sitt
af mörkum. —GB/-áij
Utimótið í
handknattleik
Tómas Pálsson IBV
í STUTTU MÁLI:
Hásteinsvöllur 2. ágúst, íslands-
mótið 1. deild, ÍBV—KA 3:0 (0:0)
Mörk ÍBV: Tómas Pálsson 53. og
75. mínútu og ValÞór Sigpórsson á
66. mínútu.
Amínningar: Tómas Pálsson ÍBV,
Olafur Haraldsson KA og Haraldur
Haraldsson KA fengu að sjá gulu
spjöldin.
Áhorfendur: 783.
-hkj/SS.
leikur
FH OG Haukar gerðu jafntefli í
úrslitaleik útimótsins í hand-
knattleik í gærkvöidi 16-16, og
verður því nýr leikur að fara
fram í kvöld og hefst hann kl.
20.00. Leikurinn í gærkvöldi var
mjög spennandi frá fyrstu til
síðustu mínútu. Og jafnframt var
töluverð harka f leiknum á köfl-
um.
FH-ingar höfðu frumkvæðið í
leiknum mest allan fyrri hálfleik,
og staðan í hálfleik var 11—9,
FHívil.
Mikill barningur var í síðari
hálfleiknum og leikurinn lengst af
í járnum. Haukar náðu að jafna
leikinn, og komast síðan yfir, og
þegar 7 mínútur voru til leiksloka
höfðu þeir tveggja marka forystu
16-14. En á síðustu mínútunum
tókst FH að jafna metin, og var
ekki langt frá því að tryggja sér
sigur í leiknum.
Geir Hallsteinsson var tekinn
úr umferð allan leikinn, og Hörður
Harðarson hjá Haukum í síðari
hálfleiknum. Bestu menn liðanna
voru þeir Guðmundur Árni
Stefánsson hjá FH og Ólafur
Guðjónsson markvörður Hauka,
sem þó gerði sig sekan um slæm
mistök er hann þrívegis gaf bolt-
ann á afdrifaríkum augnablikum
beint í hendur FH-inga sem síðan
skoruðu mark.
Mörk FH: Guðmundur Árni
Stefánsson 6, Kristján Arason 4,
Guðmundur Magnússon 3, Hans
Guðmundsson 2, og Geir
Hallsteinsson 1.
Mörk Hauka: Hörður Harðar-
son 5, Júlíus Pálsson 3, Guð-
mundur Haraldson 2, Árni
Sverrisson 2, Ingimar Haraldsson
2, Stefán Jónsson 1, Þórir Gísla-
son 1.
í leiknum um þriðja sætið í
keppninni sigruðu IR-ingar Fram
með yfirburðum 21-15, eftir að
staðan í hálfleik var 10-9 Fram í
vil. Þá sigruðu Haukastúlkurnar
Val í keppninni um þriðja sætið í
kvennaflokki 17-11. — Þr.
Selfoss
sigraði
SELFYSSINGAR sóttu ísfirð-
inga heim í 2. deildinni í kantt-
spyrnu í gærkvöldi. Var leikur
liðanna jafn og skemmtilegur á
að horfa og oft á tíðum vel
leikinn. Heimamenn biðu lægri
hlut í leiknum, töpuðu 2—1, eftir
að staðan hafði verið jöfn í
hálfleik. 1-1.
Fyrsta markið kom úr víta-
spyrnu sem dæmd var á ísfirð-
inga. Einn varnarmaðurinn hand-
lék boltann og Heimir Bergsson
skoraði örugglega úr vítaspyrn-
unni fyrir Selfoss. Örnólfur Odds-
son jafnar fyrir ísfirðinga á 40.
mínútu leiksins.
í síðari hálfleik áttu ísfirðingar
öllu meira í leiknum en samt kom
það í hlut Selfyssinga að skora.
Þórarinn Ingólfsson skoraði fall-
egt mark á 75. mínútu leiksins og
reyndist það vera sigurmarkið.
Sanngjörn úrslit í leiknum hefðu
verið jafntefli.
STAÐAN í 2. deild: STAÐAN 11. DEILD ER NÚ:
13 10 2 1 37:14 22 Valur 12 7 3 2 25-11 17
Dreiðablik 13 9 2 2 28:8 20 Akranes 12 7 2 3 22—13 16
Fylkir 13 7 2 4 25:15 16 ÍBV 12 6 3 3 19-9 15
Selíoss 13 5 3 5 18:14 13 Kellavík 12 5 4 3 18—11 14
Wr 13 6 1 6 14:14 13 KR 12 6 2 4 18-18 14
Þrðttur 12 5 2 5 9:12 12 VfkinKur 12 5 3 4 19—15 13
Isafjörður 12 3 4 5 18:23 10 Fram 12 2 6 4 17—19 10
Austri 13 3 3 7 11:22 9 Þrðttur 12 4 2 6 16- 23 10
Reynir 13 2 4 7 8:25 8 KA 12 2 3 7 14-28 7
Magni 13 2 1 10 13:35 5 Haukar 12 1 2 9 9—30 4