Morgunblaðið - 26.09.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. SEPTEMBER 1979
5
Kennslu- og rannsóknaaðstaða, auk
aðstöðu til krabbameinslækninga
meðal brýnustu úrlausnarefna nú
segir John Weeks ráðgjafararkitekt, höfundur þróunaráætlunar Landspítalaframkvæmda
HÉRLENDIS er nú staddur á vegum heilbrigðisyfirvalda John
Weeks frá brezka ráðgjafafyrirtækinu Llewelyn-Favies-Weeks-
Foriester-Walker and Bor í London. Weeks, sem er ráðgjafararkit-
ekt, er hingað kominn til umræðna og ráðgjafar um fyrirhugaða
byggingarframkvæmdir á Landspítalalóðinni, sem unnar verða
eftir þróunaráætlun, sem ber heitið „Weeks-áætlun“, og John
Weeks er höfundur að.
Weeks mun á meðan á dvöl hans stendur ræða við húsameistara
rikisins og starfsmenn hans, eins yfirlækna Landspítalans,
stjórnarmenn í „yfirstjórn mannvirkjagerðar á landspítalalóð“ og
aðra þá, er hafa með rekstur Landspitalans og mannvirkjagerð
þar að gera.
Blaðamaður Mbl. hitti
Weeks að máli í gærmorgun,
þar sem hann sat fund með
húsameistara ríkisins, Garðari
Halldórssyni, Ásgeiri Bjarnas-
yni frá „yfirstjórn mannvirkj-
agerðar" og fleiri aðilum.
Weeks sagðist hafa komið
fyrst til íslands 1970 og væri
hann nú hér í áttunda sinn.
„Upphaflega kom ég hingað
fyrir tilstilli þess mæta
manns, Sigurðar Sigurðssonar,
o.fl., og vann þá að sérstakri
þróunaráætlun um aðstöðu til
læknakennslu, en íslendingar
gerðu sér grein fyrir því þá,
eins og svo margar aðrar
þjóðir, hversu nauðsynlegt það
er að sameina læknakennslu
og sjúkrahússtarfsemi. Lækn-
anemum er mjög nauðsynlegt
„Islenzk sjúkrahús vel rekin og
byggð af raunsæi“ sagði John
Weeks um islenzk sjúkrahús.
Ljósm. Mbl. Emilia.
að geta numið fræði sín í
tengslum við hina sjúku og er
þetta eitt af brýnustu úrlausn-
armálunum í dag.
— Hver telur þú önnur brýn
úrlausnarefni í byggingarmál-
um Landspítalans í dag?
„Eins og ég sagði áðan þá er
það kennsluaðstaðan, eins er
úrlausn brýn á ýmiss konar
aðstöðu fyrir tækjabúnað, s.s.
röngtenleitar- og geislatæki.
Þá má sérstaklega nefna að-
stöðu til krabbameinslækn-
inga ekki aðeins til geislalækn-
inga heldur einnig lyfjalækn-
inga og almennra rannsókna.
Það er hér, eins og svo víða,
mikill þrýstingur vegna al-
menns plássleysis. Mitt verk-
efni er að aðstoða við að vega
og meta hvar þörfin er brýnust
og leiðbeina með ódýrustu og
heppilegustu lausnir."
Weeks hefur unnið að
þróunaráætlunum og aðstoðað
við uppbyggingu fjölmargra
þekktra sjúkrahúsa víðs vegar
um veröldina. Við spurðum
hann hvert álit hans væri á
rekstri og þjónustu íslenzkra
sjúkrahúsa samanborðið við
önnur lönd.
„Mér finnst íslenzk sjúkra-
hús vera vel rekin og byggð af
raunsæi. Til samanburðar má
benda á sjúkrahúsaþjónustu í
Þýzkalandi, sem er mjög dýr
og í raun ofviða Þjóðverjum að
standa undir. í Svíþjóð er
rúmafjöldi, samanborið við
mannfjölda, allt of mikill og
hvergi meiri nema þá á
írlandi. Þetta kemur e.t.v. af
því að læknum þarlendis eru
borguð laun í samræmi við
sjúklingafjölda sinn á sjúkra-
húsum, sem er alls ekki rökr-
étt. Þeir ættu fremur að fá
borgað fyrir að geta haldið
fólki sem lengst utan sjúkra-
húsa.
Um gæði sjúkrahúsa á
íslandi þá vildi ég geta sagt að
sjúkrahúsin heima í Bretlandi
stæðust samanburð. íslenzk
sjúkrahús eru að mínu áliti vel
rekin, björt og hrein, og al-
mennt séð til fyrirmyndar.
Skipaður framkvæmda-
st jóri Almannavamaráðs
GUÐJÓN Petersen hefur verið
skipaður framkvæmdastjóri Al-
mannavarnaráðs í kjölfar skipu-
lagsbreytinga, scm gerðar voru á
Almannavörnum rikisins með
lögum á Alþingi á s.l. vori.
Guðjón hefur nokkur undanfarin
ár verið fulltrúi hjá Almanna-
vörnum.
Guðjón er fertugur að aldri,
fæddur í Reykjavík 20. nóvember
1938. Hann lauk farmannaprófi
frá Stýrimannaskólanum 1961 og
skipstjóraprófi á varðskipi ríkis-
ins 1965. Hann gegndi ýmsum
störfum á ms. Gullfossi 1954—’61,
var forstöðumaður Stýrimanna-
skólans í Vestmannaeyjum
1961— ’62 og stýrimaður og skip-
stjóri hjá Landhelgisgæzlunni
1962— ’71. Guðjón varð fulltrúi hjá
Almannavörnum 1971 og hefur
hann hlotið sérstaka þjálfun og
menntun í kjarnorkuvörnum og
almennri neyðarstarfsemi.
Guðjón Petersen.
Kona Guðjóns er Lilja Bene-
diktsdóttir.
Viðræður í gangi
um sameiningu Haf-
skips og Bifrastar
STJÓRNIR Hafskips hf og
Bifrastar hf hafa að und-
anförnu átt viðræður um
hugsanlega sameiningu fé-
laganna. Mun það verða
ráðið fyrir áramót hvort
af sameiningunni verður,
að sögn Ragnars Kjartans-
sonar framkvæmdastjóra
Hafskips, en hann taldi
meiri líkur á því en hitt að
af sameiningu yrði.
Hafskip hf á nú fimm
skip og er auk þess með
leiguskip í flutningum.
Bifröst hf á eitt skip en
hefur nýlega eignast meiri-
hluta í öðru skipi, m.s.
Berglind.
„Við hjá Hafskip hf telj-
um ótvíræða kosti við sam-
einingu félaganna og vilj-
um að málið verði keyrt
áfram af fullri ferð fram að
áramótum," sagði Ragnar.
Dregid í af mælishátíðarhapp-
drætti S jálf stæðisf lokksins
DREGIÐ hefur verið í happdrætti afmælishátíðar Sjálfstæðisflokksins.
Vinningur, ferð til Mallorca með Ferðaskrifstofunni Úrval, kom á miða
nr. 2633.
Hándhafi þessa vinningsnúmers hafi samband við skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í síma 82900.
Fréttatilkynning frá Sjálfstæðisflokknum.
VERKSMIDJU
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA
SÝNINGAHÖLUNNIBÍLDSHÖFDA
HEFSTÁ MOfíGUN 27. SEPT.~ 6.OKT.
FRA GEFJUN
Ullarteppi
Teppabútar
Áklæöi
Gluggatjöld
Buxnaefni
Kjólaefni
Ullarefni
Sængurveraefni
Garn
Loðband
Lopi
o.m.fl.
FRÁ FATAV.SM
HEKLU
Dömu-, herra-
og barnafatnaöur
FRA SKOVERK.SM
IÐUNNI
Karlm. skór
Kvenskór
Kventöfflur
Unglingaskór
FRA HETTI OG
SKINNU
Mokka jakkar
Mokka húfur
Mokka lúffur
FRA INN-
FLUTNINGS
DEILD
Vefnaðarvörur
Búsáhöld
Leikföng
FRA LAGER
Tískuvörur úr ull
Peysur
Fóöraöir jakkar
Prjónakápur
Pils
Vesti
Ofnar slár
Strætisvagna
ferðir
frá Hlemmi
með leið 10