Morgunblaðið - 30.09.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 30.09.1979, Síða 1
64 SÍÐUR 214. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. r Iran: Skipt um yfirmann olíufélags Teheran — 29. sept. — AP — Reuter KLERKAVELDI írans íagnaði í morgun þeirri ákvörðun Bazar- gans forsætisráðherra að skipa Ali Akbar Moinfar oliumálaráð- herra og taki hann einnig við stjórn NIOC, iranska oliufélags- ins. Fyrrverandi yfirmanns NIOC, Hassan Nazih, er nú leitað um gervallt tran og hefur Kho- meini hótað að hann verði dreg- inn fyrir rétt og sakaður um Iandráð. Nazih var einn helzti forvígis- maður byltingarinnar í febrúar og ákafur stuðningsmaður Khomein- is framan af, og sömuleiðis náinn vinur Bazargans forsætisráð- herra. Nazih barðist á sínum tíma ötullega gegn keisarastjórninni og var talsmaður írönsku mannrétt- indahreyfingarinnar þá. Nazih hefur síðan fjarlægzt afstöðu Khomeinis og meðal ann- ars neitað „hreinsunum" innan starfsmanna fyrirtækisins, sem grunaðir hafa verið um ótryggð við Islam og Khomeini. Hann sagði fyrir skömmu að missti félagið úr starfi ýmsa þá sérfræð- inga sem Khomeini krafðist að yrðu látnir víkja færi brátt svo að olíufélagið yrði gersamlega óstarf- hæft. Dackosýnt banatilrœði Paris. 29. sept. Reuter. DAVID Dacko, hinum nýja forseta Mið-Afríkulýðveldis- ins, sem bylti Bokassa úr valdastóli á dögunum, var sýnt banatilræði í gærkvöldi. Heim- ildir í Bangui, höfuðborg landsins, sögðu að herforingi í herráðinu hefði skotið nokkr- um skotum að Dacko en hann hefði sloppið ómeiddur. Til- ræðismaðurinn var handsam- aður. Jóhannes Páll páfl II lýtur niður og býr sig undir að kyssa írska jörð, eftir komuna til Dublinflugvallar í gær. í ávarpi sagðist hann koma til írlands sem pílagrímur friðarins. Knattspyrnumenn sýni hófíkynlífi Mílanó' Ítalíu, 29. sept. AP. KNATTSPYRNUMÖNNUM er óhætt að lifa kynlífi, en þó verða þeir að halda verulega í við sig og þeir mega alls ekki hafa kynmök tvisvar í viku. Þetta eru ráðleggingar og nánast skipanir til knattspyrnumanna Roma Club frá sænskum þjálfara þeirra Nils Liedholm. Liedholm sagðist sjálfur hafa fylgt þessari reglu þegar hann var yndi og eftirlæti sænskra og síðar ítalskra knattspyrnuunn- enda á sínum yngri árum. Hann sagði í viðtali við tímarit í Mílanó að hann hefði fylgt þessari reglu út í æsar og hann hefði fundið að það hefði verið honum hið versta mál ef hann hefði ekki gert það. Stundum hefði hann jafnvel haldið aftur af sér í allt að þrjár vikur. Það hefði verið hið lengsta. Liedholm hefur þjálfað ýmis meiri háttar ítölsk knattspyrnu- lið síðustu fimmtán ár og hann sagðist gera sér grein fyrir að það væri örðugt að fylgjast með því að þessum ráðleggingum hans væri framfylgt, enda væri hann ekki harðstjóri og gæti ekki gengið lengra en að gefa leikmönnum þessi heilræði. Hátíðarstemning á öllu írlandi við komu páfa Dyflinni, 29. september. AP. Reuter. JÓHANNES Páll páfi annar kom i morgun í tæplega þriggja sólar- hringa heimsókn til Irlands og það fyrsta sem hann gerði er hann sté niður landganginn úr þotu irska flugfélagsins Air Lingus, var að krjúpa á kné og kyssa jörðina. Mikill mannf jöldi fagnaði páfa við komuna og hátiðarstemmning var um allt land. Kirkjuklukkum um allt trland var hringt í virðingar- skyni og þeyttar voru flautur skipa er lágu í Dyflinnarhöfn. Bein sjónvarpssending var frá komu páfa. í stuttri ræðu við komuna vék páfi óbeint að hatursástandinu sem ríkir milli mótmælenda og kaþólskra á írlandi er hann sagð- ist kominn til landsins sem þjónn Krists og færði frið öllum þeim er játuðu honum trú. Við brottförina frá Rómarflugvelli sagðist hann vonast til að geta lagt eitthvað af mörkum til friðar í landinu og slökunar á spennu sem ríkti milli trúarhópanna. 25 sinnum meira magn af DDT í konum jólk en kúam jólk Nalróbf, Kenýa, 29. september. AP. KOMIÐ hefur i ljós að brjósta- mjólk kvenna i sumum löndum heims inniheldur 25 sinnum meira magn af skordýraeitrinu DDT en er að finna i kúamjólk, og að brjóstabörn hafi daglega neytt miklu meira magns af skordýra- eitrinu en heilbrigðisyfirvöld telja mönnum óhætt að neyta, að því er Peter S. Thacher aðstoðar- framkvæmdastjóri umhverfis- áætlunar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) skýrði frá í dag. Thacher sagði að auk DDT hefði skordýraeitrið aldrin og dieldrin fundist í konumjólk svo og fjöldi annarra efnasambanda sem væru afurðir efnaiðnaðar. Þetta hefði komið í ljós við lauslegar rann- sóknir í 15 löndum, á síðustu árum, þ. á m. Bandaríkjunum, Kanada, Japan, Guatemala og Ástralíu. I ljósi þessa væri fyllsta ástæða tíl umfangsmikilla rannsókna í öllum löndum heims, þótt ekki hefði verið sýnt fram á að Rannsóknir á dýrum hafa einnig sýnt fram á að neyzla DDT getur haft í för með sér alls kyns truflanir á heilsufari, og hefur notkun efnisins verið bönnuð eða takmörkuð í fjölda landa, þ. á m. í Bandaríkjunum, Sovétríkjunum og Svíþjóð. Meðan á írlandsdvöl páfa stend- ur heimsækir hann fimm borgir landsins. Fyrsta verk hans verður að messa í Phoenix-garði í Dyfl- inni, og sex klukkustundum áður en messan átti að hefjast hafði hálf milljón manna safnast saman í garðinum, en búist var við einni milljón manns í garðinn, sem er sex hektarar að stærð. Messan hófst á hádegi, en nokkrum klukkustundum áður lézt einn viðstaddra úr hjartaslagi og kona var flutt á sjúkrahús þar sem hún fékk fæðingarhríðir meðan hún beið páfans. Páfinn hefur aðsetur í bústað sendiherra hans í Dyflinni meðan á írlandsdvölinni stendur, en það- an ferðast hann um í þyrlu, sem Air Lingus leigði hjá hollenzka flugfélaginu KLM. Mikill viðbún- aður var af hálfu hers og lögreglu vegna heimsóknar páfa. Fylgja honum vopnaðir öryggisverðir, og sérþjálfaðar skyttur verða stað- settar á húsþökum við götur sem hann fer um. Óttast er að öfga- menn í hópi mótmælenda kunni að sýna páfa banatilræði í írlands- heimsókninni. 30 ára afmæli kommúnista í Kína: Mennmgarbyltmgin hrapalleg mistök Peking, 29. september. Reuter. „Menningarbyltingin í Kína sem hófst árið 1966 var ógnarleg mistök og var hleypt af stað fyrir áhrif „bófanna fjögurra,„ sagði þingforseti Kína, Ye Jianying, í ræðu er hann minntist þrjátiu ára afmælis kommúnistastjórnar í landinu. Hann sagði að þetta ástand hefði nánast staðið i tiu ár og hefði verið mesta ógnun við alþýðulýðveldið frá stofnun þess. Ye fór á einum stað lofsamleg- um orðum en þó hóflegum mjög um Mao og sagði að hann hefði verið helztur fulltrúi flokksins og þjóðarinnar, en hann nefndi hann ekki þegar hann fjallaði um menn- ingarbyltinguna þó svo að hinn látni formaður hafi verið talinn einn af frumkvöðlum hennar. Verulegur hluti ræðunnar sner- ist síðan um það tjón sem Lin Piao — um langa hríð talinn líklegast- ur eftirmaður Maos — hefði unnið þjóðinni, svo og bófarnir fjórir og með því að yfirbuga þessi öfl hefði flokknum og ríkinu verið bjargað frá miklum voða. Ein af syndum þessara aðila sagði Ye að hefði verið sú að boða að snillingar ættu að ákveða allt, og slíkir menn krefðust skilyrðis- lausrar undirgefni og þótti frétta- mönnum sýnt að þarna væri sneitt að Mao, enda bætti hann við að enginn maður væri guð.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.