Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 28 Vetrarstarf KFUM ogKFUK að hefjast UM ÞESSAR mundir er að hefjast í Reykjavík og nágrenni vetrarstarf KFUM og KFUK, en sennilega þekkja flest born og unglingar þessar skamm- stafanir, annað hvort af eigin reynslu eða afspurn. Félögin starfa i vetur á 12 stöðum á höfuðborgarsvæðinu i yfir 40 deildum, sem flestar hafa fundi vikulega allan veturinn, en þau vinna að útbreiðslu fagnaðarer- indisins um Jesúm Krist. Fyrir 9—12 ára börn hafa félögin svonefndar yngri deildir og eru þær sniðnar við hæfi barna. A fundum skiptast á sögur, söngvar, leikir, leikþættir, myndasýningar og fleira eftir því sem aðstæður leyfa á hverj- um stað, svo þar er líf og fjör á fundum. Eru þeir ýmist haldnir á laugardagsmorgnum eða síð- degis virka daga. Unglingadeildir eru ætlaðar 13 ára og eldri og halda þær fundi sína á kvöldin. Um þessar mundir er verið að dreifa í skóla kynningarblaði um starf ungl- ingadeildanna, en þar segir m.a.: „Hver unglingadeild KFUM og K heldur fundi vikulega. Þar er alltaf eitthvað skemmti- eða fræðsluefni, sungið eins og háls- ar fóiks á þessum aldri þola og kvöldið endað með stuttri hug- leiðingu úr Biblíunni. Auk þess- ara funda eru oft kvöldvökur, sameiginlegir fundir deilda, ferðalög, mót milli deilda o.fl. Þá eiga unglingadeildir KFUM skála við Hafravatn og er hann óspart notaður til helgarferða eða styttri ferða hópa úr deild- unum.“ Þá má geta þess að unglinga- deildirnar efna til reiðhjólaralls hinn 6. október n.k. Félagsstarf K.F.U.M. og K.F.U.K. er ekki afþreying án innihalds, heldur er það tilboð til barna og unglinga um kristilegt félagsstarf þar sem tækifæri A Blnö unfilinondpildfl KFUMttK Gefið hefur verið út kynningar- blað um unglingadeildir félag- anna. gefst til þess að ræða mikilvæg- ustu spurningar lífsins og kynn- ast svari kristinnar trúar við þeim. í félagsstarfinu, sérstak- lega meðal unglinga, fá þátttak- endur æfingu í að tjá sig, draga ályktanir og taka sjálfstæðar ákvarðanir. Þau taka sjálf þátt í dagskrárgerð og undirbúningi, koma fram með efni og gefa jafnvel út blað fyrir sína deild. Þau finna að þau hafa áhrif á gang mála í deildarstarfinu og öðlast þannig vaxandi ábyrgðar- tilfinningu og leggja um leið grundvöll, sem er mikilvægur hverjum einstaklingi í frjálsu þjóðfélagi. I vetur munu hátt á annað hundrað leiðbeinendur taka þátt í starfi félaganna, sem er allt unnið í sjálfboðavinnu. (Fréttatilk.) Baðherbergísskápar Glæsilegír baðskápar Margar gerðir og stærðir Byggingavörur Sambandsins Suðurlandsbraut 32 • Símar 82033 82180 SÁÁ SÁÁ AÐALFUNDUR Samtaka áhugafólks um áfengisvandamáliö veröur haldinn miövikudaginn 3. október n.k. og hefst kl. 20.30. Fundarstaður: Súlnasalur, Hótel Saga. Dagskrá: 1. Venjuleg aöalfundarstörf. 2. Panelumræöur meö þátttöku fulltrúa hinna ýmsu starfssviða SÁÁ. Félagsmenn eru hvattir til aö mæta stundvíslega. Stjórnin. SAMTÖK ÁHUGAF0LKS UM ÁFENGIS VANDAMÁLIÐ Lágmúla 9, sími 82399. Nýtt — Nýtt Pils, blússur, fjölbreytt úrvai. Glugginn, Laugavegi 49.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.