Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 3 Flensborgarskóli; Nemendur lausráðnir til fjarvista- skráninga „VIÐ HÖFUM 8Ótt um það til bæjarráðs Hafnarfjarðar, að fá heimild til að lausráða 3 — 4 nemendur til fjarvistaskráninga hjá okkur, eins og við reyndar höfum gert undanfarin ár,“ sagði Kristján Bersi ólafsson, skóla- meistari i Flensborgarskóla, í samtali við Morgunblaðið. „Starfið felst fyrst og fremst í því að nemendurnir fara yfir fjarvistaskrár kennara og færa þær inn í heildarskrá þannig að til sé á einum stað nákvæm skráning viðkomandi nemanda, en þetta er nauðsynlegt þegar um svonefnda áfangaskóla er að ræða. Þetta er því einföld skrifstofuvinna. Nem- endurnir vinna tveir og tveir saman til skiptis, annar les fyrir og hinn færir inn. Við reiknum með að þetta sé nálægt því að vera 15 klukkustunda vinna á viku,“ sagði Kristján Bersi ennfremur. Aðspurður hvers vegna þeir vildu fá nemendur til starfans sagði Kristján Bersi það hafa gefist mjög vel til þessa, einfald- lega vegna þess að nemendurnir vissu manna bezt um hvað málið snerist. Utanaðkomandi fólk þyrfti að fá nokkurn aðlögunar- tíma fyrir starfið. — Þá gat Kristján Bersi þess að hann vissi til þess að sami háttur væri hafður á í fleiri áfangaskólum. Fleiri rjúpur Húsavik. 29. september. ÚTLIT er fyrir fleiri rjúpur í ár en í fyrra. Varpið í vor gekk mjög seint og hafa ungar sézt ófleygir fram eftir sumri. Sumir vilja friða rjúpuna lengra fram á haustið en verið hefur, en veiði hefur hafizt hinn 15. október ár hvert. Tala rjúpnaskyttur um ungadráp hefjist veiðin á venju- legum tíma. Tjörnesfjallgarður- inn var friðaður í fyrra fyrir skotmönnum og er þess vænst að svo verði einnig í ár. — Fréttaritari. SAGT er að nýlega hafi verið auglýst starf bílstjóra mennta- málaráðherra. Umsækjendur voru tveir. Annar hafði bílpróf, hinn stúdentspróf. Stúdentinn hlaut stöðuna; hann hefði meiri menntun ef hann lyki bilprófi. Sumarsýning- r unni í Asgríms- safni að ljúka SUMARSÝNINGIN í Ásgríms- safni sem opnuð var 27. maí s.l. stendur aðeins yfir i 4 daga ennþá. Lýkur henni sunnudaginn 7. október. Safnið verður þá lokað um tima meðan komið verður fyrir haustsýningu þess. Sumarsýningin er yfirlitssýning á verkum Ásgríms Jónssonar, sem hann málaði á hálfrar aldar tíma- bili. Margt erlendra gesta skoðaði sýninguna á þessu sumri. Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74, er opið sunnudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 1.30—4. Aðgangur ókeypis. Hádegisfundur presta Hádegisfundur presta er í Nor- ræna húsinu á mánudag. Pétur H. Blöndal, forstjóri Lífeyrissjóðs verzlunarmanna: Er staða Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisinsof góð? Er staða Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins of góð? Eða hvers vegna nægja honum 19% vextir í 53% verðbólgu? í samræmi við Ólafslög og auglýsingu Seðlabankans um hækkun vaxta hafa flestir lífeyr- issjóðir landsins hækkað vexti á skuldabréfum til sjóðfélaga í tvígang úr u.þ.b. 26% í 32%. Sumir hafa tekið upp fulla verð- tryggingu á sínum lánum. Þó skera nokkrir sjóðir sig út úr. Það eru Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Lífeyrissjóður starfs- manna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður barnakennara, Lífeyrissjóður alþingismanna og Lífeyrissjóður hjúkrunarkvenna. Allir hafa sjóðir þessir fylgt þeirri stefnu að hafa vexti ætíð töluvert lægri en aðrir lífeyris- sjóðir. Þó keyrir um þverbak um þessar mundir, því vextir hjá Eða hvers vegna nægjahonum 19% vextir í 53% verðbölgu? þeim eru núna 19% á meðan verðbólgan er 53%. Nú vil ég gjarnan varpa fram þremur spurningum til stjórnar Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins. 1. Telur stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins sig geta gengið þvert á lög númer 13/1979 (Ólafslög) um stefnu- mótun í vaxtamálum? 2. Er staða sjóðsins slík, að hún leyfi 22% raunvexti og ef svo er, er þá nokkur þörf á milljarðagreiðslum árlega úr ríkissjóði (frá skattborgurum) til greiðslu á verðtryggingu lífeyrisgreiðslna frá sjóðnum. 3. Hefur staða sjóðsins verið tekin út í samræmi við 9. gr. laga um Lífeyrissjóð starfs- manna ríkisins og hver var niðurstaða síðustu úttektar og við hvaða forsendu var mið- að? (aðallega vaxtafor- senda?). I Ólafslögum er skírt tekið fram, að stefnt skuli að verð- tryggingu innlána og útlána. Þetta ákvæði hefur stjórn Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins hunsað hingað til. Óánægja sjóð- félaga annarra lífeyrissjóða, sem greiða verða miklu hærri og hækkandi vexti, magnast óðum við þetta misræmi og er spurning, hvort aðrir lífeyrissjóðir telji sér fært að stefna að verðtryggingu frekar, ef ekki verður stefnu- breyting hjá opinberu sjóðunum. Á fjárlögum er gert ráð fyrir kr. 3.351 milljónum til greiðslu verðbóta á lífeyri hjá lífeyrissjóð- um ríkisins 1979. Árið 1978 greiddu skattborgarar þannig 76% af lífeyrisgreiðslum Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins og jafnvel 83% af lífeyrisgreiðslum Lífeyrissjóðs barnakennara. Manni verður á að hugsa, til hvers þessir sjóðir starfi. Starfa þeir bara til að lána (gefa) peninga með lágum vöxtum? Staða Lífeyrissjóðs starfs- manna ríkisins er slík, að 1978 voru iðgjöld aðeins 20% umfram lífeyrisgreiðslur og hjá barna- kennurum vantaði 28% á iðgjöld- in til að þau dygðu fyrir lífeyris- greiðslum. Og í þessari stöðu telja stjórnir þessara sjóða sér fært að lána einir sjóða með 19% vöxtum. Vænti ég þess að stjórn Lífeyr- issjóðs starfsmanna ríkisins svari þessum spurningum mínum opin- berlega sem fyrst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.