Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 23 Aðalfundur Skógræktarfélags fslands: Tímabært að efna til ræktunar nytjaskóga Á AÐALFUNDI Skógræktarfé- lags íslands, sem haldinn var fyrir nokkru, var aðal umræðu— og ályktunarefni um „Ár trésins 1980“, sem efnt er til á fimmtugs- afmæli félagsins í samvinnu við ýmis önnur samtök í landinu og var einnig rætt um skógrækt sem búgrein á völdum stöðum í land- inu. Steingrímur Hermannsson landbúnaðarráðherra flutti á fundinum ávarp og varpaði m.a. fram þeirri spurningu hvort ekki myndi tímabært að hefjast handa um skipulega ræktun nytjaskóga á völdum stöðum í landinu. Þá ræddi Sigurður Blöndal skógrækt- arstjóri um skógrækt í Skagafirði, minnti á sagnir og örnefni, er bentu til skóga þar fyrrum og sagði að nú væru í vexti þar allmargir fallegir reitir nýskóga. I skýrslu Jónasar Jónssonar formanns félagsins og Snorra Sig- urðssonar framkvæmdastjóra þess kom fram að allmikið starf var innt af hendi sl. starfsár. Ræddi formaðurinn um land- græðsluáætlun þá, sem starfað er eftir til 1980 og fagnaði hann ummælum ráðherra um ræktun nytjaskóga. Kvað hann viðamesta verkefni félagsins á þessu ári hafa verið undirbúning fyrir „Ár trés- ins“. Snorri Sigurðsson ræddi m.a. um leiðbeiningarstarfið sem hann taldi þó of lítið og taldi að brýnt væri að koma upp vinnuflokkum til grisjunar. Kvað hann gróður- settar hafa verið kringum 300 þúsund trjáplöntur á vegum félag- anna sl. ár og væri það helmingur allrar gróðursetningar skógar- plantna í landinu. Á fundinum var samþykkt ályktun um skógarbúskap og taiið að nú sé fengin nægjanleg reynsla til að byggja á um ræktun skóga á bersvæði, t.d. Fljótsdal og því sé tímabært að efna til slíkrar rækt- unar nytjaskóga þar sem skógur getur vaxið til nytja á 15—20 árum. Þá var samþykkt ályktun um sinubruna, skaða hans, hættur og afleiðingar og hvatt til meira eftirlits og betri fræðslu um með- ferð elds á víðavangi. Fleiri álykt- anir voru samþykktar m.a. hvatn- ing til allra um að koma til liðs við skógrækt og trjárækt á „Ári trésins". MYNDAMÓTHF. AÐAISTRXTI • — KCTKJAVMC PKENTMTNOACCAO OfFSET-FILMUK OC PLOTUK SIMI 1T1SJ AUGLÝSINGATEIKNISTOf A SlMI 2SI10 Sendinefndin frá Gelsenkirchen með vestur-þýska sendiherranum íslandi og móttökunefnd Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Fulltriíar Gelsenkirchenborgar í V-Þýskalandi: Heimsækja sunnlenska sveitarstjórnarmenn DAGANA 8. til 11. ágúst voru staddir hér á landi i boði Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga fulltrúar Gelsenkirchenborgar í V-Þýskalandi. Gelsenkirchen er 350.000 manna borg í miðju Ruhrhérað- inu og hafa samtökin tekið upp sérstakt samband við borgaryfir- völd þar, i þeim tilgangi að efla samskipti viðskiptalegs og menn- ingarlegs eðlis milli Suðurlands og Ruhrhéraðsi ns. I sendinefnd Gelsenkirchen voru dr. Meya yfirborgarstjóri, E. Rossa forseti borgarstjórnar, G. Vollmer talsmaður kristilegra demókrata í borgarstjórn og þing- maður í Ríkisþinginu í Bonn, A. Scháfer frkvstj. DKG Denzinger, M. Konietzni frkvstj. Telaco, W. Bölzle frkvstj. Frölich & Klupfel og J. Meister hagfræðingur. Sendinefndin sat fund í Byggða- deild Framkvæmdastofnunar og átti viðræður við forustumann Sambands íslenskra sveitarfélaga. Þá fóru fram ítarlegar viðræður Gelsenkirchen manna og stjórnar- manna og annarra fulltrúa Sam- taka sunnlenskra sveitarfélaga og haldinn var fundur að Flúðum með sveitarstjórnamönnum á Suð- urlandi og fulltrúum atvinnu- rekstrar og viðskipta. í frétt frá Samtökum sunnlenskra sveitarfé- laga segir að þessir fundir hafi verið mjög gagnlegir og fram hafi komið ýmsar hugmyndir á sviði viðskipta- og tæknisamstarfs, sem rætt hafi verið ítarlega um og ályktað um framhaldsathuganir beggja aðila á þessum hugmynd- um. Sendinefndin sat - hádegisverð- arboð félagsmálaráðherra, Magnúsar H. Magnússonar, síð- asta dag heimsóknarinnar. í frétt frá samtökunum segir að um leið og þau fagni undirtektum ráð- herra, sé iátin í ljós ósk um stuðning stjórnvalda í framtíðinni við þessa viðleitni samtakanna til aukinna tengsla og viðskipta við Ruhrhérað í V-Þýskalandi, eins þéttbýlasta og fjölmennasta byggðakjarna í Evrópu og þar sem tækniþekking sé á mjög háu stigi og gera megi ráð fyrir að góðan markað sé að finna fyrir ýmsar framleiðsluvörur íslendinga. Ákveðið var að skipa þriggja manna nefndir í hvoru landi til að vinna áfram að þróun hugmynda og leita nýrra leiða ti%eflingar samstarfs og viðskipta. í nefnd Gelsenkirchen sitja: dr. Maya yfirborgarstjóri, A. Scháfer frkv.- stj. og Neinhaus fulltrúi iðnaðar- og verzlunarráðs Gelsenkirchen og nágrennis. Skipað verður í sunnlensku nefndina á næstunni. r eftir ár. Og það er allegum snjóhvítum tja þurrkara ofan á mnig gólfrými. Væntan- mdum við á okkar ága'tu uk þess sem við segjum ynslu þeirra, sem eiga og jttavélar og þurrkara viðl hafa notað Philco með goðum árang - heimilistæki hf HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTUN 8 — 15655

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.