Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.09.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 „Hækkunin í áttina” segir Sigurður Helgason um 399$ fargjald á Atlantshafsleiðinni FLUGLEIÐIR auglýsa um þessar mundir í New York Times að vetrarfargjöldin hjá þeim á milli Bandarikjanna og Evrópu fram og til baka séu 399 dollarar frá 1. október til 14. maí næsta ár, en fargjaldið á þessari leið s.l. vetur var 299 dollarar. í viðtali í gær við Sigurð Helgason forstjóra Flugleiða sagði hann að hækkunin væri samkvæmt almennum hækkunum á öllum fargjöldum og miðuð við hækkanir hjá öðrum flugfélögum á þessari flugleið. Sigurður sagði að Flugleiðir væru ennþá með lægstu fargjöldin á flugleiðinni miðað við kjör, en hann kvað fargjöldin á þessari leið undir miklum þrýstingi og þyrftu þau að vera hærri. „Þessi hækkun er aðeins í áttina, en hún er ekki nægilega mikil,“ sagði Sigurður. I auglýsingunni í New York Times er hafin auglýsing á Ice- landair-nafninu. Þannig leit Húsavíkurf jall út á föstudaginn og hefur svona verið mikinn hluta mánaðarins, hvítt milli fjalls og fjöru. Allt var gaddfrosið en þá var spáð hlýnandi veðri og rigningu, svo fjallið mun geta breytt um svip, en brúnin á bændum mun lítið lyftast ef rigning ætlar að fylgja sunnanáttinni, en það er ekki vanalegt, heldur þurrt og bjart veður. Ljósmynd Mbl. Abbi Sagói af sér formennsku í bókaútgefenda Félagi Á FUNDI Félags ísl. bókaútgef- enda í fyrradag gerðist það að Arnbjörn Kristinsson formaður félagsins sagði af sér starfinu. Var það í framhaldi atkvæða- greiðslu þar sem fjallað var um umsókn stórverzlunar i Reykja- vík um bóksöluleyfi. Kvaðst Arn- björn þeirrar skoðunar að veita ætti leyfið og ná þar með til fleiri bókakaupenda en áður, en tillag- an var felld á fundinum með litlum atkvæðamun. Sagði þá Arnbjörn af sér öllum störfum fyrir félagið, en kvaðst áfram vera í félaginu og hlíta lögum þess og reglum. BLOM OG ROMANTIK 'IiI/Vvlí'Wt \ IIH 50 ára afmœlissýning að Hótel Loftleiðum, laugardagirm 29. september, surmudagirm 30. september Dagsskrá báða dagana Opin blómavinnustofa kl. 10 - 12 f.h. Tilsögn í blómaskreytingum fyrir almerming. Sérstakur blómaveislumatseðill kl. 12 - 14 og kl. 18:30 í Blómasal hótelsins. „Blóm í hárið“ kl. 14 og 19 og 21 Hárgreiðslusýning með blómaívafi Elsa Haraldsdóttir, Salon VEH „Hausttískan 1979“ kl. 14:25 og 19:20 og 21:30 Marta Bjamadóttir, versl. EVA SnyrtistMaja, Ingibjörg Dalberg Blómaskreytingar úr þurrkuðum blómum kl. 15:30 og 20:00 Skreytingar frá Erik Bering, KaupmMfn og Hendrik Bemdsen, Blóm & Ávextir Guðrún Á. Símonar kl. 20:3Q Undirleik arniast Ami Elfar Blómahöldur frá 18. öld úr safni Eriks Bering Pétur Friðrik, listmálari, sýrtir blómamyndir Blómamarkaður Þurrkuð og lifandi blóm á sérstöku blómatorgi Kynning Interflora Hr. J. Stampe OPIÐ FRÁ 10 f.h. til 23:00 báða dagana Aðgangseyrir: 1500 krónur. Grunurum íkveikju Á FJÓRÐA tímanum í fyrrinótt kom upp eldur í trébrettum og rusli á baklóð hússins Skipholt 37 i Reykjavík. Logaði glatt þegar slökkviliðið kom á vett- vang en það gekk vasklega fram við slökkvistarfið og tókst fljót- lega að ráða niðurlögum eldsins. Eldurinn hafði komizt í vegg hússins og þak og urðu talsverðar skemmdir á því en innanhúss urðu sáralitlar skemmdir. I mestri hættu voru fyrirtækin Verzlunar- sambandið og Henson-sportfatn- aður. Grunur leikur á því að eldur hafi verið borinn að húsinu. Myndin sýnir rannsóknarlög- reglumenn að störfum á bruna- stað í gær. Ljósm. Mbl. ÓI.K. Mag. Verzlunin Hagkaup í Reykjavík hefur þrisvar sótt um bóksöluleyfi og hefur umsóknin í öll skiptin verið felld á félagsfundum Félags ísl. bókaútgefenda og með minnst- um mun í fyrradag. Sagði Arn- björn Kristinsson það skoðun sína og margra annarra bókaútgefenda að stórverzlun næði til fleira fólks en keypti bækur í dag og ætti því aðallega að verða um viðbótarbók- sölu að ræða. Því þætti sér ástæða til að fara þessa leið, enda væri hún tíðkuð erlendis og væri ekki óeðlilegt að íslenzkir bókaútgef- endur notfærðu sér erlendar hug- myndir. Taldi Arnbjörn að and- staðan við þessa hugmynd kæmi einkum frá þeim útgefendum, sem í tengslum við útgáfu sína rækju einnig bókaverzlun og vildu halda bóksölu innan hinna hefðbundnu verzlana svo sem verið hefði. Félag ísl. bókaútgefenda hefur að sögn Arnbjörns gert sér far um að veita ekki of mörgum aðilum bóksöluleyfi og ekki viljað stað- setja bókaverzlanir of þétt, en hér væri um nýja leið að ræða, sem ekki hefði áður verið reynd hér- lendis. Eftir úrslit atkvæðágreiðslunn- ar, þar sem umsókn Hagkaups var hafnað, sagði Arnbjörn af sér starfi formanns og kvaðst ekki vilja starfa fyrir félag þegar meirihluti þess vildi fylgja stefnu, sem andstæð væri hagsmunum bókaútgefenda. Arnbjörn Krist- insson hefur setið í stjórn Félags ísl. bókaútgefenda í 25 ár. Vara- formaður er Böðvar Pétursson og tekur hann við störfum til næsta aðalfundar. Dr. Jóhann- es formaður í myndatexta á miðopnu Mbl. í gær þar sem greint var frá skýrslu olíuviðskiptanefndar féllu niður nöfn tveggja nefndarmanna, for- mannsins, dr. Jóhannesar Nor- dals, og Vals Arnþórssonar, og biðst blaðið velvirðingar á því. INNLENT Fyrirlestur um fjarkönnun við kortagerð FYRIRLESTUR verður fluttur á vegum Landfræðifélagsins í Árna- garði stofu 201 kl. 20.30 á mánu- dagskvöld. Fyrirlesari er Gylfi Már Guðbergsson og nefnir hann fyrirlesturinn fjarkönnun og gróð- urkortagerð. Sjöfn segir af sér í félagsmálaráði SJÖFN Sigurbjörnsdóttir borgar- fulltrúi hefur sagt af sér í félags- málaráði borgarinnar, en ekki náðist í Sjöfn í gær til þess að kanna hvaða ástæður liggja að baki afsögninni. Þar með mun Sjöfn víkja úr stjórn dagvistun- arstofnana í Reykjavík. Miklar deilur hafa verið um það milli fulltrúa meirihlutans í borgar- stjórn hvernig skipta eigi sætum fulltrúa í hinar ýmsu nefndir og ráð og m.a. hafá þær Guðrún Helgadóttir og Gerður Steinþórs- dóttir haldið því fast fram að Gerður eigi að taka sæti Sjafnar í stjórn dagvistunarstofnana.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.