Morgunblaðið - 30.09.1979, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979
5
Sjónvarp í kvöld kl. 21.05:
Utvarp í kvöld kl. 19.25:
Mótmœlaaðgerðir
í fátœkrahverfinu
íþœttinum Seðlaspil
Bandaríski fram-
haldsmyndaflokkurinn
Seðlaspil er á dagskrá
sjónvarpsins í kvöld
klukkan 21.05. Verður þá
.sýndur annar þátturinn af
fjórum, en þeir eru byggð-
ir á skaldsögu rithöfund-
arins Arthurs Hailey.
Bókin kom út í íslenskri
þýðingu fyrir fáum árum,
og nefndist hún þá Banka-
hneykslið. Meðal þeirra
sem fara með hlutverk í
sjónvarpsþáttunum eru
þeir Kirk Douglas og
Christopher Plummer, en
einnig kemur fram fjöldi
annarra þekktra leikara.
Efni fyrsta þáttar var í
megindráttum á þessa
leið:
Aðalbankastjóri í New'
York tilkynnir, að hann sé
haldinn ólæknandi
krabbameini og ævi hans
senn á enda. Hann leggur
til að annar tveggja að-
stoðarbankastjóra verði
eftirmaður hans og
bankaráð eigi að ákveða
hvor það verður.
Annar aðstoðarbanka-
stjóranna, Roscoe Hay-
ward, rær að því öllum
árum, að hann verði val-
inn, enda veitist honum
erfitt að lifa á launum
sínum. Hann gefur m.a. í
skyn, að sitthvað sé at-
hugavert við hjónaband
keppinautarins, Alex
Vandervoorts. Einn gjald-
kera bankans tilkynnir að
fé vanti í kassann hjá sér.
Þegar málið er rannsakað,
berast böndin að yfir-
manni gjaldkerans, Miles
Eastin, og hann er dæmd-
ur til fangelsisvistar.
í þættinum í kvöld mun
einnig draga til tíðinda.
Meðal annars verður
skorin niður fjárveiting
til húsbygginga í fátækra-
hverfinu, sem svo aftur
verður til þess að íbúar
hverfisins missa þolin-
mæðina og skipuleggja
mótmælaaðgerðir. . ..
Bandaríski kvikmyndaleikarinn Kirk Douglas leikur eitt aðalhlut-
verkið i sjónvarpsþættinum Seðlaspil sem sýndur verður í kvöld í
annað sinn. Hér er leikarinn ásamt konu sinni Anne Brydens, á
næturklúbhi i Hollywood.
Popphljómsveitin Police, eða Lögreglan, leikur í sjón-
varpi í kvöld og hefst þáttur hljómsveitarinnar klukkan
22.25.
Gunnar Björnsson
Lúðvík Jósepsson
Þorsteinn Pálsson
Er kreppa
framundan?
Þátturinn „Umræð-
ur á sunnudagskvöldi“
verður á dagskrá út-
varpsins í kvöld kl.
19.25. Þetta er um-
ræðuþáttur þar sem
fjallað er um ótta fólks
við atvinnuleysi og
framtíðina og tekið er
fyrir núverandi ástand
launa- og efnahags-
mála. Leitað verður
svara við spurning-
unni hvort kreppa sé
framundan.
I umræðunum taka
þátt Gunnar Björnsson,
formaður Meistarasam-
bands byggingar-
manna, Lúðvík Jóseps-
son alþm. og Þorsteinn
Pálsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands.
Einnig er leitað svara
við nokkrum spurning-
um hjá Haraldi Ólafs-
syni dósent, Hjálmari
Jónssyni, form. Málara-
félags Reykjavíkur, og
Steini Lárussyni, form.
Isl. ferðaskrifst.
Stjórnendur um-
ræðnanna eru blaða-
mennirnir Fríða
Proppé og Halldór
Reynisson. Þátturinn
stendur yfir í rúman
klukkutíma.
kr. 118.000-
25.-29. okt.
Löng og góð helgi í Dublin
(fimmtudagur til mánudagskvölds)
Golfunnendur reka smiðshöggið
á vertíðina með heimsókn á iða
græna golfvelli írlands. sem
þykja með þeim bestu í heimi.
afsláttur fyrir hópa m/ 10 manns eða fleiri
írska pundið um 10%
hagstæðara en það
breska og afsláttur fyrir
Islendinga í mörgum stærstu
verslunum Dublinborgar.
írsku krárnar og
hinn margrómaði
bjór heimamanna
á hverju götuhorni
Innifalið í verði flug, hótel m/morgunverði og íslensk fararstjórn,
sem m. a skipuleggur skoðunarferðir um borgina og vísar tón-
listarunnendum á frábær írsk þjóðlagakvöld.
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - simar 27077 og 28899