Morgunblaðið - 30.09.1979, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979
7
Jón S. Magnússon í Stykkis-
hólmi skrifar mér elskulegt og
uppörvandi bréf, sem ég er hon-
um mjög þakklátur fyrir. Hann
hefur orðið við þeirri ósk minni
að skýra frá skilningi sínum á
orðinu örverpi, og um það farast
honum orð á þessa leið:
„Þér er í mun að fá að vita,
hvaða skilning menn leggja í
orðið örverpi. Eg er nú kominn á
sextugsaldur, en sem ungur
maður fékk ég þann skilning á
orðinu, að það merkti afkvæmi,
sem væri lítið, pervisið, óásjá-
legt o.fl. Jafnframt hefur mér
skilist, að örverpi geti allt eins
verið einbirni eins og síðasta
barn í systkinahópi."
Þessu til staðfestingar tilfærir
Jón vísu, sem hann vill ekki
birta, og nú er að vita hvort
fleiri hafa eitthvað til málanna
að leggja um merkingu marg-
nefnds örverpis.
Margar þjóðsögur ganga af
Sigurði skólameistara. Ein er sú
að við hann hafi verið sagt í
Hafnarháskóla, er fundið var að
framburði hans í dönsku máli:
„De lægger betoningen forkert."
En hann á að hafa svarað: „Ha,
lægger jeg betoningen forkert,"
og hvergi brugðið af íslenskum
áherslulögmálum.
Því rifja ég þetta upp, að mér
hefur oft heyrst undanfarið að
margir Islendingar leggi nú
„betoningen forkert", þ.e.
áhersluþungi í máli þeirra komi
með ýmsum hætti í skakkan stað
niður. Nokkur dæmi úr útvarps-
viðtölum við menn í æðstu stöð-
um: OlíuverðshækkunUM,
aðhaldsaðgerðlR, í þessu
sambandl, verðlagsvísitölU,
næsta kjörtímabil.
Þetta eru aðeins örfá dæmi af
mörgum, enda ber nú flest að
sama brunni um það að taka
verði upp markvissa talkennslu í
skólum, ef við á annað borð
viljum varðveita framburðarsér-
kenni máls okkar.
Enn minnist ég á staglið.
Óskólagenginn en lærður verka-
maður á Akureyri kom til mín
og sagðist hafa hrokkið við,
þegar „okkar maður í Gauta-
borg“, langskólagenginn maður,
hefði talað um afstöðu sænskra
stjórnmálamanna til landvarna
landsins. Ég heyrði þetta líka
mér til hrellingar.
Lýsingarorðið miður, sbr. t.d.
miður morgunn, stigbreytist
ekki, af því að það er ekki hægt
að vera „miðjari" en í miðjunni.
Því læt ég mér ekki skiljast að
fleiri en ein miðja geti verið í
sama fyrirbærinu. En ef mig
misminnir ekki stórlega var þess
getið í veðurfregnum í sjónvarpi
ekki fyrir löngu að tvær
lægðarmiðjur væru í sömu
lægðinni, og bregður þá aftur
fyrir smá staglstílnum og þegar
rætt var um landvarnir landsins.
En merking orðsins miðja er þá
önnur en mér finnst, ef tvær
miðjur geta verið í sömu lægð-
inni. Fyrir mörgum árum var
hlegið að þjóðkunnum ágætis-
manni sem sagði: „í þessu máli
eru tvær þungamiðjur og báðar
grímuklæddar."
Ég sá í Vísi um daginn nýyrði,
sem mér þótti skrýtið. Maður
nokkur var titlaður örorkuþegi.
Ég ímynda mér að maðurinn sé
öryrki og geti því ekki unnið. En
ef kalla ætti slíka menn
örorkuþega, skilst mér að sjúkl-
ingar séu þá sjúkdómsþegar og
gamalmenni elliþegar eða öldr-
unarþegar, fangar ófrelsisþegar
og vitfirringar brjálæðisþegar.
Hlymrekur handan kvað (með
hortittinn í fyrstu braglínu):
Um Jónatan satt eitt ég segi:
i sextíu ár stýrði hann fleyi
og með saumnálabrík
heima i Salthólmavík
er hann áttræður örorkuþegi.
Enn er frá því að segja að
Kurt Sonnenfeld á Akureyri
hefur vakið athygli mína á aug-
lýsingu sem víða hefur birst
undanfarið. Þar er talað um
endurhæfingu þroskaheftra. Er
hægt að endurhæfa þá sem ekki
voru áður hæfir?
Innritun fer að Ijúka. Enn er þó hægt aö komast aö, einkum í
byrjendaflokka bæöi fulloröinna og yngri. Innritun laugardag og
sunnudag í síma 85752, en næstu daga í skólanum, Háteigsvegi 6,
kl. 5—7 daglega, sími 27015,. Upplýsingasími á öörum tíma er
85752. Námskeiöið stendur fram undir jól. Kvöldtímar fulloröinna.
Hljóöfæri á staönum. Hringdu bara strax.
handbækur
umá§
Al- Samskeyting.
Leiðbeiningarrit um aðferðir til samskeytinga á áli.
I ritinu er fjallað um ýmsar aðferðir við samskeytingu á
áli: Hnoðun, skrúfun, límingu og lóöningu. Einnig
ýmsar aðferðirvið álsuöu.
Ál- Suöuhandbók TIG - MIG.
Handbók um TIG - MIG suðu.
Hentugar kennslubækur fyrir iðnnema og sem hand-
bækur fyrir málmiðnaðarmenn og hönnuði.
Verð hvorrar bókar er kr. 1000 - Bækurnar fást i Bóka-
verslun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabúö Olivers
Steins.
skon luminium
Norræn samtök Áliönaöarins
skon#*. lumimum
ÁL
Samskeyting
íænoaosyngja
Kórskóli
Pólýfónkórsins
10 vikna námskeið hefst í byrjun október. Kennt
verður 2 stundir í senn eitt kvöld í viku:
Raddþjálfun, æfingar í tónheyrn og nótnalestri.
Umsjón með námsskeiðinu hefur söngstjóri
PÓLÝFÓNKÓRSINS Ingólfur Guðbrandsson.
Upplýsingar og innritun í símum 26611 á
skrifstofutíma og 43740/38955 á kvöldin. Nýir
umsækjendur, sem óska að starfa með Pólý-
fónkórnum í vetur gefi sig fram í sömu símum.
Pólýfónkórinn.
Þýskunámskeið Germaníu
Þýskunámskeið Germaníu hefjast í október. Kennt
verður í tveimur flokkum, fyrir byrjendur og fyrir þá
sem lengra eru komnir. Kennari veröur frú Annemar-
ie Edelstein. Væntanlegir nemendur komi í Háskól-
ann, 6. kennslustofu, mánudaginn 1. okt. kl. 20, til
innritunar og um leiö veröa gefnar nánari upplýs-
ingar. „
Germania
NÁMSTEFNA
NÁMSTEFNA UM
STARFSMANNASTJÓRN
Stjórnunarfélag Islands mun efna tll námstefnu um Starfsmannastjórn
flmmtudaglnn 11. október kl. 10 árdegis. Námstefnan veröur haldln að Hótel
Sögu og er dagskrá hennar sem hér seglr:
Setnlng námstefnunnar.
— Höröur Sigurgestsson formaöur SFÍ.
Sklpulag og verkefnl starfsmannadeilda.
— Mogens Bruun ráögjafi um starfsmannastjórn hjá Danska vinnuveitenda-
sambandinu. (Erindiö veröur flutt á ensku).
Starfsmannastjórn í framlelöslufyrirtæki.
— Jakob Möller vinnumálafulltrúi (SAL.
Starfsmannastjórn hjá Flugfélagl.
— Jón Júlíusson framkvæmdastjórl stjórnunarsvlös Flugleiöa hf.
Hádegisveröur.
Starfsmannastjórn í ríkisfyrlrtæki.
— Þorgelr K. Þorgeirsson framkvæmdastj. umsýsludeildar Pósts- og
símamálast.
Starfsmannastjórn hjá IMB
— Otto A. Michelsðn forstjóri IBM á íslandi.
Beitlng launakerfa viö starfsmannastjórn í verslunarfyrirtæki.
— Quölaugur Bergmann forstjóri Karnabæjar h.f.
Samskipti verkalýösfélaga og starfsmannadeilda.
— Quöjón Jónsson formaöur Félags járnlðnaöarmanna.
Hlutverk starfsmannafélaga.
— Páll Bergsson formaöur starfsmannafélags OLÍS.
Sálfræölleg próf við val á starfsfólki.
— Qylfl Ásmundsson sálfræöingur Klepsspítala.
Kaffl.
Menntun og þjálfun starfsmanna.
— Baldvin Einarsson starfsmannastjóri SlS.
Vlnnumarkaöurlnn
— Ólafur örn Haraldsson skrifstofustjóri Hagvangs hf.
Pallborösumræður
Áætlað er aö námstefnunni Ijúki um kl. 17.30.
Þátttaka tilkynnist til skrifstofu Stjórnunarfélagsins.
STJÓRNUNARFÉLAG
ÍSIANDS
Síöumúla 23 — Sími 82930