Morgunblaðið - 30.09.1979, Síða 20

Morgunblaðið - 30.09.1979, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 Guðmimdur Erlendsson trésmiður —Minning Fæddur 21. ágúst 1888. Dáinn 19. september 1979. Á morgun, mánudaginn 1. okt., verður Guðmundur J. Erlendsson trésmiður, Nönnugötu 12, kvaddur hinztu kveðju frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Hann var fæddur að Innra-Hólmi í Akraneshreppi hinn 21. ágúst 1888 og voru for- eldrar hans hjónin Rósa Guðmundsdóttir, ættuð að Álfta- nesi og Erlendur Helgason, Borg- firðingur að ætt og uppruna. Hér verður ekki farið nánar út í ættfræði eða rekin ævisaga Guð- mundar. En mér er efst í huga þakklæti til forsjónarinnar fyrir að fá að njóta vináttu hans og tryggðar frá því ég kom í fyrsta sinn á heimili hans og konu hans, er ég var enn á unglingsaldri og til hinztu stundar hans. Mér duldist ekki umhyggjan og ástúðin, er hann sýndi konu sinni, er þá var farin að heilsu, og það var aðdáunarvert að fylgjast með því, hvernig hann lagði sig fram á alla lund að gera henni lífið sem bærilegast. Guðmundur var kvæntur Guðrúnu Finnbogadótt- ur, ættaðri frá ísafirði og hófu þau búskap árið 1918 að Njálsgötu 37 í Reykjavík. En síðar byggðu þau eigið hús að Nönnugötu 12 og fluttu þangað árið 1921. Þeim hjónum varð 7 barna auðið. Þeirra elstur var Gunnar Sverrir, en hann andaðist árið 1963, langt um aldur fram. Hann var kvæntur Bjarndísi Jónsdóttur og áttu þau 6 börn. Næst er Helga Stella, sem gift er Ásgeir Jónssyni og eiga þau 4 börn. Rósa Þórunn er gift Gunnari Gestssyni og eru börn þeirra einnig fjögur. Þá er Erlendur, kvæntur Ingu H. Jóns- dóttur og eiga þau 3 börn. Síðan er Elínborg, sem gift er Eyjólfi Tómassyni, en þau eiga 6 börn. Jón, kvæntur Vigdísi Jónsdóttur og eru þeirra börn 2. En yngstur er Finnbogi, kvæntur Vigdísi Viggósdóttur eru börn þeirra fjög- ur. En barnabörn Guðmundar eru nú orðin 36. Faðir Guðmundar, Erlendur Helgason, dvaldi á efri árum á heimili Guðmundar og Guðrúnar og naut þar einstakrar umhyggju og ástúðar. Ég get ekki óskað afkomendum Guðmundar annars betra í lífinu en að þeim auðnist að taka hann sér til fyrirmyndar. Hann hafði lært á langri og oft erfiðri ævi, að hamingjan er ekki föl fyrir fé, að hún verður ekki keypt fyrir gull og græna skóga. Hann hafði lært, að lífshamingjan felst í því að gefa af sjálfum sér, að gera fyrst og fremst kröfur til sjálfs sín en ekki til annarra. En þó fannst honum eðlilegt og sjálfsagt, að þjóðfélag- ið komi þeim, er lítils mega sín til hjálpar og að það styðji við bakið á þeim, sem hefja sig upp úr meðalmennskunni af dugnaði og iðjusemi. Á hinn bóginn þótti honum sem ýmsir opinberir styrk- ir, „þetta bótastúss", sem hann nefndi svo, ættu drýgri þátt í að letja fólk en hvetja til sjálfsbjarg- ar. Þá fannst honum einnig furðu- legt, að hátekjumenn skuli taka við t.d. barnabótum, eins og þurfa- menn væru. En sjálfur tók Guð- mundur aðeins hluta af þeim ellilífeyri, er hann átti rétt á að fá og þó ekki fyrr en hann varð að hætta að vinna vegna sjóndepru. Guðmundur Erlendsson varð fyrir þeirri sáru reynslu að missa móður sína, er hann var enn barn að aldri. Eftir lát hennar var hann ýmist með föður sínum eða honum var komið fyrir hjá vandalausum. Staðirnir voru ófáir, þar sem hann dvaldi fram á unglingsár. Það sýnir máske best, hversu vel hann var gerður til sálar og líkama, að hann braust áfram til manndóms og þroska af dugnaði, reglusemi og trúmennsku. Guðmundur lærði trésmíði hjá Kristjáni Teitssyni, er bjó á Bjargarstíg 6. Er námi lauk réðst hann til Sigurjóns Sigurðssonar, trésmiðs, í Lækjargötu 6 og vann þar næstu fjögur ár. Síðan vann hann hjá Flosa Sigurðssyni, bróð- ur Sigurjóns, en hann stofnaði síðar Rúllugerð Reykjavíkur. Hjá því fyrirtæki starfaði Guðmundur síðan í hart nær hálfa öld. Guðmundur átti eina hálfsyst- ur, Rósu Erlendínu og voru miklir kærleikar með þeim systkinum. Guðmundur var svo lánsamur að þurfa ekki að yfirgefa heimili sitt fyrr en rúmri viku fyrir andlátið, en hann lézt í Landa- kotsspítalanum hinn 19. sept. s.l. Þegar við kveðjum þennan látna heiðursmann, er okkur efst í huga þakklæti fyrir það, að honum varð að þeirri ósk sinni, að þurfa aldrei að vera öðrum til byrði, jafnvel ekki er heilsa og kraftar tóku að bresta. Að lokum eru hjartans þakkir færðar þeim, er léttu honum síðustu stundirnar og veittu hon- um líkn og hjúkrun, eins og best verður á kosið. I.H.J. Síöustu daga hefur fylgist meö og býöur ávailt þau teppi, sem í tízku eru hverju sinni auk J heföbundinna k L og sígildra tegunda. ]k bætt viö úrval sitt yfir 20 nýjum litum C gólfteppa. Á hefur aö jafnaði 30.000 fm lager þannig aö afgreiöslutíminn er eins skammur og hugsast k getur. • 20 manna sérhæft starfsliö er yöur ávallt til þjónustu. • Reyndir fagmenn annast lagn- ir teppanna. • Sölumenn meö góöa vöru- þekkingu, aöstoöa yöur viö teppavaliö. Sértu með parkett á gólfi, nú eða einlit teppi, sem lífga þarf upp á, þá býður Teppaland geysilegt úrval sérofinna teppa úr hreinni ull á betra verði en margur hyggur. Mjög góð sýningaraðstaða gefur við- skiptavinum möguleika á að skoða stöku teppin hvert fyrir sig við góða birtu. Nú eru nýju teppin ■ ■ ^ ^ komm fjr TEPPRLRNtU % f eru miklar líkur til aö þér finnið gólfteppi viö yöar smekk á hagstæöu veröi og meö hagstæðum afborgunarkjörum L eöa Á k staöqreiósluafslætti.^a ~ Vanti yöur teppi á stofu eöa stiga, herbergi eöa hol, skrifstofur eöa skóla, þá lítið viö í lEPPfíLRND! það getur L borgaö sig. Á .. ■ •. .* 'i Fyrir Þa sem pess oska ^ hefur Teppplrnd sýnishorn teppa af öllum geröum og sérpantar eftir óskum hvers og eins. Á

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.