Morgunblaðið - 30.09.1979, Page 26

Morgunblaðið - 30.09.1979, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. SEPTEMBER 1979 t Móölr okkar, GUOBJÖRG GESTSDÓTTIR, fré ísafiröi, verður Jarösungin frá Fossvogskirkju, mánudaginn 1. október kl. 10.30 f.h. Hanna og Björg Kristjánsdœtur. Jaröarför HARALDAR K. GÍSLASONAR verslunarmanns, Hraunteigs 24 R. fer fram frá Laugarneskirkju þriöjudaginn 2. október kl. 3 e.h. Sigríöur Björnsdóttir, Björn Haraldsson, Guöný Hallgrlmsdóttir, Ingibjörg St. Haraldsdóttir, Smári Ólason, Glsli R. Haraldsson, Guöbjörg A. Haraldsdóttir, Ingvar Ásgeirsson. t Eiginmaður minn, faöir, tengdafaöir og afi, ÞÓRIR BJÖRNSSON, trésmiöur, Skipasundi 10, Reykjavík, lézt f Landspítalanum sunnudaginn 23. september. Útför hins látna veröur gerö frá Fossvogskirkju þriöjudaginn 2. október kl. 3. Sigurjón Júlíusdóttir, Gunnar Þórisson, Guórún Friögeirsdóttir, Þórir og Geir Gunnarssynir. t Innilegar þakkir færum viö öllum þeim sem sýndu okkur samúö og vináttu viö andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóöur og ömmu. KARITASAR JÓHANNSDÓTTUR frá Sauöárkróki Sérstakar þakkir eru færöar starfsfólki á hjúkrunardeild Hrafnistu Reykjavík. Hilmar Björnsson, Sigrföur Gestsdóttir, Björgvin Björnsson, Erla Ásgeirsdóttir, börn og barnabörn. t Eiginmaöur minn, faöir okkar, tengdafaöir og afi KRISTÓFER JÓNSSON, Ljósheimum 20 verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriöjudaginn 2. október kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hans er bent á Sjálfsbjörg. Guórún S. Guómundsdóttir, Jón Oddur Kristófersson, Marfn E. Samúelsdóttir, Guömundur Krístófersson, Inga Jóhannsson og barnabörn. t HARALDUR S. GUDMUNDSSON stórkaupmaöur Spítalastfg 8, Reykjavík veröur jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík mánudaginn 1. október kl. 15. Sigurbjörg Bjarnadóttir, Harald G. Haraldsson, Elfsabet Gunnarsdóttir, Sólveig Haraldsdóttir Hart, Neil Hart, Sigrföur Haraldsdóttir, Sigurjón Sigurösson, Grfmur Haraldsson, Svava Axelsdóttir Sigrföur G. Benjamfn, og barnabörn. t Faöir okkar, afi og bróöir HREIÐAR ÓLAFSSON, Hofteigi 8, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 3. október kl. 1.30. Fyrir hönd barna, barnabarna og systkina Ragnhildur Hreiöarsdóttir, Rósa Björg Guölaugsdóttir, Hreiöar Bergur Hreiðarsson, Sandra Dögg Guölaugsdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Guölaug Ólafsdóttir, Guöjón Ólafsson. t innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa, JÓNS ÞÓRÐARSONAR, Hófgeröi 10, Kópavogi. Elísabet Hjálmarsdóttir, Elfsa J. Jónsdóttir, Þórir Davfösson, Guömundur G. Jónsson, Þóra Jónsdóttir, María H. Jónsdóttir, Daði E. Jónsson, Bára M. Eirfksdóttir, Guömundur H. Jónsson, Kristín Kristensen, og barnabörn. Ingimundur Guðmunds- son —Minningarorð Fæddur 12. nóvember 1892 Dáinn 21. september 1979 Því hefur verið haldið fram, að dauði gamals manns sem lokið hefur hlutverki sínu hér á jörðinni sé aðeins staðfesting á þeim lög- málum sem gilda um líf og dauða. Að sjálfsögðu verður hver og einn að beygja sig fyrir þeirri stað- reynd sem dauðinn er en óhjá- kvæmilega fylgir honum ætíð söknuður og eftirsjá, sérstaklega þegar um góðan vin og félaga er að ræða. Þegar ég kveð tengdaföður minn, Ingimund Guðmundsson, í síðasta sinn er mér efst í huga sár söknuður og jafnframt þakklæti fyrir allt sem hann hefur verið mér og fjölskyldu minni þau 26 ár sem kynni okkar hafa staðið. Ég get einnig fullyrt, að fáir menn sem ég hef kynnst hafa lagt sig meira fram en hann um að reyn- ast börnunum sínum sem besti faðir og síðar okkur tengdabörn- unum og fjölskyldum okkar sann- ur vinur og velgerðarmaður, enda má með sanni segja að síðustu ár ævi sinnar hafi hann eingöngu helgað líf sitt velferð okkar allra. Þess vegna skilur hann eftir sig djúp og varanleg spor í lífi okkar, hugljúfa minningu sem nær langt út yfir gröf og dauða. Ingimundur Guðmundsson var fæddur 12. nóv. 1892 að Garðhús- um í Grindavík. Hann var einka- barn foreldra sinna, Helgu Ólafs- dóttur, sem ættuð var frá Stokks- eyri, og Guðmundar Ólafssonar, sem átti ættir sínar að rekja til Bíldudals, en þau hjón bjuggu allan sinn búskap í Grindavík. Hann ólst upp hjá foreldrum sínum til fullorðinsára. Eftir að hafa lokið tilskildu skólanámi hneigðist hugur Ingimundar mjög að áframhaldandi menntun. Úr því gat þó ekki orðið sökum erfiðra heimilisaðstæðna þegar báðir foreldrar hans misstu heils- una á unga aldri og kom það því í hans hlut að sjá um heimilið. Hann reyndi þó að svala menntun- arþrá sinni með því að sækja námskeið í ýmsum fræðigreinum auk þeirrar sjálfsmenntunar sem hann aflaði sér með lestri góðra bóka og er mér sagt, að lestrarfíkn hans og viðleitni til aukinnar þekkingar hafi verið með eindæm- um. Þetta varð til þess að síðar þegar aðstæður leyfðu lagði hann land undir fót og fór til Skotlands í þeim tilgangi að afla sér náms í verslunarfræðum og ensku. Þeir sem til þekkja geta best um það dæmt hvílíkt stórræði það var ungum, efnalitlum manni að ráð- ast í slíkt fyrirtæki á tímum heimskreppunnar miklu og þeirr- ar fátæktar er henni fylgdi. En Ingimundur lét ekki hugfallast. Til þess að standa straum af kostnaði námsins stundaði hann vinnu við verslunarstörf á daginn og sótti síðan kvöldskóla í þeim greinum er hugur hans stóð til. Eftir komu sína aftur til íslands vann hann við verslunarstörf í Grindavík. Hann kvæntist 10. jan. 1931 Guðmundu Eiríksdóttur sem einn- ig var ættuð úr Grindavík og hófu þau búskap sinn þar. Eignuðust þau tvö börn sem komust til fullorðins ára. Þau eru: Helgi Guðmundur, skrifstofustjóri hjá Sölumiðstöð. hraðfrystihúsanna, kvæntur Birnu Þórðardóttur, og Rósa Eiríka, gift Halldóri Þor- steinssyni flugvirkja hjá Flugleið- um í New York. Eftir nokkurra ára búskap í Grindavík fluttust þau Guðmunda og Ingimundur til Reykjavíkur, þar sem þau bjuggu lengst af á Hverfisgötu 101. Eftir að til Reykjavíkur kom hélt Ingi- mundur áfram verslunarstörfum í nokkur ár eða þar til hann réðst sem starfsmaður í Sundhöll Reykjavíkur. Vann hann í Sund- höllinni þar til hann varð að láta af störfum fyrir aldurs sakir en þaðan munu eflaust fjölmargir Reykvíkingar kannast við hann. Ingimundur lét þó ekki staðar numið þó aldurinn færðist yfir. Allt til 85 ára aldurs starfaði hann við innheimtu og skrifstofustörf. Ingimundur var alla tíð heilsu- hraustur til líkama og sálar og sérstaklega ern þar til fyrir tveim- ur árum að hann varð að láta í minni pokann fyrir þeim sjúkdómi er að lokum dró hann til dauða. Til marks um líkamlegt þrek Ingi- mundar má taka það fram, að hann stundaði sund á hverjum degi fram að 85 ára aldri auk þess sem hann gerði sér far um að ganga mikið í stað þess að ferðast í bíl milli staða að hætti nútíma borgarans. Tengdafaðir minn fór ekki var- hluta af erfiðleikum þessa lífs fremur en aðrir dauðlegir menn. Átti þar stærstan hlut veikindi konu hans sem átti við vanheilsu að stríða í mörg ár. Henni reynd- ist Ingimundur slík stoð og stytta að vart varð betur á kosið. Fyrir það erum við aðstandendur henn- ar honum ævinlega þakklát og varðveitum minninguna um þá fórnfýsi hans og drengskap. Guð- munda andaðist eftir erfið veik- indi 8. febr. 1974 og var fráfall hennar honum þungt áfall á efri árum. Ingimundur var dulur og í orð- um grandvar sem gat komið ókunnugum til að halda að hann væri að eðlisfari fáskiptinn. En því fór víðs fjarri að svo væri, því þegar komið var inn úr skelinni var hann manna kátastur og hafsjór fróðleiks um menn og málefni að ekki sé talað um þegar talið barst að æskustöðvum hans, Grindavík, sem hann unni af heilum hug. Þegar hann nú leggur upp í sína hinstu för yfir móðuna miklu, þangað sem för okkar allra er að lokum heitið, óska ég honum góðrar ferðar og blessunar Guðs sem hann sjálfur trúði svo sterkt á. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Birna Þórðardóttir. Með tryggð tii máls og manna á mátt hins góða og sanna þú trúðlr traust og fast. Hér er nú starfsins endi. í teðrl stjórnarhendi er það, sem heitt i hug þú barst. Guð blessl lifs þins brautir þitt banastrið og þrautir og starfs þins mark og mið. Vlð hugsum til þin hljóðir. — Að hjarta sér vor móðir þig vefur fast og veitir frið. E. Ben. Þótt okkur barnabörnum hafi ekki brugðið við andlát afa okkar, Ingimundar Guðmundssonar, sem um margra mánaða skeið hafði legið sársjúkur á sjúkrahúsi, þá er ávallt sárt að missa ástvin, sér- staklega þann sem okkur var jafn mikils virði og hann. Við minn- umst þess, er við bjuggum öll í sama húsinu á Hverfisgötu 101, fjölskyldur okkar og afi og amma. Þá var hvert tækifæri notað til þess eins að vera í návist þeirra beggja. Við þökkum afa okkar fyrir samveruna og munum við ætíð minnast hans er góðs manns er getið. Kveðja. Barnabörn. Á morgun, mánudaginn 1. okt., verður jarðsunginn frá Fossvogs- kirkju Ingimundur Guðmundsson, Hverfisgötu 101. Ingimundur var fæddur að Garðhúsum í Grindavík 12. nóvember 1892 og voru foreldr- ar hans Helga Ólafsdóttir, ættuð frá Stokkseyri, og Guðmundur Ólafsson, ættaður frá Bíldudal. Ingimundur ólst upp einkabarn með foreldrum sínum í Grindavík. Snemma hneigðist hugurinn til náms en hann varð að láta sér nægja sjálfsmenntun og einstaka námskeið framan af, því foreldrar hans misstu fljótlega heilsu og þá kom það í hans hlut að vinna fyrir heimilinu. En Ingimundur geymdi sinn námsdraum, þar til aðstæður leyfðu og þá sigldi hann til Skotlands til náms í verzlunar- fræðum og ensku. Eftir heimkom- una starfaði hann við útgerð og verzlunarstörf í Grindavík og kom enskukunnátta hans sér oft vel, er erlend skip komu með vörur, og var Ingimundur þá sendur um borð. Ingimundur kvæntist konu sinni, Guðmundu Eiríksdóttur, 10. janúar 1931. Hún var dóttir Rósu Samúelsdóttur og Eiríks Guð- mundssonar frá Byggðarenda í Grindavík og hófu þau búskap í fæðingarplássi sínu. Þar fæddust þeim börnin, eitt andvana, en á lífi eru: Helgi Guðmundur, skrifstofu- stjóri, Reykjavík, og Rósa Eiríka, búsett í New York, gift undirrituð- um. Barnabörnin eru sex og barnabarnabörnin tvö. Árið 1939 fluttust þau til Reykjavíkur, festu kaup á húsinu Hverfisgötu 101 og bjuggu þar til æviloka, en Guðmunda andaðist 8. febrúar 1974 eftir löng og ströng veikindi og var það tengdaföður mínum þungt áfall á efri árum. Eftir að til Reykjavíkur kom stundaði Ingimundur verzlunar- störf, en hvarf frá því og gerðist túlkur hjá brezka hernum á árum seinni heimsstyrjaldarinnar og er því lauk gerðist hann starfsmaður Sundhallar Reykjavíkur og starf- aði þar meðan starfsaldur leyfði. Ekki lét Ingimundur staðar numið þar, því starfsgleðin og starfsork- an var mikil og eftir það starfaði hann við innheimtu og skrifstof- ustörf á meðan sjón og fætur leyfðu, eða til 85 ára aldurs, hjá Blikksmiðju Reykjavíkur og batzt mikil vinátta með honum og eigandanum, Sigurði H. Jónssyni, og fjölskyldu hans og munum við ávallt minnast þess með þakklæti. Ingimundur var prúðmenni, orðvar og hlédrægur, hann var sannur maður, sá persónuleiki, sem við öll myndum vilja vera. Hann vann öll sín störf af mikilli skyldurækni, var ábyggilegur og nákvæmur og óhætt var að fá honum penna í hönd, því rithöfnd hans var svo fögur að af bar. Það var hægt að ræða við hann um allt milli himins og jarðar, hann fylgdist vel með öllu og las mikið af góðum bókum, var minnugur mjög og lærðum við margt af hans frásögnum, sem við hefðum hvergi getað lesið um. Ingimundur sá um heimili sitt af miklum sóma, annaðist konu sína af drengskap og sá sinn námsdraum rætast á ný, er hann gaf börnum sínum það veganesti er hann áleit eitt af þeim beztu, góð menntun sem aldrei er frá tekin. Ingimundur var ekki bara tengdafaðir minn, heldur einnig vinur minn og ef við leituðum til hans, leysti hann eins vel og ljúflega úr málum okkar, eins og að við gerðum honum greiða, og var það honum mikið yndi að gleðja okkur öll. Við munum ávallt sakna hans mikið og þökkum honum allt sem hann gerði fyrir okkur en við skiljum öll, að þreyttum og þjáð- um er hvíldin kær. ég kveð Ingimund hér með með ljóði eftir föður minn: En hak við hafió hinum moxin heimur rís úr dauða dál læknuð heimsins sviða sárin sálin hvíld »g friði fegin. Guð blessi hai... ..... ÞáLmna framtíð. H. Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.