Morgunblaðið - 25.11.1979, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
Geir Hallgrímsson
á fundi í Njarðvík
GEIR Hallgrímsson formaður
Sjálfstæðisflokksins verður á al-
mennum fundi i Sjálfstæðishús-
inu í Njarðvík á þriðjudagskvöld-
ið klukkan 20.30.
Á fundinum mun Geir fjalla um
stefnu Sjálfstæðisflokksins í hin-
um ýmsu málaflokkum, og svara
spurningum fundarmanna.
Öllum er heimill aðgangur, en
sjálfstæðisfólk á Suðurnesjum er
sérstaklega hvatt til að fjölmenna.
Geir Hallgríms-
son á fundi um
viðskiptalífið
GEIR Hallgrímsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, mun kynna
stefnu Sjálfstæðisflokksins á
fundi Samtakanna viðskipti og
verzlun sem haldinn verður
næstkomandi þriðjudagsmorg-
unn klukkan 08.15 á Hótel Esju.
Athygli skal vakin á fundartím-
anum, sem er árdegis.
Á fundinum mun Geir Hall-
grímsson kynna stefnu Sjálfstæð-
isflokksins í verðlagsmálum,
gjaldeyrismálum, tollamálum,
skattamálum fyrirtækja og vaxta-
málum. Að lokinni framsögn mun
formaður Sjálfstæðisflokksins
svara fyrirspurnum fundar-
manna. Fundurinn er opinn öllum
félagsmönnum þeirra félaga og
samtaka, sem aðild eiga að Sam-
tökunum viðskipti og verzlun, en
þau eru: Verzlunarráð Islands,
Landssamband íslenskra verzlun-
armanna, Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur, Verzlunarbanki
íslands, Lífeyrissjóður verzlun-
armanna, Kaupmannasamtök
íslands, Félag íslenzkra stórkaup-
manna og Bílgreinasambandið.
Lágafellskirkja
opnuð á ný eftir
endurbætur
SUNNUDAGINN 25. nóvember
verður Lágafellskirkja opnuð á
ný eftir að fram hafa farið ýmsar
endurbætur og viðgerðir á henni.
Við hátíðarguðsþjónustu flytur
biskup íslands hr. Sigurbjörn
Einarsson ávarp og bæn, sr.
Birgir Ásgeirsson sóknarprestur
prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt sr. Gunnari Kristjánssyni
á Reynivöllum.
Framkvæmdir hófust í júní sl.
og hefur kirkjuskipið allt verið
klætt viði, söngloft stækkað og
styrkt, gólf endurnýjað að hluta
og teppalagt, raf- og hitakerfi
endurnýjað, sett upp nýtt hátal-
arakerfi, hvelfing lagfærð og mál-
uð og prédikunarstóllinn málaður
og yfirfarinn af Magnúsi Ingv-
arssyni. Kostnaður við verkið er
orðinn um 15 milljónir króna og er
þó enn ýmsu ólokið svo sem
lagfæringu forstofu og skrúðhúss
og verður unnið að því í vetur eftir
því sem aðstæður leyfa. Yfirsmið-
ur verksins var Hafsteinn Hjart-
arson, en sóknarnefnd sá um
framkvæmd verksins og er for-
maður hennar Kristján Þorgeirs-
son.
í kvöld verður kjörin á Hótel Sögu ungfrú ísland 1979, en tiu
stúlkur taka þátt í keppninni. Halldóra Björk Jónsdóttir,
ungfrú ísland 1978, krýnir ungfrú ísland 1979 og hefst keppnin
kl. 19 með borðhaldi. Dómnefnd skipa María Baldursdóttir
söngkona, Edda Andrésdóttir ritstjóri, ólafur Laufdal veitinga-
maður, Már Gunnarsson starfsmannastjóri og Einar Jónsson
forstöðumaður fegurðarsamkeppna á Islandi.
Mynd R.Th.
Stjórnendur með nokkrar af brúðunum, ömmuna og jólasveinana
Pottasleiki, Stekkjastaur og Gluggagægi. Á brúðunum halda
Hallveig Thorlacius, Erna Guðmarsdóttir og Helga Steffensen.
Jólasveinarmr í
Leikbrúðulandi
fimmta árið í röð
BRÚÐULEIKHÚSIÐ er orð-
inn fastur þáttur í leikhúslíf-
inu. Og á sama hátt er það
orðinn fastur siður í Leik-
brúðulandi að rétt fyrir jólin
er verkefni vetrarins sett til
hliðar og rykið dustað af
álfum, jólasveinum, Grýlu og
Leppalúða.
„Jólasveinar einn og átta“
verður nú sýnt fimmta árið í
röð. Það verður sýnt þessa
fjóra sunnudaga, sem nú eru
fram að jólum. Fyrsta sýning-
in verður í dag, sunnudag, 25.
nóvember, kl. 3.
Leikritið er byggt á kvæði
Jóhannesar úr Kötlum, og var
upphaflega samið fyrir leik-
ferð til Bandaríkjanna fyrir 5
árum. Síðan hafa jólasvein-
arnir gert víðreist bæði innan
lands og utan, fyrst fóru þeir
tvisvar til Bandaríkjanna,
síðan til Luxemburgar og þar
að auki hafa þeir komið víða
fram í nágrenni Reykjavíkur.
Jón Hjartarson samdi leik-
ritið og sá um leikstjórn.
Ýmsir þekktir leikarar hafa
léð þeim raddir sínar. Tveir
ungir tónlistarmenn, þeir Sig-
uróli Geirsson og Freyr Sigur-
jónsson, sáu um útsetningu og
flutning á tónlist. Brúður eru
gerðar í Leikbrúðulandi.
Sýningar verða sem áður
segir 4, kl. 3 á sunnudögum, að
Fríkirkjuvegi 11 (í húsi Æsku-
lýðsráðs Reykjavíkur). Miða-
salan að Fríkirkjuvegi er opn-
uð kl. 1 sýningardagana og
svarað er í síma Æskulýðsráðs,
15937, á sama tíma.
I vetur hefur Leikbrúðuland
sýnt rússneska brúðuleikhúsið
Gauksklukkuna. Gauksklukk-
an verður tekin til sýninga á
ný eftir áramótin.
Verð aðgöngumiða í Leik-
brúðulandi er nú 1500 krónur.
Stjórnendur brúðanna eru
Erna Guðmarsdóttir, Hallveig
Thorlacius, Helga Steffensen
og Þorbjörg Höskuldsdóttir.
Raddir leggja til leikararnir
Hómfríður Pálsdóttir, Ragn-
heiður Steindórsdóttir, Karl
Guðmundsson, Rúrik Haralds-
son, Jón Júlíusson, Jón Hjart-
arson, Margrét Guðmunds-
dóttir og Soffía Jakobsdóttir.
Jóladagatöl Lions-
klúbbsins
ÞESSA dagana er að hefjast hin
árlega sala á jóladagatölum sem
Freyr flytur inn frá Vestur-
Þýskalandi. Á bak við hvern dag
desembermánaðar sem rifinn er
af er súkkulaðimoli og síðan
mynd á bak við hann.
Freysfélagar annast sjálfir söl-
una í Reykjavík með því að ganga
í hús og standa við verslanir, en
auk þess má kaupa jóladagatölin á
eftirtöldum stöðum: S.S. Austur-
veri, Háaleitisbraut, Axminster,
Grensásvegi, B.B. byggingavörur,
Suðurlandsbraut, Blómaskála
Friðfinns, Suðurlandsbraut,
Brauðskálanum, Langholtsvegi,
Gleraugnaverslun Ingólfs Gísla-
sonar, Bankastræti, Gunnari Ás-
geirssyni hf., Suðurlandsbraut,
Hagabúðinni, Hjarðarhaga, Ham-
borg, Hafnarstræti og Klapp-
arstíg, Happdrætti Háskólans,
Tjarnargötu, Heimilistæki, Hafn-
arstræti og Sætúni, Heídu hf,
Laugavegi, Herragarðinum, Aðal-
stræti, Hlíðarbakaríi, Skaftahlíð,
Ingþór Haraldssyni hf, Ármúla 1,
Freys
Jólamarkaðnum, Ársölum, Lýs-
ingu, Laugavegi, Málaranum,
Grensásvegi, Tískuskemmunni,
Laugavegi 34, Versluninni Voga-
ver, Gnoðarvogi, og Erni og Or-
lygi, Vesturgötu 42.
Börn klúbbmanna hafa unnið
mikið með feðrum sínum við að
pakka dagtölunum inn. í ná-
grannabæjum Reykjavíkur og úti
um land selja Lionsfélagar þessi
dagatöl en verðið er 1.200 krónur.
Fé því, sem safnast, er varið til
líknarmála. Á undanförnum árum
hefur klúbburinn meðal annars
varið fé til Skálatúnsheimilisins,
lamaðra og fatlaðra, blindra og
heyrnarskertra. Einnig hefur
klúbburinn lagt fram fé til bygg-
ingar sundlaugar við Grensásdeild
Borgarspítalans og sundlaugar við
dvalarheimili Sjálfsbjargar auk
ýmissa annarra verkefna.
Lionsklúbburinn Freyr þakkar
stuðninginn og óskar velunnurum
sínum gleðilegra jóla og farsæls
komandi árs.
(Fréttatilkynning frá Frey).
1 #
!
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins:
Dreifðu happdrættismið-
um vinstri stjórnarinnar
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðis-
flokksins dreifðu í gær við versl-
unarmiðstöðvar í Reykjavík því
sem þeir nefndu happdrættis-
vinningi vinstri stjórnarinnar,
cn fyrir siðustu helgi var dreift
launaumslagi vinstri stjórnar-
innar. Þá eru frambjóðendur á
ferð um vinnustaði og eru að
jafnaði heimsóttir um 20 á degi
hverjum. ,
—Kosningabarátta sjálfstæð-
ismanna hefur miðast við að koma
stefnu flokksins til skila og virðist
mér að úrslit skoðanakönnunar
Vísis beri það með sér að almenn-
ingur er að gera upp hug sinn og
taka afstöðu til hennar, sagði Jón
Ormur Halldórsson á skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins í samtali við
Mbl. í gær.
—Það er einkennandi að um-
ræður snúast mjög mikið um
stefnu Sjálfstæðisflokksins, en
ekki hinna flokkanna, hann er eini
stjórnarandstöðuflokkurinn og
mest um hann rætt. Teljum við
okkur finna mikinn meðbyr með
stefnu flokksins. Vinnustaðafund-
irnir eru mikið einkenni í þessari
kosningabaráttu og hafa mælst
vel fyrir og höfum við náð til
10—15 þúsund kjósenda á þann
hátt.