Morgunblaðið - 25.11.1979, Síða 20
„Allar lausnirnar
Mynd af líkani af
fyrirhugaðri byggð á
nyrðra svæðinu í
Hvömmunum, Keilir í
baksýn, en í tillögunni
er tekið mið af Keili og
fjallahringnum.
horfa til framfara44
Mynd tekin oían á Iikan, sem sýnir tiIIöKu þá, sem varð fyrir valinu á
suðursvæðinu, en þar er «ert ráð fyrir 50 ibúðum í raðhúsum.
Sýning í húsi
Bjarna riddara
á teikningum
í samkeppni
um íbúðabyggð
í Hvömmum í
Hafnarfirði
SÝNING á tillögum í samkeppni
um skipulag ibúðarbyggðar á
tveimur reitum í Hafnarfirði var
opnuð í húsi Bjarna riddara
Sivertsen í gær. Samkeppnin var
lokuð og fimm aðilum boðin
þátttaka. Fjórar tillögur bárust
og voru þær allar metnar full-
nægjandi gagnvart verklýsingu
að mati dómnefndar. Svæðin eru
við Reykjanesbraut, annað í nám-
unda við Klaustrið, hitt nokkru
sunnar.
Samkvæmt útboðslýsingu vildi
bæjarstjórn Hafnarfjarðar fá til-
lögur að aðlaðandi, þéttri byggð,
með íbúðum í háum gæðaflokki.
Telst það eftirsóknarvert, að fólk
stöðvist meira en verið hefur í
þéttbýlinu og uni sér þar vel til
lengdar. Óskað var eftir tillögum
um ýmsar útfærslur þéttrar
Stefán Jónsson forseti bæjar-
stjórnar lýsir úrslitum i sam-
keppninni.
byggðar og beinlínis tekið fram,
að lág, þétt byggð komi til greina,
ekki síður en hefðbundin blokka-
bygging.
í dómnefnd áttu sæti Óli G. H.
Þórðarson arkitekt, Sigurður
Gíslason arkitekt og Haukur
Magnússon byggingarmeistari.
Dómnefnd hélt 22 fundi og voru
gefin stig með mismunandi vægi
og samanlögð stigatala látin ráða
úrslitum, en einkum var lagður
dómur á eftirtalin atriði: skipulag
reitanna, umferð, umhverfi, íbúðir
og raunhæfni.
Stefán Jónsson forseti bæjar-
stjórnar opnaði sýninguna í húsi
Bjarna riddara í gær og lýsti
úrslitum samlkeppninnar. Sagði
hann m.a. að umrætt svæði hefði
um langan aldur verið talið eitt
fegursta byggingarsvæðið í Hafn-
Óli G. H. Þórðarson formaður
dómnefndar.
arfirði og þá einkum með tilliti til
staðsetningar og útsýnis. Sagði
Stefán að tvær úrlausnir um
skipulag þessara tveggja reita á
svæðinu hefðu þótt beztar og mjög
ámóta. Stefán þakkaði góðar og
skemmtilegar úrlausnir um leið og
hann opnaði sýninguna á öllum
þeim úrlausnum sem bárust. Sýn-
ingin verður opin í dag og á
morgun frá klukkan 14—18 og á
mánudag frá 17—22 í húsi Bjarna
riddara Sívertsen eins og áður
sagði.
Sú úrlausn, sem dómnefnd mæl-
ir með til útfærslu á reit a, þ.e. á
nyrðra og stærra svæðinu, er
unnin af Guðmundi Kr. Guð-
mundssyni, Manfreð Vilhjálms-
syni, Ólafi Sigurðssyni og Þor-
valdi S. Þorvaldssyni, en þeim til
aðstoðar voru Björn S. Hallsson,
Brynjar Björgvinsson og Jón Þór
Þorvaldsson.
í umsögn dómnefndar segir um
tillöguna m.a. að ráðandi þáttur
þessarar hugmyndar sé húsform
sótt í Keili (fjallahringinn). í
niðurstöðunni segir að kostir til-
lögunnar séu einkum: „Góð hug-
mynd og sterkur heildarsvipur,
byggðin aðlagist vel að landi og
skipulagi. Form og útfærsla eru
nýstárleg og sýnt er fram á
heppilega blöndun húsgerða." í
tillögunni er gert ráð fyrir 120
íbúðum á þessu svæði og eru
hæstu húsin 5 hæðir, en einnig eru
þar raðhús.
Dómnefnd mælti með tillögu að
byggð raðhúsa á syðra svæðinu, en
þar er gert ráð fyrir 50 íbúðum. Þá
tillögu unnu Ingimundur Sveins-
son og Gylfi Guðjónsson ásamt
eftirtöldum ráðgjöfum og aðstoð-
armönnum: Agli Guðmundssyni,
Benedikt Jónssyni, Birni Gústafs-
syni, Jóni B. Stefánssyni, Þuríði
Pétursdóttur og Guðlaugi Jör-
undssyni.
í niðurstöðu dómnefndar um þá
tillögu segir m.a.: „Komið er til
móts við óskir um lága, þétta
byggð og hentar það vel á þessum
stað. Heildasrsvipur góður, sem og
aðlögun að skipulagi og landi.
Umferð gerð góð skil, einkum
fyrir gangandi vegfarendur."
Ibúðargæði þóttu sérlega mikil og
í umsögn dómnefndar segir að
boðið sé upp á „jarðnánd" fyrir
marga.
Dómnefnd taldi árangur sam-
keppninnar góðan og allar lausnir
horfa að meira eða minna leyti til
framfara, miðað við þá þfettbýlis-
gerð, sem kalla má hefðbundna
hér á landi.
Snið af einu stóru húsanna á nyrðra svæðinu i Hvömmunum,
svæði a. Greinilega sést hvernig loka má svölunum þannig að
þær nýtist sem gróðursvalir og um leið einangrun á vetrum.
Eins og sést á teikningunni stallast húsin um hálfa hæð, þannig
að aðeins er gengið í eina ibúð af hverjum stigapalli.