Morgunblaðið - 25.11.1979, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
21
„Árið 1944 voru ráðhcrrarnir sex. Nú telst mér til að þeir séu a.m.k.
18. þ.e. níu i ráðherrastólum. aðrir niu til aðstoðar, já, og svo einir niu
bílstjórar. Etlið þið að fækka þessu liði, þegar þið takið við?“ Þannig
hljóðaði ein spurninganna. sem Matthías Á. Mathiesen og Pétur
Sigurðsson fengu i mötuneyti Málningar h/f, Kópavogi i hádeginu s.l.
föstudag.
Þeir Matthias og Pétur gengu um verksmiðjuna, heilsuðu starfs-
mönnum og snæddu síðan með þeim hádegisverð í mötuneytinu. Þar
héldu þeir stuttar rseður og svöruðu spurningum.
Atvinnuöryggið eykst með því
að færa fjármagnið til fólksins
I ræðum sínum röktu þeir stefnu
Sjálfstæðisflokksins í efnahags-
málum. Matthías útskýrði, að með
„leiftursókn gegn verðbólgu“ væri
átt við, að flokkurinn væri ákveð-
inn í, ef hann fengi til þess traust,
að draga verulega úr ríkisumsvif-
um á árinu 1980 og ná með því
verðbólgunni niður. Þegar því tak-
marki væri náð væri fyrst hægt að
hefja raunhæfa uppbyggingu.
Matthías sagði, að með því að
taka fjármagnið frá ríkinu og færa
það til fólksins sjálfs myndu at-
vinnufyrirtækin styrkjast og
stækka og þá kæmist á meira
atvinnuöryggi.
Enn boðið upp á hákarlafor-
manninn úr Fljótum
Margt fleira bar á góma, s.s.
vegamál Reykjaneskjördæmis,
sem fólki bar saman að væru líkast
til í beztu lagi í Reykjaneskjör-
dæmi, ef litið væri yfir landið í
heild. Spurt var um niðurgreiðslur
landbúnaðarafurða og margt
fleira.
Þar sem lífið gengur út á
karfa og bónus
Matthías brá sér síðan út á
Suðurnes og heimsótti Hraðfrysti-
hús Ólafs Lárussonar í Keflavík
rétt fyrir kaffitíma starfsfólksins
þar. „Aldamótakarfi" var þar á
borðum og starfsfólkið hamaðist
við flökun, hreinsun og pökkun í
bónus. Matthías fylgdi síðan
starfsfólkinu til kaffistofu, er
flautað var til kaffihlés og flutti
þar fyrst stutta tölu. Hann út-
„Þessi hefur þá byrjað að túttna út um leið og verðbólgan.“ sagði Matthias. er rætt var um að aldur
karfans gæti verið einn áratugur.
„Þessi hefur þá byr jað að túttna
út um leið og verðbólgan“
1 Málningu h/f var Matthias „veginn“ og áreiðanlega einnig metinn. Hann biður Pétur þarna að stiga með
sér á vigtina. en vigtarstjóri taldi það ógjörning — vigtin mældi aðeins' 200 kg. Stefán Guðjohnsen
framkvæmdastjóri Málningar cr lengst til vinstri á myndinni.
Ljósm. Mbi. Emilia.
Pétur rakti nokkuð stöðu efna-
hagsmála og sagði allt stefna í
fjárþrot og atvinnuleysi, ef ekkert
væri að gert. Hann sagði óðaverð-
bólgu og óðavitleysu vinstri stjórn-
ar engin takmörk sett og úrræði
þeirra flokka væru engin. Vinstri
flokkarnir hefðu ekki upp á neitt
nýtt að bjóða. „Þeir bjóða fólki
meira að segja áfram upp á sama
formanninn, þ.e. hákarlaformann-
inn úr Fljótum."
Pétur sagði einnig, að það þyrfti
að hyggja að fleiru en efnahags-
málum. Úrbætur í heilbrigðis- og
félagsmálum væru brýn og nefndi
hann sérstaklega þá stöðu sem
málefni aldraðra væru nú komin í,
og væru þau brýn úrlausnar. „Heil-
brigðisráðherra upplýsti að um
300-350 sjúkrarými þyrfti nú fyrir
aldraða. Ég veit að þessi tala er of
lág, 500 rúm er það sem a.m.k.
vantar. Ég mun sérstaklega beita
mér fyrir þessum málum, fái ég til
þess fylgi," sagði Pétur í lok ræðu
sinnar.
Verður staðið við loforðin?
Spurningarnar létu ekki á sér
standa. „Er nokkur munur á flokk-
unum? Eru þetta ekki aðeins
kosningaloforð, sem aldrei verður
staðið við?“ Matthías varð fyrir
svörum og sagði að Sjálfstæðis-
flokkurinn ætlaði að standa við
stefnu sína, en til þess að honum
yrði það unnt yrði fólkið að koma
til móts við hann og veita honum
traust til þess. Nái Sjálfstæðis-
flokkurinn góðri kosningu skilst
hinum flokkunum, að fólkið vill
þær úrbætur, sem flokkurinn boð-
ar. Ef við sitjum í ríkisstjórn eftir
kosningar og mistekst að ná þess-
ari stefnu okkar fram, þá hljótum
við að víkja."
skýrði í stuttu máli, eins og í
Málningu fyrr um daginn, stefnu
Sjálfstæðisflokksins, mótun henn-
ar og hvernig unnið verðúr að
framkvæmd hennar.
Minnihlutastjórn Sjálfstæðis-
flokksins?
Hann lauk máli sínu með því að
fjalla lítilsháttar um framkomna
útkomu skoðanakönnunar og
sagði: „Ef þetta yrði útkoma kosn-
inganna ætti Sjálfstæðisflokkur-
inn að fá tækifæri til að mynda
minnihlutastjórn og myndi slík
stjórn þá standa og falla með
framkvæmd stefnu sinnar. Vínstri
flokkunum gæfist þá tækifæri til
að sýna hvort þeim sé alvara með
yfirlýsingar sínar um að ráðist
verði að rótum verðbólgunnar og
hún upprætt.“
Sama rullan hjá þingmönnum?
Spurningar til Matthíasar voru
margar um launamál hinna lægst
launuðu og var kvenfólkið mjög
áhugasamt að spyrja. Var hann
m.a. að því spurður, hvort það væri
ekki orðin úr sér gengin rulla hjá
alþingismönnum að biðja fólk um
að stilla kröfum sínum í hóf, en á
sama tíma hækkuðu þeir sín eigin
laun. Hann svaraði því til, að það
væri algengur misskilningur að
þingmenn ákvæðu sjálfir sín laun.
Laun þeirra væru fyrirfram ákveð-
in af viðmiðun við laun opinberra
starfsmanna.
7 sagöi Matthías
Á. Mathiesen um
„aldamótakarfa11
í Keflavík
„Hví er ekki annað launafólk en
fiskvinnslufólk látið vinna í bónus,
t.d. skrifstofufólk og starfsmenn
hins opinbera? — Vildir þú standa
hér frá kl. átta á morgnana til kl.
fimm á kvöldin með 200 þús. kr.
laun á mánuði, þ.e. þar til bónus-
inn kemur til? — Er sanngjarnt að
laun flugmanna hækki margfalt á
við laun verkamanna?" Þetta eru
sýnishorn af þeim spurningum
sem dundu á Matthíasi. Hann
svaraði þeim og vitnaði m.a. í
svörum sinum til stefnu Sjálfstæð-
isflokksins, þar sem segir að laun
hinna lægst launuðu skuli tryggð
og einnig vitnaði hann í tilraun
ríkisstjórnarinnar, 1978, til að
vernda kaupmátt láglaunafólks,
eins og hann orðaði það. „Þetta
voru þá kölluð kaupránslög," sagði
hann.
Nokkuð var einnig spurt um
sérmálefni Suðurnesja, kjör-
dæmismálið o.fl. F’undinum lauk,
er flautað var til vinnu og konurn-
ar hröðuðu sér að vinnsluborðun-
um — í bónusinn.
Kvenfólkið var áberandi duglegra við að spyrja Matthias i Hraðfrystihúsi ólafs Lárussonar Pétur ug Matthias ræddu við starfsfólk Málningar bæði i gamni og alvöru. Þrátt fyrir
í Keflavík. alvöru umræðuefnisins slógu þclr á létta strengi við góðar undirtektir starfsfólksins.