Morgunblaðið - 25.11.1979, Síða 35

Morgunblaðið - 25.11.1979, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979 35 Af fundinum fór Jimmy Carter beint í Þjóðardómkirkjuna í Washington til að leggjast á bæn ásamt fjölskyldum gíslanna. Það vakti líka hrifningu almennings, þótt þeir Mondale varaforseti og Vance utanríkisráðherra væru ögn vandræðalegir á svipinn þar sem þeir sátu við hlið Carters við bænahaldið. Að því loknu aflýsti Carter öllum ferðalögum sínum innan Bandaríkjanna, lokaði sig inni í Hvíta húsinu og hóf að undirbúa gagnaðgerðir. Hann gaf fyrirmæli um að olíukaup frá íran skyldu stöðvuð. Hann gerði ráðstafanir til þess að skilríki allra írana í Bandaríkjun- um yrðu rannsökuð og undirbún- ingur hafinn að brottflutningi þeirra, sem ekki voru með algjör- lega hreinan skjöld. Hann lagði hald á fjármuni íransstjórnar í bandarískum bönkum og gaf í skyn að hervaldi yrði beitt ef skert yrði hár á höfði gíslanna. Þetta mæltist vel fyrir í Banda- ríkjunum. Sú staðreynd að olíu- bannið skipti írana nákvæmlega engu máli virtist ekki hafa áhrif á undirtektirnar, en íranir sendu olíuna að sjálfsögðu beint á Rott- erdam-markað, þar sem þeir fengu 45 Bandaríkjadali fyrir tunnuna í stað 23,50, sem var samningsbundið verð olíunnar, sem Bandaríkjamenn höfðu keypt frá íran. Valdhafarnir í íran létu innstæðufrystinguna heldur ekki á sig fá. Um er að ræða sex og hálfan milljarð dala, og ljóst er að bandarískur gjaldmiðill hefði fall- ið töluvert ef þessari upphæð hefði verið rutt út úr bönkunum á einu bretti. Þar af leiðandi hefði saxazt allnokkuð á þennan sjóð írana, enda var haft eftir háttsettum manni í íranska fjármálaráðu- neytinu, að peningarnir væru bezt geymdir í Bandaríkjunum, því að stjórnin í íran hefði enga þörf fyrir þá í bili. Síðan Khomeini slakaði á klónni eftir síðustu helgi og sleppti 13 völdum gíslum — konum og blökkumönnum — hefur þráteflið haldið áfram. Khomeini og hús- karlar hans endurtaka daglega hótanir sínar um að sendiráðið verði sprengt í loft upp um leið og bandarískur her láti á sér kræla. Carter situr við sinn keip og vísar á bug öllum kröfum um framsal keisarans, um leið og hann krefst þess að gíslunum verði skilað, ella muni Bandaríkin taka til sinna ráða með eftirminnilegum hætti. Andstæður Þegar fylgzt er með framvindu þessa máls fer ekki hjá því að athyglin beinist að því að hér eigast við andstæður. Óstaðfest djúp er milli þessara deiluaðila, sem virðist algjörlega fyrirmunað að skilja hugsunarhátt hvor ann- ars. Valdhafar í íran hafa á að skipa mönnum, sem hafa gott vald á enskri tungu, á sama hátt og Bandaríkjastjórn er ekki í vand- ræðum með að skilja bókstaflega merkingu orðsendinga frá íran. En þar virðast mörkin vera. Vesturlandabúar skilja ekki hvað írönsku múllunum býr í brjósti. Hegðun þeirra er einfald- lega kölluð trúarofstæki. íranir vita ekki hvað Vesturlandabúar eru að fara þegar þeir höfða til grundvallarreglna mannúðar og lýðræðis. Þegar Khomeini hélt því fram, að Bandaríkjastjórn hefði staðið að baki svívirðingunni á Moskunni miklu og Kaaba, mesta helgidómi Múhameðstrúarmanna, er ekki ósennilegt að hann hafi trúað þessu sjálfur. Þó má gera ráð fyrir því að nánast hvert mannsbarn á Vesturlöndum geri sér grein fyrir því að þessi kenning er út í hött. Það er útilokað mál að Carter eða aðrir þjóðarleiðtogar í hinum vestræna heimi létu sér til hugar koma að beita slíkum óráðum til að klekkja á pólitískum andstæð- ingi — ekki endilega af því að þeir séu svo göfugir eða fullir af kristilegum kærleika, heldur af því að virðing fyrir trúarbrögðum er einfaldlega of ríkur þáttur í Margur er knár Jjótt hann sé smár, hefur ekki ósennilega verið athugasemd nær- staddra þegar þessi mynd var tekin fyrir framan banda- ríska sendiráðið í Teheran í síðustu viku. vestrænni menningu til að slíkur verknaður kæmi til greina. Khomeini og þeir, sem hann er tákn fyrir, skilja þetta ekki. Allir þeir, sem ekki játa múhameðstrú og fara skilyrðislaust eftir túlkun Múslims á Kóraninum, eru villu- trúarmenn. I þeirra huga er slík villutrú einhvers konar djöfulæði, sem skylt er að ganga milli bols og höfuðs á. Það er mikill munur á siðferð- islögmálum Múhameðstrúar- manna og kristinna manna. Það vefst til dæmis ekki fyrir múha- meðskum bókstafstrúarmönnum hvað eigi að gera við þá, sem stela. í þjófnaðarmálum er ekki hægt að fullnægja lögmálinu á annan hátt en að höggva hægri höndina af sökudólginum. Sá, sem vegur mann, er líflátinn, og sömuleiðis sá, sem drýgir hór. Sá, sem guðlastar, er líflátinn. Og sá, sem afbakar túlkun Múslims á Kóran- inum, er líflátinn. Þessi bókstafs- trú er grundvöllur byltingarinnar í íran, þannig að í huga Khom- eini-sinna eru makleg málagjöld keisarans sem færði ýmislegt langt í frjálsræðisátt í íran, ekki flókið ákvörðunarefni. Á Vesturlöndum er víða litið á þjófa og morðingja sem brjóstum- kennanleg fórnarlömb óhagstæðra ytri aðstæðna, ef þeir eru þá ekki beinlínis álitnir sjúkir. Refsigleði fer stöðugt þverrandi í dómskerfi á Vesturlöndum og þar vex þeirri skoðun fylgi að skynsamlegra — og mannúðlegra — sé að endur- hæfa sakamenn og styðja þá til þess að komast á rétta hillu í þjóðfélaginu og vinna fyrir sér með heiðarlegum hætti. Á Vesturlöndum er yfirleitt litið á trúarskoðanir sem einkamál einstaklinga, og sums staðar er jafnvel litið á þær sem feimnis- mál, sem varla hæfi að ræða opinberlega. Þegar þessar andstæður eru hafðar í huga er vandséð hvernig deilum Bandaríkjastjórnar og Khomeini-sinna í Iran verður ráð- ið til lykta að hætti Vesturlanda- búa, — með málamiðlun. Ekki verður því annað séð en að þrátefl- ið geti haldið áfram enn um langa hríð, nema eitthvað óvænt komi fyrir. Slíkt mundi óhjákvæmilega hafa hinar verstu afleiðingar og í slíku öngþveiti er ekki víst að nokkrir tugir mannslífa yrðu þyngstir á metum þegar öll kurl væru komin til grafar. - Á.R. Demantur 4® æðstur eðalsteina - (Pull Ot á>ilfttr Laugavegi 35 Framkvæmdamenn Tek aö mér gröft og tyllingar. Höfum hlnar kraftmiklu Bröyt gröfur x-2-x 30 og x 4 Góö tæki — Vanir tækjamenn Bröyt leysir vandann. Tómas Grétar Ólason s/f. Funahöföa 15. Sfmar 84865 — 42565. REPORT DE LUXE: LÚXUS FYRIR LÍTIÐ Rafritvél meó fisléttum áslætti, áferöafallegri skrift, dálkastilli 28 eöa 33 sm valsi. Vél sem er peningana viröi fyrir jafnt leikmenn sem atvinnumenn. Fullkomin viögeröa- M og varahlutaþjónusta. m m « vc v. w Leitið nánari upplýsinga. 5 Ofympia Intemational KJARAINI HF skrifstofuvélar & verkstæði — Tryggvagötu 8, sími 24140 þessari bók er hanrt á ferö meö Agnari Kofoed-Hansen um grónar ævislóöir hans, þar sem skuggi gestsins meö Ijáinn er aldrei langt undan. Gerö eru skil ættmennum Agnars báðum megin Atlantsáfa og birtu brugðið á bernsku hans undir súð á Hverfisgötunni. þar sem hann í rammt aö í náttmyrkri og þoku, aö lóöa varð á jörð meö blýlóöi. Heimkominn hefur hann forgöngu um stofnun flugfélags — og hefst þá brautryöjandaffug hans, upphaf samfellds fiugs á íslandi, oft á tíðum svo tvísýnt flug að nánast var flogið á faðirvorinu. En Jóhannesi Helga nægir ekki að rekja þessa sögu. Hann lýsir af og til inn í hugarheim Agnars, utan við tíma sögunnar, og gefur henní þannig óvænta vídd. Á brattann; minníngar Agnars Kofoed-Hansen er saga um undraveröa þrautseigju og þrek- raunir meö léttu og bráöfyndnu ívafi. Höfundurinn er Jó- hannes Helgi, einn af snillingum okkar í ævi- sagnaritun meö meiru. Svo er hugkvæmni hans fyrir aö þakka aö tækni hans er alltaf ný meö hverri bók. Almenna bókafélagið Austurstræti 18 sími 19707 Skemmuvegi 36 sími 73055

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.