Morgunblaðið - 25.11.1979, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
Friðrik Þorvaldsson:
Kjósum S-listann
Kjósum Jón G. Sólnes
Við sem skipum framboðslista
S-listans í Norðurlandskjördæmi
eystra við komandi kosningar til
Alþingis 2. og 3. desember næst-
komandi og vinnum að endurkjöri
Jóns G. Sólness, gerum það ekki af
„misgáningi" eins og segir í leið-
ara Islendings 13. nóv. sl. Ég held,
að við höfum alveg sæmilega
dómgreind.
Við stöndum heils hugar að
þessu framboði, með þrautreynd-
an stjórnmálamann, Jón G. Sól-
nes, í efsta sæti listans, vegna
þess, að kjörnefnd og kjördæmis-
ráði urðu á mörg skelfileg mistök
við undirbúning framboðs Sjálf-
stæðisflokksins á Norðurlandi
eystra, sem kunnugt er.
Fyrsta alvarlega glappaskotið
var það, er Jóni G. Sólnes var ýtt
til hliðar, hann skyldi ekki skipa
öruggt sæti á framboðslista
flokksins sem áður. Þar með var
fallist á kröfur andstæðinga Jóns
G. Sólness innan Sjálfstæðis-
flokksins, sem ljóst og leynt hafa
barizt gegn honum og forystu
hans.
Þegar ljóst var, að Jón G. Sólnes
yrði látinn víkja af listanum, gegn
vilja hans, þótti ýmsum stuðn-
ingsmönnum flokksins þessi
flokksráð taka sér fullmikið vald
og rétt væri og sanngjarnt að láta
prófkjör skera úr um það, hvernig
efstu sæti listans yrðu skipuð.
Málið var þegar orðið viðkvæmt
og bar brýna nauðsyn til að fara
að öllu með gát.
Á skömmum tíma skrifuðu 450
manns undir beiðni um prófkjör,
sem send var kjördæmisráði. Það
furðulega gerðist hins vegar, að
kjördæmisráð stakk þessari beiðni
undir stól og hafnaði alfarið
prófkjöri. En hvers vegna?
Það er aðeins ein skýring til í
þessari afstöðu kjördæmisráðs og
hún er sú, að fulltrúar þess
óttuðust hið mikla fylgi Jóns G.
Sólness í hugsanlegu prófkjöri, en
nauðsyn bar til að beita öllum
brögðum til að útiloka hann frá
framboði. Jón G. Sólnes skyldi
aldrei á listann koma.
Ég vil vekja athygli á orðum
Sverris Leóssonar í grein í íslend-
ingi 30. október sl. um þetta mál,
en Sverrir er fulltrúi í kjörnefnd
og kjördæmisráði. í grein sinni
segir Sverrir orðrétt:
„Kjördæmisráð er æðsta valdið
í allri ákvarðanatöku um fram-
boðslista til Alþingiskosninga, en
ég tel þó, að ákveðnar leikreglur
verði þar að gilda, t.d. er tæplega
500 flokksbundnir og stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins skora á
kjördæmisráð að viðhafa prófkjör,
þá sé kominn siðferðislegur réttur
og nánast skylda kjördæmisráðs
að láta fara fram prófkjör. Allt tal
um að eigi væri tími né annað til
að framkvæma slíkt fellur um
sjálft sig, enda viðhefur Sjálf-
stæðisflokkurinn prófkjör víða um
landið."
Þetta er laukrétt hjá Sverri
Leóssyni og leitt til þess að vita,
að hann skyldi ekki geta haft vit
fyrir félögum sínum.
Ég hef séð rök formanns kjör-
nefndar gegn prófkjöri, rök, sem
ég tel vægast sagt ákaflega veiga-
lítil.
Hvers vegna í ósköpunum gát-
um við Norðlendingar ekki haft
prófkjör í okkar kjördæmi rétt
eins og Austfirðingar, og ekki var
síður ástæða til að láta fara fram
prófkjör þegar ljóst var, að ein-
hliða uppstilling kjörnefndar á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins án Jóns G. Sólness myndi
mælast illa fyrir, valda sárri
gremju og missætti í flokknum.
Ekki eru samgöngur í því
víðáttumikla kjördæmi Austfjörð-
um á þessum tíma árs betri en á
Norðurlandi, nema síður sé.
En hvernig tókst til hjá Aust-
firðingum? Hvað segja forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins þar um
prófkjör flokksins?
Sverrir Hermannsson: „Próf-
kjörið tókst með ágætum.“
Egill Jónsson, annar maður á
lista Sjálfstæðisflokksins: „Kosn-
ingar til prófkjörsins voru háðar
af fyllsta drengskap og einungis
Það er stutt
til jóla ...
ef þú ætlar að mála áður!
Með Spred Satín færðu mjúka silkiáferö á veggina.
Málningu sem auðvelt er að mála með og auóvelt
er að þrífa. Málningu sem þekur vel og er sterk.
spred
satin
_ Tfttm|ór»ar
Spred Satín
í þúsundum
töfratóna
lífgar upp í
skammdeginu
réttar leikreglur viðhafðar. Af því
leiðir, að menn eru ósárir eftir.
Enginn vafi er á því, að prófkjörið
hefur verið ákaflega þýðingarmik-
ið innlegg í kosningabaráttu Sjálf-
stæðisflokksins á Austurlandi.
Fari svo, sem er almenn skoðun á
Austurlandi, að tveir menn af
lista Sjálfstæðisflokksins verði
kjörnir til Alþingis, verður sá
sigur án efa að sinu leyti rakinn
til prófkjörsins...“
Og svo getur formaður kjör-
nefndar í kjördæmi okkar sett
fram rök í 8 liðum gegn prófkjöri.
Ég verð að segja það, að ef þau rök
eru góð og gild, þá erum við
Norðlendingar bara á allt öðru
plani heldur en flokksbræður okk-
ar og frændur á Austfjörðum.
Auðvitað er þetta allt saman
markleysa. Við gátum vel haft
prófkjör. Við gátum á lýðræðisleg-
an hátt fengið úr því skorið,
hverjir skyldu skipa efstu sæti
framboðslistans, en það var ekki
gert. Slíkt var lánleysi kjördæmis-
ráðs.
Forysta kjördæmisráðs ætti að
ganga hreint til verks og lýsa yfir:
Við vildum ekki prófkjör, af því að
við vildum ekki Jón G. Sólnes á
framboðslistann.
Mér er sem ég sjái viðbrögð
kjósenda og forystumanna flokks-
ins í öðrum kjördæmum við svona
ocr bess háttar vinnubrögðum, t.d.
í Reykjavík, ef tiltölulega fámennt
flokksráð þar tæki sér það vald að
raða á framboðslista án undan-
gengins prófkjörs og víkja oddvita
flokksins og efsta manni burt úr
öruggu sæti gegn vilja hans og
fjölmargra stuðningsmanna
flokksins. Ætli yrði ekki rama
kvein.
Ég þarf ekki að rekja gang
málsins, við þekkjum hann öll.
Kjörnefnd stillti upp lista, kjör-
dæmisráð samþykkti hann og
þannig var málið afgreitt.
Eins og nærri má geta vorum
við fjölmargir stuðningsmenn
Sjálfstæðisflokksins sáróánægðir
og vildum ekki una svo ólýðræðis-
legum og ósanngjörnum vinnu-
brögðum. Hví skyldum við gera
það?
Við beittum okkur því fyrir því,
að boðinn yrði fram annar fram-
boðslisti Sjálfstæðisflokksins og
vísuðum til 41. greinar laga um
kosningar til Alþingis, sem gerir
ráð fyrir, að sami stjórnmála-
flokkur bjóði fram fleiri en einn
lista í kjördæmi. En hvað gerist?
Kjördæmisráð, gjörsamlega
heillum horfið, hafnar að listi þess
sé borinn fram í nafni Sjálfstæðis-
flokksins og hafnar þar með, að
Sjálfstæðisflokkurinn njóti að
fullu þeirra atkvæða, sem listinn
kynni að fá.
Þessari raunaþulu kjördæmis-
ráðs er senn lokið.
Formaður kjördæmisráðs,
Svanhildur Björgvinsdóttir, ritar
grein í Morgunblaðið 10. nóvem-
ber s.l. Upphafsorð þeirrar grein-
ar eru:
„Ja, nú er mér tekið að förlast."
Þetta voru orð og að sönnu.
Kjördæmisráð brást í viðkvæmu
máli, sem með góðum vilja hefði
mátt leysa og menn orðið „ósárir
eftir". En kjördæmisráð var ein-
faldlega ekki vandanum vaxið,
því fór sem fór.
Stuðningsmenn S-listans
Það hefur verið gerð ómakleg
aðför að Jóni G. Sólnes, þeim
manni, sem mest og lengst og bezt
hefur dugað og unnið Sjálfstæðis-
flokknum, bæjarfélaginu okkar og
kjördæminu öllu, að öðrum ólöst-
uðum.
Við unum því ekki, að Jóni G.
Sólnes sé hafnað á svo lágkúru-
legan hátt. Vinnum hvert og eitt
okkar af dugnaði að endurkjöri
hans til Alþingis íslendinga og
mótmælum með því kröftuglega
öllu flokksræði og vinnubrögðum,
sem hvorki eru lýðsræðisleg né
heldur drengileg.
Landssmið{ait
SÖLVHÓLSGÖTU■ 101 REYK JAVIK SÍMI 20 680 TÍLEX 22Ö7
Ávallt fyrirliggjandi
loftpressur
af öllum stæráum
JítlasCopco
LANDSSMIDJAN annast viðgerðaþjónustu á öllum tegundum
loftverkfæra og tækja.
Ef óskað er sjáum við einnig um fyrirbyggjandi viðhald.
axel