Morgunblaðið - 25.11.1979, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. NÓVEMBER 1979
Albert
heim-
sótti
vinnu-
staði í
Vest-
manna-
eyjum
Albert Guðmundsson fór sl.
fimmtudag í heimsókn í nokkur
atvinnufyrirtæki í Vestmanna-
eyjum og ræddi þar við starfs-
menn og kynnti sér starfsemi
þeirra. Heimsótti hann m.a.
frystihús og fiskimjöisverk-
smiðjuna og skoðaði íþróttahöll
Vestmanneyinga.
Sjálfstæðismenn í Vest-
mannaeyjum efndu til kosn-
ingafundar þar í síðustu viku.
Sóttu um 170 manns fundinn, er
haldinn var sl. fimmtudag og
sagði Arnar Sigurmundsson að
menn minntust þessa fundar
sem fjölmennasta kosningafund-
ar í Eyjum í mörg ár.
Albert Guðmundsson og Guð-
mundur Karlsson fluttu fram-
söguerindi og síðan voru frjálsar
umræður og frummælendur
svöruðu fyrirspurnum. Sagði
Arnar að góð stemmning hefði
verið á fundinum og menn verið
ákveðnir í að tryggja kjör Guð-
mundar Karlssonar, sem skipar
2. sætið á lista Sjálfstæðis-
flokksins á Suðurlandi.
Albert Guðmundsson og Guðmundur Karlsson skoða iþróttahúsið i Eyjum.
t pökkunarsal frystihúss.
Frá kosningafundi sjálfstæðismanna i Vestmannaeyjum.
Jl i - -5 i
ii i ; , y.
■■■,' , f
,
^ j|y fmb \
1 ■ 1
I