Morgunblaðið - 02.12.1979, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
41
„Endurskin
í skammdegi“
SLYSAVARNAFÉLAG íslands
hyggst um kjördagana minna
landsmenn á notkun endurskins-
merkja. en félagið leggur jafnan
áherslu á að menn noti þau i
svartasta skammdeginu. Munu
slysavarnadeildir og björgunar-
sveitir sjá um að dreifa á flesta
kjörstaði landsins limmiðum sem
minna á notkun endurskins-
merkja.
Límmiðarnir bera áletrunina
„Endurskin í skammdegi" og eru
áminning til fólks, en eru ekki
sjálfir endurskinsmerki. í frétt frá
Slysavarnafélaginu segir m.a.:
Það er ekki nóg að bera endur-
skinsmerki ef það sést ekki úr bíl
sem nálgast vegfaranda. Sé það
aðeins haft á baki eins og er alltof
algengt sést það ekki er gengið er á
móti umferð eins og gera á þar sem
ekki eru gangstéttar.
Nýjar teikni-
myndasögur
frá Iðunni
ÚT ERU komnar hjá Iðunni eftir-
taldar sjö teiknimyndasögur: Um
Strumpana eru nú komnar þrjár
nýjar bækur til viðbótar þeim
tveim sem út komu fyrr á árinu.
Bækur þessar eru gerðar af
belgíska teiknaranum Peyo. Þær
segja frá litlum bláum álfum sem
tala sitt eigið mál sem einkennist
af því að orðið strumpur og
afleiddar myndir þess eru sett í
stað eins margra orða í venjulegu
máli og hægt er. Nýju bækurnar
um strumpana heita: Strympa og
er þar einnig að finna sögu sem
nefnist Hungursneyðin; Strumpa-
súpan: þar er einnig sagan
Strumpalæti, og Strumparnir og
eggið, en þar eru einnig sögurnar
Svikastrumpur og Hundraðasti
strumpurinn. — Bækur þessar eru
gefnar út í samvinnu við Carlsen
if í Kaupmannahöfn. Strumpasúp-
an er 46 blaðsíður, hinar 62.
I bókaflokknum um hin fjögur
fræknu eru komnar tvær nýjar
bækur, hin fimmta og sjötta í
röðinni: Hin fjögur fræknu og
snjódrekinn og Hin fjögur
fræknu og harðstjórinn. Sögur
þessar eru franskar að uppruna.
Teikningar eru eftir Francois
Craenhals, en handrit samdi
Georges Chaulet. Jón Gunnarsson
þýddi. Bækurnar eru prentaðar í
Belgíu. Þær eur 48 blaðsíður hvor
um sig.
Þriðja bókin um Viggó er komin
út og heitir Viggó hinn ósigrandi.
Þær sögur eru franskar og höf-
undur Franquin. Þær eru prent-
aðar í Belgíu. Þuríður Baxter
þýddi þessa nýju bók sem er 46
blaðsíður.
Sjötta bókin um Sval og Val
nefnist Gullgerðarmaðurinn.
Höfundur er Fournier og Fran-
quin aðstoðaði við að teikna
Gorm. Jón Gunnarsson þýddi bók-
ina sem er gefin út í samvinnu við
a/s Interpresse. Hún er 56 bls.
innsk furusmíö
Lundia hillukerfió er ódýrt og einfalt í uppsetningu
Lundia hillukerfið er selt í stykkjum,
þannig að hverri einingu hagar þú eftir
eigin smekk.
Lundia hillukerfið er úr massívri
finnskri furu, mjög ódýrt og einfalt í upp-
setningu.
GRÁFELDUR HF.
ÞINGHOLTSSTRÆTI 4. S. 26626. WW
Tilvalið í stofuna, barnaherbergið,
ganginn, skrifstofuna, verslunina. . .
Hringið og biðjið um upplýsingabæki-
in9- j
í stíl við Lundia hillukerfið, höfum við
einnig fáanlega klappstóla og borð.
JÓIAGLEÐI í
PENNANUM
Jólasveinarnir okkar hafa lýst vel-
þóknun sinni á Jólamörkuðum
Pennans
enda hefur
úrvalið sjaldan
verið fallegra!
Jólamarkaðurinn, Hallarmúla,
Laugavegi 84,
Hafnarstrœti 18.