Morgunblaðið - 02.12.1979, Side 14
46
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1979
Almenna bókafélagið:
íslenzkir málshættir
— ný og aukin útgáfa þeirra Bjarna Vil-
hjálmssonar og óskars Halldórssonar
ALMENNA bókaíélagið
hefur sent frá sér
ÍSLENZKA MÁLSHÆTTI
þeirra Bjarna Vilhjálms-
sonar og Óskars Hall-
dórssonar í annarri útgáfu
aukinni. í kynningu á
kápu bókarinnar segir á
þessa leið:
„íslenzkir málshættir í sam-
antekt þeirra Bjarna Vilhjálms-
sonar og Óskars Halldórssonar
kemur nú út í annarri útgáfu og
fylgir henni bókarauki með fjöl-
mörgum málsháttum sem útgef-
endur hafa safnað síðan fyrsta
útgáfa kom út árið 1966. Þegar
bókin kom fyrst út voru menn
strax á einu máli um að íslenzkum
málsháttum hefðu aldrei verið
gerð viðlíka skil og í þessari bók,
enda hefur hún notið rótgróinna
vinsælda og verið margri fjöl-
skyldunni ómissandi uppsláttarrit
og einnig verið notuð í skólum.
I ýtarlegri inngangsritgerð, þar
sem fjaliað er um feril og einkenni
íslenzkra málshátta kemst Bjarni
Vilhjálmsson svo að orði um
málshættina, að þeim megi „líkja
við gangsilfur, sem enginn veit
hver hefur mótað." Þeir eru m.ö.o.
höfundarlaus bókmenntaarfleifð,
eins konar aldaskuggsjá, sem
speglar lífsreynslu kynslóðanna í
hnitmiðuðu formi og einatt í
skáldlegum og skemmtilegum
líkingum.
Islenzkir málshættir eru í þeim
bókaflokki Almenna bókafélags-
ins sem nefnist ÍSLENZK ÞJÓÐ-
FRÆÐI. Þessi bókaflokkur tekur
til hvers konar alþýðlegra fræða
sem til þess eru fallin að bregða
ljósi yfir líf horfinna kynslóða,
hugsunarhátt þeirra og dagleg
hugðarefni í önnum og hvíld. Út
eru komnar í þessum bókaflokki
auk ÍSLENZKRA MÁLSHÁTTA
bækurnar KVÆÐI OG DANS-
LEIKIR I—II, í útgáfu Jóns Sam-
sonarsonar, ISLENZK ORÐTÖK
I—II, eftir Halldór Halldórsson og
ÞJÓÐSAGNABÓKIN I—III í út-
gáfu Sigurðar Nordals.
Þessi nýja útgáfa málsháttanna
er 427 bls. að stærð. Þar af er
viðaukinn 28 bls. Bókin er unnin í
Prentsmiðju Jóns Helgasonar,
Prentsmiðjunni Odda og Sveina-
bókbandinu. Útlit bókarinnar hef-
ur annazt Hafsteinn Guðmunds-
son.
SINDRAÆgsSTÁLHE
Fyrirliggjandi í birgðastöð
VÉLASTÁL
Fjölbreyttar stærðir og þykktir
#••• ■ ■■-------« • •
sívalt ferkantað flatt sexkantað
Borgartúni 31 sími27222
málningarsprautu og sprautar
Kópal á ofninn á augabragði.
Vopnaskipti og
vinakynni Hannes-
ar frá Undirfelli
Foreldra- og vina-
félag Kópavogshæl-
is selur veggplatta
FORELDRA- og vinafélag Kópa-
vogshælis hefur látið gera vegg-
platta sem seldur er til fjáröflun-
ar fyrir starfsemi hælisins. Teikn-
ing og hönnun plattans var í
höndum Jóns Kristinssonar skóla-
stjóra að Skógum. Hann færði
félaginu plattann að gjöf. Fram-
leiðslan fer fram hjá Leirbrennslu
Stefáns Árnasonar, Syðri-Reykj-
um. Plattinn verður til sölu víða í
verslunum, hjá stjórn félagsins, á
deildum Kópavogshælis og á
skrifstofu Þroskahjálpar.
ÆVIMINNINGAR Hannesar
Pálssonar frá Undirfelli, sem
hann hafði að mestu skráð með
aðstoð Andrésar Kristjánssonar,
er hann féll frá á sl. ári eru nú
komnar út undir nafninu Vopna-
skipti og vinakynni. Örn og
Örlygur gefa bókina út, en hún
er filmusett, umbrotin og prent-
uð i prentstofu G. Benediktsson-
ar. Bjarni D. Jónsson gerði bók-
arkápu og bundin er hún i
Arnarfelli h.f.
Hannes Pálsson frá Undirfelli
er þjóðkunnur svo sem bræður
hans Björn á Löngumýri og Hall-
dór búnaðarmálastjóri. Hann var
einn af höfuðköppum hinnar
orðfrægu Guðlaugsstaðaættar. En
efni bókarinnar er um ætterni
hans, uppvöxt og skólavist, aldar-
far, umbrot í heimasveit og frá-
Hartnes Páisson
ifá Unditíeili
Vopnaskipti
og vinakynni
hvarf frá guði til Jónasar á Hriflu.
Þar ber á góma Undirfellsbúskap
og litríkar Vatnsdælingaviðsjár,
vopnaviðskipti og vinakynni við
Jón Pálmason, Pál Kolka, Jón í
Stóradal, Hannes á Hvamms-
tanga, Lárus í Grímstungu og
fleiri þekkta Húnvetninga. Einnig
framboðsmál, fundasögur, blaða-
deilur og samskipti við framsókn-
arhöfðingja, svo sem Jónas Jóns-
son, Hermann Jónasson, Eystein
Jónsson o.fl. Þar koma fyrir
bræðraglettur Björns á Löngu-
mýri o.fl. En misviðrasama og
marþætta ævi sína rekur hann af
ósérhlífni og án tæpitungu um
menn og málefni eða sjálfan sig.
Þú kannast viö tilfinninguna.
Hreingerningar og aftur hrein-
gerningar. Það er ef til vill ekki svo
afleitt, þegar um er að ræða slétta
veggi og jafnvel loftið í stofunni.
En þegar kemur að ofninum, þá
þaftu að bogra og bagsast með
kúst og dulu. Samt er ekki alltaf
hægt að hreinsa ofninn nægilega
vel.
Viö leggjum til, að þú leysir
vandann með því að mála - já,
mála íbúðina með björtum og
fallegum Kópal-litum; svo þegar
kemur að ofninum, þá færðu þér
Með Kópal sparast ótrúlega mikið
erfiði og heimilið verður sem nýtt,
áður en sjálfur jólaundirbúningur-
inn hefst.
málninghlf