Morgunblaðið - 08.12.1979, Page 24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
24
LeikfélaK Flateyrar, er var endurreist i haust, frumsýndi um helgina
leikritið Gisl eftir Brendan Behan. Leikstjóri er Sigurbjörg
Árnadóttir og með aðalhlutverk fara Bergþóra Asgeirsdóttir og Páll
Leifur Gíslason, alls koma fram 14 leikendur.
Aðstandendur orðabókarinnar Oröaskyggni með hana i höndunum.
Frá vinstri: Fríða S. Haraldsdóttir frá Bjölluútgáfunni, þau
Hallgrimur Sæmundsson, Sigurður Jóelsson og Jóna Sveinsdóttir frá
Foreldra- og styrktarfélagi heyrnardaufra og Árni Böðvarsson cand.
mag. sem ritstýrði verkinu.
Orðabók handa
börnum með 2000
uppsláttarorðum
ORÐASKYGGNI nefnist orðabók
með myndum, sérstaklega sniðin
handa börnum til að skyggnast í
eftir merkingum, beygingum og
skyldleika orða. Þessi bók á að
geta verið góður undirbúningur
að nota sér handbækur, og að
krakkar átti sig á því að hægt er
að fá skýringu á orðum, sagði
Árni Böðvarsson cand. mag. sem
ritstýrði verkinu. En Bjallan h.f.
hefur gefið það út og félagar úr
Mokað
tvisvar
í mánuði
VEGAGERÐ RÍKISINS hafði
samband við Morgunblaðið vegna
fréttar í blaðinu í fyrradag frá
Borgarfirði eystri þar sem sagt
var að Borgfirðingar ættu aðeins
rétt á einum mokstri í mánuði yfir
vetrarmánuðina. Hið rétta væri að
mokað væri tvisvar í mánuði.
MYNDAMÓT HF.
PRENTM YNDAGERÐ
AÐALSTRETI • SlMAR: 17152*17355
Foreldra — og styrktarfélagi
heyrnardaufra unnu að söfnun
orðanna, enda þörf heyrnar-
daufra barna mest fyrir slika
bók.
í Orðaskyggni eru um 2000
uppsláttarorð með myndum. Auk
þess eru beygingarlyklar orða
eftir því sem þurfa þykir, kenni-
föll, kennimyndi'r, algengustu
hljóðverptar myndir o.s.frv. Bókin
gerir ekki aðrar kröfur til notenda
sinna, en að þeir séu nægilega
læsir til að hafa gagn af skýring-
unum og myndunum, sem Vil-
hjálmur G. Vilhjálmsson hefur
teiknað.. Til að lýsa merkingum,
notkun og beygingum orða eru
bæði myndir og heilar setningar.
Við flest orð er mynd af þeim hlut
eða athöfn, eiginleika eða öðru
sem orðið táknar. Með öllum
orðunum eru sýnd dæmi um notk-
un þeirra í setningum, sem eru
þannig samdar að þar sýna helstu
beygingarmyndir orðsins. Með
þeim hætti fær notandinn upp í
hendurnar dæmi sem bæði eiga að
sýna honum merkingu orðsins og
vera fyrirmynd um beygingu.
Þetta er fyrsta íslenzka orða-
bókin af þessu tagi og eru skólarn-
ir farnir að spyrja um hana og
stöku skóli að kaupa hana til
kennslu. En jafnframt er bókin
nauðsynleg handbók hverju heim-
ili, þar sem eru börn. Við gerð
bókarinnar var haft að leiðarljósi
að skýringarnar eru fyrir börn og
að þær komi að notum fyrir börn.
Og er þetta þarft og gott framtak
á barnaári.
Rétt spor í rétta átt,
sporin íTorgiÖ!
Austurstræti
: 27211
Litur stæröir verö frá
1. Brúnt 30—39 24.900,-
2. Bordeux 23—33 17.500.-
3. Bordeux og brúnt 4. Rautt og blátt 23—30 15.400,-
og blátt og rautt 18—23 11.800.-
5. Hvítt og rautt Loöfóöraö — 18—23 11.900.-
ÞÚ AUGLÝSIR UM
ALLT LAND ÞEGAR
ÞÚ AUGLÝSIR í
MORGUNBLAÐINU
Hverfitón Lítiö inn fyrir jólin á loftinu og dr kaupið hljómplöturnar á
Aðalstræti 9. góðu verði.