Morgunblaðið - 08.12.1979, Side 28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
28
Epli rauð 545 kr. kg
Appelsínur 499 kr. kg
Klementínur 639 kr. kg
Opið til kl. 6 í dag.
HAGKAUP
Minning:
Jönmdur Brynjólfsson
fyrrv. alþingisforseti
Fæddur 21. febrúar 1884.
Dáinn 3. desember 1979.
í dag er jarðsunginn höfðingi og
heiðursmaður, Ég kynntist Jör-
undi á árinu 1957, eftir að pólitísk-
um ferli hans lauk, en hans verður
lengi minnst vegna þessa merki-
lega ferils og aðrir munu gera
honum skil. Ég kynntist þá
óvenjulegum manni, að ekki sé
meira sagt.
Það sem fyrst vakti athygli
mína, var reisn Jörundar og ör-
yggi. Ekki aðeins glæsibragur,
heldur tiginmannlegt höfðingsvið-
mót, ákveðnar hreyfingar og fas,
sem undirstrikaði andlegt sjálf-
stæði og umfram allt frjálsan
mann. Kraftmikið og hressilegt
yfirbragð, laust við uppgerð og
sýndarmennsku, sannfærði mann
á augabragði um hinn innri mann,
án þess að orð þyrftu til að koma.
Ekki þurfti Jörundur að hætta í
pólitíkinni, af því er skýrleikinn
væri þá farinn að gefa sig. Öllum
er það ljóst, sem hann þekktu.
iAKIMINN KR:
22480
Hann hefði vafalaust sem best
getað tekið við af Ágústi á Brúna-
stöðum, þegar hann lét af þing-
mennsku 1974, en Ágúst þurfti
ekki heldur að hætta ellinnar
vegna. Báðir voru jafnhressir þá.
Er ég kynntist Jörundi, var
hann formaður Veiðifélags Árnes-
inga, en ég var þá veiðieftirlits-
maður. Lét Jörundur nýlega af
þeirri formennsku. Síðar átti ég
eftir að tengjast honum meira. Ég
kynntist viðhorfum hans og per-
sónuleika náið. Jörundur var fróð-
leikssjór, og hafði kynnst mörgu,
sem ekki verður fært í letur. Hann
þekkti þjóðfélag okkar vel, enda
var hann sjálfur blóm í akri þess
gróðurs, sem óx í íslensku þjóðfé-
lagi frá aldamótum. Jörundur
hafði mikla innsýn og tilfinningu
fyrir því, sem var að gerast með
þjóðinni á hverjum tíma. í mínum
augum var hann eins og þjóðhöfð-
ingi í líflegra lagi. Þann aldar-
fjórðung sem ég þekkti hann, átti
ég við hann ómæld orðaskipti og
samtöl, sem eru mér ógleymanleg.
Jörundur hafði ríka tilfinningu
fyrir þjóðfélagslegri samkennd.
Að sá er ekki mestur, sem ryðst
yfir aðra eða fram úr þeim fer í
lífsgæða- eða virðingar- og valda-
kapphlaupinu. Hann mat þann
mest, sem ávaxtaði sitt pund og
lagði sitt fram til samfélagsins,
eftir því sem hæfni og geta leyfði,
sér og öðrum til uppbyggingar og
þroska. Jákvæð og bjartsýn
lífsviðhorf skipta miklu um heilsu,
hamingju og langlífi og allt þetta
hafði Jörundur í ríkum mæli.
Jöruhdur naut mikils og verð-
skuldaðs trausts. Þessum kveðjum
fylgir hlýr hugur og þakklátur.
Við hjónin vottum afkomendum
og aðstandendum samúð okkar.
Jón L. Arnalds.
Einnig: bambusrúllugardínur barnastólar og úrval af körfuvörum.