Morgunblaðið - 08.12.1979, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
Ný rakarastofa í Kópavogi
Ný rakarastofa hefur tekið til starfa á Smiðjuvegi 9 í Kópavogi.
Myndin sýnir starfsfólk nýju rakarastofunnar, talið frá vinstri: Birna
Lúðviksdóttir, Kristinn Svansson og Kristín Jónsdóttir.
Ráðstefna íslenskra
Mfræðinga 9.—10. des.
RÁÐSTEFNA íslenskra líffræð-
inga verður haldin á vegum
líffræðistofnunar Háskólans,
dagana 9. —10. desember 1979.
Hefur verið leitast við að fá sem
flesta líffræðinga til þess að
kynna í stuttu máli helstu
Stjörnuhlaup FH
STJÖRNUHLAUP FH, það
fyrsta í röðinni í vetur, fer
fram í dag í Hafnarfirði.
Hefst hlaupið kl. 14 við Lækj-
arskólann og hlaupin verður um
fimm kílómetra vegalengd í karla-
flokki og tveir kílómetrar í
kvennaflokki. Aðstaða verður til
fataskipta í Lækjarskóla.
INNLENT
rannsóknir sem þeir hafa með
höndum. Verða flutt alls 36
erindi á ráðstefnunni, og eru
þau flutt af líffræðingum frá 14
stofnunum. Með ráðstefnunni
er stefnt að því að kynna stöðu
líffræðirannsókna hér á landi
og efla samstarf meðal
íslenskra líffræðinga og meðal
stofnana sem sinna líffræði-
rannsóknum.
Á ráðstefnunni er fyrirhugað
að stofna Líffræðifélag íslands
er mun hafa það markmið að
efla líffræðilega þekkingu og
auðvelda samband og skoðana-
skipti milli íslenskra líffræðinga
innbyrðis og á milli þeirra og
erlendra starfsfélaga.
Ráðstefnan er öllum opin og
hefst hún kl. 10 sunnudaginn 9.
desember á Hótel Loftleiðum.
Aðalfundur
AÐALFUNDUR frjálsíþrótta-
deildar ÍR verður haldinn í félags-
heimili ÍR við Arnarbakka (Gren-
inu) á morgun. Hefst fundurinn
klukkan 14. Venjuleg aðalfund-
arstörf.
Kirkjudagur Seltjarnarnessóknar
ALLT frá því að Seltjarnarnes
varð sjálfstæð kirkjusókn, hefur
það verið árviss viðburður, að
söfnuðurinn hefur staðið fyrir
sérstökum kirkjudegi á aðventu í
félagsheimilinu. Segja má að
markmið kirkjudagsins sé víþætt,
annars vegar efling trúarlífs
safnaðarins og hins vegar fjáröfl-
un fyrir væntanlega kirkjubygg-
ingu.
Það er gleðiefni að geta greint
frá því, hversu vel miðar í þeim
efnum. Um þessar mundir er
verið að leggja síðustu hönd á
samkeppnistillögur að kirkjunni.
Áætlað er að byggja eftir þeirri
teikningu, sem fyrstu verðlaun
hlýtur. Allar tillögurnar verða til
sýnis í Valhúsaskóla um næstu
helgi, svo að mönnum gefist
kostur á að skoða þær. Undirbún-
ingsvinnu verður haldið áfram og
árangurinn er undir samstöðu og
fjárframlögum safnaðarfólks
kominn. Því má það vera ljóst, að
mikilvægt er, að vel takist til um
sölu á basarnum, sem velunnarar
safnaðarins hafa gert af áhuga og
elju og seldir verða ásamt ljúf-
fengum og fallegum smákökum,
laufabrauði og öðru góðgæti til
jólanna.
Um kvöldið verður hátíða-
dagskrá. Er vel til fallið að kalla
menn til samverustundar á að-
ventu, sem er undirbúningstími
jólanna, hinnar miklu hátíðar
kristinna manna.
Dagskrá kirkjudagsins í félags-
heimilinu á morgun verður á
þessa leið: kl. 11.00 Guðsþjónusta
fyrir alla fjölskylduna. Safnað-
arkórinn syngur undir stjórn
Sighvats Jónassonar, hins nýja
organista sóknarinnar. Þórður
Ólafur Búason syngur einsöng.
kl. 15.00 Basar. Glæsilegar
jólakökur og munir
Kl. 20.30 Kvöldvaka. Selkórinn
syngur undir stjórn Ragnheiðar
Guðmundsdóttir. Elísabet Eiríks-
dóttir syngur einsöng við undir-
leik Jórunnar Viðar. Þórir S.
Guðbergsson félagsráðgjafi flyt-
ur ávarp, og dr. Einar Sigur-
björnsson flytur hugvekju.
Seltirningar. Eflum samstöðu
og samstarf innan sóknarinnar
með mikilli þátttöku í samkomu-
haldi kirkjudagsins.
Verið öll hjartanlega velkomin
Frank M. Halldórsson
Lindarbær
_______Opið frá 9—2.
Gömlu dansarnir í
kvöld.
Þristar leika.
Söngvarar: Gunnar Páll,
Mattý Jóhanns.
Miða- og borðapantanir
eftir kl. 20, sími 21971.
Gömludansaklúbburinn Lindarbæ A
Miönætursýning í Austurbæjarbíói í kvöld kl. 23.30.
91. sýning. Aðeins 2 sýningar eftir.
Miðasala í Austurbæjarbíói frá kl. 4 í dag.
Sími 11384.
Hjálparstofnun kirkjunnar:
Við borgum ekki
Við borgum ekki
ALÞYÐU-
LEIKHUSIÐ
Kristjana Jónsdóttir og Guðmundur Einarsson eru hér með Höndina. fréttabréf Hjálparstofnunarinnar,
bauka og veggspjöld er verður komið fyrir almenningssjónir sem viðast til að minna á söfnunina.
Harmonikkukennsla
í tónlistarskólunum
í FRÉTTABRÉFI frá stjórn fé-
lags harmonikuunnenda er þess
getið að stór sigur hafi unnist í
baráttu félagsins til að fá harm-
onikuna viðurkennda af opinber-
um tónlistarskólum landsins.
Kennslan er þegar hafin við
góðar undirtektir í tónlistarskóla
Akureyrar, og er Karl Jónatans-
son þar aðalkennari á hljóðfærið.
Hér í Reykjavík er að hefjast
kennsla á harmoniku í Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar og
mun Grettir Björnsson stjórna
þeirri kennslu.
í fréttabréfinu segir:
„Við í stjórn F.H.U. viljum
þakka þann velvilja sem forráða-
menn tónlistarskólanna hafa sýnt
í þessu máli, og hvetja alla
áhugamenn um slíkt nám að leita
sér upplýsinga sem fyrst."
Landssöf nun til styrktar
bágstöddum í Kampútseu
HAFIN ER á vegum Hjálpar-
stofnunar kirkjunnar lands-
söfnun til styrktar nauðstödd-
um í Kampútseu. Er hún undir
yfirskriftinni Brauð handa
hungruðum heimi og hefur
verið árviss þáttur í starfi
Hjálparstofnunarinnar að efna
til slíkrar landssöfnunar á
jólaföstu.
Fréttabréf Hjálparstofnunar-
innar, Höndin, er nýkomið út og
hefur því verið dreift í um 70
þúsund eintökum til heimila í
landinu og fylgir því söfnunar-
baukur er landsmenn geta lagt
skerf sinn í. Má síðan skila
bauknum til sóknarpesta um land
allt, til Hjálparstofnunarinnar að
Klapparstíg 27 í Reykjavík eða
leggja andvirði þeirra á gíróreikn-
ing nr. 20005.
I leiðara Fréttabréfsins segir
m.a. svo: „íslendingar hafa löng-
um fengið orð fyrir samúð og
skilning á högum þeirra sem þjást
vegna hungurs og vannæringar.
Þó hefur sú þróun átt sér stað á
Norðurlöndum hin síðari ár, að við
Islendingar megum vara okkur á
því að það álit, sem við höfum
notið, verði ekki frá okkur tekið.
Nú fyrir skemmstu sýndu
frændur okkar, Norðmenn, hug
sinn til þessara mála með því að
gefa á einum degi til norsku
flóttamannahjálparinnar 70 millj-
ónir norskra króna, sem jafngildi
því að hver Norðmaður hafi gefið
að meðaltali um 550 íslenskar
krónur... Ef við leikum okkur
með tölur þá er athyglisvert að sjá
að ef hver íslendingur gæfi jafn-
mikið Norðmönnum þá ættum við
von á 120 milljónir ísl. króna til
hjálparstarfsins. Ef hvert heimili
í landinu gæfi 5.000 krónur þá
gætum við varið 350 milljónum
króna til hjálparstarfsins."
Guðmundur Einarsson fram-
kvæmdastjóri Hjálparstofnunar-
innar sagði að kennarar í einum
framhaldsskóla borgarinnar hefðu
tilkynnt stofnuninni um söfnun
meðal kennara skólans og hefðu
þegar safnast á 3. milljón. Nem-
endur í grunnskólum og Iðnskól-
anum í Reykjavík aöstoðuðu við að
koma út baukum og fréttabréfinu
og nemendur í M.A. hafa boðið
fram aðstoð sína. Sagðist Guð-
mundur hafa orðið var við áhuga
fólks um þessa söfnun og er öll
aðstoð vel þegin. Söfnuninni á að
ljúka síðustu dagana fyrir jól og
verða þá söfnunarbílar hafðir til
taks þar sem hægt verður að taka
á móti baukum.
Jólafagnaður
Félag einstæðra foreldra heldur jólafagnað fyrir
félagsmenn, börn þeirra og gesti í Atthagasal
Hótel Sögu, sunnudaginn 9. des. kl. 15:00.
Hugvekja, upplestur og söngur. Jólasveinn kemur
í heimsókn.
Fjölmenniö.
Félag einstæðra foreldra.