Morgunblaðið - 08.12.1979, Síða 44
n
4C dagar
10 til jóla
<£uill vK: é>ilfur
Laugavegi 35
^Síminn á afgreiðslunm er
83033
LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1979
JÓLATRÉSSALA Land-
græðslusjóðs er að hefjast um
þessar mundir, en komin eru til
landsins tré frá Danmörku og
verið að senda tré á útsölustaði.
Hefst salan að einhverju leyti
um helgina, en aimennt á út-
sölustöðum í Reykjavík og út
um land um næstu helgi.
Samkvæmt upplýsingum
Landgræðslusjóðs er verð
rauðgrenitrjáa 150—175 cm nú
kr. 11.200, verð furutrjáa er kr.
14.500, en ekki hefur verið ákv-
eðið verð á þintrjám, sem ráðg-
ert er þó nokkru hærra en verð
furutrjánna. Er þessi hækkun
milli 90 og 100% frá því í fyrra
og upplýsti talsmaður Land-
græðslusjóðs að það væri vegna
erlendra hækkana svo og gengis-
breytinga, en verð íslensku
trjánna er látið fylgja verði
þeirra erlendu.
Innlend jólatré koma frá
Skorradal, Þjórsárdal, Haukadal
og Hallormsstaðaskógi og fer
hlutdeild íslensku trjánna sífellt
vaxandi.
Verð á jóla-
trjám hækkar
um 90—100%
Jólatrén eru komin til landsins frá útlöndunum og þau íslensku tré sem höggvin verða eru senn tilbúin til sölu. Eru starfsmenn
Landgræðslusjóðs hér að undirhúa söluna er hefst í næstu viku. Ljósm. Rax.
Stjórnarmyndunarviðræður vinstri flokkanna hef jast í dag:
Allir flokkarnir svöruðu mála
leitan Steingríms jákvætt
Lúðvik Jósepsson formaður Alþýðubanda-
lagsins ekki með í viðræðunefnd flokksins
Sementsverksmiðjan:
Kolí
stað
olíu?
K \NNAÐ er nú hjá Sements-
vrrksmiðju ríkisins hvort unnt er
að nota kol í stað svartolíu til að
kynda gjailofn verksmiðjunnar.
Að sögn Gylfa Þórðarsonar fram-
kvæmdastjóra verksmiðjunnar er
tulið að spara megi allt að 500
milljónum króna á ári sé þetta
unnt.
Gylfi sagði að á núverandi
svartolíuverði næmu útgjöld
hennar vegna um 1.300 milljónum
króna á ári og hefði því verið
hugað að að breytingum á hitun
ofsins. Beðið væri umsagnar
tækniráðgjafa verksmiðjunnar í
Danmörku, þess sama og byggði
verksmiðjuna í upphafi, sem væri
væntanleg fyrir áramót. Væri
talið að kostnaður við nauðsyn-
legar breytingar væri kringum 200
milljónir króna og myndi hann því
vinnast upp á tæpu hálfu ári þar
sem spara mætti um 500 m.kr. við
þessa breytingu. Sérstakt framlag
ríkissjóðs þarf að koma til ef af
henni verður og taldi Gylfi að
ekkert þyrfti að vera því til
fyrirstöðu. Gylfi sagði kolin
myndu koma frá Póllandi ef til
kæmi, frá sama aðila og seldi kol
til járnblendiverksmiðjunnar.
Hækkar áfengi
eftir helgi?
TALIÐ er að áfengi muni hækka
í verði eftir helgina, en orðrómur
hefur verið uppi um það síðustu
daga. Sighvatur Björgvinsson
fjármálaráðherra kvaðst í sam-
tali við Mbl. í gær ekki vilja
staðfesta þá frétt og sagði það
ekki venju að tilkynna slíka
hækkun fyrirfram. Geta má þess
að mánudaginn 5. nóvember sl.
hækkaði tóbak í verði um 18%.
FYRSTI formlegi viðræðufundur
vinstri flokkanna um myndun
nýrrar vinstri stjórnar hefst i
Þórshamri í dag klukkan 14.
Formenn flokkanna þriggja sátu
saman fund í gær, þar sem þeir
ákváðu að kanna möguleika á
vinstri stjórn. „Þetta var ágætur
byrjunarfundur,“ sagði Stein-
grímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins eftir fund-
inn í gær, „og svöruðu báðir
flokkarnir málaleitan minni um
vinstri viðræður játandi og að
þeir væru fúsir að gera þessa
tilraun."
Af hálfu Framsóknarflokksins
hefur verið valin 6 manna nefnd
til þess að annast stjórnarmynd-
unarviðræðurnar. í henni eru:
Steingrímur Hermannsson, Tóm-
as Árnason, Guðmundur G. Þórar-
insson, Jón Helgason, Halldór
Ásgrímsson og Alexander Stef-
ánsson. Steingrímur og Tómas
verða í aðalnefnd og síðan einhver
einn hinna fjögurra eftir því
hvaða málaflokkur verður á
dagskrá. Verða þá hinir jafnan í
vinnuhópum.
Á þingflokksfundi í Alþýðu-
bandalaginu í gær, þar sem Ragn-
ar Arnalds var kjörinn formaður
þingflokksins og Svavar Gestsson
varaformaður, var kjörin viðræðu-
nefnd af hálfu flokksins. Hana
skipa: Ragnar Arnalds, Svavar
Gestsson og Guðmundur J. Guð-
mundsson, en til vara voru kjörn-
ir: Ólafur Ragnar Grímsson,
Hjörleifur Guttormsson og Geir
Gunnarsson.
í gærkveldi höfðu alþýðu-
flokksmenn ekki ákveðið sína við-
ræðunefnd og var ekki búizt við
því að hún yrði ákveðln fyrr en
árdegis í dag. Hins vegar mun
þingflokkur Álþýðuflokksins hafa
falið formanni flokksins, Benedikt
Gröndal, og varaformanni, Kjart-
ani Jóhannssyni, að hafa forystu
um viðræður af hálfu flokksins.
Athygli vekur, að formaður Al-
þýðubandalagsins, Lúðvík Jós-
epsson, tekur ekki þátt í viðræð-
unum. Mun Lúðvík telja stjórn-
armyndun verkefni þingflokksins
og þar sem hann á ekki lengur
sæti á Alþingi óskar hann ekki
eftir að taka þátt í viðræðunum.
Hins vegar mun hann sem for-
maður flokksins fylgjast náið með
framvindu mála.
„Það er allt of snemmt að segja
nokkuð um þessar viðræður,"
sagði Steingrímur Hermannsson í
gær, „en undirtektir eru jákvæðar
hjá flokkunum og menn eru sam-
mála um, að efnahagsmálin verði
aðalmálið." Morgunblaðið spurði
þá, hvort um þau væri ekki mikill
ágreiningur. Steingrímur kvað
menn segja svo, „en ég hef nú oft
sagt að í fyrri stjórninni hafi þessi
mál ekki verið útrædd, en við
verðum nú fyrst að fá myndina af
þeim, fá drögin í fullri stærð, eins
og einhver sagði.“
Benedikt Gröndal kvaðst ekkert
vilja segja um viðræðurnar nú í
byrjun. Ragnar Arnalds kvað
fundina enn ekki hafna og því
væri lítið hægt um þá að segja,
„en mér fannst leiðarinn í Alþýðu-
blaðinu daginn eftir kosningar
anzi svartur, því að þar var vinstri
stjórnar möguleikanum afneitað.
Ég ætla að vona, að sá andi verði
ekki ríkjandi í viðræðunum af
hálfu Alþýðuflokksins. Ég held, að
þetta taki alllangan tíma og verði
ekki auðvelt. Að öðru leyti er
ekkert hægt að fullyrða um útlit-
ið.“
Verslanir
opnar til
klukkan 18
VERSLANIR verða í dag
almennt opnar til kl. 18 til
að gefa fólki kost á að gera
jólainnkaup sín í tíma. en
síðasta laugardag var opið
ýmist til kl. 12 eða 16. Næsta
laugardag, 15. desember
verður siðan opið til kl. 22.
Benedikt Gröndal um forsetakjör á Alþingi:
„Blses ekki byrlega
fyrir samkomulagi“
FRAMSÓKNARFLOKKUR og
Alþýðubandalag höfnuðu í gær
tiilögu Benedikts Gröndals
formanns Alþýðuflokksins um
að þingstyrkur réði kjöri
stjórnar Alþingis og nefnda-
kjöri. Flokkarnir tveir gerðu
Alþýðuflokki gagntilboð um að
vinstri flokkarnir kysu í sam-
einingu forseta þingsins og
nefndir. Benedikt Gröndal gaí
ekkert út á þessa tillögu, en
kvaðst myndu leggja hana fyrir
þingflokk Alþýðuflokksins,
sem kemur saman á mánudag.
Benedikt Gröndal sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
ekki blési byrlega fyrir sam-
komulagi um þetta mál.
Samkvæmt ' upplýsingum
Morgunblaðsins óttast alþýðu-
flokksmenn mjög, að með þess-
ari tillögu séu hinir flokkarnir
að setja sig upp til veggs — þeir
verði þar með negldir inn í
stjórnarsamstarfið, eins og einn
þingmanna Alþýðuflokksins
sagði. Framsóknarflokkur og Al-
þýðuflokkur vilja hins vegar
hafa þetta sem prófstein á sam-
komulagsvilja alþýðuflokks-
manna.
Benedikt Gröndal, formaður
Alþýðuflokksins sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að
hugmynd sín með þessari tillögu
hafi verið að koma á bráða-
birgðalausn, unz ný ríkisstjórn
hefði verið mynduð. „Ég tók
engan veginn undir gagntillögu
þeirra," sagði Benedikt, „en lof-
aði, að ég skyldi leggja þetta
fyrir þingflokksfund. Hugmynd
mín var að brúa millibilsástand,
en það, sem menn eru að blaðra
um eins og Garðar Sigurðsson í
Þjóðviljanum gerir, þegar hann
segir, að ég sé að lyfta undir
íhaldið, það er úr lausu lofti
gripið. Slíkar hugmyndir eru
víðs fjarri mér. Ég get alveg eins
hugsað mér, að flokkarnir dragi
um forsetaembættin þangað til.“