Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 2

Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980 Km-gjald hækk- ar um nær 30% Þessa skemmtilegu mynd tók Ragnar Axelsson ljósmyndari í síðustu viku, er fréttamenn skoðuðu húsakynni a Reykjalundi í Mosíellssveit. Myndin er tekin af vatnsfleti æfingasundlaugarinnar. Fréttamenn og forráðamenn Reykjalundar, sem stóðu á bakkanum, speglast í fletinum. Sambandsstjórnar- og formannaráðstefna VMSÍ: Tekst að breyta stefnunni „ til samkomulags innan ASI? Ferðakostnaðarnefnd hefur reiknað svokallað kílómetra- gjald, sem er gjald, sem ríkis- starfsmenn fá greitt fyrir hvern ekinn kílómetra á eigin bifreið. S' Utvegsbankinn: Nýr aðstoðar- bankastjóri Á FUNDI bankaráðs Útvegsbanka íslands í gær var Ólafur Helgason eftirlitsmaður með útibúum bank- ans ráðinn aðstoðarbankastjóri í stað Þormóðs Ögmundssonar er um áramótin lét af störfum við bank- ann fyrir aldurssakir. Ólafur Helgason var áður en hann varð eftirlitsmaður með bankaúti- búunum, bankaútibússtjóri Útvegs- bankans í Vestmannaeyjum. Hann er rúmlega fimmtugur að aldri. Kona hans er Sigríður Helgadóttir frá Akureyri. Ólafur Helgason UM TUTTUGU manns munu missa atvinnuna vegna nýrra regina hjá Reykjavíkurborg um hámarksaldur starfsmanna þeg- ar á þessu ári, að því er Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri tjáði Morgunblaðinu í gær. Sagð- ist hann að vísu ekki hafa tölu þessara borgarstarfsmanna ná- kvæmlega, en fyrrnefnd tala hefði verið rædd á borgarráðs- fundi er málið kom til umfjöllun- ar þar. Borgarstjóri sagði fjörutíu starfsmenn að auki fara yfir aldursmörkin á þessu ári, en þar sem þar væri um að ræða fólk Leiðrétting MORGUNBLAÐIÐ hefur ver- ið beðið að leiðrétta missögn, sem fram kemur í blaðinu 3. janúar í frétt af andláti Karls Jónssonar, læknis. Segir þar að árið 1930 hafi Karl öðlazt viðurkenningu sem nuddlæknir. Þetta er ekki rétt, — nuddlækningar eru raunar ekki til sem sérgrein, að sögn Leifs Jónssonar læknis, sonar Karls. Karl Jónsson var sér- fræðingur í giktarlækningum og starfaði sem slíkur um fimmtíu ára skeið. I Læknatali er Karl Jónsson sagður hafa fengið réttindi sem nuddlæknir, en í nýrri útgáfu þess rits, sem væntanleg er, er þetta starfsheiti ekki nefnt þar sem frá honum segir. Gjaldið, sem gildir frá 1. janúar 1980 hækkar um nær 30%. Almennt gjald hækkar úr 102 krónum í 129 krónur fyrir hvern kílómetra sé akstur innan við 10 þúsund km. Á bilinu 10 til 20 þúsund km akstur er greiðslan fyrir hvern ekinn km 116 krónur en var 90 krónur og sé ekið umfram 20 þúsund km á ári er gjaldið 102 krónur en var 82 krónur. Sérstakt gjald, sem er fyrir akstur á þjóðvegum utan þéttbýlis er fyrir fyrstu 10 þúsund km 149 krónur á hvern ekinn km, en var 115 krónur. Fyrir 10 til 20 þúsund km akstur greiðast 133 krónur á hvern ekinn km, en voru 102 krónur. Sé akstur umfram 20 þúsund km er gjaldið 118 krónur, en var 92 krónur. Torfærugjald er nú fyrir fyrstu 10 þúsund km 184 krónur, fyrir næstu 10 þúsund km 164 krónur og fyrir akstur umfram 20 þúsund km 145 krónur. SAMEIGINLEGUR fundur sam- bandsstjórnar Verkamannasam- bands íslands og formanna aðildar- félaga sambandsins hefst i dag klukkan 14 að Hótei Loftleiðum og stendur í dag og ef þurfa þykir á morgun. Á fundinum er ætlunin að utan starfsmannafélags borgar- innar, er byggi við mun lakari lífeyrissjóðsréttindi en starfs- menn Starfsmannafélags Reykja- víkur og væru í öðrum sjóðum, myndi það halda vinnunni. Flest af þessu fólki sagði borg- arstjóri að héldi sínu starfi, en um það væri að ræða, að borgin þyrfti einhverjar reglur til að vinna samkvæmt, meðan unnið væri að samningu heildarreglna um þessi mál. Þegar þær lægju fyrir gæti síðan verið að færri misstu vinnu sína. Eins og skýrt var frá í Morgun- blaðinu í gær samþykktu borgar- fulltrúar Alþýðuflokks, Alþýðu- bandalags og Framsóknarflokks á fundi borgarstjórnar í fyrradag að borgarstarfsmönnum 71 árs og eldri yrði sagt upp störfum á þessu ári. kanna, hvort möguleikar eru á breytingu á kjaramálaályktun 9.. þings VMSÍ, sem haldið var á Akureyri í októbermánuði, en á kjaramálaráðstefnu Alþýðusam- bands íslands í desember náðist ekki samstaða um sameiginlega kjaramálastefnu aðildarfélaga ASÍ og var það mál manna, að ákveðin stefna VMSÍ kæmi í veg fyrir hana. í ályktun 9. þings VMSÍ segir m.a.: „Verkamannasamband Islands telur brýnt, að í komandi samningum verði verðbótakerfið notað til launajöfnun- ar, þannig að á allt kaup verði greidd sú krónutala, sem verðtryggi miðl- ungskaup að fullu.“ Síðar segir í ályktuninni: „Verkamannasamband íslands hvetur því til allsherjar samstöðu innan Alþýðusambands íslands um kjarabætur, þar sem fyrsta boðorðið verður að vera, að lægstu launin sitji í algjöru fyrir- rúmi.“ Á kjaramálaráðstefnu ASÍ náðist ekki samstaða um þessa stefnu VMSÍ. Guðmundur J. Guðmundsson, alþingismaður og formaður VMSI sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að þessi ráðstefna, sem hefst í dag, væri haldin, þar sem nauðsyn- legt væri að ræða þessi mál nánar innan sambandsins, þar sem ýmsir erfiðleikar væru í veginum, vegna þess að ýmis önnur samtök hefðu algjörlega lýst sig andvíg þessari stefnu. Guðmundur kvað aðalrök- semd gegn stefnu VMSÍ vera þá, að í svo mikilli verðbólgu sem raun bæri vitni, yrðu öll laun söm og jöfn. Hins vegar kvað hann ef til vill möguleika á einhverjum breytingum, t.d. að tekin yrðu upp tvö bótatímabil, eins og var 1977, en þá kvað hann verða að vera skilyrt, að samningar væru lausir ef aðrir fengju meira. Guðmundur kvað tillögur VMSÍ virka sem hækkun launa niður á við og valda skerðingu fyrir ofan það mark, sem verðbætur yrðu miðaðar við. Þá kvað hann liggja fyrir tillögur, sem fram hefðu komið á kjaramálaráðstefnu ASÍ, sem væru byggðar þannig upp, að þar væri gert ráð fyrir einhverri krónutöluhækk- un, sem síðan myndi mást út eftir því sem launin yrðu hærri. Hann kvað svipaða niðurstöðu koma út úr hvorutveggja, en þó taldi hann krónutöluregluna óvinsælli. „Það eru ýmsar hugleiðingar í þessu máli,“ sagði Guðmundur, „en meginþemað er að t.ryggja þeim lægstlaunuðu meira en öðrum.“ A.m.k. kvað hann innan ASI og innan VMSI engar kröfur uppi á þessu stigi, sem nálguðust neitt kröfur BSRB. Gaf 14 milljónir kr. til minningar um systur sína STYRKTARFÉLAGI lamaðra og fatlaðra barst á gamlársdag 14 milljón króna gjöf. Sigríður Bjarnadóttir frá Fljótshólum í Gaulverjabæjar- hreppi lét þá færa félaginu gjöf þessa til minningar um systur sína Kristrúnu Bjarnadóttur, sem andaðist í Reykjavík hinn 23. marz 1973. Styrktarfélag lamaðra og fatl- aðra þakkar þessa stórhöfðing- iegu gjöf og metur mikils þá viðurkenningu og þann hlýhug, sem starfsemi félagsins er sýnd- ur með minningargjöf þessari. (Fréttatilkynning). Ræninginn ófundinn RANNSÓKN er haldið áfram af fullum krafti á póstráninu í Sandgerði. Sú rannsókn hefur ekki borið árangur enn sem komið er og gekk ræninginn enn laus, þegar Mbl. hafði síðast fregnir í gærkvöldi. Margeir og Jón hafa báðir 3 vinninga. Annars er mótið mjög jafnt og efstu menn, Ilic og Vasjukov hafa ekki nema 4 vinn- inga. Arangurs- laus leit ENN hefur ekkert spurzt til Baldurs Baldurssonar, Torfu- felli 24, sem hvarf 20. desembcr s.l. Leitarflokkar hafa leitað Baldurs undanfarna daga í Reykjavík og nágrenni en sú leit hefur engan árangur borið. Togarar seldu í Bretlandi TVEIR Hafnarfjarðartogarar seldu afla sinn i Bretiandi i gær og fengu gott verð fyrir aflann. Rán seldi 51,3 lestir í Fleetwood fyrir 35,4 milljónir króna, meðal- verð 689 krónur. Þá seldi Ýmir 99,4 lestir í Hull fyrir 63,4 millj- ónir króna, meðalverð 638 krónur fyrir hvert kíló. Jafntefli hjá Jóni og Margeiri MARGEIR Pétursson og Jón L. Árnason gerðu báðir jafntefli í skákum sinum i 6. umferð al- þjóða mótsins í Prag í Tékkó- slóvakíu í gær. Margeir gerði jafntefli við Lanc en Jón við Janak. Margeir tapaði svo biðskák sinni úr 5. umferð gegn Prandsteckter. Margeir hafði í hencfi sér að ná jafntefli en biðleikur hans reyndist vera herfi- legur afleikur og tapaði hann því skákinni. Enn rís land við Kröflu KARL Grönvold jarðfræðingur á skjálftavaktinni í Mývatnssveit hafði litlar fréttir að segja, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gærkvöldi. Land rís hægt og skjálftavirkni heldur áfram. Mældust 40—50 skjálftar í gær en voru 55 daginn áður. Ekkert spyrst til Friðriks EKKERT hefur spurst til Frið- riks Ásmundssonar stýrimanns á Sigurbergi GK, sem hvarf af skipi sínu í Hull í Bretlandi 29. nóv- ember s.l. Víðtæk leit hefur verið gerð að Friðriki, m.a. hefur höfn- in í Hull verið slædd en öll leit hefur verið árangurslaus hingað til. Nýjar aldursreglur hjá Rvíkurborg: 20 manns missa vinnuna á árinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.