Morgunblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980
MW
MORötlN/-
KAffinu
Já, en hvað um hárþurrkuna?
Þrjú og fimm fyrir að klippa
þennan dreng iágmark!
Hús í þeim verðflokki, sem þið
talið um, seldi ég árið 1950....!
„Veit þá engi...
„Árið 1979 hefur nú kvatt og
runnið sitt skeið til enda í alda-
hjúpið og kemur ei meir. En hin
eilífa hringsrás lífgróandans
streymir þó enn fram sem áður
eftir sínum öruggu og óhaggan-
legu lífslögmálum er höfundur
lífsins skóp þeim í upphafi.
Mun svo enn fram halda meðan
sól vermir jörð og regndropar
falla úr skýjum, tungl, stjörnur og
norðurljós leiftra og blika um
himinbogann og logavendir þeirra
leifturljósa blika léttir og frjálsir
um himinhvelin víð í sínum þús-
undföldu litbrigðum.
Já, það er vissulega fögur sjón
að líta slíkt á heiðskírum og
kyrrum vetrarkvöldum og hverj-
um manni sálubót að gefa gaum
að þeim hlutum í hinu mikla
geimdjúpi himinhvolfsins. Og
Davíð skáld frá Fagraskógi yrkir
svo til höfundar lífsins í hátíðar-
ljóði sínu á Þingvöllum 1930:
„Allt lifandi lofsyngur þig,
hvert barn, hvert blóm.
Þó enginn skynji né skilji
þinn skapandi leyndardóm."
Nú, þá er rétt að víkja að öðru
efni, af nógu virðist að taka. Um
þessi áramót er mörgum dinimt
fyrir augum og vonir manna ekki
mjög glæsilegar um framvindu
mála í íslenskum stjórnmálum og
efnahagsmálum eins og nú er í
pottinn búið. En rétt er að reyna
að vera bjartsýnn og hugga sig við
hið sígilda spakmæli að öll él
birtir upp um síðir. Við skulum
því vona hið besta.
I nýafstöðnum kosningum virð-
ist það hafa vafist nokkuð fyrir
kjósendum að gjöra upp við sig að
gefa skýr svör með atkvæði sínu
hvaða stjórnarhætti þeir kysu
helst í núverandi stöðu þjóðmál-
anna. En þó er ljóst að Sjálfstæð-
isflokkur og Alþýðuflokkur, sá er
sleit stjórnarsamstarfinu, fengu í
nýafstöðnum Alþingiskosningum
meira en helming allra greiddra
atkvæða í landinu og eru því í
greinilegum meirihluta með þjóð-
inni í dag.
Vinstra stjórnarmyndunaræv-
intýri Steingríms varð strax í
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
í þriðju jólaþrautinni datt þér
fyrst í hug að segja pass eftir
opnun austurs á einu hjarta en
endurskoðaðir hug þinn og sagðir
einn spaða með spil suðurs. Aust-
ur gaf spilið og þú varst utan
hættu.
Norður
S. ÁD109832
H. -
T. ÁD8
L. ÁG10
Suður
S. KG654
H. D4
T. 543
L. KD6
Og þú varst fljótur að segja pass
við sex spöðum makkers en þegar
vestur hefur spilað út hjartatíu
dettur þér fyrst af öllu í hug, að
þakka makker fyrir að segja ekki
alslemmuna.
Spurt var hvort hægt væri að
vinna spilið með nokkru öryggi.
Svarið verður já, en þó með
þeim fyrirvara áð trúa verður
opnun austurs. Hann á þá öll
háspilin, sem vantar og tígulsvín-
ing þar með þýðingarlaus. Þér
kann að hafa dottið í hug að taka
einu sinni tromp, laufin, trompa
bæði hjörtun og spila síðan tígli
með það í huga að láta áttuna frá
blindum. Austur gæti þá reynst
fastur í neti en eingöngu vegna
þess, að vestur brást þegar hann
lét ekki níu eða tíu þegar þú
spilaðir tíglinum.
Norður
S. ÁD109832
H. -
T. ÁD8
L. ÁG10
Austur
S. 7
H. ÁKG852
T. KG2
L. 542
Suður
S. KG654
H. D4
T. 543
L. KD6
Vestur
S. -
H. 109763
T. 10976
L. 9873
Sjá má, að það hefði dugað
vörninni. Eina hundörugga leiðin
er að trompa útspilið, taka eins
trompið, sem vantar, síðan slagina
þrjá á lauf og spila hjartadrottn-
ingu. í hana fer tíguláttan úr
blindum, austur fær slaginn en
verður þá með næsta útspili sínu
að gefa þér tólfta slaginn.
Maigret og vínkaupmaðurinn
Eftir Georges Simenon
Jóhanna Kríst|ónsdóttir
sneri á islensku
11
fullir af beiskju í hans garð,
það er ckki nema mannlegt.
Þér eigið við að einhver
keppinautanna kunni að hafa
komið honum fyrir kattarnef?
— Er það ekki sennilegast?
Desiré sagði ekkert um ást-
konur sonar sins og þá kenn-
ingu að þarna hefði verið að
verki afbrýðissamur cigin-
maður eða eiskhugi. Kannski
vissi hann ekkert um það.
— Þekkið þér fólk sem átti í
útistöðum við hann?
— Nei það geri ég ekki. En
ég veit að ýmsir höfðu horn í
síðu hans. Þér getið sjáifsagt
aflað yður upplýsinga um það.
— Ileimsótti hann yður oft?
— Næstum aldrei. Eftir að
hann setti á stofn sitt eigið
fyrirtæki samdi okkur ekkí
sérlega vel.
— Vegna þess að yður fannst
hann of harðisvíraður?
— Þess vegna meðal annars.
Og af ýmsum ástæðum. En þær
koma þessu ekki við.
Og allt í einu þreifaði hann
með gamalli hendi sinni upp i
augað og þeytti hálfreiðilega
burtu einu tári.
— Hvenær get ég fengið að
sjá hann?
— Þér getið fengið að sjá
hann á morgun, ef þér viijið.
Hann fyllti bæði glösin og
tæmdi sitt. Augnaráð hans var
starandi og tómt. Maigrct lauk
einnig úr sínu glasi og nokkru
síðar lögðu þeir af stað út að
bilnum.
— Þú keyrir mig heim er
það ekki? Svo getur þú haft
bílinn og farið á honum heim.
Klukkan var að nálgast tólf
þegar hann gekk upp stigann
og sá að dyrnar á ibúðinni
þeirra opnuðust og kona hans
kom fram á pallinn að taka á
móti honum. Ilann hafði hringt
heim um átta leytið og sagt
henni að hann kæmi seint heim,
þvi að hann hafði búist við að
drjúgur timi færi i að fást við
Theo ömmumorðingja.
— Ég vona þú hafir ckki
kvefast.
— Ég hef varla farið út fyrir
dyr. Bara þegar ég fór úr
bilnum og inn i hann aftur.
— Mér finnst þú nú rámur í
röddinni.
— Hvað. Ég hef ekki hósta
og ekki hef ég þurft að snýta
mér.
— Biddu þangað til í fyrra-
málið. þá gæti annað komið i
Ijós.
Ég ætla að búa til heitt toddi
handa þér og gefa þér asperín.
Játaði ungi maðurinn?
Hún vissi aðeins að Stierent
hafði drepið ömmu sina.
— Já. það gekk fljótt fyrir
sig. Hann bar ekki við að neita.
— Var hann á eftir pening-
um?
— Hann er atvinnulaus og
hafði verið hent út úr herberg-
inu sínu sem hann hafði ekki
borgað leigu fyrir.
— Er hann ruddi?
— Nei. Hann er illa gefinn
eða vanþroska. Ég veit ekki
hvort. Ég held hann geri sér
ekki grein fyrir þvi sem hann
hefur gert, né heldur hvað
bíður hans. Hann reynir að
svara eins og hann getur öllum
spurningum eins og góður
drengur.
— Heldur þú að hann verði
talinn óábyrgur gerða sinna?
— Það verður dómarinn að
skera úr um. Það er ekki mitt
mál.
— Er útlit fyrir að hann fái
góðan verjanda?
— Eins og venjulega verður
það sjáifsagt einhver ungur
lögfræðingur. Reyndar er það
ekki hans skuld að ég kem
svona seint. Þekktur maður var
skotinn niður þegar hanna var
að koma úr einu virðulegasta
hóruhúsi Parisar.
— Ég þarf að heyra meira.
En nú heyri ég að ketillinn er
að flauta. Toddiið verður til-
búið eftir stutta stund.
Og á mcðan afklæddist hann
og fór i náttföt. velti fyrir sér
hvort hann ætti að troða i
siðustu pípu dagsins. Og endaði
auðvitað með þvi að gera það.