Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 34

Morgunblaðið - 05.01.1980, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980 Hreinn fer utan til Bandarík janna og æfir þar í 5 mánuði — ÞAÐ KOM mér á óvart að verða kosinn íþróttamaður árs- ins, persónulega átti ég von á að annar hreppti titilinn. Ég náði ekki mínum besta árangri á árinu sem var að líða, en ég tek þessu nú öllu með ró. Það er eins og i bingó að sitja hér og bíða eítir því að heyra hver hreppir fyrsta sætið, sagði íþróttamaður ársins 1979 eftir að hann hafði tekið við hinum veglega verð- launagrip er útnefningunni fylg- ir. Aðspurður um hvað framund- an væri sagði Hreinn: — Næstkomandi mánudag fer ég utan til Tucaloosa í Alabama í Bandaríkjunum og mun dveljast þar í fimm mánuði við æfingar og keppni. Ég mun keppa fyrir Há- skóiann á staðnum. Guðni Hall- dórsson mun einnig fara út til sama skóla og munum við stunda æfingar saman eins og við höfum gert í langan tíma. Þetta er að sjálfsögðu fyrst og fremst undir- búningur fyrir Olympíuleikana í Moskvu sem fram fara í sumar. Ég set engin takmörk opinber- lega en mun að sjálfsögðu gera mitt besta eins og endranær og reyna að vera á toppnum á Olympíuleikunum. Það getur samt verið erfitt þar sem það er oft dagaspursmál hvenær besti ár- angurinn næst. Síðastliðið sumar tapaði ég engu móti sem ég tók þátt í en það er e.t.v. vegna þess að mótin voru ekki nægilega sterk. Ég er ekki enn orðinn nógu góður af þeim meiðslum sem ég hlaut á sínum tíma og verð það líklega aldrei. Ég er mjög misjafnlega góður í hnénu en hef nú verið með betra móti að undanförnu og þetta hefur lagast eftir því sem ég styrkist meira. Þetta gæti orðið mitt síðasta ár sem ég reyni við toppárangurinn í kúluvarpi. Eftir þetta ár verð ég svo meira í þessu mér til gamans. Annars hef ég sagt þetta áður, það var árið 1976, þá var ég ákveðinn í að hætta, en hélt svo áfram. Árið 1977 náði ég svo mínum besta árangri, kastaði 21,09 metra á alþjóðlegu móti í Stokkhólmi sem var vallarmet sem stendur enn þann dag í dag. Það gæti því hugsanlega komið fyrir að ef mér fyndist ég vera sterkur að ég héldi áfram. Að lokum sagðist Hreinn vera fullur bjartsýni á að Olympíuleik- arnir myndu fara fram, þrátt fyrir að ýmsar blikur væru nú á lofti í þeim efnum. — Það á ekki að blanda saman stjórnmálum og íþróttum, sagði Hreinn. - þr. íþréttamaður ársins 1979 Tapaði ekki keppni á árinu og náði 6. besta afrekinu í heiminum HREINN HALLDÓRSSON var kjörinn íþróttamaður ársins 1979. Hlaut Hreinn 64 stig af 70 mögulegum í kjörinu sem nú fór fram i 24. sinn. Hreinn er nú kjörinn íþróttamaður ársins i þriðja sinn og sem fyrr er hann vel að þessu sæmdarheiti kominn. Hann er nú 30 ára gamall og hefur um langt árabil verið fremsti kúluvarpari landsins og í mörg undanfarin ár i hópi bestu kúluvarpara heims. Á s.l. sumri náði Hreinn 6. besta árangri í kúluvarpi i heiminum árið 1979. Hann varpaði kúlunni 20,69 metra á móti á Húsavík, en hafði áður varpað henni 20,59 metra á móti i Bandaríkjunum. Þessum árangri náði Hreinn þrátt fyrir meiðsli, sem hrjáðu hann lengi keppnistímabilsins. Hreinn hefur jafnan staðið sig mjög vel á alþjóðlegum mótum, en meiðsli hans á s.l. ári komu i veg fyrir það, að hann gæti tekið þátt i mörgum slíkum, utan Evrópubikarkeppninnar og Kalott-keppninnar, en þar sigraði hann í kúluvarpi með yfirburðum. 1 10 efstu sætunum að þessu sinni urðu eftirtalin: Hreinn Halldórsson KR 63 stig Oddur Sigurðsson KR frjálsar íþróttir 51 stig. Pétur Péturss. Feyenoord knattspyrna 49 stig. Jón Sigurðsson KR körfuknattleikur 38 stig. Valbjörn Þorláksson KR frjálsar íþróttir 24 stig. Skúli óskarsson UÍA kraftlyftingar 23 stig. Brynjar Kvaran Val handknattleikur 23 stig. Hannes Eyvindsson GR fiTOlf 1Q stífiT Sigurður T. Sigurðss. KR fimleikar og frjálsar íþróttir 18 stig. Gunnar Steingrímss. ÍBV kraftlyftingar 17 stig. Þau 10 sem urðu í efstu sætun- um fengu öll áritaða bókina Á brattann, ævisögu Agnars Kofoed Hansens flugmálastjóra, en Veltir HF greiddi allan kostnað af þeirri bókagjöf. Bjarni Felixson formaður Sam- taka íþróttafréttamanna afhenti verðlaunin og sagði meðal annars í ræðu sinni: í nær öllum löndum heims hefur það lengi tíðkast, að íþrótta- fréttamenn hafa kjörið íþrótta- mann ársins í heimalandi sínu, og allt frá stofnun Samtaka íþrótta- fréttamanna árið 1956 hefur sá háttur verið einnig hafður á hér- lendis. Hvarvetna er fylgst með kjöri íþróttamanns ársins af mik- illi athygli og áhuga og svo er einnig hér með fámennri þjóð norður undir heimskautsbaug. Með þessu kjöri erum við íþrótta- fréttamenn ekki að ýta undir stjörnudýrkun á íþróttafólki, heldur erum við að reyna að vekja athygli á gildi íþróttanna fyrir land okkar og þjóð og um leið reynum við að hvetja ungt fólk til að hafa að leiðarljósi íþróttamenn þá, sem skara fram úr í íþrótt sinni. Við íslendingar getum verið stoltir af íþróttafólki okkar. Það hefur stundað íþróttir sínar af alúð og kostgæfni og náð mjög góðum árangri í keppni við erlent íþróttafólk. íþróttafólkið okkar býr á flestum sviðum við erfiðari aðstæður og lélegri skilyrði en íþróttafólk annarra þjóða og það fórnar miklum tíma og fé úr eigin vasa í þágu íþróttanna. Því er það aðdáunarvert og hefur reyndar vakið mikla athygli erlendis, hve íþróttafólk okkar hefur staðið sig vel í keppni við íþróttafólk ann- arra og stærri þjóða, sem hvorki spara fé og fyrirhöfn til styrktar íþróttafólki sínu. Almenningur hérlendis sem er- lendis gerir miklar kröfur til íþróttafólksins og það reynir hvarvetna að verða við þessum kröfum. Svo er einnig hér. Islensk íþróttahreyfing lætur sífellt meira að sér kveða í þjóðlífinu og það er óhætt að fullyrða, að nú láta fáir sig íþróttir engu skipta. Virkum þátttakendum í íþróttahreyfing- unni hefur að sama skapi fjölgað, bæði þeim sem keppnisgreinar stunda og einnig hinum sem stunda íþróttir og útilíf sér til ánægju og heilsubótar. Nú eru innan vébanda íþróttahreyfingar- innar um 70 þúsund manns eða tæplega þriðjungur þjóðarinnar. Við Islendingar höfum þó ekki sýnt það í verki, að við metum gildi íþróttanna og hið mikla og fórnfúsa starf íþróttahreyfingar- innar að verðleikum. Við erum langt á eftir öðrum þjóðum í þessum efnum. Stuðningur ís- lenskra stjórnvalda við íþrótta- starfsemina er sorglega lítill. Fjárhagsörðugleikar standa nú allri íþróttastarfsemi mjög fyrir þrifum. íþróttahreyfingin hefur ekki verið kröfuhörð. Mestur hluti íþróttastarfsins hefur verið unn- inn í sjálfboðavinnu og þar eru margir að verki, íþróttamenn, leiðbeinendur og forystumenn íþróttafélaga og íþróttasamtaka, sem margir hverjir leggja nótt við dag. Að lokinni ræðu Bjarna tók til máls Ásgeir Gunnarsson fram- kvæmdastjóri Veltis HF og Volvo á íslandi. Óskaði hann íþrótta- manni ársins til hamingju og tilkynnti að Volvo myndi greiða ferð Hreins til einhvers hinna Norðurlandanna er íþróttamenn ársins á Norðurlöndum verða heiðraðir og valinn verður íþrótta- maður ársins á Norðurlöndunum. Þá tók til máls Gísli Halldórsson forseti ISI og lýsti hann ánægju sinni með kjörið og óskaði Hreini alls hins besta á keppnisárinu sem fer í hönd. —þr. • Á mynd Kristins ljósmyndara ölafssonar má sjá þá íþróttamenn úr hópi tíu efstu sem sáu sér fært að mæta. Frá vinstri: Brynjar Kvaran, Skúli óskarsson, Valbjörn Þorláksson, Hreinn Halidórsson íþróttamaður ársins 1979, Oddur Sigurðsson, Sigurður T. Sigurðsson, Halla Snorradóttir eiginkona Jóns Sigurðssonar sem er erlendis með landsliði íslands í körfuknattleik, og loks Hannes kylfingur Eyvindsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.