Morgunblaðið - 05.01.1980, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980
35
• íþróttamenn ársins 1978 og 1979, Skúli óskarsson og Hreinn Halldórsson, ræðast
við, en á milli þeirra er Oddur Sigurðsson spretthlaupari sem varð í öðru sæti þetta
árið. í fjarska grillir í íþróttafoingjana Örn Eiðsson formann FRÍ og Svein Björnsson
varaforseta ÍSI. Ljósm. Mbl. Kristinn.
Fylgir ísland eftir
góðum leik gegn Póllandi?
TVEIR landslcikir fara fram í
handknattleik um helgina, báðir
gegn Pólverjum í Laugardals-
höllinni. Sem kunnugt er léku
ísland og Pólland á fimmtudags-
kvöldið og sigraði póiska liðið
25—23 í fjörugum og spennandi
leik. íslenska liðið sýndi þar
betri leik heldur en margir reikn-
uðu með og ef einhver hefur verið
í vafa um hvað þetta nýja ís-
lenska landslið er fært um að
gera, þá á ekki að vera lengur
vafi.
Með heppni hefði ísland getað
náð a.m.k. jafntefli svo ekki sé
minnst á sigur. Þetta hljómar
kunnuglega, enda oft verið fleygt
fram eftir naum og jafnvel stór
töp. En satt er þetta engu að síður.
Pólverjarnir þykjast að sjálfsögðu
hafa leikið illa, en það er stað-
reynd að lið leikur ekki betur
heldur en andstæðingurinn leyfir
því. Því bendir ýmislegt til þess að
spennandi leikir séu í aðsigi og í
þokkabót möguleiki á sigri. Pól-
verjar hafa löngum átt erfitt með
íslendinga og landinn unnið
nokkrum sinnum.
Leikurinn í dag hefst klukkan
14.00, en á morgun klukkan 15.00.
Óhætt er að hvetja fólk til að
koma á leikina, því að hvort sem
sigur vinnst eða ekki, eru horfur á
góðum leikjum.
Sigur og tap hjá
körfulandsliðinu
ÞAÐ hafa skípst á skin og skúrir
hjá islenska iandsliðinu i körfu-
knattleik sem er á keppnisferða-
lagi á írlandi um þessar mundir.
Áður en til írlands kom, lék liðið
i Luxemborg við landslið heima-
manna. Sýndi islenska liðið þar á
sér ýmsar góðar hliðar og vann
sigur. 85—83. Útisigrar eru allt-
af sætir.
ísland varð þó fyrir því áfalli í
byrjun síðari hálfleiks, að Jón
Sigurðsson meiddist og lék ekki
með eftir það. Hann hafði farið
hamförum og var stigahæsti leik-
maður liðsins þegar upp var stað-
ið. Landinn lét ekki deigan síga þó
að Jón meiddist, aðrir héldu uppi
merkinu og innbyrtur var góður
sigur. Jón var sem fyrr segir
stigahæstur, skoraði 16 stig, Jónas
Jóhannesson og Kolbeinn Krist-
insson skoruðu báðir 14 stig og
léku mjög vel. Torfi Magnússon
skoraði einnig 14 stig, en aðrir
minna.
íslendingar mættu síðan írum í
fyrrakvöld og lék Jón Sigurðsson
ekki með vegna fyrrgreindra
meiðsla. Er skemmst frá að segja,
að íslendingar léku afar illa og
töpuðu verðskuldað, þó aðeins með
eins stigs mun, 73— 74. Aðeins
einn leikmanna íslenska liðsins
stóð upp úr að þessu sinni, en það
var Kristinn Jörundsson, hann var
einnig stigahæstur með 22 stig.
íslenska liðið fær enn tækifæri til
að hefna fyrir ósigurinn, því að
leikirnir gegn írum í ferðinni áttu
að vera tveir.
Frjálsíþróttafólk
mjög á faraldsfæti
Margt af besta frjálsíþróttafólki
landsins dvelst um þessar mundir
annað hvort erlendis við nám og
æfingar eða þá er á förum út
fyrir landsteinana til þess að æfa
og keppa i greinum sínum. Á
öðrum stað hér á siðunni er
greint frá því að Hreinn Hall-
dórsson og Guðni Halldórsson
eru á förum til Alabama þar sem
þeir ætla að æfa og keppa næstu
fimm mánuðina.
I Texas dveljast við æfingar og
nám þeir Óskar Jakobsson og
Priðrik Þór Óskarsson, en þeir
munu hefja keppni 20. þessa
mánaðar. Þá hafa dvalið í Ottawa
síðan í október þau Þráinn Haf-
steinsson og Þórdís Gísladóttir,
bæði úr ÍR.
Tveir flokkar frjálsíþrótta-
manna eru auk þess senn á förum
til keppni og æfinga í Kaliforníu.
Möguleiki er á því að hóparnir
dveljist á sama stað, en ekki er
það þó alveg víst. Þann hóp sem á
undan fer skipa Vilmundur Vil-
hjálmsson KR, Gunnar Páll Jóa-
kimsson IR og Þorvaldur Þórsson
ÍR. Síðan fara þeir Stefán Hall-
grímsson UIA og Erlendur Valdi-
marsson IR.
Vilhelm gengur
í raðir Framara
FRAMARAR fá nú liðsauka úr
öllum áttum fyrir komandi
keppnistímabil í knattspyrnu. í
Mbi. í gær var skýrt frá þvi að
Haukamaðurinn Guðmundur Sig-
marsson hefði gengið i Fram. Nú
hefur Mbl. frétt að Vilhelm Fred-
riksen miðherji hjá KR ætli að
ganga yfir. Að vísu hefur Vil-
helm enn ekki gengið frá félaga-
skiptum, en það er á næsta leiti
eftir því sem hann sjálfur segir.
Það má þvi reikna með bikar-
meisturum Fram sterkum á kom-
andi sumri, liðið sigraði nýlega á
Reykjavikurmeistaramótinu i
knattspyrnu og með þessa tvo
• Vilhelm Fredriksen.
nýju og sterku leikmenn innan-
borðs er það til alls liklegt. gg.
Guöni og
Magnús til
Finnlands
ÞEIR Guðni Kjartansson
og Magnús Jónatansson
verða á tækniráðstefnu
mikilli sem fram fer í
Finnlandi um helgina. Eru
þeir þar á vegum KSÍ.
Barcelona
kaupir
dínamít
MARGT bendir nú til þess, að
spænska knattspyrnustórveldið
Barcelona sé í þann mund að
tryggja sér nýjan snilling frá
Brasilíu. kappa að nafni Carlos
Roberto de Olivera, eða Roberto
„Dynamite1* eins og hann er
gjarnan nefndur heima fyrir.
Mætti útleggja það sem Berti
bomba á islensku.
De Olivera er um þessar mundir
að kljást við forráðamenn Barce-
lona um smáatriði í samningi, en
reiknað er með að gangi saman
með viðkomandi aðilum áður en
langt um líður. De Olivera á
líklega að taka stöðu Austurríkis-
mannsins Johans Krankl sem orð-
inn er pirraður á Spáni.
ttandah
í íþróttahöllinni á Selfossi
sunnudag 6. janúar kl.22
Brimkló,
Brunaliöiö,
Halli og Laddi,
HLH flokkurinn,
Mánar,
Rut Reginalds,
Drengjasveitin.
FRÁ EYRARBAKKA, STOKKSEYRI OG HVERAGER