Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 1
48 SÍÐUR
67. tbl. 67. árg.
FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Weizman heim
eftir leynif erð
Tel Aviv, 19. marz. AP.
Tigran Petrossian
VEtDEN / WÖRTHERSEE
KORCHNOI YFIR — Korchnoi horfir á keppinaut sinn, Petrosjan, leika í skákinni sem hann gaf í
Velden í Austurríki á mánudaginn en við það náði Korchnoi forystunni. Fréttir herma að Korchnoi hafi
ekki verið látinn vita að sonur hans var sendur í vinnubúðir í Sovétríkjunum. Vinir hans og
aðstoðarmenn óttast að fréttin geti haft áhrif á frammistöðu hans.
Begin og Sadat til
með Carter
EZER Weizman land-
varnaráðherra kom ný-
lega heim úr þriggja daga
leyniferð til útlanda til
viðræðna um hernaðar-
samvinnu við annað ríki
að sögn ísraelska útvarps-
ins^í dag.
Útvarpið sagði að
Weizman hefði farið til
Suður-Afríku, en tals-
maður ísraelsstjórnar og
suður-afríska landvarna-
Sabena
lækkar
um 60%
Hrussol, 19. marz. AP.
BELGÍSKA flugfélag-
ið Sabena boðaði í dag
40—60% lækkun á far-
gjöldum á leiðum frá
Brussel til 16 borga í
10 Evrópulöndum frá
1. apríl nk.
Fargj aldalækkanirnar
voru ákveðnar samkvæmt
samkomulagi við ríkisstjórn-
ir landanna að sögn forseta
Sabena, Carlos van Rafelg-
hem, og flugfélög hlutaðeig-
andi landa munu einnig geta
boðið svipaðar lækkanir á
flugleiðum til Briissel.
Fargjöld Sabena verða
lækkuð á flugleiðum til Basel,
Zurich, Genf, Aþenu, Istan-
bul, Kaupmannahafnar,
Stokkhólms, Vínar, Amster-
dam, Lion, Marseilles, Nizza,
Parísar, London, Manchester
og Dublin. Félagið reynir að
fá að lækka fargjöld á leiðun-
um til Malaga, Madrid,
Barcelona og Lissabon.
ráðuneytið báru fréttina
til baka. Stjórnartals-
maðurinn neitaði að svara
því hvort Weizman hefði
farið til einhvers annars
lands.
Fréttin fylgir í kjölfar fregna
um að Israelsmenn hafi haft
samvinnu við Suður-Afríkumenn
um sprengingu kjarnorku- eða
nifteindasprengju í september í
fyrra. Fréttin var borin til baka í
Israel.
Blaðið Maariv segir að Weizman
hafi komið úr ferðinni á föstudag-
inn og farið rakleiðis til Menach-
em Begin forsætisráðherra sem
hafi setið á fundi með honum í
fjóra tíma.
ísrael hefur haft náið stjórn-
mála- og efnahagssamband við
Suður Afríku en gert lítið úr því
vegna andstöðu heima og erlendis.
Uppnám varð í ísrael í ferbrúar
1978 þegar Simcha Ehrlich þáver-
andi fjármálaráðherra fór í opin-
bera heimsókn til Jóhannesar-
borgar.
Suður-afrískir talsmenn hafa
sagt að Suður-Afríka hafi keypt
mikið magn vopna af ísraels-
mönnum, þar á meðal Reshef-
varðskip, létt vopn og önnur her-
gögn. Gert er ráð fyrir að ferð
Weizmans hafi staðið í sambandi
við hernaðarsamvinnu.
3. bruninn
á 36 klst.
London, 19. marz. AP.
ELDUR kom upp á heimili fyrir
fötluð börn nálægt Carluke,
Skotlandi, í kvöld, en öllum var
bjargað. Þetta var þriðji bruni af
þessu tagi á Bretlandi á 36
klukkutímum.
Níu konur fórust í bruna í
morgun á heimili fyrir bágstaddar
konur í Norður-London sem trú-
boðsregla Móður Teresu rak. Átta
mönnum var bjargað af heimili
fyrir heimilislausa menn í East
End í London. Fjórir voru fluttir í
sjúkrahús vegna reykeitrunar og
taugalosts.
funda
Jerúsalem, 19. marz. AP.
MENACHEM Begin forsætisráð-
herra sagði í dag að hann hefði
þegið boð um viðræður við Carter
forseta i Washington um heima-
stjórn Palestínumanna. Hann
sagði að hann yrði í Washington
um miðjan apríl þegar Carter
hefði rætt við Anwar Sadat
Egyptaforseta á aðskildum fundi.
Begin lagði á það áherzlu í
viðtali í ísraelska útvarpinu að
þetta yrði ekki „þríhliða fundur",
en heimildir í stjórninni útilokuðu
ekki möguleika á því að leiðtogarn-
ir kæmu saman til eins fundar.
Begin kvaðst gera ráð fyrir að vera
í Washington milli 9. og 15. apríl og
dveljast þar í nokkra daga.
Hann gaf enga skýringu á því
hvers vegna Carter boðaði til
aðskildra funda. Hann kvaðst hafa
átt „hlýlegar og vingjarnlegar"
viðræður í síma við Carter í dag.
Hann sagði að ekki hefði verið
minnzt á sjálfheldu, en ástæðan
fyrir fundunum er greinilega sú að
enginn sýnilegur árangur hefur
náðst í heimastjórnarviðræðunum
sem hafa staðið í 10 mánuði og á að
ljúka 26. maí.
Begin kvaðst ekki vilja gera of
lítið úr mikilvægi þess dags, en
sagði að það yrði ekkert stórslys
þótt árangur næðist ekki fyrir
þann tíma. Yosef Burg innanríkis-
ráðherra sagði að á næsta viðræðu-
fundi í næstu viku í Alexandríu
yrði lagður grundvöllur að viðræð-
unum í Washington. Hann reyndi
að vara við of háum vonum um
árangur í leiðtogaviðræðunum.
í Camp David-viðræðunum 1978
ræddi Carter einnig við Sadat og
Begin hvorn í sínu lagi. Israels-
menn vara við vonum um árangur í
Washington þar sem kosningabar-
áttan er Carter fjötur um fót.
ísraelsmenn hafa oft kvartað yfir
því að Carter ræði við Egypta áður
en þeir ræði við ísraelsmenn sem
komist þannig í varnarstöðu.
í Washington var borin til baka
ísraelsk frétt um að Walter Mon-
dale varaforseti yrði sendur til
Miðausturlanda fyrir hönd Cart-
ers.
Norður-Jemen
hafnar Rússum
Stjórnarkreppa
í skugga morða
Róm, 19. marz. AP.
SJÖ MÁNAÐA minnihlutastjórn
Francesco Cossiga forsætisráð-
herra sagði af sér í dag og við
tekur stjórnarkreppa á sama tíma
og hryðjuverkastarfsemi magnast
á ítaliu.
Cossiga afhenti lausnarbeiðni
sina Sandro Pertini forseta sem
bað hann að halda áfram störfum
til bráðabirgða og tilkynnti að
viðræður um myndun nýrrar
stjórnar hæfust á morgun.
Að stjórn Cossiga, hinni 38. síðan
1945, stóðu kristilegir demókratar,
sósíaldemókratar og frjálslyndir.
Cossiga sagði að umræður á þingi
hefðu leitt í ljós að stjórnin gæti
ekki lengur treyst á óbeinan stuðn-
ing sósíalista sem höfðu setið hjá í
mikilvægum málum og tryggt
stjórninni meirihluta.
Fyrr í dag skutu þrír hryðju-
verkamenn, tveir karlar og ein
kona, kunnan ríkissaksóknara,
Guido Galli, til bana í háskólanum
í Mílanó og flúðu þegar þeir höfðu
varpað táragassprengju til að
þekja slóð sína.
Galli er þriðji starfsmaður
dómsyfirvalda sem er myrtur á
fjórum dögum og 17 pólitísk morð
hafa verið framin á Ítalíu á þessu
ári. Galli hafði getið sér orð fyrir
að vera harðsnúinn og nákvæmur
rannsóknardómari með árang-
ursríkri málsókn gegn Corrado
Alunni, leiðtoga hryðjuverkahóps-
ins „Prima Linea" eða Víglínunnar.
Menn sem hringdu í italska
fréttastofu og dagblað nokkuð
sögðu að Prima Linea bæri ábyrgð-
ina á „aftöku" Galli. Alunni afplán-
ar rúmlega 20 ára fangelsisdóm.
Hann var handtekinn í felustað í
Mílanó 1978. Víglínan er banda-
maður Rauðu herdeildanna og að-
hyllist svipaða hugmyndafræði.
Kairó, 19. marz. AP.
NORÐUR-JEMEN hefur
samþykkt að losa sig við
um 100 sovézka hernaðar-
ráðunauta í staðinn fyrir
að fá aftur efnahagsaðstoð
frá Saudi Arabíu sam-
kvæmt egypzkum heimild-
um í dag.
Sættir hafa tekizt með
löndunum og samkvæmt
samkomulagi þeirra munu
Norður-Jemenar ekki
senda fólk til náms og
þjálfunar í Moskvu eftir-
leiðis. Norður-Jemen hefur
líka fallizt á að hætta við
ráðstafanir sem áttu að
miða að nánara sambandi
við Suður-Jemen þar sem
eina kommúnistastjórn í
Arabaheiminum situr að
völdum.
Samkvæmt heimildunum
greiddu Saudi Arabar stjórninni í
Sanaa jafnvirði 300 milljóna doll-
ara fyrir hálfum mánuði. Saudi
Arabar höfðu lofað að greiða
þessa upphæð í desember en létu
ekki verða af því. Meiri aðstoð er
væntanleg.
Landamærastríð geisaði . milli
Jemen-ríkjanna snemma í fyrra
og Bandaríkin sendu skriðdreka
og flugvélar til Norður-Jemen af
ótta við aukin áhrif Rússa. Saudi-
Arabar samþykktu að greiða
Norður-Jemen um 300 milljónir
dala. Þá gerði Ali Abdullah Salem
óvæntan samning við Rússa, sem
sendu einnig flugvélar og skrið-
dreka til Sanaa, og Saudi Arabar
hættu aðstoðinni.
Samskiptin versnuðu við landa-
mæraskærur, en bandarískar
leyniupplýsingar um sovézk áform
um ásælni í Norður-Jemen í kjöl-
far innrásarinnar í Afghanistan
leiddu til batnandi sambúðar.