Morgunblaðið - 20.03.1980, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 20.03.1980, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 47 afar slakur hjá báðum liðum. Mistök voru á báða bóga og skotnýting slæm jafnvel þó mikið væri skorað, því leiknum lauk með sigri Vals 92:82, eftir að staðan hafði verið jöfn í hálfleik 44:44. Mikil deyfð var yfir leiknum í byrjun og lítið skorað. Þannig var staðan eftir 5 mínútur 11:10 ÍS í hag og eftir 10 mínútna leik var staðan 22:17 ÍS í hag. Höfðu stúdentar yfirleitt forystu í fyrri hálfleiknum, þetta 3—5 stig, en undir lokin kom slakur kafli hjá þeim og Valsmenn gengu á lagið og náðu að jafna metin 44:44. Seinni hálfleikurinn byrjaði ekki vel hjá stúdentum því eftir aðeins 27 sekúndur misstu þeir af velli einn sinn bezta mann með 5 villur, Gunnar Thors. Valsmenn náðu forystunni í upphafi hálf- leiksins þegar 5 mínútur höfðu verið leiknar af hálfleiknum var munurinn orðinn 2 stig, 58:56, Val í hag. En þá sigu Valsmenn aftur fram úr og um miðjan seinni hálfleikinn höfðu þeir náð góðri forystu, 72:63. En stúdentarnir gáfust ekki upp og tókst að minnka muninn aftur en þá settu Valsmenn í kraftgírinn á ný og eftir það urðu þeir ekki stöðvaðir. Það bætti ekki úr skák hjá stúd- entunum að þeir gerðu hver mis- tökin eftir önnur undir lokin og sigur Vals var aldrei í hættu. Sem fyrr voru það sömu menn- irnir sem voru máttarstólparnir hjá Val. Tim Dwyer var drjúgur að vanda, sérstaklega í vörninni en skotnýtingin hjá honum var nú lakari en oftast áður. Kristján Ágústsson var í miklu stuði og þau voru ófá sóknarköstin sem hann hirti og skilaði beint ofan í körfuna. Þórir Magnússon skoraði grimmt og þær voru margar fallegar körfurnar sem hann skor- aði. En nýtingin hjá honum var nú mun lakari en í leiknum gegn KR á dögunum þegar flestöll skotin rötuðu beinustu leið niður í körf- una. Torfi Magnússon barðist geysivel en vítaskotanýtingin var ÍS-dömurnar unnu í GÆRKVÖLDI fór fram úrslita- leikurinn i bikarkeppni kvenna i körfuknattleik. Til úrslita léku ÍS og ÍR og vann ÍS öruggan sigur 45:35. Hins vegar glataði hann oft bolt- anum til andstæðinganna með slæmum sendingum og reyndar voru aðrir félagar hans undir sömu sök seldir. VALUR bætti enn einum bikarnum í safnið í gær- kvöldi með sigri y^fir IS í bikarkeppni KKÍ. Þar með hafa Valsmenn unnið þrefalt í körfunni í vetur, Reykjavíkurmótið, íslandsmótið og nú síðast bikarkeppnina. Þetta er frábær árangur sem Valsmenn geta verið stolt- ir af. Þeir hafa æft liða bezt í vetur og uppskera nú laun erfiðisins. Leikurinn í gærkvöldi mun ekki lifa í minningunni því hann var • Þeir Trent Smock og Tim Dwyer berjast um knöttinn — Dwyer hefur betur og um leið Valsmenn. Gíslason 4, Albert Guðmundsson 2 stig. Að leik loknum afhenti Stefán Ingólfsson formaður KKÍ Vals- mönnum bikarinn og tók Torfi Magnússon fyrirliði við honum. Áhorfendur voru nú nokkru færri en á leik Vals og KR á dögunum eða 500 talsins. - SS afleit hjá honum eins og reyndar flestum öðrum leikmönnum. Hjá ÍS bar að vanda mest á Trent Smock en skotnýtingin hjá honum var með alversta móti að þessu sinni. Smock var alltof eigingjarn í þessum leik og reyndi oft körfuskot úr vonlitlum færum þegar samherjar hans voru betur staðsettir. Ef Smock hefði verið í stuði í gærkvöldi er óvíst að Valsmenn hefðu unnið sigur. Steinn Sveinsson átti góðan leik og Jón Héðinsson tók góða spretti. Stig Vals: Tim Dwyer 26, Kristján Ágústsson 21, Þórir Magnússon 20, Torfi Magnússon 11, Ríkharður Hrafnkelsson 8, Jón Steingrimsson 4, Guðbrand- ur Lárusson 2 stig. Stig ÍS: Trent Smock 31, Steinn Sveinsson 14, Jón Héðins- son 11, Bjarni Gunnar 9, Gunnar Thors 7, Ingi Gunnarsson 4, Gísli Sagt eftir leikinn „Fyrir 3 árum var karfan við það að lognast út af í Val „ÞETTA er ævintýri líkast þegar haft er í huga að fyrir þremur árum var karfan við það að lognast út af í Val. Það var spurning hvort leggja ætti deild- ina niður eða styðja við bakið á strákunum og ráða bandarískan þjálfara. Nú, þremur árum síðar, hafa allir titlar í körfunni unnist í ár — ég er yfir mig lukku- legur," sagði Bergur Guðnason formaður Vals, eftir bikarsigur Valsmanna í körfunni í gær- kvöldi. „Það er enginn vafi nú, að karfan hefur fest rætur í Val og strákarnir líta nú á sig sem Valsmenn en fyrir þremur árum má segja að þeir hafi verið nokkuð utangátta í félaginu. En þetta er ekki aðeins sigur liðsins og þjálfarans. Stjórn deildarinnar hefur verið til mik- illar fyrirmyndar. Það geta mörg önnur félög lært hvernig standa skal að stjórn með því að líta til starfs stjórnarinnar. Hún hefur bryddað upp á mörgum nýjungum og fjárhagurinn nú er mjög traustur," sagði Bergur ennfremur. Ég er yfir mig þreyttur nú „Ég er yfir mig þreyttur nú, sem og allir strákarnir í liðinu,“ sagði Tim Dwyer, þjálfari Vals- manna, eftir sigurinn. „Það er mjög erfitt að sigra stúdentana. Þeir eru mjög sterkir, sterkari líkamlega en við. Þeir höfðu allt að vinna og það var ekki fyrr en okkur tókst að auka hraðann að við náðum öruggri forystu. Það var vendipunkturinn í leiknum. Mér fannst leikurinn góður. Trent Smock lék mjög vel og það var erfitt að stöðva hann. Ef ég verð beðinn að koma aftur, þá mun ég koma en eins og sakir standa er ég þreyttur — ákaflega þreyttur og feginn að allir titlarnir eru í húsi,“ sagði Tim Dwyer. Valsmenn voru betri „Við náðum okkur ekki á strik — fengum of margar villur og gerðum of mörg mistök. Mér fannst ég ekki ná mér almenni- lega á strik. Ég get leikið betur," saði Trent Smock, Bandaríkja- maðurinn í liði ÍS — langhæsti leikmaður íslandsmótsins í ár. „Valsmenn eru með bezta liðið á íslandi og þeir voru betri í kvöld þó að leikurinn hafi ekki verið nógu góður sem slíkur. Þeir hafa svo marga sterka einstaklinga — þar liggur styrk- leiki Valsmanna," sagði Trent • Torfi Magnússon hampar Bikarnum. Hann heíur móttekið þrjá slíka í vetur. • Liverpool vann Smock ennfremur. H Halls. LIVERPOOL steig einu skrefi nær Englandsmeistaratitlinum í gær- kvöldi, er liðið vann sérlega sann- færandi sigur gegn Leeds Utd á heimavelli sínum. Hefur Liverpool nú sex stiga forystu umfram Manchester Utd, sem er í öðru sæti. Bæði liðin hafa leikið jafn- marga leiki. Athyglisverður er einnig sigur Boro á útivelli gegn Aston Villa, en Villa hefur leikið mjög vel til skamms tíma. Annars urðu úrslit leikja í Englandi í gærkvöldi sem hér segir: 1. deild: Liverpool—Leeds 3—0 Aston Villa—Middlesbr. 0—2 3. deild: Oxford—Wimbledon 4—1 Chester—Swindon 1—0 4. deild: Halifax—Wigan 0—0 Blak í kvöld ÞRÓTTUR og Víkingur eigast við í 1. deildinni í blaki í kvöld. Fer leikurinn fram í Hagaskólanum og hefst klukkan 18.30. Síðar um kvöldið leika Fram og IMA í 2. deild og Þróttur og IMA í 1. deild kvenna. Þrenna hjá Val — unnu ÍS í úrslitum bikarsins í gærkvöldi 92:82 Kðrniknattlelkur • Valsmenn tollera Tim Dwyer — hann hefur leitt liðið til allra eftirsóttustu verðlauna í islenzkum körfu- knattleik. Mbl. myndir RAX

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.