Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 26

Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 Skattstiginn og útsvarshækkun: Gengið á þinghef ðir og samskiptareglur — að dómi stjórnarandstöðu • Önnur umræða um stjórnarfrumvarp um tekjustofna sveitarfélaga og tillögur til heimilda um 10% álaga á 11% útsvör á brúttótekjur fór fram í neðri deild Alþingis i gær. Fjármálaráðherra gerði i upphafi umræðna grein fyrir hugmyndúm sinum og rikisstjórnarinnar um skattstiga ársins 1980, sem væntanlega yrðu bornar fram í frumvarpsformi öðru hvorum megin við komandi helgi. (Sjá baksíðufrétt um skattstigann i Mbl. i dag.) Eftir þessar upplýsingar ráðherra var gert fundarhlé — svo þingflokkum gæfist ráðrúm til að ræða þcssar nýju upplýsingar varðandi heildarálagningu opinberra gjalda á árinu. • Áður en fundur hófst að nýju i deildinni fór ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks sjálfstæðismanna, formlega fram á það við starfandi deildarforseta, Alexander Stefánsson (F), að umræðu um tekjustofnamál sveitarfélaga yrði frestað unz boðað frumvarp rikisstjórnarinnar um skattstiga kæmi fram, væntanlega á mánudag, svo þingflokkar geti tekið afstöðu til þess i ljósi þá fyrirliggjandi upplýsinga um heildarmynd og heildardæmi opinberrar skattheimtu i landinu. Þessum formlegu tilmælum þingflokks sjálfstæðismanna hafnaði starfandi deildarforseti. Svipmynd frá Alþingi: Eggert Haukdal og Pálmi Jónsson. Almenn tilmæli um frestun I upphafi fundar ítrekuðu þing- menn Sjálfstæðisflokks frestunar- beiðni á umræðunni, unz umbeðn- ar upplýsingar væru á borðum þingmanna, væntanlega nk. mánudag. Þeir, sem báru fram þessar óskir, f.h. þingflokksins, voru: Friðrik Sophusson, Halldór Blöndal, Matthías Bjarnason, Birgir ísleifur Gunnarsson, Matthías Á. Mathiesen og Albert Guðmundsson. Þingmenn Alþýðu- flokks, Vilmundur Gylfason, Sig- hvatur Björgvinsson (formaður þingflokksins) og Karvel Pálma- son, báru einnig fram sams konar frestunartilmæli fyrir hönd þing- flokks Alþýðuflokksins. Starfandi forseti, Alexander Stefánsson, hélt fast við synjun sína, og einnig varaforseti hans, Garðar Sigurðs- son (Abl) eftir að sá fyrrnefndi vék af fundi. Beiðni um frestun var rökstudd með því m.a., að þinghefð væri sú að orðið væri við slíkum beiðnum í skamman tíma, þegar þingflokkar færu formlega fram á slíkt; nauð- synlegt væri að skattstigi, þ.e. ríkisþáttur skattheimtunnar, væri á hreinu og þar með heildardæmi opinberrar skattlagningar áður en svo veigamikil ákvörðun til út- svarshækkunar yrði tekin; þessi frestur tefði ekki framgang máls- ins þar eð skattstigi væri boðaður á mánudag og tími hefði ekki unnizt til að skoða erindi frá aðilum, sem mál þetta varða. Ákvæði efna- hagslaga um málsmeðferð Svavar Gestsson félagsmála- ráðherra taldi ekki ástæðu til frestunar á fundi eða umræðu. Vitnaði hann til samþykktar full- trúaráðs Sambands ísl. sveitarfé- laga, sem knúið hefði á um útsvarshækkun. Athygli ráðherrans var vakin á því að það gengi á þinghefðir, sem Á ÞINGSÍÐU Mbl. í gær var greint frá greinargerðum þingmanna við nafnakall um 4% aukaframlag til sveitarfélaga af innheimtum sölu- skatti 1980, til að greiða úr fjár- hagserfiðleikum þeirra án útsvars- hækkana. Tillaga hér að lútandi var felld með 21 atkvæði stjórnarliða gegn 18 atkvæðum stjórnarand- stöðu. Af vangá féll niður greinargerð Steinþórs Gestssonar (S) og fylgir hefðu verið virtar til þessa, að synja formlegri beiðni tveggja þingflokka um 2ja daga frest í jafn stóru máli. Ennfremur, að 2. kafli efnahagslaga frá 7. apríl 1979 (Ólafslaga), sem flestir nú- verandi ráðherra hefðu staðið að, kvæði skýrt á um, að ríkisstjórn- inni bæri að hafá samráð við samtök launþega í landinu um mótun tekjustefnu ríkisins. Hef- ur ráðherra fylgt þessum lagaboð- um? var spurt. Hefur hann haft samráð við ASÍ, VMSÍ, BSRB, bændasamtökin eða önnur hlið- stæð samtök um tekjuskatts- eða útsvarsmál, eins og lögin bjóða?- var spurt. hún hér með: „Með vísun til þess að ýmis sveit- arfélög telja tekjumöguleika sína ekki svara til þeirra verkéfna, sem þau hafa með höndum og með því að fyrir liggur að verkefna- og tekju- skipting ríkis- og sveitarfélaga verði tekin til endurskipulagningar á þessu ári, þá tel ég rétt að leysa hugsanlega aukafjárþörf sveitarfélaganna á ár- inu 1980 með þeim hætti, sem tili. á þskj. 199 gerir ráð fyrir og segi já.“ Stigið spor að stríði við stjórnarandstöðu Málflutningur þingmanna Sjálfstæðisflokks kom einkar vel fram í máli Birgis ísl. Gunnars- sonar (S), sem sagði óvenjulegt, að háttvísri og rökstuddri beiðni um skammtímafrest, unz nauð- synlegar upplýsingar lægju fyrir, væri hafnað, ekki sízt þegar hún væri borin fram af tveimur þing- flokkum — og frestur í svo skamman tíma tefði ekki fram- gang málsins svo nokkru næmi. Hann vakti og athygli á því að mjög fjölmennur hópur þjóðfé- Steinþór Gestsson. lagsþegna: sjómenn, opinberir starfsmenn, iðnaðarmenn, fólk í ákvæðisvinnu, s.s. fiskvinnslu, og ýmsir fleiri, féllu að drjúgum hluta undir háþrep hins boðaða skattstiga, sem fjármálaráðherra hefði kunngert í grófum dráttum. Hann vakti og athygli á því, að það sjónarmið hefði átt drjúgt fylgi meðal sveitarstjórnarmanna, að ríkissjóði bæri að draga úr skattheimtu hjá sér samhliða hækkun útsvara. Ef sveitarstjórn- armenn á tilgreindum fulltrúa- fundi hefðu haft vitneskju um tillögur um aukinn söluskatts- hluta sveitarfélaga, í stað út- svarshækkunar, væri hann ekki í vafa um, að þær hefðu haft þar fylgi sem lausn til bráðabirgða — unz verka- og tekjuskipting ríkis og sveitafélaga yrði betur ráðin og til nokkurrar frambúðar. Sagði Birgir ísleifur að með þeirri synjun, sem hér væri beitt, væri ríkisstjórnin að stíga fyrsta skrefið til stríðs við stjórnar- andstöðu, sem sýnt hefði háttvísi og sannsýni í málabúnaði. Óvenjulegar aðstæður Matthias Á. Mathiesen (S) vakti athygli á því að hér væri stórmál í umfjöllun við óvenjulegar aðstæður — og fá- menni í þingdeildinni. Á sama tíma, sem synjað er um frest á umræðu, er fundur í fjárveitinga- nefnd, þar sem nokkrir þingmenn eru bundnir, þ.á m. Álexander Stefánsson, sem synjaði um frest- inn, en þyrfti síðan sjálfur að sinna störfum utan þingdeildar- innar og yæri nú fjarstaddur. ítrekaði MÁM beiðni um frestun. Landbúnaðarráðherra synjar um frest Pálmi Jónsson, landbúnaðar- ráðherra, sagðist lengi hafa setið í fjárveitinganefnd og oft er sam- tímis voru fundir í þingdeildum. Ekki væru aðstæður til frestunar á þessari umræðu og rétt að henni yrði fram haldið. PJ sagði tillögu þá, sem hér ylli deilum, fela í sér heimild til hækkunar útsvara, ekki fyrirmæli. Afstaða ráð- herra hörmuð Matthias Bjarnason (S) og Halldór Blöndal (S) hörmuðu afstöðu ráðherra gagnvart ein- róma tilmælum þingflokks sjálf- stæðismanna. Ekki fælist sáttfýsi né sanngirni í slíkri afstöðu. Matthías sagði rétt vera að Pálmi hefði lengi setið í fjárveitinga- nefnd. Hins vegar könnuðust þeir báðir við fjárveitinganefndar- mann, sem þar ætti sæti, en hefði ekki mætt þar til fundar í meir en mánuð. Matthias Á. Mathiesen (S) ræddi um þær þinghefðir, sem ríkt hefðu í málum sem þessum, sem nú væru þverbrotnar, og taldi ekki góðs viti um vinnubrögð á Alþingi. Sighvatur Björgvinsson (A) sagði illt í efni er fornar samskiptareglur á Alþingi væru svo gróflega sniðgengnar. Karvel Pálmason (A) vakti athygli á því að þingforsetinn, sem synjaði um frest og hefði vikið af fundi til annarra starfa, væri jafnframt fyrsti flutningsmaður þeirrar breytingartillögu, sem hér hefði valdið mestum deilunum. Albert Guðmundsson (S) sagðist vilja svara fyrirspurn Vilmundar Gylfasonar (A) um afstöðu sína. Hann styddi frestunarbeiðni þing- flokks síns. Þingdeildin tók matarhlé um 7-leytið í gærkveldi en fundi átti að halda áfram kl. 9 um kvöldið. Steinþór Gestsson: Hlutur sveitarfé- laga í söluskatti Sigurlaug Bjarnadóttir: Niður- felling söluskatts á flutn- ingsgjald SIGURLAUG Bjarnadóttir (S) mælti í gær fyrir frum- varpi til laga, sem hún flytur ásamt Agli Jónssyni (S) um niðurfellingu söluskatts á flutningagjald. Með þessu frumvarpi er, sagði Sigurlaug, gerð tilraun til að aflétta einum hinna mörgu kostnaðarauka, sem strjálbýlisverlzun og lands- byggðarfólk búa við. Rakti hún ýmis dæmi þess misræmis, sem þessi skattur skapaði, og væri með öðru þáttur í því að framfærsla væri á flesta greín kostnaðarsamari í strjálbýli en í Reykjavík. Miklar umræður urðu um málið (efri deild) og hlaut frumvarpið einróma stuðning þeirra, er þátt tóku í umræðunni. Nýr þing- maður SIGRÚN Magnúsdóttir, kaup- maður, hefur tekið sæti á Alþingi í fjarveru Ólafs Jóhannessonar um sinn, en hún er 2. varaþing- maður Framsóknarflokksins í Reykjavík. Haraldur Ólafsson, fyrsti varaþingmaður flokksins, er erlendis.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.