Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 7

Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 7 Ballið er að byrja Þeir sem muna hana- slag og heimiliserjur vinstri stjórnarinnar 1978—1979, sem fæddi af sér 19 nýja skatta á 13 lífmánuóum, fengu í sig gamalkunna tilfinningu viö lestur Tímaleiðarans í gær. Þar er genginn smá- vegis ónotaslóði um Sjálfstæðisflokkinn til að komast að Alþýðubanda- laginu meö innbyrgða óánægju og vel úti látin vandarhögg. Dæmi: „Alþýðubandalagið hefur reynt aö leika tveimur skjöldum (í ríkis- stjórninni?) í því að vera „lýðræðissinnað“ og þó „marxistískt" í senn, og veit reyndar enginn enn hvernig slíkt má fara saman. Þar af leiðir að enginn veit meö fullri vissu, hvar Alþýðubanda- ið stendur ef komið verður aö krossgötum (stjórnarsamvinnunn- ar?). Á sama hátt hefur þessi flokkur árum sam- an viljað gera hvort tveggja í senn, að því er talsmenn hans hafa boð- að, að brjóta samfé- lagsskipan þjóöarinnar í rúst — og þó ástunda uppbyggingu í atvinnu- málum og kjaramálum alþýðu." Það sem hér að framan er sett innan sviga er innskot Mbl. Enn segir Tíminn um Alþýðubandalagið: „Enn er auðvitað ekki fullreynt um þetta, og má vera, aö störf núverandi ríkis- stjórnar muni segja sína sögu um hið sanna eöli þessa flokks.“ Já, seint fyllist reynslusálin fram- sóknarprelátanna. Þeir hafa enn gengið í heiðna- berg marxistanna, sem boða niðurbrot „samfé- lagsskipunar þjóðarinn- ar“ — og hrópa nú ( leiðaraskrifum, að enginn viti hvar stjórnarsam- starfið stendur ef komið verður að krossgötum,. Þegar þessi tónn er heyrður er vinstri stjórn- ar ballið byrjaðl Framlengdir vlnstri stjórn- ar skattar Lárus Jónsson, alþing- ismaður, sem sæti á í fjárveitinganefnd Alþing- is, upplýsti í fjárlagaum- ræöum, að vinstri stjórn- ar skattar sem fyrst komu til sölu 1978 og 1979 (nýir skattar og skattaukar) — og fram- lengja á nú í fjárlögum 1980 — þýði á þessu ári hvorki meira né minna en 36 til 37 milljarða króna ábót á skattbyrðina. Hér er m.a. um aö ræða hækkaða eignaskatta og tekjuskatta, en hækkunin ein gefur 6 til 7 milljarða króna. Hækkun sölu- skatts um tvö prósentu- stig gefur rúmlega 10 milljarði. Hækkun vöru- gjalds 7.7 milljarði. Gjald á utanferðir 1.7 milljarði. Nýbyggingagjald og skattur á verzlunarhús- næði 2 milljarða. Hækkun skatta í benzínveröi um- fram verðlagshækkanir rúma 10 milljarði. Verð- jöfnunargjald á raforku 1.3 milljarði. Áætlaður orkuskattur er talinn muni nema 4 til 5 millj- öröum króna. Með öðrum ónefndum skatthækk- unum nam þessi ábót um 50 milljörðum króna, sagði Lárus, en sé dregin frá niðurfelling sölu- skatts af matvælum og tollalækkanir, stendur eftir, sem fyrr segir, í hreinar skattahækkanir um 37 milljaröar króna. Þessa nýju skatta og skattauka, sem nú á að framlengja, gáfu ýmsir loforö um að afnema er á ráðherrastólum sitja. Með ráögerðum skattþyngingum, m.a. í útsvörum, er þessi ríkis- stjórn komin vel fram úr vinstri stjórninni, þrátt fyrir fyrirheit við kjósend- ur. Með því að framlengja alla vinstri stjórnarskatt- ana gerir núverandi ríkis- stjórn þá að sínum — og tekur á þeim pólitíska ábyrgð. Til viðbótar kem- ur svo fyrirhugaður orku- skattur og hækkun út- svara, sem samtals gera um 10 milljarði í skatt- ábót, og fjármálaráð- herra, Ragnar Arnalds, staðhæfir, að ef skatt- álagning á atvinnurekst- ur eftir nýjum skattalög- um 1980 komi illa út, þurfi að bæta nýjum böggum á atvinnureksturinn, annað tveggja í formi eigna- skatta eða nýs veltu- skatts á aöstöðugjalds- stofn. Þegar skattalína síðustu áratuga er skoð- uð sést glögglega, aö hún tekur stökk upp á viö í hvert sinn sem Alþýðu- bandalagiö á aðild að stjórn. Og nú hefur því verið fært sjálft fjármála- ráöuneytið til að ráðskast f. ÚTSALAN í FULLU FJÖRI 40-80% AFSLÁTTUR Á ÖLLUM VÖRUM VERZLUNARINNAR. KOMDU STRAX OG GERÐU REYFARAKAUP Allegro ’78 Til sölu Austin Allegro ’78. Ekinn aöeins 22 þús. km. Mjög góöur bíll. Upplýsingar í síma 52557, eftir kl. 6 á kvöldin. GAB hálstöflur með lakkrís- bragði Halda hálsinum hreinum og andardrætti ferskum Sérlega góðar fyrir reykingafólk. Reynið sjálf. imniK, . c4meri<)Ka Tunguhálsi 11, sími 82700. C-vítamínbætt sælgæti Kassettur C.ONCE RTONE beztu kaup landsins * 1 spóla 5 spólur 60 mínútur kr. 900 kr. 4000 90 mínútur kr. 1100 kr. 5000 Heildsölu birgðir Verslióisérverslun með LITASJÓNVÖRP og HLJÓMTÆKI 29800 Skiphotti19 STJÓRNUNARFRÆÐSLAN HVETJANDI LAUNAKERFI Stjórnunarfélag íslands heldur námskeið um Hvetjandi launa- kerfi að Hótel Esju dagana 25.—28. mars kl. 14:30—18:30 alla dagana. Á námskeiðinu veröur kennt hvernig byggja á upp hvetjandi launakerfi á grundvelli reynslutalna sem fundnar eru með skráningum og vinnurannsóknum. Kynntar veröa helstu tegundir launakerfa og leiöbeint um val launakerfa meö tilliti til mismunandi aöstæöna í fyrirtækjum. Námskeiðiö er einkum ætlaö tæknifræö- ingum, viöskiptafræöingum og öörum þeim starfsmönnum sem annast launa- mál og hagræðingarmál fyrirtækja. Skráning þátttakenda og nánari upp- lýsingar á skritstofu Stjórnunarfélags íslands, sími 82930. Lw6b«in«ndur: Ágúsl H. Elfasson tsskni- IrssAingur, Bsnsdikt Gunnsrsson tssknifradingur. /A STJÓRNUNARFÉIAG ÍSIANDS~ Sími 82930

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.