Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
5
Sjómenn á Suðureyri:
Leita eftir samstöðu
um „skæruhernað44
VERKALÝÐS- og sjómannafélagið
Súgandi á Suðureyri hefur lýst yfir
eindregnum stuðningi við kröfur
Alþýðusambands Vestfjarða í
kjaradeilunni við Útvegsmannafé-
lag Vestfjarða. Fundur í Súganda
var haldinn á þriðjudagskvöld og
fól hann stjórn og trúnaðarmanna-
ráði að leita eftir samstöðu við
félög á svæði ASV um „árang-
ursríkar aðgerðir“.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundinum: „Fundur í verka-
lýðs- og sjómannafélaginu Súganda
haldinn 18/3 fordæmir þau vinnu-
brögð Útvegsmannafélags Vest-
fjarða að vísa samningsgerð þess og
Alþýðusambands Vestfjarða til
Landssambands íslenzkra útvegs-
manna. Telur fundurinn, að samn-
ingsgerð þessara aðila sé betur
komin heima í héraði og séu það
Mikil lífskvikutil-
þrif á Sæluviku
Sauöárkróki 19. marz.
SÆLUVIKA Skagfirðinga stendur
nú sem hæst hér á Sauðárkróki.
Hún hófst s.l. laugardag með
skemmtisamkomu Karlakórsins
Heimis. Þar söng kórinn undir
stjórn Sven Arne Korshann. Ein-
söngvarar voru Guðmann Tobíasson
og Jóhann Friðgeirsson. Á sunnu-
dag efndu tóniistarfélagið og Tón-
listarskólinn til hljómleika í safna-
húsinu. Þar söng Sigriður Ella
Magnúsdóttir óperusöngkona við
undirleik Jónasar Ingimundarson-
ar. Húsið var þétt setið og listafólk-
Leiðrétting
I frásögn í blaði yðar í dag
miðvikudag um fund ullariðnaðar-
ins sl. mánudag gætir smávægilegs
misskilnings í því sem ég sagði á
þeim fundi og þykir mér nauðsyn-
legt að eftirfarandi komi fram:
Ég ræddi annars vegar um að
endurgreiðslur uppsafnaðs sölu-
skatts væru öllum til skammar sem
að þeim hefðu staðið. Það væri lítið
tilefni til sérstakra hrósyrða, þótt
ríkisstjórnin ákveði að endur-
greiðslan dragist í allt að 15
mánuði í stað 17 mánaða.
í annan stað sagði ég, að tilmæli
ríkisstjórnarinnar til lánasjóða
iðnaðarins, að þeir fari gætilega í
sakirnar varðandi lán vegna stofn-
unar nýrra fyrirtækja í ullariðnaði,
hefði það í för með sér, að á
næstunni muni sjóðirnir ekki fjalla
um slík mál. Því væri ekki að
vænta niðurstöðu í fyrirliggjandi
málum á næstu mánuðum.
Reykjavík, 19. mars 1980
Valur Valsson
inu frábærlega vel tekið.
Síðar um daginn var opnuð í
Safnahúsinu sýning á málverkum og
höggmyndum eftir Gísla Guðmann á
Akureyri. Um kvöldið frumsýndi
Leikfélag Sauðárkróks sjónleikinn
Týndu teskeiðina eftir Kjartan
Ragnarsson, leikstjóri er Ásdís
Skúladóttir og aðstoðarleikstjóri Jón
Ormar Ormsson. Leikmynd gerði Jón
Þórisson. Húsfyllir var og leiknum
ágæta vel tekið. Höfundur var meðal
leikhúsgesta og var honum ásamt
leikstjóra, leikmyndahöfundi og leik-
urum þakkað vel og lengi í leikslok og
þeim færð blóm. Leikfélagið sýnir
Týndu teskeiðina alla daga Sæluvik-
unnar. Kirkjukór Sauðárkróks hélt
kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju á
mánudags og þriðjudagskvöld. Var
kirkjan þétt setin bæði kvöldin. Þar
söng Kirkjukórinn undir stjórn Jóns
Björnssonar tónskálds, einsöngvarar
með kórnum voru Ragnhildur Ósk-
arsdóttir og Þorbergur Jósepsson.
Gísli Magnússon bóndi í Eyvindar-
holti flutti ræðu og söngvararnir
Sverrir Guðmundsson og Hlíf Kára-
dóttir sungu einsöng og tvísöng við
undirleik Gróu Hreinsdóttur. Gagn-
fræðaskólanemendur höfðu
skemmtisamkomu í Bifröst á mánu-
dag og um kvöldið var unglingadans-
leikur. Kvikmyndasýningar eru alla
daga og dansleikir flest kvöld.
Verkakvennafélagið Aldan efnir til
skemmtana þar sem m.a. Leikfélag
Skagfirðina í Varmahlíð sýnir gam-
anleikinn Borðdans og bíómyndir.
Leikstjóri er Kristján Sigurpálsson.
Á laugardag syngur Samkór Sauð-
árkróks undir stjórn Lárusar Sig-
hvatssonar í Bifröst, en Sæluviku
lýkur n.k. sunnudag. Veður hefur
verið eins og bezt hefur verið á kosið
og vegir líkt og á sumardegi. - Kári.
Rikisútgáfa námsbóka:
Borist hafa 28 handrit í
samkeppni um barnabók
NÝLEGA rann út skilafrestur
handrita i samkeppni sem Ríkisút-
gáfa námsbóka ákvað í maí siðast-
liðnum að efna til um samningu
bókar er skyldi vera við hæfi barna
á skólaskyldualdri. Að sögn Braga
Guðjónssonar forstöðumanns Rík-
isútgáfunnar var ákveðið að efna
til samkeppninnar í tilefni barna-
árs, og var þá jafnframt ákveðið að
hafa samkeppnina mjög opna,
þannig að væntanlegum höfundum
yrðu settar sem allra minnstar
hömlur í meðferð þeirra á væntan-
legu efni.
Bragi sagði nú alls hafa borist 28
handrit, og hefðu þau verið að skila
sér fram á síðustu daga í pósti.
FUNDUR, haldinn á Akureyri 15.
marz sl. sem til var boðað af stjórn
Iðju og starfsmannafélagi Iðnað-
ardeildar Sambandsins samþykkti
að beina þeim tilmælum til þing-
manna Norðurlandskjördæmis
eystra, að þeir beittu sér fyrir
lausn á þeim vanda, sem ullar- og
skinnaiðnaður landsmanna á við
að striða.
Fundurinn skorar á þingmenn að
sameiginlegir hagsmunir beggja að-
ila að þurfa ekki að sækja samninga
til Reykjavíkur."
Guðni Einarsson, fulltrúi Súg-
anda í samninganefnd ASV, sagði í
samtali við Mbl. í gær, að „mikill
hiti hefði verið í fundarmönnum
vegna framkomu samningamanna
útgerðarmanna og þeirri afstöðu
þeirra að vilja ekki ræða neinar
kröfur. Okkur finnst til dæmis
einkennilegt hvernig mennirnir
leyfa sér að strika svona yfir atriði
eins og skiptakjör á úthafsrækju-
veiðum, sem ekkert samkomulag er
til um.“
Mbl. spurði Guðna, hvað átt væri
við með „árangursríkum aðgerðum"
og sagði hann, að það hefði komið
fram á fundinum, að menn væru
ekki almennt tilbúnir í verkfall
strax, en hins vegar hefði verið rætt
um að ná samstöðu um „einhvers
konar skæruhernað". Guðni sagði,
að Sjómannafélag ísfirðinga hefði
ekki kynnt öðrum félögum fyrirætl-
un sína um verkfallsboðun, né leitað
eftir samstöðu annarra félaga á
Vestfjörðum.
Iðnrekendur
ræða málin
ÁRSÞING Félags íslenzkra iðn-
rekenda verður haldið i Hótel
Loftleiðum fimmtudaginn 20.
marz.
Þar munu flytja ræður Hjörleif-
ur Guttormsson iðnaðarráðherra,
Davíð Scheving Thorsteinsson
formaður FÍI og Þórhallur Ás-
geirsson ráðuneytisstjóri. Þá mun
dr. Ingjaldur Hannibalsson deild-
arstjóri flytja erindi.
Yfirlögregluþjón-
ar stofna félag
Þann 17. marz sl. komu yfirlögregluþjónar hvaðanæva að af landinu
saman í Reykjavik til að stofna með sér félag. Félag yfirlögregluþjóna
telur 26 félaga og eins og segir í lögum þess er tilgangur félagsins að
halda kynningu yfirlögregluþjóna og vinna að menningar- og
hagsmunamálum þeirra.
Fyrstu stjórn félagsins skipa:
Formaður: Gísli Guðmundsson
Rannsóknarlögreglu ríkisins, ritari:
Guðmundur Hermannsson,
Reykjavík,
gjaldkeri: Jón Guðmundsson, Sel-
fossi.
Varastjórn skipa:
Formaður: Páll Eiríksson,
Reykjavík, ritari: Ólafur K. Guð-
mundsson, Hafnarfirði, gjaldkeri:
Benedikt Þórarinsson, Keflavíkur-
flugvelli.
Á meðfylgjandi mynd, sem var
tekin af fundarmönnum eru, talið
frá vinstri:
Benedikt Þórarinsson, Kefla-
víkurflugvelli, Jón Guðmundsson,
Selfossi, Gísli Guðmundsson, RLR,
Guðmundur Hermannsson,
Reykjavík, Ólafur K. Guðmunds-
son, Hafnarfirði, Páll Eiríksson,
Reykjavík.
Öskar Ólason, Reykjavík, Gísli
Ólafsson, Akureyri, Ásmundur
Guðmundsson, Kópavogi, Tryggvi
Kristvinsson, Húsavík, Valdimar
Jónsson, Kópavogi, Þórir Marons-
son, Keflavík.
Ragnar Vignir, RLR, Sverrir
Guðmundsson, Reykjavík, Albert
Albertsson, Keflavíkurflugvelli,
Stefán Bjarnason, Akranesi, Bjarki
Elíasson, Reykjavík, Njörður Snæ-
hólm, RLR, Steingrímur Atlason,
Hafnarfirði, Kristmundur Sigurðs-
son, RLR.
Á myndina vantar sex félags-
menn.
Sagði hann verða veitt ein verðlaun,
að upphæð 500 þúsund krónur, en
einnig gæti komið til greina að
keyptur yrði útgáfuréttur að fleiri
handritum er bærust. Bragi sagði
það hafa verið talið æskilegt af
hálfu þeirra er til samkeppninnar
boðuðu, að unnt reyndist að nota
bókina til kennslu í skólum, en ekki
hefði það þó verið gert að skilyrði.
Dómnefnd er velji besta handritið
hefur ekki verið skipuð, en að sögn
Helga Jónassonar fræðslustjóra,
sem sæti á í stjórn Námsgagna-
stofnunar ríkisins, er þess að vænta
að dómnefndin verði skipuð mjög
fljótlega.
Vilja stuðning við ullariðnað
beita sér fyrir því að:
1. Tekið verði fullt tillit til stöðu
útflutningsiðnaðarins við
ákvörðun gengisskráningar.
2. Uppsafnaður söluskattur verði
endurgreiddur útflytjendum
jafnóðum.
3. Uppsafnað óhagræði verði greitt
til iðnfyrirtækja þannig að iðn-
aðurinn geti setið við sama borð
og aðrar útflutningsgreinar.
Síóasti dansinn
Michaél Jackson, Diana Ross,
Stevie Wonder, Jackson 5,
Marvin Gaye og Commodores
eru meöal flytjenda á þessari
gullfallegu plötu sem hefur aö
geyma 20 rómantískustu lög
soultónlistarinnar hin síöari ár.
The Last Dance
er án efa einhver vandaöasta
safnplata sem út hefur komiö
enda er hún nú ein mesta
selda plata ársins í Englandi.
FALKINN
Suöurlandsbraut 8 — sími 84670
Laugavsgi24 — sími18670
Vasturvari — s(mi 12110
Austurvari — s(mi 33360