Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
15
Liðin eru nú 34 ár frá
því að danskir norskir
og sænskir frammá-
menn um flugmál
tóku höndum saman
og stofnuðu til sam-
eiginlegs flugfélags sem æ síðan
hefur gengið undir nafninu SAS
Þjóðarflugfélög í þessum norr-
ænu löndum voru sameinuð, en
þau höfðu þá hvert um sig
starfað um árabil. Þó ber að geta
þess að heimsstyrjaldarárin
settu auðvitað mikið strik í
reikninginn hjá þeim. Þessi flug-
félög voru danska flugfélagið
DDL, sem var stofnað árið 1918,
norska flugfélagið DNL, stofnað
árið 1927, og sænska flugfélagið
SILA, sem hafði verið stofnað
1924.
SAS starfaði allt fram til
ársins 1950 er sú skipulagsbreyt-
ing var gerð að gera félagið að
norrænni flugsamsteypu. Þetta
flugfélag er táknrænt dæmi um
norræna samvinnu, ekki aðeins í
orði heldur og á borði.
„Víkingaflotinn“
Vöxtur SAS og viðgangur hef-
ur verið mikill. í dag halda
SAS-flugvélar uppi reglulegum
flugferðum til meira en 50 borga
í rúmlega 100 löndum. í flugflot-
anum, sem SAS-menn kalla
„Víkingaflotann", eru um 80
flugvélar.
Um þessar mundir eru tíma-
mót í sögu flugsamsteypunnar.
Hafin er endurnýjun þess hluta
„Víkingaflotans" sem heldur
uppi ferðum á Evrópuleiðunum.
Airbus A-300 breiðþotur, sem
eru frönsk smíði, eiga að leysa af
hólmi eldri og óhentugri far-
þegaflugvélar, sem eru af am-
erískri gerð.
SAS-menn binda miklar vonir
við Airbus-breiðþoturnar. Telja
þær mæta bezt tæknilegum
kröfum, sem alltaf er verið að
leggja meiri áherzlu á og herða,
t.d. hvað viðvíkur mengun and-
rúmsloftsins.
Fyrstu Airbus-breiðþotuna
setti SAS inn á flugleiðina
Kaupmannahöfn — London, sem
er mjög mikilvæg, og annasam-
asta flugleiðin á Evrópuleiðum
SAS.
Er fyrsta þotan fór í „jómfrúr-
ferðina" fyrir um það bil mánuði
bauð SAS hópi blaðamanna frá
aðildarlöndum SAS og nokkrum
löndum öðrum að vera með í
þessari fyrstu ferð SAS Airbus-
breiðþotunnar. Farið var árdegis
frá Kaupmannahöfn 19. febr. sl.
Þessi fyrsta Airbus-breiðþota
hafði hlotð nafnið „Viking
Snorre" látin heita eftir Snorra
Sturlusyni í Reykholti. Mér
fannst, er ég steig inn í þennan
mikla og glæsilega farkost að
hann risi undir nafni. Er inn er
komið er vítt til veggja og hátt
til lofts, gangar greiðfærir með-
fram um 30 sætaröðum, en í
þeim sátu alls 242 farþegar, því
hvert sæti var setið.
„Viking Snorre" rís undir
nafni. Hljóðlega var breiðþot-
unni rennt til flugs á Kastrup-
flugvelli, með alls 255 manns
innanborðs. Þá mun „fallþungi"
jómfrúrferð
með
breiðþotu
hennar hafa verið um 140 tonn
alls! í áhöfninni voru alls 13, þar
af níu manns, tveir karlmenn og
sjö flugfreyjur, sem önnuðust
þjónustuna við farþegana á leið-
inni til London. Svo öflugir eru
tveir hreyflar þotunnar að hún
fer með álíka hraða og þær
fjögurra hreyfla þotur, sem ver-
ið hafa í ferðum milli Khafnar
og London. Eftir nokkur augna-
blik var hún komin í rétta
flughæð til London, um 30.000
feta hæð.
Aður en blaðamannahópurinn
gekk um borð í hina nýju þotu
sagði forstjóri SAS í Kaup-
sem kost-
aði 17 og
hálfan
milljarð kr.
mannahöfn, Frede Ahlgreen Er-
iksen, að Airbus-breiðþotan
hefði kostað alls um 17Vi millj-
arð ísl. króna. Teldu SAS-menn
það mjög góð kaup. Hér væri um
að ræða mjög tæknilega þróaða
flugvél. Auk þess, sem minnst
var á hér að ofan, veldur hún
lítilli loftmengun og tekizt hefði
að mæta hinum ströngustu kröf-
um varðandi hávaðamengun.
Hún gæti með fullum rétti talizt
mjög hljóðlát. Þá hefði og tekizt
að gera hana sparneytna og taldi
Eriksen að hún væri um 25
prósent sparneytnari en t.d. þot-
ur af DC-9 gerðinni.
Þetta eru kostir, sem mjög er
leggjandi upp úr einmitt nú. Eg
tel óhætt að slá því föstu sagði
forstjórinn, að við endurnýjun
þess hluta „Víkingaflotans", sem
nú fer fram, hafi SAS valið rétta
flugvélagerð. Innan skamms
mun SAS fá aðra Airbus-
breiðþotu og hefur hún hlotið
nafnið Sveinn víkingur, „Sven
Viking". Þessi fjárfesting verður
alls uppá 34—35 milljarða ísl.
króna!
Nokkrar stað-
reyndir um
SAS-félagið
í þessari títtnefndu „jómfrúr-
ferð“ með „Snorre Viking" voru
með blaðamannahópnum allir
blaðafulltrúar SAS í Ósló, Kaup-
mannahöfn og Stokkhólmi. Það
er staðreynd að almennt munu
blaðalesendur hérlendis hafa
litla sem enga hugmynd um
SAS-flugsamsteypuna. Því fékk
ég einn blaðafulltrúanna til þess
að segja mér frá ýmsum stað-
reyndum, sem í hugann komu
varðandi SAS og þær upplýs-
ingar nota ég sem lokaorðin í
þessari fréttafrásögn af „jóm-
frúrferð“ með breiðþotu.
Island hefur um árabil verið í
flugleiðaneti SAS, en sú flugleið
heitir Kaupmannahöfn —
Keflavík — Narsarssuaq. Fljúga
þoturnar einu sinni í viku yfir
vetrarmánuðina, en allt upp í
fjórum sinnum á sumri. Ólafur
Bertilsson er stöðvarstjóri. Sölu-
skrifstofa SAS er hér í
Reykjavík og er þar skrifstofu-
stjóri Vigdís Pálsdóttir.
- Sv.Þ.
ÞJÓÐARFLUGFELAG DANMERKUR, N0REGS 0G SVÍÞJÓÐAR
Scandinavian Airlines System (SAS) er þjóðarflugfé-
lag Danmerkur, Noregs og Svíþjóðar. Þaö er að 2/7
hluta í eigu danska flugfélagsins DDL, 2/7 hluta í eigu
norska flugfélagsins DNL og 3/7 hluta í eigu sænska
félagsins ABA. Öll eigendafélögin eru hlutafélög að
hálfu í eigu ríkisstjórna og aö hálfu í einkaeign.
SAS-fyrirtækjasamsteypan telur flugfélagiö og þau
dótturfyrirtæki, sem flugfélagið á meirihluta eða
ráöandi hluta í.
Á því fjárhagsári sem lauk 30. september 1979 flaug
SAS til 102 borga í 50 löndum. Var flugleiöanetiö
samtals 264 þúsund kílómetrar aö lengd. SAS flutti
8.669.000 farþega áriö 1979 sem var 10% aukning frá
fyrra ári. Flutningar jukust um 5% á leiöum SAS og
nýting var 57,8%, sem var 2,1% meira en ári áöur.
Hagnaöur SAS samsteypunnar til skatts á árinu var
146,7 milljónir sænskra króna. Áriö á undan varö þessi
hagnaöur 126,7 milljónir sænskra króna. Hlutur
flugfélagsins sjálfs í hagnaöinum var 109,2 milljónir
s.kr. (94,1 milljón á fyrra ári).
Heildartekjur samsteypunnar voru 8.066 milljónir
s.kr. (7050 á fyrra ári) og rekstrarútgjöld voru 7551
milljón (6437 ári áöur). Afskriftir voru 360 (347) milljónir
s.kr.
Tekjur samsteypunnar af flugi voru 5365 (4770)
milljónir s.kr. á árinu og þar af var 81% vegna
farþegaflutninga, 13% fyrir fragt, 3% fyrir langtíma-
leiguflug, 2% fyrir flugpóst og 1% fyrir skammtímaleigu
flugvéla.
Farþegarými, Á 1. farrými
(fremst fyrir aftan stjórn-
klefa) sæti fyrir 18
Almennt farrými 224
Farþegar alls 242
Arösfarmur alls 32 tonn
Hámarksþyngd í flugtaki 142
tonn
Lengd þotunnar 53,6 m
Vænghafiö 44,8 m
Vöru- og farangurslest
107 rúmmetrar
Farflugshæð 9.500 metrar
Flugþol 3,600 km
Hreyflar
Pat & Whiteny — tveir
Knýr í flugtaki 106.000 pund
Hámarkshraöi 840 km
Eldsneytisgeymar
43,000 lítrar.