Morgunblaðið - 20.03.1980, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson.
Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar:
Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033.
Áskriftargjald 4.500.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 230
kr. eintakiö.
„Það góða, sem
ég vil, það
geri ég ekki...“
Tekju- og verkaskipting ríkis og sveitarfélaga er eitt
stærsta viðfangsefni í íslenzkri stjórnskipan, sem taka
verður afstöðu til í náinni framtíð. Fleiri og fleiri aðhyllast þá
valddreifingu í þjóðfélaginu sem felst í flutningi staðbundinna
verkefna — og þá samsvarandi tekna — frá ríkinu
(miðstjórnarvaldinu) til sveitarfélaganna. Sveitarstjórnar-
menn þekkja betur staðbundnar aðstæður, óskir og þarfir í
sínu nánasta umhverfi en fjarlægt miðstjórnarvald, og eru því
betur í stakk búnir til að sinna slíkum verkefnum. Gildir það
bæði um það að sinna verkefninu, hvert sem það er, í samræmi
við vilja þeirra er njóta eiga, og sinna því á sem
hagkvæmastan hátt, kostnaðarlega séð.
Sú óðaverðbólga sem einkennt hefur íslenzt efnahagslíf allar
götur frá 1971 hefur víða komið illa við en ekki sízt
sveitarfélögin. Rekstrarvandi sveitarfélaga var orðinn slíkur að
nauðsynlegt var að knýja á um einhverja lausn. Að hluta til
hlýtur sú lausn að felast í aðhaldi á útgjöld hjá sveitarfélögun-
um sjálfum, enda slík aðhaldsstefna í samræmi við þau
efnahagslegu markmið í þjóðfélaginu, sem ekki er ágreiningur
um að stefna beri að við ríkjandi aðstæður. Að hluta til var
eðlilegt að mæta vanda sveitarfélaganna með aukinni aðild
þeirra að þeim tekjuleiðum sem ríkisvaldið situr nú að.
Versnandi viðskiptakjör út á við og skertar þjóðartekjur
hafa sagt til sín í kaupmætti launa og almennum lífskjörum,
sem eðlilegt er, og kann sú þróun að halda áfram á þessu ári.
Við þær aðstæður er ekki réttlætanlegt að hækka beinar
álögur á almenning eða atvinnurekstur — eða auka á erlenda
verðþróun, eins og margföldun olíuverðs, með stighækkandi
ríkisskatti í endanlegri verðmyndun olíuvara. Af þessum
sökum er fráleitt að fylgja þegar hækkuðum ríkissköttum,
beinum og óbeinum, eftir með fimm milljarða króna hækkun
útsvara, sem að sjálfsögðu verður að skoða sem hluta af
heildarmynd skattbyrðinnar og kjarastöðu fólksins í landinu.
Tii þess að greiða götu sveitarfélaga út úr fjárhagserfiðleik-
um án útsvarshækkana vóru fluttar tvær tillögur á Alþingi um
hækkun sem nam 4% af innheimtum söluskatti 1980 — en
síðari tillagan, varatillagan, fól í sér hækkun um 2%. Báðar
þessar tillögur vóru felldar í neðri deild Alþingis af
þingmönnum Alþýðubandalags og Framsóknarflokks, að
viðbættum þeim þingmönnum Sjálfstæðisflokks, er á ráð-
herrastólum sitja, og Eggerti Haukdai, en Albert Guðmunds-
son sat hjá. Stjórnarliðar samþykktu síðan heimild til
hækkunar útsvara um fimm milljarða króna 1980, þ.e. heimild
til 10% álags á 11% útsvör eða 12,1% útsvar á brúttótekjur.
Sjálfstæðisflokkurinn hét því í kosningabaráttunni að
afnema skattauka vinstri stjórnar 1978 og 1979, sem námu
nokkrum tugum milljarða króna, fengi hann til þess
valdaaðstöðu, og halda heildarskattbyrði innan hóflegs
hlutfalls af þjóðartekjum. Þeir sjálfstæðismenn, sem núver-
andi stjórn styðja, ganga nú þvert á þessi kosningafyrirheit.
Þeir standa að framlengingu allra hinna nýju vinstri stjórnar
skatta, samanber framkomið fjárlagafrumvarp 1980, og bera
þann veg á þeim pólitíska ábyrgð. Þeir standa einnig að
hækkun tekjuskatta, sem fjárlagafrumvarpið felur og í sér.
Þeir standa nú að hækkun útsvarsbyrði, sem hægt var að
komast hjá með auknum söluskattshluta sveitarfélaga. Og í
farvatninu er nýr orkuskattur, allt að 5 milljarðar króna, og
hugsanlega nýr veltuskattur eða hækkun eignaskatts á
atvinnurekstur, sem boðaður var í fjárlagaræðu fjármálaráð-
herra.
Hér er gengið þvert á skattastefnu Sjálfstæðisflokksins, sem
landsfundur hans mótaði einhuga, og þær heitstrengingar, sem
flokkurinn gaf kjósendum sínum og fékk fylgi sitt út á. Þeir
sem þann veg ganga gegn „eigin“ stefnu, breyta í anda
orðanna: „Það góða, sem ég vil, það geri ég ekki, það illa, sem
ég ekki vil, það gjöri ég.“ Þessir þingmenn hlutu atkvæði
stuðningsfólks Sjálfstæðisflokksins vegna fyrirheita um
skattalækkanir, en nú hafa þessir kjósendur verið sviknir og
ber að harma, að sjálfstæðismenn skuli standa að slíku. Það er
stefna Sjálfstæðisflokksins að minnka ríkisumsvif og lækka
þannig álögur á almenning í landinu, en nú er gengið þvert á
þau fyrirheit með atkvæðum þeirra sem sízt skyldi.
Það er illa komið fyrir málsvörum sjálfstæðisstefnunnar og
olnbogarýmis einstaklinganna í landinu, sem þegar eiga undir
högg að sækja þegar kjósendum er misboðið með þessum
hætti.
Ilvað segja sveitarstjórnarmenn
um 12,1% útsvarshækkunartillöguna?
„Á móti skattpíningmmi
sem ríður yfir þjóðina“
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við nokkra sveitarstjórn-
armenn á Reykjavíkursvæðinu og innti þá álits á frumvarpi því
sem liggur fyrir Alþingi og gerir ráð fyrir því að álagning útsvara
hækki um 10% rúm. Voru viðmælendur blaðsins úr Reykjavík,
Seltjarnarnesi, Bessastaðahreppi og Hafnarfirði mótfallnir aukn-
um skattaálögum á einstaklinga þessa lands, en hér fara á eftir
viðtöi við þrjá sveitarstjórnarmenn í viðbót af Reykjavíkursvæð-
inu:
„Á móti aukinni
skattlagningu á þjóðina“
„Höfuðatriðið í þessu máli er
það,“ sagði Jón Gauti Jónsson
bæjarstjóri í Garðabæ, „að það
er gífurlegt ósamræmi á milli
tekna sveitarfélaga og lögbund-
inna útgjalda. Afgangurinn til
framkvæmda minnkar því stöð-
ugt. Ég er hins vegar á móti
aukinni skattlagningu á þjóðina,
en hefði fagnað þessu ef slakað
hefði verið á á móti á öðrum
sviðum. Ég er á móti þessari
skattpíningu sem ríður yfir þjóð-
ina.“
„Óhress með þróunina
í skattahækkunum“
„Það má benda á að við hófum
ekki nýtingu á ellefta prósentinu
á sínum tíma fyrr en nokkuð
seinna," sagði Jón Guðmundsson
á Reykjum, hreppsnefndarmaður
í Mosfellssveit. „Sveitarfélaginu
veitir að sjálfsögðu ekkert af
meiri tekjum og ég tel heppilegra
að taka þessi gjöld af tekjum
manna, en t.d. með fasteigna-
skatti. Við höfur.->. t.d. ekki nýtt
alla möguleika í tekjuöflun vegna
fasteignaskatts og komu þar til
móts við margt fólk sem á ný
hús.
Ég vil þó taka fram að ég tala
ekki fyrir hönd hreppsnefndar og
hef ekki skoðað þetta mál til
hlýtar, en er fremur hlynntur
þessu 12. prósenti. Ég er hins
vegar eins og margir mjög óhress
með þessa þróun í skattahækk-
unum og tel að það þurfi að skoða
fleiri möguleika en þennan fyrir
sveitarfélögin í tekjuöflun."
„Skattbyrðin meiri en
nóg í dag“
„Ég er mótfallinn þessari til-
lögu um 12,1 prósentið miðað við
það að heildarskattbyrði fólksins
í landinu sé að aukast. Hún er
meiri en nóg í dag,“ sagði Rieh-
ard Björgvinsson bæjarfulltrúi í
Kópavogi í samtali við Mbl. í
gær. „Það er ljóst að sveitarfé-
lögin vantar meira fjármagn því
fjármagn þeirra hefur rýrnað, en
það er enginn ávinningur að
auka heildarskattana í landinu.
Það sem er brýnast að gera í
þessum efnum af skynsemi er að
gera verkaskiptingu og tekju-
skiptingu milli sveitarfélaga og
ríkis."
Leiðrétting:
Leiðin er sparnaður,
ekki skattahækkanir
í fréttasamtali í Morgunblað-
inu í gær við Magnús Erlendsson
forseta bæjarstjórnar á Seltjarn-
arnesi urðu þau mistök í milli-
fyrirsögn að þar stóð skatta-
lækkun í stað þess að þar átti að
standa: Leiðin er sparnaður —
ekki skattahækkanir.
Jón Gauti Jónsson Jón Guðmundsson Richard Björitvinsson
Einar Tjörvi Elíasson yfirverkíræðingur Kröfluvirkjunar:
Umbrotin hafa engin áhrif á
jarðhitakerfi virkjunarinnar
„ÞESSI umbrot höfðu engin
áhrif á okkar jarðhitasvæði við
Kröfluvirkjun, þannig að þeirra
vegna er engin ástæða til að
halda að sér höndum varðandi
boranir í sumar,“ sagði Einar
Tjörvi Elíasson, yfirverkfræð-
ingur Kröfluvirkjunar í samtali
við Mbl. í gær.
Einar Tjörvi sagði, að það
hefði ekki verið vegna eldgoss-
ins, sem hola 6 við Kröfluvirkj-
un féll út. „Þetta er afskapiega
viðkvæm hola og hún á það til að
detta út af ástæðum, eins og til
dæmis, þegar byggðalínan dett-
ur út. Það tekur alltaf nokkra
daga að ná henni upp aftur.
„Allar holur, sem Kröfluvirkj-
un notar, eru tengdar neðra
kerfinu, en þar finnst ekkert fyrir
þeim breytingum, sem hafa orðið.
Þetta neðra kerfi er neðan við
1200 metra, en efra kerfið er ofan
við 1000 metra og í það koma
alltaf þrýstibylgjur í jarðsigi og
er þá sama, hvort gos hefur orðið
eða ekki. Þessar þrjár holur, sem
fóru að gjósa núna, eru allar
tengdar efra kerfinu, en þetta var
hins vegar í fyrsta skipti, sem
þær voru allar opnar og því gusu
þær, þegar þrýstibylgjan kom í
efra kerfið.
Náttúrukraftarnir eru auðvitað
ekkert til að leika sér með eða
tala léttúðlega um. En Kröflu-
virkjun hefur ekki verið í neinni
hættu vegna þeirra umbrota, sem
orðið hafa og þau hafa, eins og ég
sagði áðan, ekki haft nein áhrif á
jarðhitasvæði virkjunarinnar. Og
þess ber að geta að þær hug-
myndir, sem uppi eru um frekari
boranir, ganga út á það að fara
fjær eldstöðvunum, ef eitthvað
er.
Ég tel að eina leiðin til að skera
endanlega úr um hæfni svæðisins
sé að bora og að í þeim efnum sé
ekki eftir neinu að bíða. Ég vildi
gjarnan fá boraðar fjórar holur í
sumar, en ákvörðun hefur ekki
verið tekin og það sem ég hef
heyrt telur bara tvær til þrjár
holur."
Einar Tjörvi sagði, að þær
breytingar sem hefðu orðið varð-
andi gufu virkjunarinnar væru
jákvæðar og nefndi til 0,5%
minna gasmagn í gufunni. „Nú
vantar okkur bara meiri gufu og
hana fáum við ekki öðru vísi en
að bora fleiri holur,“ sagði hann.
Málefnasamningur borgarstjórn-
armeirihlutans:
Endurskoðunin
„liggur í salti“
„ÞESSI mál voru lítillega rædd.
en hafa legið í salti að undan-
förnu og verða sennilega ekki
tekin upp aftur fyrr en fjár-
hagsáætlunin er frá,“ sagði
Kristján Benediktsson, borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins,
er Mbl. spurði hann, hvað liði
endurskoðun þeirri á málefna-
samningi meirihluta borgar-
stjórnar, sem framsóknarmenn
fóru fram á.
Mbl. spurði Kristján, hverju
framsóknarmenn vildu ná fram
með þessari endurskoðun. „Eitt
stærsta málið er endurskoðun á
stjórnkerfi borgarinnar og á ég
reyndar von á því að eitthvað
gerist í því máli alveg á næst-
unni,“ svaraði Kristján, en hann
kvaðst hvorki vilja tíunda nein
efnisatriði varðandi þessa end-
urskoðun né nefna önnur atriði í
sambandi við endurskoðun mál-
efnasamningsins.
„Það eru ýms atriði, sem
reynslan hefur leitt í ljós að
mega betur fara, eins og alltaf er
í svona samstarfi. Við viljum
bara taka þá reynslu upp í
málefnasamning meirihlutans,"
sagði Kristján.