Morgunblaðið - 20.03.1980, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
29
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Húsnæði
fyrir léttan iðnað
óskast. 30—60 m!, helst nálægt
miðbænum. Til greina kemur
húsnæöi með öðrum. Uppl. í
síma 76644.
Maður um þrítugt
Maöur um þrítugt meö stú-
dentspróf og starfsreynslu sem
tölvari óskar eftir vinnu strax.
Margt kemur til greina. Tilboö
sendist augld. Mbl. merkt: „A —
6018“.
Ensk stúlka
21 árs óskar eftir aö komast
sem au pair tímabiliö júlí-sept.
Getur kennt ensku. Hefur meö-
mæli. Skriflð J. Tope, 105 Shar-
row Lane, Sheffield, England.
Höfum kaupanda aö sérhæö
eöa eldra einbýli. Sérlega góö
útb. í boði.
Fasteignasala Vilhjálms Þór-
hallssonar, Vatnsnesvegi 20,
Keflavík, sími 1263 og 2411.
Ódýr ferðaröaútvörp
einnig töskur og hylki fyrir kass-
ettur T.D.K. Maxell og Ampex
kassettur. Hljómplötur, múslk-
kassettur og áttarása spólur,
íslenskar og erlendar. Mikiö á
gömlu veröi. Póstsendum.
F. Björnsson, radíóverslun,
Bergþórugötu 2, sími 23889.
Keflavík
Til sölu nýleg, glæsileg 3ja herb.
íbúö viö Mávabraut.
Fasteignasalan, Hafnargötu 27,
Keflavík, sími 1420 og 3577.
Tek aö mér
að leysa út vörur
fyrir verzlanir og innflytjendur.
Tilboö sendist augld. Mbl.
merkt: „Ú — 4822".
Sjálfsbjörg Suðurnesja
Aöalfundur félagsins verður
haldinn sunnudaginn 23. marz
kl. 14.00 í húsi Stangveiöifélags-
ins Suöurgötu 4, Keflavík.
Venjuleg aöalfundarstörf, kaffi-
veltingar.
Stjórnin.
Aðalfundur
Aöalfundur Sunddeildar Ár-
manns verður haldinn þriöju-
daginn 25. marz kl. 20.00 í
Snorrabæ.
Stjórnin.
K.F.U.M. A.D.
Fundur verður í kvöld kl. 20.30
aö Amtmannsstíg 2 B. Reynsla
úr eigin lífi. 3 A.D. félagar segja
frá. Allir karlmenn velkomnir.
Grensáskirkja
Almenn samkoma veröur í safn-
aöarheimilinu í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Halldór S. Gröndal.
IOOF 5 = 1613207= KÚTT
IOOF 11 =1610320 ==8Vfe
□ St:.St:. 59802036 VIII—Sth.
— Hvst. Ath. kl. 18.00.
Hjálpræöisherinn
Almenn samkoma í kvöld kl.
20.30. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Fíladelfía Gúttó
Hafnarfirði
Almenn samkoma kl. 20:30.
Gestur Sigurbjörnsson og fleiri
tala. Fjölbreyttur söngur. Sam-
komustjóri Daniel Glad.
Fíladelfía Reykjavík
Almenn samkoma kl. 20:30.
Æskufólk syngur. Samkomu-
stjóri Hafliði Kristinsson.
Föstud. 21 marz
Húsafell, afmælisferö, göngu-
feröir, skíöaganga á Ok. Góö
gistiaöstaöa, sundlaug, sauna-
baö. Fararstj. Jón I. Bjarnason
og Kristján M. Baldursson. Far-
seölar á skrifst. Útivistar.
Páskaferöir
1. Snæfellsnes, gisting á Lýsu-
hóli, sundlaug, hitapottur, öl-
kelda, gengiö á jökulinn og vföa
um ströndina. Kvöldvökur. Far-
arstj. Kristján M. Baldursson.
2. ðræfi, gisting á Hofi, göngu-
feröir, hugsanlega Öræfajökuls-
ganga. Fararstj. Erlingur Thor-
oddsen.
Upplýsingar og farmiðasala á
skrifst. Utivistar, Lækjarg. 6a,
sími 14606.
Útivist.
GEÐVERNDARFÉLAG
ISLANDS
radauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar
Söluskattur
Viöurlög falla á söluskatt fyrir febrúarmánuö
1980, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta
lagi 25. þ.m.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti
fyrir hvern byrjaöan virkan dag eftir eindaga
uns þau eru oröin 20%, en síöan eru
viðurlögin 4,5% til viöbótar fyrir hvern
byrjaöan mánuö, talið frá og meö 16. degi
næsta mánaðar eftir eindaga.
Fjármálaráðuneytið,
20. mars 1980.
Til leigu
ca. 600 ferm iönaöar- eöa verslunarhúsnæöi
með frágengnu bílastæöi viö Smiðjuveg.
Uppl. eftir 6 á kvöldin í síma 81540.
Innflutningsverzlun
óskar aö kaupa eöa leigja húsnæöi undir
starfsemi sína í austurhluta borgarinnar.
Stærö: Jaröhæö með verzlunargluggum ca.
200—300 ferm, lager- og skrifstofupláss ca.
150—200 ferm (helzt á jarðhæö). Húsnæöið
þarf aö vera laust til afnota eftir u.þ.b. 6
mánuði. Tilboð óskast send til blaðsins
(auglýsingadeildar) fyrir 28. þ.m. merkt: „I —
6416“.
Til sölu
2ja herb. íbúö í þriöja flokki Byggingafélags
Alþýöu.
Félagar sendi umsóknir á skrifstofu félags-
ins, Bræðraborgarstíg 47, fyrir 5. apríl 1980.
Stjórnin.
Akranes
Bæjarmálaráð
Fundur' veröur haldinn í bæjarmálaráöi
Sjálfstæðisfélaganna á Akranesi, laugardag-
inn 22. marz kl. 10 í Sjálfstæðishúsinu,
Heiðargeröi 20.
Stjórn fulltrúaráðsins
AUGLÝSINGA
SÍMINN KR:
22480
EF ÞAÐ ER FRÉTTNÆMT
ÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU
Ari Björnsson, Egilsstöðum:
Kveðja til Sverris
Hermannssonar
Sverrir Hermannsson skrifar 2.
tbl. Þingmúla 29. febr. s.l. í þeim
skrifum er lítið að finna, sem
erindi á til okkar Austfirðinga.
Enda hagsmunamál kjördæmisins
ekki orðuð þar. Hins vegar er þar
að finna graut af sagnfræði frá
tímabili Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. En af því að Sverrir
Hermannsson vitnar til Eysteins
Jónssonar í því sambandi, þá hefði
það ekki spillt sagnfræðinni, að
Sv. H. hefði getið þess að Jónas
frá Hriflu var talinn eiga þó
nokkurn þátt í skjótum pólitískum
frama Eysteins.
I leiðaranum segir Sv. H. orð-
rétt: „Eysteinn Jónsson sagði
greinarhöfundi svo frá, að pól-
itískir andstæðingar hefðu á Al-
þingi umgengist hver annan árum
saman sem bláókunnugir menn.“
Hafi Eysteinn Jónsson lýst
sambúðarmálum á þann veg, þá
stangast það á við það sem Páll
Hermannsson, þingmaður Norð-
ur-Múlasýslu, hafði að segja
mönnum frá veru sinni á Alþingi.
Undirritaður var honum kunnug-
ur og minnist þess að hann talaði
vel um þingbræður sína hvar í
flokki sem þeir voru. Fullyrði ég
að hann þekkti ekki þessi sambúð-
arvandamál á Alþingi.
Sv. H. talar um pólitíska stiga-
menn í Framsóknarflokknum. Þar
er hann auðvitað miklu kunnugri
en margur sjálfstæðismaðurinn,
hann hefur nefnilega stofnað
hlutafélag með Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga, en þar er
veldi framsóknar sterkast. Máski
er honum farið að líða illa undir
S.Í.S.-valdinu, sem hann hefur
stundum varað flokksbræður sína
við.
Undirtónninn í skrifum Sv. H.
er óánægja með að mynduð hefur
verið ríkisstjórn. En þó einkan-
lega að dr. Gunnari Thoroddsen
skyldi hafa tekist það.
Það er óhætt að fullyrða að
meirihluti þjóðarinnar fagnar því
að meirihlutaríkisstjórn var
mynduð. Öllum var farið að
blöskra ráðleysi 60 alþingismanna
í 60 daga og rúmlega það. Það
verður ekki flokkað undir svik og
undirferli af Gunnari að taka sig
til og mynda ríkisstjórn á einni
viku. Það verður frekar flokkað
undir einstakt afrek, miðað við
það sem á undan var gengið, að
honum skyldi takast það.
Stjórnarandstaðan í Sjálfstæð-
isflokknum ætti að hætta undir-
róðri og miður heppilegum skrif-
um í garð dr. Gunnars Thorodd-
sen. Það er fyrst og fremst til þess
að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Því
fer betur að menn eru ekki slegnir
þeirri flokksblindu að það sé hægt
af nokkrum öfgamönnum að negla
menn niður á rússneska vísu.
Þjóðin á nægum auði úr að
spila. Þeir erfiðleikar sem við er
að glíma í bili eru ekki meiri en
svo, að hægt er að sigrast á þeim
með samstöðu og vilja.
Nú á að gefa ríkisstjórninni
starfsfrið og sjá til hvort ekki er
hægt að minnka spennuna í ríkis-
búskapnum.
Það fer svo um þessa ríkisstjórn
sem aðrar að hún verður dæmd af
verkum sínum.
Egilsstöðum 11.3.1980
Ari Björnsson
Magnús Norðdahl opnar myndasýningu í Gallerí
Suðurgötu 7 laugardaginn 22. þ.m. kl. 3 e.h. —
Sýningunni lýkur föstudaginn 4. apríl.