Morgunblaðið - 20.03.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
35
UfllHORP
UMSJON:
JÓN ORMUR HALLDÓRSSON
„Óreiðan í efnahagsmálunum bitnar
ekki hvað sízt á ungum húsbyggjendum44
SAMBAND ungra sjálfstæð-
ismanna og Landsmálafélagið
Vörður hafa í sameiningu
gengist fyrir þremur raðfund-
um um húsnæðismál og í
kvöld, fimmtudagskvöld, verð-
ur haldinn fundur, nokkurs
konar loka- og samantektar-
fundur um málið, og ber hann
heitið Sjálfstæðisflokkurinn
og húsnæðismálin. Fundurinn
er haldinn i Valhöll við Háa-
leitisbraut og hefst kl. 20.30.
Fríða Proppé formaður hús-
næðismálanefndar S.U.S. hef-
ur staðið að undirbúningi
fundanna af hálfu S.U.S. Um-
horfssiðan ræddi við hana i
tilefni fundahaldanna.
„Húsnæðismál eru mjög
mikilsverður þáttur í lífi hvers
einstaklings og þó flestir telji
það nú sjálfsagt mál, að allir
geti eignast sitt eigið húsnæði,
þá er það staðreynd, að margt
ungt fólk stendur í dag frammi
fyrir verulegu vandamáli, er
það stofnar heimili og hyggur
að framtíðardvalarstað. Núver-
andi óreiða í efnahagsmálum
þjóðarinnar skapar vandamál
og óöryggi, sem bitnar ekki sízt
á ungum húsbyggjendum. Þó
sagt sé að verðbólgan vinni
með þeim sem skulda og fjár-
magn í steinsteypu sé gull-
tryggt, þá veitist það oft erfitt
fyrir fólk með tvær hendur
Fundur S.US.
og Varðar um
húsnæðis-
mál í kvöld
tómar — eins og það er orðað
— að koma sér af stað.
Ungir sjálfstæðismenn hafa
á undanförnum árum unnið
sérstaklega að þessum málum
og má t.a.m. minna á frum-
kvæði þeirra á höfuðborgar-
svæðinu með stofnun BYÖG-
UNG-félaganna, sem nú eru
starfrækt í höfuðborginni og
þremur nágrannasveitarfélög-
um. Þessi félög ungs fólks
byggja húsnæðiseiningar, sem
henta ungu fólki bæði hvað
verðlag og stærð varðar."
— Nú hefur mikið verið rætt
um BYGGUNG-félögin og
þann árangur sem þau hafa
náð í lágum byggingarkostnaði.
Hvernig starfa þau og er ein-
hver munur á þeim og öðrum
byggingarfélögum ?
„Félögin byggjast á því, að
einstaklingar koma saman og
mynda með sér félagsskap, sem
hefur það að markmiði að
byggja hentugt'og ódýrt fyrir
félagsmenn. Eélagsmenn kjósa
sér stjórn og framkvæmdaaðila
og síðan er byggt í aðskildum
áföngum, sem hafðir eru af
þeirri stærðargráðu að hentugt
sé bæði með tilliti til fram-
kvæmdahraða og fjármögnun-
ar. Byggjendur hvers áfanga
hafa sjálfir eftirlit með fram-
kvæmdum og reikningum, og
ákvörðunartaka t.a.m. um val á
innréttingum og tækjum eru í
þeirra eigin höndum. Bygg-
ingartímabilið er yfirleitt um
24 mánuðir og greiða byggjend-
ur um einn fimmta áætlaðs
kostnaðarverðs er fram-
kvæmdir hefjast og síðan
reglulegar mánaðarlegar inn-
borganir yfir tímabilið.
Ég þekki ekki mikið til ann-
arra byggingarfélaga, en
BYGGUNG byggir fyrst og
fremst á því, að einstakl-
ingarnir hafi sjálfir eftirlit og
ákvörðunarrétt um hvernig
staðið er að málum og þeir
greiða aðeins raunkostnað
fasteigna sinna.
En það má taka það fram, að
ekki byggir allt ungt fólk með
BYGGUNG og Sjálfstæðis-
flokkurinn hefur sérstaklega
ályktað og unnið að mörgum
málefnum sem varða húsbygg-
ingar almennt. Mér koma þá
fyrst í hug lánamálin, þá eru
skipulagsmál með tilliti til
íbúðabyggðar stórmál, a.m.k.
Friða Proppé
hér á höfuðborgarsvæðinu og
þarf að mínu mati að horfa til
framtíðarinnar í því tilliti, með
sameiginlega hagsmuni allra
íbúa á höfuðborgarsvæðinu í
huga. Raðfundirnir þrír, sem
haldnir hafa verið nú þegar,
hafa sérstaklega tekið fyrir
áðurnefnda þætti, þ.e. skipu-
lagsmálin, lánamálin og
BYGGUNG og einig var'hald-
inn sérstakur fundur um tækn-
imál og aðstöðu húsbyggjenda
til öflunar leiðbeininga á sér-
hæfðum sviðum.
— Hvað verður fjallað um á
fundinum í kvöld?
„Á fundinum verða tveir
framsögumenn, sem báðir hafa
góða þekkingu á þessu sviði,
það eru þeir Gunnar Björnsson
formaður Meistarasambands
byggingariðnaðarins og Ellert
B. Schram ritstjóri og munu
þeir fjalla um húsnæðismálin
almennt og stefnu Sjálfstæðis-
flokksins í þeim málum. Einnig
verður sérstaklega fjallað um
framkomið frumvarp til laga
um húsnæðismál. I því frum-
varpi eru mörg veigamikil at-
riði og nægir þar að minna á
lánamálin, en sjálfstæðismenn
hafa stefnt að því, að húsnæð-
ismálalán til þeirra sem byggja
í fyrsta sinn nemi í framtíðinni
80% af kostnaðarverði fast-
eignar."
— Hvað tekur síðan við að
loknum þessum fundi?
„Ungir sjálfstæðismenn
koma til með að fjalla áfram
sem hingað til um þetta veiga-
mikla hagsmunamál. Niður-
stöður fundanna verða sendar
öllum áhrifaaðilum innan
flokksins og verða væntanlega
til þess að hafa áhrif á stefnu-
mótun flokksins í þessum mál-
um í framtíðinni."
Það var snjóhraglandi I Laugardalnum þegar Markús B. Þorgeirsson
sýndi blaðamönnum björgunarnet sitt og er meðfylgjandi mvnd tekin að
lokinni vel heppnaðri björgunaraðgcrð úr lauginni. (Ljósm. 01. K. Mag.)
Markús B. Þorgeirsson kynnir nýtt björgunarnet:
Til aukins öryggis
um borð í skipum
í VIKUNNI kynnti Markús B. Þor-
geirsson fyrir blaðamönnum björg-
unarnct, sem hann hcfur hannað.
Björgunarnetið er til þcss ætlað. að
auðvelda að ná mönnum er fallið
hafa útbyrðis um borð í skip aftur.
hvort sem þcir eru sjálfbjarga eða
ekki. Þá er ætlast til að nota megi
netið sem uppgöngustiga á skips-
hlið. scm burðarkörfu fyrir vcika
menn um borð, þar scm aðstæður
cru þröngar og erfiðar um borð í
skipum.
Siglingamálastofnun ríkisins hefur
skoðað og tekið nokkurn þátt í prófun
á neti þessu og í umsögn stofnunar-
innar segir m.a: „Þessa nets er ekki
krafist í skipum samkvæmt gildandi
reglum. Hins vegar er Siglingamála-
stofnun ríkisins sannfærð um að slíkt
björgunarnet geti verið til aukins
öryggis um borð í skipum og megi
þess vegna skoða það sem björgunar-
tæki, sem mæla má með að sé til um
borð í íslenzkum skipum til viðbótar
þeim björgunartækjum, sem krafist
er samkvæmt gildandi reglum en það
kemur ekki í stað þeirra.“
Björgunarnetið er 2x3 m að stærð
með flotum á lengri teinum netsins og
sjálflokandi hökum til að hægt sé að
loka netinu t.d. utan um mann í sjó. í
öllum hornum netsins eru línur til að
stýra því og ná upp úr sjó. Möskvar
netsins eru stórir, 200 mm, svo
auðvelt er að stíga í netið og ná
handfestu. Reynsla af netum við að
komast upp í skip er þegar fyrir
hendi, því að slík net hafa lengi verið
notuð á stríðstímum, segir í greinar-
gerð Siglingamálastofnunar.
Þorvaldur Ólafsson skipaskoðunar-
maður hefur reynt netið í sundlaug
með Markúsi B. Þorgeirssyni og
segist í áliti sínu vera þess fullviss, að
í mörgum tilvikum geti svona net
komið að tilætluðum notum. „Þess
vegna mæli ég með því, að Markúsi
verði afhent viðurkenning Siglinga-
málastofnunar ríkisins um að netið sé
björgunartæki," segir Þorvaldur Ól-
afsson m.a.
Sílv
Nú sláum við íslandsmetið og sýnum yfir 100 mismunandi
tepparúllur á einni útsölu. Allt að 50% afsláttur. Þú gerir sann-
kölluð reyfarakaup á teppaútsölunni og greiðir aöeins
1 /3 út og eftirstöðvar á 6 mán.
Teppi í öllum verðflokkum og gæðaflokkum, bæði glæný og
eldri, verða á útsölunni. Einnig seljum við húsgögn á góöum
afsláttarkjörum og sýnum allar vörurnar í rúmgóðum húsa-
kynnum á fyrstu hæð i Sýningahöllinni.
Opið til laugar- virka daga kl. 13-18
aa _______ föstudaga kl. 13-22
CloC|§in$ mars laugardaga kl. 9-12
Við önnumst alla teppalagningu en vinsamlegast hafið með
ykkur málin ef þess er kostur.
Teppamarkaöurinn
Sýningahöllinni Ártúnshöfða
sími 39160