Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980
37
ingu, að upphæð 10% af tilboðs-
upphæð, um að hann standi við
skuldbindingar sínar. Þessi regla
er eðlileg. Tryggingar þessar eru
fyrst og fremst veittar af bönkum
en í undantekningartilvikum af
tryggingarfélagi.
Sú regla, sem komist hefur á að
verktaki leggi til tryggingargjafa
fasteignaverðstryggingu í stað
verktryggingar er aftur á móti
mjög óeðlileg og verkar neikvætt á
flestan hátt. Þessu þarf að breyta
og koma þess í stað á slíku kerfi að
tæknigeta, reynsla og fjárhags-
staða verktaka ásamt tilboðs-
upphæð séu lögð til grundvallar
verktryggingu.
Greinargerð
með stefnuskrá
1. Nefnd, sem skipuð var 1965 til
að fjalla um opinberar fram-
kvæmdir komst að þeirri niður-
stöðu í áliti, sem skilað var 1966,
að nauðsynlegt væri að undirbúa
verklegar framkvæmdir mjög vel
að öllu leyti og lagt var til að
framkvæmdir væru boðnar út.
Jón Sigurðsson, þáverandi ráðu-
neytisstjóri, var formaður nefnd-
arinnar en meðal nefndarmanna
voru ýmsir embættismenn.
Ekki er vitað til þess að nein
önnur könnun hafi farið fram um
þetta efni. Alitið er allítarlegt og
eru tilfærð í því dæmi. Alitið
styður eindregið þá skoðun Verk-
takasambandsins að útboð sé
heppilegasta framkvæmdaaðferð-
in og er margt tínt til.
2. Það hlýtur að vera markmið
þeirra, sem ráðstafa fjármunum
ríkisins og þar með sköttum og
gjöldum fólksins í landinu, að
þeim sé sem best varið. Vegna
þessa markmiðs hefur Verktaka-
sambandið allt frá árinu 1976 í
bréfi til fjárveitinganefndar Al-
þingis, bent á að nauðsynlegt sé,
að ítarleg grein sé gerð fyrir
kostnaði við opinberar fram-
kvæmdir. Hefur sambandið bent á
að eftirtaldar upplýsingar verði að
liggja fyrir við lok verks og sé í
upphafi miðað við að þessar upp-
lýsingar séu gagnrýndar ef þörf
krefur:
a. kostnaðaráætlun
b. tilboðsfjárhæð
c. samningsverð
d. verðbætur
e. aukareikningur vegna auka-
verka
f. lokaverð
Ljóst er að nú er víða pottur
brotinn og er nánast ókleift að fá
tölu vegna ýmissa verka, sem ríkið
eða ríkisstofnanir hafa fram-
kvæmt. Því var það að Verktaka-
sambandið fékk Vinnuveitenda-
samband íslands til þess að fjalla
um þetta málefni. V.S.Í. lagði
málið útfært fyrir fjármálaráðu-
neytið í janúar 1978. Tók ráðu-
neytið mjög vel í að framkvæma
könnun á verklegum framkvæmd-
um áranna (1972—1978) og var
ætlunin að vinna þetta verk þegar
í stað. Ekkert hefur bólað á
framkvæmd þessa máls hjá ráðu-
neytinu og virðist því, sem engar
tölur séu til um slíkt, sem virðist í
hæsta máta undarlegt, þegar um
er að ræða milljarða framkvæmd-
ir.
3. Bent skal á að um allan hinn
vestræna heim er útboðsaðferðin
notuð og hjá sumum þjóðum nær
eingöngu þegar um opinberar
framkvæmdir er að ræða. Þá skal
bent á að þegar alþjóðastofnanir
hafa lánað til opinberra fram-
kvæmda á íslandi er það nær
undantekningarlaust skilyrði að
verkin séu boðin út. Menn geta
velt fyrir sér hvers vegna?
4. Nú skal bent á nokkur dæmi því
til stuðnings að heppilegra er að
bjóða út verk heldur en að láta
stofnanir framkvæma þau.
A. Alkunna er að hönnun verka,
sem boðin eru út eru betur
undirbúin en ella.
Hönnuður, sem útbýr verk
til útboðs hefur það hugfast að
aðrir aðilar eiga að fást við
framkvæmd og því nauðsyn-
legt að hafa hönnun sem full-
komnasta.
Þegar hönnuðir framkvæma
Hin stórbrotna mannvirkjagerð við Hrauneyjafoss, sem að mestu leyti
starfsmönnum þeirra.
er unnin af islenzkum verktökum og
Ljósm. Mbl. Emilla.
jafnframt verk, má gera ráð
fyrir að til undirbúnings sé
ekki eins vandað þar sem þeir
vita að þeir eiga sjálfir mögu-
leika á því að breyta án þess að
hátt fari og ef til vill oft á
tíðum enginn aðili utan stofn-
unar sem fylgist með.
B. Þegar verk eru boðin út þarf að
vera búið að áætla fjárþörf til
loka verksins enda nauðsynlegt
til þess að fjárfestingin beri
arð, sem fyrst.
I þeim tilvikum, sem ríkis-
stofnanir framkvæma sjálfar
er oft á tíðum ekki séð fyrir
endann á verkunum þar sem
fjárveitingar eru ekki ákveðnar
og því allt í óvissu um nýtingu
fjárfestingarinnar. Reyndar
nota stofnanir það sem afsökun
fyrir því að bjóða ekki út að
fjárveitingar séu óákveðnar. I
þessu sambandi er spurning
um arðsemi fjárfestingar og
hvort könnun á þeirri hlið fari
yfirleitt fram eða ekki.
Má því gera ráð fyrir því að
með útboðum sé hægt í aukn-
um mæli að nýta fjármuni
ríkisins betur. En það kostar
hins vegar það að fjárveitinga-
valdið verður að taka af skarið
hverju sinni hvaða verkefni
eigi að ráðast í og fullklára og
hverjum á að hafna en ekki
byrja á öllu í einu og hafa þar
af leiðandi fjármagn í ónýttum
mannvirkjum árum saman.
C. Þegar samið hefur verið við
tilboðsgjafa liggur fyrir áætlun
og tilboðsverð. Við tilboðsverð
bætast aðeins hugsanlegar
verðbætur og aukareikningar.
Aðrir aðilar en verktakar t.d.
stofnun sú, sem lætur fram-
kvæma eða sjálfstæðir eftir-
litsmenn, hafa eftirlit með
framkvæmdum verktaka og
taka út verk í verklok. Þegar
ríkið sjálft framkvæmir eða
stofnanir þess er mikið álita-
mál hvort framkvæmd stenst
peningalega. Eru t.d. hækkanir
verka á þeirra vegum alltaf
vegna verðhækkana eða er illa
að verkinu staðið? Þessu getur
enginn svarað. Hvað um eftir-
lit og úttekt þessara verka?
D. Það er almennt álitið að
óhagkvæmt sé að ríkið sjálft
eða stofnanir þess framkvæmi.
Er það bæði gömul speki og ný.
Hætt er við að starfsmenn og
tækjakostur verði bundinn um
of við hverja stofnun. Mjög
erfitt er að draga úr stærð
stofnana eftir að þær hafa einu
sinni blásið út. Ef dæmi er
tekið um t.d. Vegagerð ríkisins,
en nú er vilji hjá landsmönn-
um að gera átak í vegagerð, er
ljóst að sú stofnun þyrfti á
viðbótar tækjakosti að halda.
Hætt er við að sá tækjakostur
og jafnvel mannafjöldi verði
ekki aftur tekinn með góðu
móti.
E. Nú á síðari árum hefur risið
upp nokkur verktakaiðnaður
hér á landi. Hafa íslenskir
verktakar sýnt og sannað að
þeir hafi reynslu og þekkingu
til að ráðast í hin stærri verk
og má í því sambandi benda á
vegalagningu umhverfis
Reykjavík 1970—1973.
F. Sé hugað að varanlegri lagn-
ingu hringvegar er rétt að hafa
eftirfarandi í huga:
a. Islenskir verktakar hafa
lagt vegi umhverfis Reykjavík
með góðum árangri.
b. Þó verktakar taki að sér
vegalagningu t.d. í Húna-
vatnssýslum er ljóst að heima-
menn fá verulega vinnu við þá
framkvæmd og tæki heima-
manna verða notuð.
c. Þegar eru ljós dæmi þess að
óheppilegt er að spenna á
vinnumarkaði í sveitarfélögum
sé aukin meira en hægt er að
komast hjá.
d. Tæki, sem heimamenn öfl-
uðu gagngert til vegafram-
kvæmda kynnu að verða ónýtt
þegar vegurinn er farinn hjá og
næsta hérað tekur við.
e. Búast má við stöðnun í
tækniframförum ef nota á
óhentug tæki.
f. Ljóst er að önnur vegavinna
leggst ekki niður þó hafin sé
gerð hringvegar.
Ekki verður fjölyrt hér frekar um
hagkvæmni þess að bjóða út
opinberar framkvæmdir en benda
má á fjöldamörg önnur atriði.
Nauðsynlegt er að skipa verk-
legum framkvæmdum á þann veg
að þeir, sem láta fjármuni af
hendi til mannvirkjagerðar, fái
sem mest fyrir peningana. Kanna
þarf rækilega hvert einstakt verk
og hvernig að því var staðið með
tilliti til framtíðarstefnunnar.
Stefnuskrá Verktakasambands-
ins verður endurskoðuð eins og
þurfa þykir vegna breyttra að-
stæðna í þjóðfélaginu.
- SS.
Blíðskapar-
veður á
Borgarfirði
Borgarfirði 18. marz.
í DAG er hér sólskin og sunnan-
átt, sannkallað vorveður og raun-
ar má segja, að fram að þessu
hafi vetur verið snjólítill og
mildur hér austanlands.
Að vísu hefur tíð verið allum-
hleypingasöm með köflum, en við
höfum að mestu sloppið við þau
veður sem geisuðu sunnanlands og
vestan og getið var um í fréttum.
En sem sagt, í dag er hér lítill
snjór og vorblíða, og vegurinn til
Héraðs um Vatnsskarð fær flest-
um bílum.
I haust voru að venju allir bátar
settir á land sökum hafnleysis,
þrátt fyrir hina svokölluðu hafn-
argerð austur við Hafnarhólma,
en nú er búið að sjósetja nokkra
aftur og eru menn að búa sig undir
grásleppuveiðar. 'Nokkur rauð-
maganet eru komin í sjó, en lítið
hefur veiðst enn sem komið er.
Dauft hefur verið yfir félagslífi
hér eins og venjulega á veturna.
Þó var hér hið árlega þorrablót í
janúar. Einnig hélt prjónastofan
Nálin kvöldvöku með heimatil-
búnu skemmtiefni, kaffiveitingum
og dansað var á eftir.
Hingað kom um daginn dans-
kennari frá Egilsstöðum og hélt
nokkurra kvölda námsskeið við
góða aðsókn. Og nú eru það
skólabörnin, sem bíða eftir snjón-
um því þá eygja þau von á
skíðakennara.
Sverrir Haraldsson
Norræna húsið;
Fyrirlestur
um finnskar
handíðir
FIMMTUDAGINN 20. mars flytur
Ruth Henriksson frá Finnlandi
fyrirlestur með litskyggnum og
tónlist í fyrirlestrarsal Norræna
hússins og nefnir hann „Hant-
verkardag, ett sátt att áteruppliva
gammal bygdekultur".
Finnskar handíðir byggja á
fornum alþýðuhefðum, en alþjóðl-
eg fjöldaframleiðsla hefur gert að
þeim harða hríð. Undanfarin ár
hefur mjög mikil vakning orðið að
því er lýtur að varðveislu þessara
fornu hefða og endurlífgun þeirra
og meðal annars eru haldnir
„hantverkardagar" eða handíða-
dagar víða um Finnland, og hafa
orðið hvatar til að taka upp að
nýju gamlar, þjóðlegar handíðir.
Ruth Henriksson var lektor í
vefjarlist við Laguska mennta-
skólann í Helsingfors. Hún hefur
dvalist á íslandi áður, sumarið
1973, er hún var hér í boði
Norræna hússins og hélt þá fyrir-
lestra fyrir almenning og nám-
skeið fyrir íslenska handavinnu-
kennara, og mun hún að þessu
sinni einnig halda fyrirlestur fyrir
handavinnukennarana.
Fyrirlesturinn á fimmtudag
hefst kl. 20:30 og er öllum opinn.
FUF andvígt
Höfðabakkabrú
STJÓRN Félags ungra fram-
sóknarmanna hefur lýst yfir
andstöðu sinni við byggingu
brúar yfir Elliðaár við Höfða-
bakka. Telur stjórn FUF útivist-
arsvæðið í Elliðaárdal mun
verðmætara Reykvíkingum en
brúargerðin.