Morgunblaðið - 20.03.1980, Page 46

Morgunblaðið - 20.03.1980, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 Jón Sigurðsson KR varð stigahæstur annað árið i röð. Islandsmótiö í körfuknattleik: Jón maður mótsins Smock stigakóngur Jón Sixurðsson er „Leikmaður íslandsmótsins“ í körfuknattleik annað árið í röð. Hann hlaut flest stig i einkunnagjöf blaðamanna Morgunbiaðsins en nú var mjórra á mununum en i fyrra þegar Jón vann þetta sæmdarheiti fyrstur körfuknattleiksmanna. Stigahæsti leikmaður mótsins var Bandaríkjamaðurinn Trent Smock í liði stúdenta ok hafði hann umtalsverða yfirburði. í fyrra varð Mark Christiansen stÍKakónKur mótsins, en hann lék þá með Þór. Báðir þessir leikmenn, Jón Sigurðsson ok Trent Smock, munu fá bikara frá Morgunbiaðinu i viðurkenningarskyni fyrir afrek þeirra. Einkunnagjöfin: En lítum fyrst á efstu menn í stigagjöf blaðamanna Morgun- blaðsins: Stig Jón Sigurðsson KR 71 Kristinn Jörundsson ÍR 69 Guðsteinn Ingimarsson UMFN 67 Símon Ólafsson Fram 65 Gunnar Þorvarðarson UMFN 64 Meðaltalið hjá þessum mönnum er mjög hátt. Jón fékk að meðal- tali 3,55 í einkunn fyrir hvern hinna 20 leikja, Kristinn 3,45, Guðsteinn 3,35, Símon 3,25 og Gunnar 3,20. Allir þessir menn sýndu mjög góða frammistöðu í vetur. Nokkrir leikmenn koma á hæla þeim þar á meðal leikmenn úr meistaraliðinu Val. Valsliðið var mjög jafnt og samtaka í vetur og skaraði þar enginn sérstaklega framúr og er það eflaust skýringin á því að enginn Valsmaður er í hópi fimm efstu manna. Stigahæstir: Stigahæstu leikmenn Islands- mótsins urðu þessir: Trent Smock, ÍS 669 Tim Dwyer, Val 579 Mark Christianson, IR 524 Kristinn Jörundsson, ÍR 462 Símon Ólafsson, Fram 458 Ted Bee, UMFN 423 Jón Sigurðsson, KR 411 Gunnar Þorvarðarson, UMFN 343 Guðsteinn Ingimars., UMFN 343 Kristján Ágústsson, Val 291 Marvin Jackson, KR 286 Jón Héðinsson, ÍS 256 Eins og sjá má eru yfirburðir Smock miklir og hann setti nýtt stigamet. Bandaríkjamenn raða sér í þrjú efstu sætin en síðan kemur Kristinn Jörundsson, sú gamalreynda kempa, og er hann stigahæstur íslendinganna. Ted Bee átti við meiðsii að stríða fyrri hluta mótsins og er því ekki hærri en raun ber vitpi. Marvin Jackson er þarna á skránni þótt hann léki aðeins með hluta af mótinu. Morgunblaðið óskar Jóni Sig- urðssyni og Trent Smock til ham- ingju með titlana. - SS. Trent Smock Evrópukeppnin í knattspyrnu: Vestur ÖLL röðin í undanúrslitum UEFA-bikarkeppninnar eru frá Vestur-Þýzkalandi og segir það margt um gæði knattspyrnunnar þar í landi. Úrslit leikja í 8-liða úrslitum keppninnar í gærkvöldi urðu þessi: , , , (stls.) Mönch.glb.-St.Etienne 2—0 (6-1) Bayern-Kaisersl. 4—1 (4-2) Loko Sofía-Stuttg. 0—1 (1-4) Zbrojovka-Frankfurt 3—2(4-6) Borussia vann St.Etienne sam- anlagt 6—1, en þeir Tychosen og hannes skoruðu mörk liðsins í gær, bæði í fyrri hálfleik. Bayern sýndi sannkallaðan stórleik í síðari hálfleiknum gegn Kaisers- lautern, staðan í leikhléi var 1—1, en þrjú mörk fékk Kaiserslautern á sig í síðari hálfleiknum og slapp liðið þó þrátt fyrir allt vel. Dieter Höness (2), Paul Breitner og Gunther Janzon skoruðu mörk Bayern, eftir að Benny Wendt hafði náð forystunni fyrir Kais- erslautern. Þrátt fyrir tap, vann Frankfurt Brno samanlagt 6—4. Horny náði forystunni fyrir Brno í fyrri hálf- -þýsk einokun leik, en þeir Karger og Neuberger komu Frankfurt yfir og stóð 2—1 þar til á 89. og 90. mínútu, er Kotasek og Kopenek skoruðu sig- urmörk Brno. Þá vann Stuttgart auðveldan sigur gegn slöku liði Loko Sofia. Olicher skoraði eina mark leiksins á 7. mínútu. I Evrópukeppni meistaraliða gekk á ýmsu og þar komst enn eitt lið frá Vestur-Þýzkalandi Ham- burger SV í undanúrslit. Liðið tapaði úti fyrir Hadjuk Split 3—2, vann heima 1—0 og komst því áfram á útimörkunum. Vujovic, Djordjevic og Primorac skoruðu mörk Split í leiknum, en Hrubesch og Hieronymus svöruðu fyrir HSV. Markvörður HSV, Rudi Kargus, varði auk þess víti frá Primorac. En úrslit í meistara- keppni í gærkvöldi urðu þessi: (stls.) Hadjuk S.-Hamburger 3—2 (3-3) Dynamo Beriin-Forest 1—3(2-3) Ajax-Strassb. 4—0 (4-0) Real Madrid-Celtic 3—0 (3-2) Forest kom sannarlega á óvart með sigri sínum úti gegn Dynamo, en austur-þýzka liðið vann 1—0 á City Ground í fyrri leik liðanna. En Forest reyndist mun sterkara liðið þegar á reyndi, Trevor Franc- is (2) og John Robertson skoruðu mörkin, en Terletski skoraði eina mark DB úr víti í síðari hálfleik. Celtic fékk mikinn skell fyrr framan 120.000 brjálaða áhorfend- ur á heimavelli Real. Santillana, Stielike og Juanito skoruðu mörk Real. Ajax var í engum vandræð- um, Schoenmaker, Arnesen, Lerby og La Ling skoruðu mörk liðsins. I keppni bikarhafa urðu úrslit sem hér fer á eftir: (stls.) Gautaborg-Arsenal 0—0 (1-5) Valencia-Barcelona 4—3 (5-3) Nantes-Dyn. Moskva 2—3 (4-3) Juventus-Rijeka 2—0 (2-0) Saura (2), Bonhof og Kempes skoruðu mörk Valencia, en fyrir Barcelona svöruðu Canito (2) og Landaburu. Valencia vann sam- anlagt 5—3. Nantes vann DM samtals 4—3, Michel of* Toure skoruðu fyrir liðið, en þeir Minaj- ev, Gazev og Kolosov svöruðu fyrir DM. Battaga skoraði bæði mörk Jeventus. Bikarkeppni HSI Valur fékk Hauka • í gærdag var dregið í 4 liða Valur Fram, og Ármann fékk úrslit í bikarkeppni HSÍ í meist- Þór frá Akureyri. í 2. fl. karla araflokki karia, drógust saman drógust Víkingur og Fylkir sam- Haukar og Valur og KR og KA. í an og KR móti FH. — þr. meistaraflokki kvenna mætir Bikarinn að fara í Víking KR-Valur í kvöld EINN leikur fer fram í 1. deild íslandsmótsins i handknattleik i kvöld. Valur og KR eigast við i Laugardalshöllinni og hefst leik- urinn klukkan 18.50. Leikurinn gæti orðið fjörugur, Valsmenn hafa sýnt stórleiki að undan- förnu og teljast sigurstranglegri. KR-ingar hafa nýlega rekið þjálf- ara sinn Bjarna Jónsson og verða undir stjórn Jóhanns Inga Gunn- arssonar landsliðsþjálfara að þessu sinni. Aarhus meistari AARHUS KFUM varð danskur meistari i handknattleik um siðustu helgi, en það hefur ekki gerst síðan Bjarni Jónsson lék með liðinu fyrir fimm árum siðan. Allan þann tima hefur verið um einokun Fredricia KFUM að ræða. VÍKINGSDÖMUR eru komnar með aðra hendina á íslandsbikar- inn i blaki, eftir að hafa borið sigurorð af ÍS i hörkuleik um helgina. Bæði liðin eiga eftir einn leik, erfiða leiki, þar sem sigur ætti þó að nást. Víkingarnir eru þvi farnir að seilast eftir bikarn- um með hinni hendinni. Víkingur sigraði 3—2, eftir að hafa verið 2—0 undir um tíma. Enduðu hrinurnar sem hér segir, Vikings getið á undan: 7—15, 12-15, 15-4, 15-12 og loks 16-14. Einn leikur fór fram i 1. deild karla, ÍS sigraði Víking 3—2 (15-13, - 15-12,13-15,4-15 og 15—6). Þá sigraði Þróttur UBK i botnleik 1. deildar kvenna 3-1. gá/gg. Rússarnir koma: Armenar mæta í dag með harðsnúinn flokk SOVÉSKT úrvalslið í körfu- knattleik kemur hingað til lands á morgun í boði körfuknattleiks- deildar Vals og KKÍ, er hér um að ræða víðfrægt lið frá Ar- meniu. Landsliðsnefnd KKÍ hcf- ur valið hóp leikmanna sem mæta munu' Rússunum, það er 15 manna flokkur og 10 þeirra verða síðan valdir í landsliðshóp- inn sem keppir á Polar Cup í Noregi 10.—14. apríl næstkom- andi. Sovéska liðið mun leika hér- lendis sex leiki, þar af þrjá landsleiki gegn íslenska landslið- inu. Verður sá síðasti þeirra 100. landsleikur íslands i körfu- knattleik. Jourie Iiichew, góð- kunningi okkar úr knattspyrn- unni, kom heimsókn þessari af stað og meðan hans naut við hérlendis komst þetta fyrst veru- lega á skrið. Tóku aðrir við er Jourie varð að hverfa snögglega af vettvangi. „Þetta er viss fjárhagsleg áhætta," sagði Halldór Einarsson í körfuknattleiksdeild Vals í gær, „en það bjargar miklu að okkar deild stendur í þessu í samvinnu við KKÍ.“ Fyrsti leikur Armeníu- mannanna verður á föstudaginn í Laugardalshöllinni klukkan 20.00, en þá leika þeir gegn úrvalsliði þeirra bandarísku leikmanna sem leika hér á landi. Á laugardaginn leika Rússarnir gegn Val í Borg- arnesi klukkan 15.00 og munu Valsmenn styrkja lið sitt með Pétri Guðmundssyni. Á sunnudag- inn klukkan 15.00 verður síðan opinber landsleikur á Selfossi og annar slíkur í Laugardalshöllinni á mánudagskvöldið klukkan 20.00. Næst færist leikurinn til Njarð- víkur, en þar verður leikið á þriðjudagskvöldið klukkan 20.00. Eigast þá við lið UMFN og Armenía. Flosi Sigurðsson mun styrkja lið UMFN. Síðasti leikur- inn verður síðan í Laugardalshöll- inni á miðvikudagskvöldið klukk- an 20.00, þá verður þriðji lands- leikur þjóðanna, 100. landsleikur íslands í körfu. Það verður því nóg að gera í íslenska körfuknattleiksheiminum á næstunni og einkum fá þeir ærin verkefni þeir 15 menn sem lands- liðsnefnd KKÍ hefur valið. Hópinn skipa eftirtaldir leikmenn: Kristinn Jörundsson ÍR Kolbeinn Kristinsson ÍR Gunnar Þorvarðarson UMFN Guðsteinn Ingimarsson UMFN Jónas Jóhannesson UMFN Júlíus Valgeirsson UMFN Símon Ólafsson Fram Pétur Guðmundsson Uni.of. Wash. Jón Sigurðsson KR Geir Þorsteinsson KR Birgir Guðbjörnsson KR Torfi Magnússon Val Kristján Ágústsson Val Ríkharður Hrafnkelsson Val

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.