Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 48

Morgunblaðið - 20.03.1980, Side 48
Lækkar hitakostnaðinn Síminn á afgreiðslunni er 83033 BWroimWnbifc FIMMTUDAGUR 20. MARZ 1980 Skattstiginn: 20% aí fyrstu 3 milljón- unum, 35% af næstu 3 og 50% af afgangnum FJÁRMÁLARÁÐIIERRA, Ragnar Arnalds, sagði á Alþinxi í gær, að skattstigar einstakiinua yrðu nú þrir, 20% af fyrstu þremur milljón- unum, 35% af næstu þremur ug 50% af tekjuskattsstofni umfram fi milljónir króna. Persónuafsláttur einstaklings verður nú 440 þúsund krónur. Skattstigi fyrirtækja verð- ur 65%, eins ok var, en í fyrra voru tekjuskattstigar einstaklinga fjór- ir. en verða þrír nú. Fjármálaráð- hrrra sagði að frumvarp um skatt- stigann og persónuafslátt yrði væntanlega lagt fram á Alþingi á mánudaginn. Samkvæmt þessu greiða menn í tekjuskatt 600.000 krónur af fyrstu þremur milljónunum, sem þeir hafa í skattgjaldstekjur, af næstu þre- mur milljónunum greiða menn 1.050.000 krónur í tekjuskatt og helminginn af þeim skattgjaldstekj- um, sem þá eru eftir. Hafi menn til dæmis 8 milljónir króna í skatt- gjaldstekjur, greiða þeir eina millj- ón til viðbótar í tekjuskatt. í fyrra gilti 20% skattstigi af skattstofni einstaklings upp að 1.969.200 krónunum, 30% frá þeirri upphæð í 2.756.800 krónur, frá þeirri upphæð í 3.848.000 krónur var greiddur 40% skattur og 50% skatt- ur af tekjuskattsstofni umfram 3.848.000 krónur. í fyrra var persónuafsláttur ein- staklings 310.400 krónur, þannig að hækkun persónuafsláttar einstakl- ings verður 41,8%. Persónuafsláttur hjóna var í fyrra 464.000 krónur. Barnabætur voru í fyrra 100.660 krónur með fyrsta barni og 150,986 með öðru barni og fleirum. Samkvæmt upplýsingum fjár- málaráðherra hækka skattleysis- mörk einstaklings þá um 46,67% frá í fyrra, verða 2,2 milljónir króna, en voru hálf önnur milljón. I fjárlaga- frumvarpi hans segir, að talið sé að tekjur einstaklinga til skatts hafi hækkað um 48% milli áranna 1978 og 1979. Fiskveiðisjóður og skipakaup: Steingrímur afnemur reglugerð Kiartans „REGLUGERÐ Kjartans Jó- hannssonar, sem segir að sam- þykkt Fiskveiðisjóðs skuli vera háð samþykki sjávarútvegsráðuneytis- ins stenzt ekki að mínu mati og þvi verður sú reglugerð afnumin á næstunni," sagði Steingrímur Her- mannsson sjávarútvegsráðherra í samtali við Morgunbláðið í gær. „En einnig er verið að skoða ýmis önnur atriði í þessu máli sem verður þá breytt um leið ef til kemur.“ Reglugerð Kjartans er Tíuflugmenn klár- ir á Áttur aftur Lokið er endurþjálfun níu áhafn. flugmanna Flugleiða sem flugu DC- 10 þotu félagsins á sl. ári, en þeir munu nú hefja störf aftur á Áttum félagsins. Að auki hafa aðrir flug- menn hlotið þjálfun samkvæmt því sem skylt er á hverju ári. þess eðlis, að ekki cr unnt að kaupa eða skipta á skipum erlendis frá. „Það liggja nú fyrir álitsgerðir sem segja að reglugerð Kjartans hafi ekki stoð í lögum," sagði Steingrímur sjávarútvegsráðherra," og samkvæmt þeim þarf ekki sam- þykki ráðuneytisins við einstakar ákvarðanir fiskveiðisjóðs varðandi lánveitingar. Ég er því að skoða þetta mál. Ég hef þó engan áhuga á því að stórauka innflutning á fiski- skipum, heldur tel ég að hamla verði á móti því. En það verður að gera með lánsprósentunni eins og t.d. 50% sem lánuð hafa verið til erlendra skipakaupa og er mun lægri hlutfallsstala en til kaupa á skipum innanlands. Með því að loka algjörlega fyrir endurnýjun á skip- um erlendis frá er í rauninni verið að sporna við því að skip fari úr landi og flotanum sé haldið eðlilega við, því með því móti er öll íslenzk nýsmíði viðbót v.ið flota lands- manna. Ég tel því að sýna verði meiri sveigjanleika í endurnýjun skipaflotans og þessi atriði eru fyrst og fremst ástæðan fyrir afnámi reglugerðarinnar." HÓPUR flugfreyja hjá Flug- leiðum fékk í gær æfingu i þvi hvernig þeim beri að bregðast við i neyðartilfellum, svo sem hvernig bjarga skuli farþegum og áhöfn þegar nauðlenda þarf í sjó eða landi. Flugfreyjurnar hafa verið í flugvélum í milli- landaflugi, en verið var að þjálfa þær á Fokker Friend- ship-vélar félagsins. Neyðartil- fellin voru sviðsett með tilheyr- andi tilbrigðum. Á myndinni er aðstoðarflugmaður að bjarga farþega, sem læzt vera með stífkrampa, um borð í björgun- arbát eftir nauðlendingu á sjó. Ljósm. Mbl. Kristján Togararnir fóru út fyrir verkfallið VERKFALL hófst á miðnætti síðastliðnu hjá fjórum ísfirzkum skuttogurum, Guðbjörgu, Júliusi Geirmundssyni, Guðbjarti og Páli Pálssyni og eru sjómennirn- ir, sem að verkfallinu standa um 40 talsins. Auk þess eru 20 yfirmenn á þessum fjórum togur- um, en þeir standa ekki að aðgerðunum. Eftir 10 daga eða hinn 30. marz, er boðað enn viðtækara sjómannaverkfall á ísafirði, er sjómenn á linubátum fella niður vinnu. Þar er um að ræða 30 sjómenn og þegar öll þessi isfirzka útgerð hefur stöð- Hávaðadeilur í neðri deild um útsvarshækkun: Þingforseti og ráðherrar neit- uðu ósk um frestun á umræðu — en í matarhléi í gærkvöldi sömdu stjórnar- flokkarnir við Sjálfstæðisflokkinn um frestun ÞINGFLOKKUR Sjálfstæðisflokk- og Alþýðuflokks fóru fram á frest- un umræðna um tekjustofnafrum- varp sveitarfélaga og hækkunar- heimild útsvara í neðri deild Al- þingis i gær, unz frumvarp stjórn- arinnar um skattstiga kæmi fram, væntanlega á mánudag, svo heild- armynd skattlagningar og skatt- byrði væri ljós áður en þingdeiidin tæki afstöðu i jafn veigamiklu skattheimtumáli. Forseti þing- deildarinnar, Alexander Stefáns- son, sem er fyrsti flutningsmaður tillögunnar um heimildarhækkun útsvara, synjaði um frestinn, en vék síðan af fundi vegna fundar- halds í fjárveitinganefnd sem stóð á sama tíma og þingdeildarfundur- inn. Félagsmálaráðherra, Svavar Gestsson, og landbúnaðarráðherra, Pálmi Jónsson, töldu ekki ástæðu til að verða við frestunarbeiðni þingflokkanna. í matarhléi í gærkvöldi féllu stjórnarflokkarnir hins vegar frá því að halda fast við þessa neitun og hafði Ólafur Ragnar Grímsson formaður þingflokks Alþýðubanda- lags samband við Geir Hall- grímsson og Ólaf G. Einarsson og bauð upp á samkomulag um frestun umræðna tjl næstkomandi mánu- dags enda hefði frumvarp um skatt- stigana þá verið lagt fram. Sam- komulag var gert um þetta og umræðum frestað. Synjun stjórnarflokkanna olli há- vaðadeilum í þingdeildinni og töldu talsmenn stjórnarandstöðunnar hana ganga þvert á þinghefðir og samskiptareglur þingmanna. Háttvís og rökstudd beiðni um skammtímafrest — sem ekki tefði afgreiðslu viðkomandi máls — til að ná fram nauðsynlegri gagnasöfnun í jafn afgerandi máli fyrir skattborg- ara landsins væri eðlileg, en synjun- in bæri vott um ný og óvenjuleg vinnubrögð. — Sjá nánar á þingsíðu Mbl. I dag, bls. 26. vazt má gera ráð fyrir að rúm- lega 300 til 400 manns verði verkefnalausir á ísafirði. Enginn sáttafundur hefur verið boðaður í deilunni, en síðasti fundur var haldinn á ísafirði siðastliðinn sunnudag, er vara- sáttasemjari ríkisins, Guðmundur Vignir Jósepsson, hélt þar árang- urslausan sáttafund. Að verkfall- inu stendur Sjómannafélag ísfirð- inga og er viðsemjandinn Útvegs- mannafélag Vestfjarða. Tveir togaranna, sem verkfallið nær til, lönduðu á Isafirði í gær og fóru þeir á sjó fyrir miðnætti og hinir tveir lönduðu annars staðar og reru einnig fyrir miðnætti. Munu þeir nú ljúka þeim veiði- ferðum, sem þeir voru að hefja og fer það eftir aflabrögðum, hve ferðirnar verða langar. Miðað við þau góðu aflabrögð, sem verið hafa undanfarið má búast við því að ferðirnar standi í 4 til 7 daga. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Svavar Gestsson, félags- málaráðherra og spurði hann, hvort ríkisstjórnin myndi á ein- hvern hátt hafa afskipti af mál- inu. Hann kvaðst ekkert vilja tjá sig um málið að svo stöddu, en sagðist hafa átt viðræður við sáttasemjarann, sem með málið færi. Því er ráðherrann kunnugur öllum hnútum deilunnar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.