Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 Mikill afli til Vopnafjarðar Vopnafirði, 18. apríl MJÖG mikill og góður afli hefur borizt á land á Vopnafirði að undanförnu. Brettingur landaði í gær Forseta- kosningarnar: Utankjörstaða- kosning hefst 1. júní n.k. KJÖRSKRÁR vctjna forsetakosn- insanna í sumar veröa la«öar fram 29. apríl n.k. samkvæmt því sem fram kemur í tilkynninjtu frá dómsmálaráðuncytinu. Framboðsfrestur rennur út 24. maí og utankjörstaðaatkvæða- greiðsla hefst 1. júní. Kærufrestur til-sveitarstjórna vegna kjörskrár rennur út 7. júní en kjördagur er sunnudaginn 29. júní. 135 tonnum. Þrír netabát- ar eru gerðir út héðan og hafa þeir ennfremur aflað vel og var afli þeirra í gær um 60 tonn. Með þessum mikla afla hefur vinna stóraukist hér í frystihúsinu og hefur verið unnið fram á kvöld og flesta laugardaga. Ekki hefur gengið eins vel hjá grásleppukörlum enda hafa gæftir verið slæmar að undanförnu. Hér hefur verið ágætisveður í vetur og óvenjulega snjólétt. Mikil gróska hefur verið í starfsemi leikfélagsins og er verið að sýna söngleik eftir Hauk Ág- ústsson, þar sem undirleikari er Stefán Yates. Undirsöng annast Samkór Vopnafjarðar. Sýningar verða ennfremur í Skúlagarði, Raufarhöfn og á Þórshöfn. Síðasta vetrardag áformar leik- félagið svo að sýna „Fórnarlamb- ið“. ' - Katrín Þjóðarbókhlað- an steypt upp í einum áfanga RÍKISSTJÓRNIN samþykkti í gær tillögu menntamálaráðherra um að bjóða út steypuvinnu við Þjóðarbókhlöðuna í einum áfanga. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra sagði í samtali við Mbl. í gær, að þessi samþykkt þýddi það, að Þjóðarbókhlaðan kæmist undir þak haustið 1981. Kostnaður þess áfanga er áætlaður 850 milljónir króna og sagði menntamálaráðherra, að fjárþörfin á næsta ári yrði um 600 milljónir króna. Sjálfstæðismenn með nýjan tekjuskattsstiga Af lahæsti bátur- inn með 1373 tonn Þoriákshöfn 18. apríl. NÚ hcfur allverulega drcgið úr fiskiríi hér og þá helst á heimamið- um enda vcrið ótíð alla þessa viku. Þrír bátar Glettings hf. sækja enn austur fyrir Eyjar og hafa fiskað vel. Þeir eru Jón á Hofi, Höfrungur III og Jón Gíslason. Aflahæstu bátarnir nú eru: Frið- rik Sigurðsson 1373 tonn, Jón á Hofi 1190 og Höfrungur III 1182. Friðrik Sigurðsson mun vera aflahæstur yfir landið allt. Hann heldur sig nú á heimaslóð og landar daglega en hinir halda áfram enn austur frá. Skip- stjóri á Friðrik Sigurðssyni er Sig- urður Bjarnason, Haukabergi 4, Þor- lákshöfn. Togararnir hafa fiskað vei. Þor- lákur kom inn fyrradag með 106 tonn, Jón Vídalín er væntanlegur inn á laugardag. Mjög mikil vinna hefur verið hér undanfarnar vikur. Hefur t.d. verið unnið til 11 á kvöldin í saltfiskverkuninni og alla laugar- daga. Ragnheiður. Á FUNDUM stjórnar verkalýðsmálaráðs Sjálfstæðis- flokksins og fulltrúa flokksins í fjárhags- og viðskiptanefndum beggja deilda Alþingis á föstu- dag náðist samkomulag um til- lögu að nýjum tekjuskattsstiga, sem felst í 20% skatti af fyrstu 2,5 milljón krónunum, 30% skatti af næstu 2,5 og 40% skatti af skattgjaldstekjum yfir 5 milljón- ir króna. Halldór Blöndal alþing- ismaður sagði í samtali við Mbl. á föstudagskvöld. að ef launahækk- anir væru reiknaðar upp kæmi í ljós, að tekjuskattsfrumvarp ríkisstjórnarinnar þýddi 9—10 milljarða tekjuskattsaukningu miðað við álagningu 1978, en hinn nýi tekjuskattsstigi sjálf- stæðismanna byggðist á sömu forsendum og lagt var á það ár. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í fjárhags- og viðskiptanefnd efri deildar lögðu þar fram tillögur að tekjuskattsstiga með 25% skatti af fyrstu 4 milljónunum, 35% af næstu 4 og 45% skatt af skatt- gjaldstekjum yfir 8 milljónir króna. Þingflokkur sjálfstæð- ismanna hafði samþykkt slíkan tekjuskattsstiga en framkvæmda- stjórn verkalýðsmálaráðs Sjálf- stæðisflokksins hafði hins vegar samþykkt, að tekjuskattsþrepin skyldu vera 20, 30 og 40% og boðaði Halldór Blöndal breyt- ingartillögu í þá átt. Tillögur sjálfstæðismanna um persónuafslátt og barnabætur standa óbreyttar, en þær eru samhljóða tillögum ríkisstjórnar- innar. Halldór Blöndal sagði að þessi Þinglið ríkisstjórnarinnar hækkaði líka skatta hjóna tillaga að nýjum tekjuskattsstiga sjálfstæðismanna fæli í sér mikla réttarbót fyrir lægstlaunaða fólk- ið auk þess sem hlutur einhleyp- inga og eiginkvenna, sem vinna úti, væri réttur. Breytingarnar væru þó þess eðlis, að útkoman væri innan þess ramma, sem sjálfstæðismenn hefðu sett sér við upphaf annarrar umræðu um skattamálið í efri deild. Þá kvaðst Halldór Blöndal vilja minna á, að um mánaðamótin nóv.-des. 1978 hefði launþega- hreyfingin gefið eftir 2 vísitölustig gegn loforði um að beinir skattar ekki aðeins stæðu í stað, heldur yrðu lækkaðir. Þetta loforð hefði ekki verið efnt ennþá, en nú yrði ríkisstjórnin annað hvort að standa við þetta loforð, eða að fella úr gildi þessa 2% skerðingu og hækka laun almennings sem þeim nemur. Guðlaug- ur í leyfi Félagsmálaráðuneytið hefur veitt Guðlaugi Þorvaldssyni ríkissáttasemjara launalaust ieyfi frá störfum tímabilið 21. aprí) til 1. júní næstkomandi. I framhaldi af því mun ríkissátta- semjari vera í sumarleyfi í júnímánuði. í fjarveru Guðlaugs Þor- valdssonar mun Guðmundur Vignir Jósefsson vararíkissátta- semjari gegna störfum ríkis- sáttasemjara. ÚTREIKNINGAR ríkisskattstjóra á álögðum tekjuskatti sýna að breytingar stjórnarliða í fjárhags- og viðskiptanefndum Alþingis á frumvarpi Ragnars Arnalds fjármálaráðherra eru mjög íþyngjandi fyrir einstaklinga og einstæða foreldra með lægri tekjur, sem reyndar höfðu þegar í frumvarpinu, eins og f jármálaráðherra lagði það fram, fengið aukna skattbyrði frá því sem verið hefði samkvæmt fyrra skattkerfi. En breytingar stjórnarliða hækka ekki aðeins skatta ein- staklinga. í útreikningum ríkis- skattsstjóra kemur m.a. fram, að hjón með tvö börn, þar sem tekjur mannsins eru 4,5 milljónir og tekjur konu 3 milljónir hækka í álögðum tekjuskatti um 116.150 krónur, en með barnabótum er hækkunin frá 51.150 krónum til 81.150 krónur eftir aldri barna. Barnlaus hjón, þar sem tekjur manns eru 5 milljónir og tekjur konu 2,5 milljónir, hækkuðu í skatti um 93.425 krónur og barn- laus hjón, þar sem tekjur manns eru 7 milljónir og tekjur konu 5 milljónir hækka í skatti um 85.850 krónur við breytingar þingliðs ríkisstjórnarinnar. Hins vegar lækkar skatturinn hjá barnlausum hjónum, þar sem maðurinn hefur 7 milljón króna tekjur en konan er tekjulaus, um 65.650 krónur. Upphaflegt frumvarp Ragnars Arnalds gerði ráð fyrir þremur tekjuskattsþrepum; 20% skatti af fyrstu 3 milljónunum, 35% skatti af næstu 3 og 50% skatt af skattgjaldstekjum yfir 6 milljón- um króna. Frumvarpið eftir breyt- ingarnar gerir ráð fyrir 25% skatti af fyrstu 3 milljónunum, 35% af næstu 4 og 50% skatti af skattgjaldstekjum yfir 7 milljónir króna. Þá breytist persónuaf- sláttur úr 440 í 525 þúsund krónur og barnabætur úr 130 í 150 þús. með 1. barni hjpna og úr 200 í 215 þús. með öðru barni hjóna og fleirum. Barnabótaauki með börn- um undir 7 ára aldri hækkaði úr 5o í 65 þúsund krónur og barna- bætur einstæðra foreldra voru hækkaðar úr 250 í 280 þúsund krónur. Starfslaun rit- höfunda 396 þús. kr. á mánuði AÐ SÖGN Sigurðar Briem hjá menntamálaráðuneytinu nema starfslaun til rithöf- unda nú ríflega 396 þúsund krónum á mánuði, sem greið- ist út á þriggja mánaða fresti, eða ríflega 1189 þúsund krón- ur í hvert skipti. Þessi laun samsvara byrjunarlaunum menntaskólakennara. Reiknistofnun Háskólans: Meðaltalsskattahækkun einhleypinga 30 þús. kr. — fyrri frádráttur og 10% reglan ekki sambærileg „ATHUGUN á úrtaki þvi, sem fjármálaráðuneytið lét vinna, sem var tuttugasta hvert framtal frá í fyrra, sýnir að hinir einstöku frádráttarliðir þá og 10% frádrátturinn núna eru ekki sambærilegir og að ýmsir, einkum einhleypingar hafa verulegan hag af 10% reglunni umfram það sem var,“ sagði Þorkell Helgason hjá Reiknistofnun Háskólans, er Mhl. leitaði álits hans á þeim mun varðandi skattahækkun einheylp iga og einstæðra foreldra, sem fram kemur í útreikningum stofnunarinnar og útreikningum ríkisskatt- stjóra, sem Mbl. skýrði frá í gær. Ríkisskattstjóri reiknar með 10% föstum frádrætti bæði í gamla og nýja kerfinu, en það segir Þorkell að sé ekki raunhæfur samanburður, m.a. þar sem með- alfrádráttur einhleypinga hafi áð- ur verið miklu minni, en 10% regla nýja kerfisins býður upp á. „í okkar útreikningum hækkuðu þessir einhleypingar líka, en mun minna, en hjá ríkisskattstjóra," sagði Þorkell. „ Mesta meðaltals- hækkun hjá einhleypingi sam- kvæmt okkar útreikningum var 30 þúsund krónur á tekjubilinu 4 til 5 miiljónir króna. Vissulega er mikil dreifing á þessum breytingum á skattinum. Meðal þeirra, sem teknir eru í okkar úrtaki, eru einstaklingar sem hækka um hundruð þúsunda, en aðrir lækka. Það er einfaldlega ekki hægt að koma svona skatt- kerfisbreytingu á öðru vísi en að einhverjar tilfærslur verði á báða bóga.“ Vinstri skattar í Reykjavík: Ú ts v ar sálagning hækkuð um 8% BORGARSTJÓRN samþykkti á fundi sínum á fimmtudagskvöld að nýta hluta þeirrar heimildar sem sett var í lög nýlega og hljóðaði upp á 10% hækkun á útsvarsálagningu. Tillaga þess efnis kom frá fulltrúum vinstri meirihlutans í borgarráði. Tillagan er svohljóðandi: Með nýsettum lögum hefur 25. gr. 1. 8/1972 um tekjustofna sveitarfélaga verið breytt þannig, að hámark útsvars er nú 11% af útsvarsstofni. Hrökkvi útsvör skv. þeirri heimild eigi fyrir áætluð- um útgjöldum, er sveitarstjórn heimilt að hækka þau um 10%, að fengnu samþykki ráðherra. Með tilvísun þessa samþykkir borgarstjórn að fara þess á leit við félagsmálaráðherra að heimilað verði að hækka hámarksútsvör skv. 1. mgr. 25. gr. tekjustofna- laga um 8% við útsvarsálagningu á árinu 1980, en sýnt þykir, að útsvör muni ella ekki hrökkva fyrir áætluðum útgjöldum borgarsjóðs á árinu. Tillaga þessi var samþykkt með 8 atkvæðum gegn 7 atkvæðum sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins lögðu fram ýmsar tillögur um sparnað og hefðu þær þýtt að ónauðsynlegt hefði verið að hækka útsvarið. Tillögurnar hlutu ekki náð fyrir augum meirihlutans og voru þær felldar með 8 atkvæðum gegn 7.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.