Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 35 Verzlunarráð Islands: Opið bréf til íslendinga ... Fyrir 1100 árum tók hópur bænda í Noregi sig upp, þeir yfirgáfu landið og fluttu með lið sitt og áhöfn til íslands. Ástæðan: Þeir vildu ekki sætta sig við ofríki og harðræði norskra yfirvalda, og vildu freista þess að leita frjáls- ræðis og betri lífskjara í öðru landi. Nú á tímum taka íslendingar sig upp í hundraðatali á ári hverju og flytjast til annarra landa. Ástæðan: Þetta fólk sættir sig ekki við stigversnandi lífskjör, sívaxandi skattheimtu og öfug- snúið efnahagslegt umhverfi. Það leitar þangað, sem því bjóðast betri lífskjör, stöðugra efnahagslíf og meira frjálsræði til athafna. Hvað er að gerast? Hvers vegna er mál- um okkar svo komið? ísland hefur dregizt aftur úr í samanburði við önnur lönd hvað varðar almenn lífskjör. Sanninda- merki um þetta er verðbólgan, sem brenglar alla atvinnustarf- semi í landinu og leiðir til versn- andi lífskjara almennings. At- vinnurekstur býr heldur ekki við eðlilegt svigrúm til athafna og er skattlagður langtum meira en góðu hófi gegnir, sem kemur niður á nauðsynlegri og hagkvæmri end- urnýjun og uppbyggingu í at- vinnulífinu. Atvinnulífið er því sífellt verr í stakk búið til að skapa almenningi í landinu batn- andi lífskjör. Þar að auki er fólki svo einnig gert að greiða sífellt þyngri skatta. Sífelldar skatta- hækkanir verða því almenningi siður en svo léttbærar. Skattbyrðin þyngist sífellt skattar hækka og sköttum f jölgar Hvers vegna? Allt það fé, sem opinberir aðilar ráða yfir hafa þeir sótt í vasa skattgreiðenda eða tekið að láni með það í huga að leggja á skatta síðar fyrir vöxtum og afborgun- um. Einungis í ævintýrum verður eitthvað til af engu. Aukin opinber útgjöld verður að fjármagna með auknum sköttum. Kröfur um auk- in útgjöld hafa því leitt til sífellt hærri skatta. Hvernig sem við reynum að blekkja okkur, er almenningi fyrr eða síðar gert að greiða reikninginn. Því viðameiri, sem rekstur hins opinbera verður, því þyngri verður skattbyrðin og hún hvílir á herðum okkar allra: • Skattar, bæði beinir og óbeinir, verða sífellt stærri hluti launa okkar. Árið 1950 voru skattar til ríkis og sveitarfélaga 25% af þjóðar- tekjum, árið 1970 35% , og búizt er við, að rúmlega 45% af tekjum íslendinga fari í skatta í ár. Með sama áfram- haldi verður skattheimtan komin í 55% árið 1985. • Við vinnum nú í 5V2 mánuð, þ.e. frá janúar fram í miðjan júni, til þess að fjármagna rekstur og umsvif hins opin- bera. • Árið 1967 var einn maður í þjónustu hins opinbera fyrir hverja sjö í þjónustu at- vinnuveganna. Tíu árum síðar er einn maður í þjón- ustu hins opinbera fyrir hverja fjóra hjá atvinnuveg- unum. • Árið 1968 fóru tæp 20% af skatttekjum ríkisins í laun- agreiðslur. Tíu árum síðar fara tæp 30% af skatttekjum ríkisins í launagreiðslur. Skattpeningar okkar fara í vaxandi mæli í að halda miklu skrifstofuveldi gang- andi, sem stofnar efnahagsl- egum og stjórnmálalegu frelsi í hættu. Hvernig endar þetta allt saman? Heldur þessi öf- ugþróun áfram? Vissulega, ef ekk- ert er að gert Þótt forfeður okkar hafi neyðzt til að yfirgefa heimaland sitt, þá eigum við þó annarra kosta völ. Það felst í þvi, að lýðræði ríkir í landinu. Við getum stöðvað fólks- flóttann með því að gera ísland byggiiegra. Til þess höfum við alþingi: • Alþingi getur sett útgjöldum ríkissjóðs takmörk og afnum- ið ónauðsynleg útgjöld. • Alþingi getur krafizt sparn- aðar og hagræðis í ríkis- rekstrinum, fært tekjur og verkefni til sveitarfélaga, og lagt niður verkefni og þjón- ustu, sem ekki eiga réttmæta tilvist lengur. • Alþingi getur neitað að sam- þykkja nýja skatta, getur fækkað sköttum og takmark- að skattheimtuna við, t.d. þriðjung þjóðartekna. • Alþingi getur aflétt ónauð- synlegum afskiptum og höft- urri af atvinnulífinu og skap- að fyritækjum þannig aukið frjálsræði til athafna, al- menningi til hagsbóta. Við viljum vera íslendingar. Við viljum búa á Islandi. Sívaxandi skattheimta vinnur hins vegar gegn búsetu í landinu. Alþingi verður því að draga úr skatt- heimtunni, lækka opinber útgjöld og aflétta höftum af atvinnulífinu, svo að gæði landsins og tækifæri nýtist sem grundvöllur nýrrar sóknar til bættra lífskjara. Ef við höldum áfram á sömu braut, hnignar atvinnulífinu í landinu. Atvinnutækifærum fækkar. Verðmætasköpun minnk- ar. Launakjör versna. Vöruverð heldur áfram að hækka með vaxandi hraða og fólk heldur áfram að flytjast úr landi, en í vaxandi mæli. Þetta getur ekki verið sú framtíð, sem við viljum. íslend- ingar þurfa því að sameinast um að fá alþingi til að draga úr útgjöldum, lækka skattheimtuna og skapa atvinnulífinu aukið svigrúm til athafna. Framtíð okk- ar er undir því komin. Reykjavík, 14. apríl 1980 Stjórn Verzlunarráðs íslands I I HEILDARSI CATTF •JÓÐA -1981 EIMTA A F VER GUM Þ 1950 RTEKJ 3 UM | 3 * 5. 5í ? sýnir innhe veitarfélags pbótakerfis ilr frá. Iðgjó rygginga, v ald er með mta skatta . Skattar ins 1950—1 Id til ðlagasjóðs allð. 960 eru dreg almanna og olíugj gjald j. 1950 1955 1960 1965 1970 1975 1980 Hlutfall innheimtra tekna hins opinbera af innfluttum vörum. 35% 30% 25% 20% 50% HVAÐ VERÐUR UM LAUNIN ÞÍN? 45% Launatengd gjöld 40% Heildarlauna- kostnaður fyrirtækis vegna starfs- manns á árinu 1980 2.300.000 kr. 35% Arslaun Stéttarfélagsgj lifeyrissjóður og beimr skattar v/ tekna 1979 1 000 000 kr 30% 10.000 000 kr 7 700.000 kr. Óbeinir skattar 2 200.000 kr 25% 20% Eftirstöðvar til skatt- frjálsrar einkaneyzlu 4.500.000 kr. Um leið og þú færð launin þín greidd, þarf launagreiðandi þinn að standa skil á ýmsum launatengdum gjöldum, svo sem trygginga- gjöldum, launaskatti og sínu framlagi til lífeyrissjóðs þíns. Af laununum þarft þú að greiða til stéttarfélags þíns, í lífeyrissjóð og greiða skattana af tekjum s.l. árs. Þegar þú getur loks ráðstafaö tekjum þínum til kaupa á vöru og þjónustu þarft þú enn að greiða fjölda óbeinna skatta svo sem aðflutningsgjöld, söluskatt, skemmt- anaskatt og þannig mætti lengi telja. Þegar allt er talið standa ein- ungis 4.500.000 kr eftir af 10.000 000 króna verðmætasköpun til skattfrjálsrar ráðstöfunar í einkaneyzlu, eða 45%, aðrir taka 55%. Óbeinir skattar Bensínverðið Olíu- félögin Innkaupsverð 250 200 150 100 1965 1970 1975 FLUTNINGUR ÍSLENSKRA RfKISBORGARA AF LANDI BROTT 1968 —1979. 68 70 72 74 76 78 "Lmi|||||||||||||||||n|||iiiiiii 0 fli itnlnni ir flutningur Árangur af stjórn efnahagsmála á áttunda áratugnum? Samtals 1968 -1979 5.000 6.869 10.000 Söluverð bifreiðar Innkaupsverð 30,6% ,/ Ríkið 10,5% Bifreiöa- umboð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.