Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.04.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980 19 Jónas H. Haralz tekur til máls Þjóðviljinn sinnti þó ósk Ólafs um að hætta fúkyrðum og ræða heldur efnislega um bók Hayeks. 18. ágúst 1945 hóf hann að birta greinaflokkinn Hagkerfi og lýð- ræði eftir ungan og róttækan menntamann, sem hafði nýlega lokið glæsilegum námsferli með hagfræðiprófi. Hann var Jónas H. Haralz pol. mag. Jónas taldi í greinum sínum líkan „klassísku" hagfræðinganna af hagkerfi full- kominnar samkeppni óraunhæft og úrelt, vitnaði til Keyness (án þess sennilega að vita, hvað Keyn- es hafði fundizt um bók Hayeks) og sænska hagfræðingsins Gunn- ars Myrdals og sagði, að Hayek væri einn þeirra íhaldssömu hag- fræðinga, „sem engu virðast hafa gleymt og ekkert lært“. Hann notaði gamalkunn rök gegn sér- eignarkerfinu: að samkeppnin leiddi til einokunar, að neytandinn nyti ekki frelsis til neyzluvals vegna blekkinga framleiðenda, að frjálst atvinnulíf væri óstöðugt, þannig að sífelld h.ætta væri á kreppum og atvinnuleysi og að skýring Hayeks á þjóðernishreyf- ingum Hitlers og Mússólínis væri ekki sannleikanum samkvæmt. Að lokum benti hann Sjálfstæðis- flokknum á að velja sér fremur menn eins og Keynes og Beveridge að andlegum leiðtogum en Fried- rich A. Hayek. Greinar Jónasar voru hófsam- lega og vel skrifaðar, og sú gagnrýni hans var réttmæt, að líkanið af fullkominni samkeppni var alls ekki nálægt neinum veru- leika. En þessi gagnrýni hitti alls ekki Hayek fyrir, því að hann var eins og aðrir austurrískir hag- fræðingar — Carl Menger, Eugen von Böhm-Bawerk og Ludwig von Mises — mjög gagnrýninn á hug- myndirnar um fullkomna sam- keppni og jafnvægi á markaðnum. Frumhugtak austurrísku hag- fræðinganna var ófullkomin þekking einstaklinganna (og af því drógu þeir þá ályktun, að valdsmenn, sem hefðu jafnófull- komna þekkingu og aðrir, gætu ekki stjórnað atvinnulífinu af neinu viti), en ekki fullkomin samkeppni. Jónas skaut fram hjá markinu, því að hann þekkti ekki fremur en flestir aðrir hagfræð- ingar á Vesturlöndum hugmyndir austurrísku hagfræðinganna í hinum fróðlega bæklingi The Fall- acy of the Mixed Economy). Öðrum rökum Jónasar er flestum svarað í bók Hayeks. Ólafur Björnsson svarar Jónasi Þjóðviljinn var ekki jafnstilltur og Jónas. í leiðara 23. ágúst sagði: Morgunblaðið heldur því fram, að nauðsynlegt sé að dreifa valdinu yfir framleiðslutækj- unum til þess að vernda frelsi og lýðræði. Nú hefur Þjóðvilj- inn bent á að tækniþróun leiði i George Orwell tók undir viðvar- anir Hayeks við valdasjúkum menntamönnum. Út*-: H.t Arvakur, Eeykjavlk. Pramkvkt}.: Sigtúk Jónsson. Ritstiórar: Jón Kjartansaon. Valtýr Stafinsson (áby rgCarm.) FTjettaritstjóri: lvar GuSmundsson. Auglýsingar: Ámi Öla. Rilstjóm. augiýsingsr 0« aJgioHlsU. AusturstlKti 8. — Simi 1800. Askriftargjald: kr. AOO k mánuSi innanlanda. kr. 10 00 ulanlands. ! ,___on„ 50 aura rintakið, 60 aura mn6 U»bðk til afturhalds hur prófessor hrekar Hayek lew Yori Tlraes" um bék Hemanns Fluen * .... ...i rtfin 1 Uin T „Leiðin til ánauðar < ,,”1R cjALFSTÆÐISMENN hala nú um alllangt UNGIR hJAtrm/uu blaftinu, sem birst ske.ö haft til “ ^orlega annast og borið hfrfá°gÞVað ef S ^mbfnds ungra Sjálfstseð.s- abyrgð a. Þa6 er■* J j hessu máli, sem nu er 'komið i’það ftt kerfi, að lambandssíðan birtist að jafn- a“e^ur Sambands ungra fif“"aWut- hiot.ðverðskuldaða athyg ^en^fni ^ ^ ,ó,kið vartÞ verk. að ræða sjerstak b Sambandssíðunni komið fram Í^lmargál* raddir ungra Sjálfstæðismanna víðs- vegar af landinu. „huuli að Sambandssiðan hefir Það hefir vakú^ mjkla a gl. ^ ^ upp a siókastio bnt p>on^ ® . ru miög efUr erlenda fræðimenn um 1»U1vkrt*.oem eru rn^g bókarkaflar^m. maniirjettinda^ svo^s, ^ a„sherJar skipulagn- írelsts * hálfu hins opinbera (economic ánauðugra þræLÆig* ‘>arflokknr, ^ vuftar4’- * íst að r he,ur sturrmlaft- skenr bók- <y«-‘r r eða yfirl* .« hljoi % tím ,4 ,yr* á > iilnnl h’ / ’.ttiim auft- , / (Z \ e |„,n undan nnflvaldssVipuUg* •A:era h""’rr- 'nF,vek „ nátti í riiccrðinni <*f últar jok ..v-rfis. 1’cstRt, hcldar að rik.ð prn þsð. T« J.,»R«0Ur « Tc^.Unn. L“ta». er ***»*- .Crnrral Throry" h.f. »« "•»„vinnnlovdnn. yf- i-nt.ns. Finrr syn.r fr.m *■ *» viðtirkri viðurkrninp. '’R»' J „Arrn Mu.vW.ý. «u 1.1 »«» kon" mcðnl ví-‘mdnm»nnn oir stjor 1 ... hlul-i iftnníHrhn. Uósiaksmn o* nO . m„«„r "kriMi !•'* ■"TÚWtu Hnyek grtnr okki Utf « ..jómmál. Xciðin. ’■> Rnyrk, Scm d*«vLkipn,.»»>»«« ^ (slur ót.t | llæfni hans til l’r'vl I ckki mcð Rgætnm h* h.-isfm-ði nc stjór.: rrtlcitu nr.yc. gv,... -... ■ . ittyr%*.an» 4™ '■e;ru.,:,:-:v::nfR« r,ðþ»».Ur ek« m c.n.lncfna "» 1 -tn, s„mli.rt, ,» f.MStar h.f. >rki AÍ r þeim fösti 1 við reg > að áhe; ast inn .. leikunu i settust,í-i lega. Þf^j blessaði,.;j til þcss að nú vj I ITltt. 8„mp«r^ • * 1 naggað mcð e'ms konnr «».»!- isma. Fincr sýnir !»•> ■• f þ«» cr cinkum sknrtnr Jfoycks í siVg.iskiIningi, srm knýr hcnn il nS lcyt» stuðnmp í rcttvr- rcKlunum (Rnlc of L»«)- Þnð xtti R» vcrn skyld. »«<». *cm lcggjn vtiin.l ú írxði. »« l»« h"B scm „ .rgir nm rétt*rreglum«r. JUnn Lvnir fram á, a8 H.y* c'kki cfm rétt.rrcgl.nn., og »0 llöngun hnns til n» tnVm.rk. vnld mcirihhlt.ns st.t.r »! 1----------- hrxðslu við lýðrxð'ð og m.s- jem Bjarat ittt »# nota Lkilningi á cðli þc«». LlUyek-bókli. v»r etn »f hækjon • [ sluUr; ritfrrgn er þvl miánr “ f b<eJw^tjóraarkosnlngun>1,’n. 1 kki hRgt »8 gcm »*»« »<<>” . . . . i,é v.fns.mt. hvort nokkurr. f . vr,sari skcmmtilcgn bók. Íincr Jf f sSi Uin. Loinínrmikilli uppc«tv»>> h.f. , no£r,,m ki'.nuns « ™km £!u.:» „rgi» nðjnokkurntimn vcnð úuug.ílund 1*«» fnsism.us og; sýnllh» *. cr annao nvori mSsiahsmtnnjiUj^cnga^^a^j alveg óhjákvæmilega til þess gagnstæða... Auðvitað þýðir þessi þróun þverrandi lýðræði. Vinnuveitendurnir verða færri og stærri, launþegarnir fleiri og launþegarnir eiga atvinnu sína og afkomu að öllu leyti undir geðþótta vinnuveitend- anna. Það þarf heimsviðundur eins og Hayek, til að mótmæla þessu, eða kannski það nægi lands-viðundur eins og Ólaf Björnsson ... Það eru sinustrá frá gömlum tímum sem rit- stjórarnir reyna að bjarga sér á, því ekki dettur þeim í hug það snjaliræði að fleygja Hay- ek og Olafi fyrir borð. Þeir um það. Ólafur svaraði rökum Þjóðvilj- ans og Jónasar í greininni Leiðir samkeppnin til einokúnar? í Morgunblaðinu 25. og 31. ágúst. Hann benti á það, að það væri síður en svo algilt, að tækniþróun leiddi til einokunar og tók sam- göngumál til dæmis: Bifreiðar, sem hver maður gat keypt, leystu af hólmi járnbrautir, sem voru í eign stórfyrirtækja. (Annað dæmi nýlegra er, að segulbönd og myndsegulbönd, sem hver maður ólafur Björnsson íslenzkaði út- drátt úr bók Hayeks og var kallaður fyrir „landsviðundur“ í leiðara Þjóðviljans. getur keypt, taka við af útvarps- stöðvum stærsta einokunarfyrir- tækis þjóðanna, ríkisins,) Ólafur sagði og, að engin rök væru til gegn þeirri hættu, sem væri fyrir menn að vera í stjórnarandstöðu í landi, þar sem stjórnin ætti öll framleiðslutækin, enda blasti hættan við. Þjóðviljanum gramd- ist mjög við Ólaf, og í leiðara hans 30. ágúst sagði: Landsviðundrið Ólafur hefur nú viðurkennt að heimsvið- 'íindrið Hayek hafi ekki skrifað bók sína um þessi efni sem vísindalegt hagfræðirit heldur sem „áróðursrit" fyrir stjórn- málastefnu íhaldsmanna, þeirra manna sem á íslandi kalla sig sjálfstæðismenn. Með því að þýða þessa bók og skrifa hverja greinina af annarri um hana í Morgunblaðið, hefur Ólafur gert alþjóð ljóst, að hann lítur ekki á starf sitt við Háskólann sem vísindastarf, heldur sem pólitískt áróðurs- starf. Er slíkt satt að segja furðulegt. Ólafur svaraði sem eðlilegt var í Morgunblaðinu 1. september, að hann hlyti að mega hafa sínar Jónas H. Haralz skrifaði 1945 gegn bók Hayeks, enda var hann þá ungur og róttækur menntamaður, en er nú mælsk- ur og áhrifamikill talsmaður frjálshyggju. stjórnmálaskoðanir, þótt hann kenndi hagfræði í háskólanum, en hann léti ósagt um, hvort illgirni eða vanþekking yllu skrifum Þjóð- viljans. Jónas svaraði grein Ólafs í Þjóðviljanum 22. september. í þeim skrifum hans bregður fyrir sömu hugsuninni og í ritum Ósk- ars Langes: að unnt sé að nýta kosti samkeppninnar í sameign- arskipulagi með því að dreifa valdi til stjórnenda framleiðslu- fyrirtækjanna, sem væru „starfs- menn þjóðarinnar“, en kepptu hver við annan. (Þá hugmynd, sem felur að vísu í sér nokkra viður- kenningu samhyggjumanna á rök- unum gegn hreinu miðstjórnar- kerfi, gagnrýndi Hayek rækilega í ritgerðasafninu Individualism and Economic Order.) Jónas skildi í grein sinni sósíalisma sem rekstur þjóðarbúsins „með al- menningsheill fyrir augum“. En það hlýtur alltaf að verða tilefni til að spyrja, hver viti og með hvaða rökum, hvað „almennings- heill“ sé. Og því svara sósíalistar sjaldan, því að þeir kunna ekki við að segja sem satt er, að þeir eigi við sjálfa sig. Litið til baka Hálfur fjórði áratugur er liðinn frá því, að bók Hayeks kom út. Henni hefur verið snúið á allar höfuðtungur heimsins, og hún er orðin sígild r sögu stjórnmálahug- mynda á tuttugustu öld. Það var því ekki seinna vænna, að hún kæmi út á íslenzku í heild sinni, en útdrátturinn, sem birtist í Morg- unblaðinu 1945 og gefinn var út í bæklingi 1946, var ekki nema lítill hluti bókarinnar. Viðbrögð ís- lenzkra róttæklinga við henni eru líkari viðbrögðum bandarískra róttæklinga en brezkra, þótt mun- urinn á skrifum Jónasar og Þjóð- viljans væri vitanlega mjög mikill. Bókin varð ekki tilefni til alvar- legra rökræðna méð íslenzkum samhyggjumönnum um vanda skipulagningar í lýðræðisríki, þótt örlað hafi nú síðustu árin á skilningi hans (t.d. hjá Árna Bergmann). Það er kaldhæðni sögunnar, að einn mælskasti og áhrifamesti talsmaður frjálshyggju nú skyldi þá hafa skrifað hverja greinina af annarri gegn merkasta frjáls- hyggjuhugsuði aldarinnar. Þjóð- viljinn reyndi fyrir nokkru að hæðast að Jónasi Haralz fyrir skoðanaskipti hans, og stundum er það lagt honum til lasts af öðrum. En fátt er óviturlegra. Er ekkert að þeirri skoðun — sósíalismanum — sem hver gáfumaðurinn af öðrum hefur horfið frá — dr. Benjamín Eiríksson, Jónas, Steinn Steinarr, dr. Arnór Hannibalsson, Halldór Laxness og margir fleiri? Leiða má einnig rök að því, að fyrrverandi sósíalistar skilji sósí- alismann betur en venjulegir borgarar. Þéir hafa komizt að kjarna málsins, horft dýpra niður. Af þessum tveimur ástæðum sagði Hayek mönnum á íslandi, að sennilega væri einn fyrrverandi sósíalisti meira virði en tíu aðrir. Og í þriðja lagi mega menn ekki gleyma, hver aldarandinn var, þegar Jónas skrifaði þetta. Keynes hafði sannfært bæði fræðimenn og stjórnmálamenn um það, að ríkisstjórnir gætu ráðið við krepp- ur og skipuleggja yrði atvinnulífið frekar, menn voru bjartsýnir og í lok styrjaldarinnar, sigurreifir eftir tæknileg afrek og ótrúlegan vöxt atvinnulífsins næstu hundrað árin á undan, þeir höfðu beizlað náttúruöflin og héldu, að þeir gætu einnig stjórnað mannlífinu eins og vél, skildu ekki takmark- anir einstakra mannshuga — þetta var tími ofmetnaðarins. Ekki má gleyma því, þegar litið er til baka, hver hlutur Ólafs Björnssonar er í sögu íslenzkra stjórnmálahugmynda. Hann hefur í fjörutíu ár ótrauður barist fyrir atvinnufrelsi, séreign og einka- framtaki, en notið takmarkaðs skilnings. Nú er þetta að breytast, æskan á Islandi er frjálslynd eins og á öðrum Vesturlöndum, hún kærir sig ekki um frekari ríkis- afskipti, heldur krefst aukins frelsis til orða og athafna. Nú fá menn eins og Hayek erlendis og Ólafur Björnsson g Jónas Haralz hérlendis miklu betri áheyrn hjá æskunni en þeim, sem eldri eru og fastir í tjóðri vanans. Æskan veit, að samhyggjumenn hafa ekki gert annað en stika út leiðina til ánauðar. H.H.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.