Morgunblaðið - 28.05.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
Tvær varnarliðsþyrlur til aðstoðar slösuðum sjómanni á hafi úti:
SKIPVERJI á Höfrungi
II frá Grindavík slasaðist
illa á höfði í fyrradag er
báturinn var að veiðum á
Jökuldjúpi um 50 mílur
vestur af Stafnnesi.
Hannes Hafstein, fram-
kvæmdastjóri Slysavarn-
arfélagsins sagði í sam-
tali við Mbl. að félaginu
hefði borizt hjálparbeiðni
um hálf tvö leitið í fyrra-
dag og hefði þá þegar
haft samband við Varn-
arliðið og beðið um að-
stoð þeirra.
Þyrla varnarliðsins fór síðan
í loftið um fjögur leitið og var
sjúkraliða þegar komið um
borð í skipið til að gera fyrstu
hjálp á 'Hinum slasaða. Það
óhapp skeði hins vegar þegar
Ljwmynd Mbl. OI.K.M.
Þyrluflugmennirnir bera hinn slasaða frá borði.
verið var að hífa togvír þyrl-
unnar upp, að krókurinn festist
í járnverki á bátnum og fór
vindan úr sambandi. Það varð
þá fljótlega ljóst að nauðsyn-
legt var að annar sjúkraliði
færi um borð og var ekki um
annað að ræða heldur en að
hann henti sér í sjóinn úr
þyrlunni og synti síðan um borð
í bátinn.
Þyrlan snéri þá til lands og
gerðar voru ráðstafanir til þess
að önnur þyrla færi á staðinn
til þess að ná í hinn slasaða.
Seinni þyrlan var komin á
staðinn um hálf sjö og gekk þá
allt að óskum og var lent
á Reykjavíkurflugvelli um sjö
leitið. Hinn slasaði var þegar
fluttur í Borgarspítalann þar
sem gerð var á honum aðgerð
en um mjög alvarlega andlitsá-
verka var að ræða. Honum
líður eftir atvikum.
Skipverji á Höfrungi II hlaut
mjög alvarlega andlitsáverka
3
Tommi og Jenni
í Morgunblaðinu
FÉLAGARNIR Tommi og
Jenni hafa skemmt lands-
mönnum á sjónvarpsskerm-
inum undanfarið og i dag
birtast þessir bráðhressu
kumpánar á myndasögusíðu
Morgunblaðsins.
Myndasagan af baráttu
kattarins og músarinnar verð-
ur daglega í blaðinu og eiga
þeir Tommi og Jenni eflaust
eftir að kitla hláturtaugar
lesenda Morgunblaðsins á
næstunni. Aðeins tvö ár eru
liðin síðan dagblöð hófu að
birta teiknimyndir um þá fé-
laga, en nú þegar birtast þær
milljónum lesenda um allan
heim.
Tilfinnanlegt kal
í nágrannasveit-
um Húsavíkur
Itúsavik. 27. mai.
ILLA hefur breytt um tíðarfar
hér, komin norðanátt og hitastig
núllgráður og er þar um mikil
viðbrigði frá siðustu tveimur vik-
um. Fyrri vikuna var meðalhitinn
Bergey VE
hætt komin
BERGEY frá Vestmannaeyjum,
sem í fyrradag var á leið frá.
Sandgerði til Reykjavíkur, lenti í
vandræðum þegar vél bátsins,
sem er 7 tonn bilaði. Skipverjar
höfðu samband við Slysavarnar-
félagið og sagði Hannes Hafstein,
framkvæmdastjóri félagsins í
samtali við Mbl. að þeir hefðu
fengið Svaninn GK til þess að
fara honum til aðstoðar.
„Það mátti alls ekki tæpara
standa með þessa aðstoð, því
báturinn var nærri kominn upp í
Gerðarhólmana. Það réði eflaust
úrslitum að skipstjórinn á Svanin-
um er mjög kunnugur á þessum
slóðum og gat þess vegna farið
mjög nærri landi“ sagði Hannes.
Svanurinn dró síðan Bergeyna
inn til Keflavíkur.
um 15 gráður klukkan 15.00 og í
siðustu viku um 12 gráður á sama
tíma.
Kulda og slæms tíðarfars er hins
vegar ekki langt að minnast hér,
því að 22. maí á s.l. ári var hér
stórhríð og hvítt yfir allt að líta.
Það mun koma mörgum á óvart
eftir snjóléttan vetur og gott vor,
að í nærliggjandi sveitum er til-
finnanlegt kal í túnum og þá alveg
sérstaklega í Reykjahverfi. Þar er
ekki hægt að búast við að heyfeng-
ur verði almennt nema helmingur
af því sem eðlilegt væri vegna
kalskemmda. Talsvert kal er og í
öðrum sveitum sýslunnar, nema í
Köldukinn, þar sem mikið kal var í
fyrra. — Fréttaritari
Tvær sölur
í Englandi
HAFBERG GK landaði 49,5 tonn-
um af ísfiski í Hull í gær og
fengust 24,6 milljónir króna fyrir
aflann, meðalverð 498 krónur. Þá
seldi Sigurborg AK einnig í Hull í
gær, fyrir 66,9 tonn fengust 25,4
milljónir, meðalverð 380 krónur.
Það sem eftir er vikunnar selja 6
önnur íslenzk fiskiskip erlendis.
Aíram Norðan-
átt og kuldi
„ÞAÐ er ekki að sjá að
miklar breytingar verði á veðr-
inu á næstu dögum og við verðum
því að búa áfram við norðanátt
og kulda um sinn," sagði Hafliði
Jónsson veðurfræðingur í samtali
við blaðið í gær. Gott veður var
um allt land þar til siðdegis á
sunnudag, er veður tók að kólna.
Á mánudagsmorgun, annan i
hvítasunnu, var kominn éljag-
angur á Norð-Austurlandi og
hvöss norðanátt á Suðurlandi.
Að sögn Hafliða var éljagangur
í gær á svæðinu frá Eyjafirði
austurum að Gerpi og vart var við
él í Skagafirði. Má gera ráð að
éljagangur verði á þessu svæði og
jafnframt allt vestur á Strandir
meðan veður helst óbreytt. Hiti
var alveg við frostmark í gær á
annesjum Norðanlands og á
Grímsstöðum á Fjöllum var 3
stiga frost um miðjan dag í gær og
á Akureyri var hitinn 3 stig. Á
Suðurlandi var víða um 18 stiga
hiti á sunnudag en í gær var
hitinn 8 til 10 stig þar sem hann
var mestur sunnanlands og aðfar-
arnótt þriðjudags fór hiti niður að
og jafnvel niður fyrir frostmark í
uppsveitum Árnessýslu.
Mikið hvssviðri fylgdi norðan-
áttinni á Suðurlandi og mældust
mest 9 vindstig á Höfn í Hornaf-
irði og á Stórhöfða. í Reykjavík
mældust hins vegar um 7 vindstig.
Á Vestfjörðum var veður heldur
hægara og yfirleitt léttskýjað um
helgina.
Almennur fundur í
Bæjarbíói í Hafnarfirði
Pétur J. Thorsteinsson
Komiö og kynnist Pétri.
Fleiri og fleiri skipa sér í líð með Pétri.
Allir, sem þekkja hann, kjósa hann.
Lúörasveit Hafnarfjaröar leikur frá klukkan 20.00 undir stjórn Hans
Ploder Franzsonar.
Stuðningsfólk Péturs
og stuöningsfólk hans
halda almennan fund í
Bæjarbíói, Hafnarfiröi, í
kvöld kl. 20.30.
Ávörp:
PÉTUR J.
THORSTEINSSON,
ODDNY
THORSTEINSSON,
Eiríkur Pálsson,
Guörún Egilson,
Sr. Siguröur H.
Guömundsson.
Fundarstjóri:
Stefán Jónsson.