Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 18

Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 Menntaskólinn við Hamrahlíð útskrif- aði 221 á þessu MENNTASKÓLANUM við Hamrahlíð var slitið fimmtudag- inn 22. maí sl. Að þessu sinni hrautskráðust 138 stúdentar, 90 úr dagskóianum en 48 úr öld- ungadeild. Um síðustu áramót voru brautskráðir 83 stúdentar, 02 úr daKskólanum en 21 úr öldungadeild. Alls hefur skólinn því brautskráð 221 stúdent á þessu skólaári. stúdent skólaári var kínverska kennd í fyrsta sinn í skólanum og er þá fjöldi þeirra tungumála sem kennd eru í skólanum komin upp í 15. Við skólaslitin frumflutti kór skólans lagið Fararsnið eftir Þorkel Sigurbjörnsson tónskáld við samnefnt ljóð Þorgeirs Svein- bjarnarsonar. 48 stúdentar brautskráðust úr öldungadeild M.H. á þessu vori, Hæsta meðaleinkunn þeirra sem brautskráðust hlaut Aslaug Heiða Pálsdóttir en hæst varð Anna G. Garðarsdóttir, þær luku báðar prófi á náttúrusviði. Hæsta einkunn allra stúdenta skólaárs- ins hlaut Fróði Björnsson úr öldungadeiid en hann lauk prófi um áramót. Til stúdentsprófs þarf 132 námseiningar hið minnstaæn margir ljúka meiru. I þetta sinn lauk Mist Barbara Þorkelsdóttir 180 einingum og er það meira próf en nokkur nem- andi hefur áður lokið. Mist lauk prófi á þremur sviðum: forn- mála-, nýmála- og tónlistarsviði. Síðastliðinn vetur voru nem- endur í dagskóla M.H. rúmlega 860, en öldungadeildar rúm 600. Kennarar voru 99 á haustönn en 103 á vorönn. A þessu skólaári Nýstúdentar úr dagskóla Menntaskólans við Hamrahlíð ásamt rektor skólans, Guðmundi Arnlaugssyni. Unnur Pálsdóttir var ein þeirra. sem lauk stúdentsprófi frá FS að þessu sinni. Við skólaslitin léku hún og Kjartan Már Kjartansson samleik á fiðlu. (Ljósm. Árný Herbertsdóttir). Fjölbrautaskóli Suðurnesja: 50 nemendur braut- skráðir á laugardag FJÓRÐA starfsári Fjölbrautaskóla Suðurnesja lauk með skólaslitum í Ytri- Njarðvíkurkirkju laugardag- inn 24. maí. Steinþór Júlíus- son, bæjarstjóri í Keflavík, flutti ávarp af hálfu Sam- bands sveitarfélaga á Suður- nesjum. Þvínæst var samleik- ur á fiðlur. Flytjcndur voru nemendur skólans, Kjartan Már Kjartansson og Unnur Pálsdóttir. Nemendur brautskrást tvisvar á ári — í desember og maí. 50 luku námi að þessu sinni; 5 vélstjórar, 3 nemar af verslunar- og skrifstofubraut, 17 iðnaðarmenn, þar af 9 húsasmíðanemar, tækni- brautarnemi, flugmaður og 23 stúdentar. Deildarstjórar af- hentu bókaverðlaun fyrir námsárangur. Bjarni Berg- mann Þorsteinsson á vél- stjórnarbraut, 2. stigs, Ólafur Atli Ólafsson, húsasmíðanemi og Védís Elsa Kristjánsdóttir, stúdent af félagsfræðibraut hlutu verðlaun fyrir bestan námsárangur hvert á sínu sviði. Ingólfur Halldórsson, aðstoðarskólameistari, ávarp- aði Óskar Jónsson kennara, sem nú lætur af föstu starfi vegna aldurs. Óskar hefur frá stofnun skólans verið aðal- kennari á vélstjórnarbraut og hefur af miklum dugnaði unn- ið að skipulagningu og upp- byggingu verknámsaðstöðunn- ar þar. Asgeir Margeirsson, nýstúdent, flutti avarp af hálfu nema. Loks ávarpaði skólameistari og sleit skólan- um. Húsmóðir, oddviti og gjaldkeri varð „dúx“ ÞAÐ telst vart lengur til tíðinda, að fólk setjist á skóla- bekk komið yfir hinn hefð- bundna skólaaldur. Þvert á móti verður það stöðugt algeng- ara að fólk á öilum aldri taki upp þráðinn að nýju og hefji nám þar sem frá var horfið, kannski áratugum áður. Frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja út- skrifaðist í síðustu viku ein kona úr öldungadeild og fékk hún hærri einkunnir en aðrir stúdentar frá skólanum að þessu sinni. Dúxinn heitir Védís Elsa Kristjánsdóttir, 37 ára gömul tveggja barna móðir úr Sand- gerði, oddviti Miðneshrepps og gjaldkeri Landsbankans á staðn- um. Dóttir hennar útskrifast væntanlega sem stúdent frá Menntaskólanum á Egilsstöðum næsta vor og sonur hennar frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja vor- ið 1982. Reyndar tóku þau mæðgin sama próf í stærðfræði í vor og undirbjuggu sig sameigin- lega fyrir prófið. Védís Elsa var spurð að því í gær hvernig það væri mögulegt að sinna húsmóðurstarfinu, tveimur störfum utan heimilis og námi í fjölbrautaskóla sam- tímis. — Ég viðurkenni, að þetta fór ekki reglulega vel saman á stundum, en hafðist samt, sagði dúxinn. — Þetta tók hvað frá öðru þegar mest var að gera og ég hafði oft samvizkubit þegar of mikill tírni fór í eitt starfið á kostnað hinna. Ég var búin að vera tvö ár í skólanum þegar ég fór af krafti út í félagsmálin og þetta varð ansi erfitt á tímabili eftir að ég var orðin oddviti hérna, -sagði Védís Elsa Krist- jánsdóttir. Aðspurð um hvort hún hygði á frekara nám, sagði hún það vel koma til greina, en þó ekki fyrr en að loknu kjörtímabilinu, sem nú er hálfnað. 23 stúdentar útskrifuðust frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja síðastliðinn iaugardag, Védís Elsa Kristjánsdóttir fékk hæstar einkunnir á stúdentsprófi, en hún er 7. frá vinstri í fremri röð á myndinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.