Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 19
Stúlkurnar 13 sem þátt tóku i úrslitakeppninni. „Kom ekki til að sigra, bara til að vera meðu Elísabet Traustadóttir kosin ungfrú Islands 1980 ELÍSABET Traustadóttir, 17 ára nemandi i Menntaskólanum við Hamrahlið, var kosin ungfrú ísland 1980 í Hótel Sögu s.l. föstudags- kvöld. Elísabet hafði áður verið kosin ungfrú Reykjavík 1980 og á 8.1. ári ungfrú Utsýn. í öðru sæti varð Hlíf Hanssen frá Reykjavík, í þriðja saeti Magnea Haraldsdóttir ungfrú Vesturland, í fjórða sæti Ásdis Eva Hannesdóttir frá Reykjavík og í fimmta sæti varð Lára Kristín Jónsdóttir ungfrú Vestfirðir. Alls tóku 13 stúlkur þátt í úrslitakeppninni. „Ég veit varla hvað ég hugsaði þegar úrslitin voru tilkynnt, það hringsnerist allt fyrir mér,“ sagði hin nýkjörna fegurðardrottning íslands, Elísabet Traustadóttir í samtali við blm. Mbl. stuttu eftir krýninguna á föstudagskvöldið. — Hafðir þú vonað að úrslitin færu á þennan veg? „Maður vonar auðvitað alltaf það besta en ég kom ekki hingað til þess að vinna, bara til þess að fá að vera með. Það er viss virðing að fá að taka þátt í þessari keppni." Elísabet sagðist vona að þessi úrslit kæmu ekki til með að hafa mikil áhrif á líf hennar. Að lokum var hún spurð að því hvort henni fyndist hún vera þess verðug að vera krýnd fegurðardrottning Islands. „Ég get ekki svarað þessu öðru en því að mér sjálfri finnst ég ekkert hafa til að bera fram yfir aðrar þær stúlkur sem hafa tekið þátt í þessari keppni," sagði Elísabet að lokum. Stúlkurnar sem þátt tóku í úrslita- keppninni hafa verið valdar í undan- keppnum víðs vegar um landið á síðustu vikum. Hlutu þær allar ýmsar viðurkenningar, t.d. fengu þær sólarlandaferð og fatnað. Auk þess fékk ungfrú Island demantshring, koktailboð í Hollywood og snyrtivör- ur. Þær stúlkur sem urðu í fimm fyrstu sætunum koma einnig til með að taka þátt í fegurðarsamkeppnum erlendis fyrir hönd Islands. Dóm- nefndina skipuðu að þessu sinni: Einar A. Jónsson, Elín Albertsdóttir, Pálína Jónmundsdóttir, Ólafur Lauf- dal og Gísli Jónsson. Ljósm. Emilia. Kristín Bernharðsdóttir, ungfrú ísland 1979, krýndi Elísabetu Traustadóttur ungfrú ísland 1980. Að lokinni keppninni komu keppendurnir saman og skáluðu i kampavini. Hér er hluti þeirra ásamt ungfrú ísland 1980 og Kristinu Bernharðsdóttur, ungfrú lsland 1979. ■£ ■a oO i AF HVERJU ERU TVÆR HULSUR Á TORGRIP MÚRBOLTANUM FRÁ ■ucaiEsaEE® VIÐMÆLANDI: B.B. byggingavörur h.f. Suðurlandsbraut 4 Sími 33331 „Spyrja viðskiptavinir þínir ekki iðulega um af hverju séu tvær hulsur á TOR- GRIP múrboltanum frá ‘OtXEESÍIíEB?" „Jú, en það er yfirleitt öllum Ijóst að þessar tvær hulsur gefa helmingi meiri festingu en aðrir boltar og þeir virðast hafa meiri togkraft. Og samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum sem ég sýni ávallt viðskiptavinum, þá eru boltarnir hannaðir með togþolið í huga og efnlð sem notað er í framleiðsluna er gott. Nú, verkfræðingar sem hingað koma til inn- Fæst í flestum byggingavöruverzlunum kaupa sýna þessum boltum mikinn áhuga og sérstaklega þegar þeir lesa um niðurstöður um álagsprótanir “LflXIlIsSIIIxL!© boltanna." „Hvernig er það, koma þeir sem byrja á að kaupajjCaiESuEC® boltana yfirleitt aftur?“ ,Já, þeir koma reglulega aftur." V- f/áff* iOHAN 51 Sundaborg mf/fff FÖNÞING HF. simt: 84ooo - Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.