Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980
Einkunnagjöfin
Lið Vals:
SÍKurður Ilaraldsson 6
Óttar Sveinsson 4
Sævar Jónsson 7
Dýri Guðmundsson 7
Þorgrímur Þráinsson 5
Magnús Bergs 6
Guðmundur Þorbjörnsson 7
Albert Guðmundsson 7
Ólafur Danivaisson 6
Þorsteinn Sigurðsson 5
Matthías Ilallgrímsson 7
Hermann Gunnarsson (vm) 6
Grímur Sæmundsson (vm) 5
LiðUBK:
Guðmundur Ásgeirsson 7
Helgi Helgason 6
Einar Þórhallsson 6
Benedikt Guðmundsson 6
Valdemar Valdemarsson 6
Vignir Baldursson 7
Þór Hreiðarsson 6
Sigurjón Rannversson 4
Hákon Gunnarsson 6
Ingólfur Ingólfsson 6
Helgi Bentsson 7
Sigurður Grétarsson (vm) 8
Sigurjón Elíasson (vm) 6
Dómari:
Guðmundur Sigurbjörnsson 7
• Þorgrímur Þráinsson hefur
átt góða leiki með liði sínu Val að
undanförnu.
Víkingur-FH í kvöld
— og bikarkeppni KSÍ hefst meö látum
KINN leikur fer í kvold fram i 1. deild íslandsmótsins i knattpsyrnu. I»á leika á
Lauvcardalsvellinum lió Vikin^s ojc FII t»K hefst leikurinn kl. 20.00. hessum lióum hefur ekki
KenKÍÓ neitt sérstakleKa vel í fyrstu leikjunum t>K því allt aó vinna.
I»á hefst einnÍK í kvold hikarkeppni KSÍ
Njarövíkurvollur kl. 20.00
Garósvöllur kl. 20.00
Melavóllur kl. 20.00
Rorjfarnesv. kl. 20.00
Bolunjtarv. kl. 20.00
LauKalandsvollur kl. 20.00
llúsavíkurvollur kl. 20.00
Ólafsfjaröarvóllur kl. 20.00
Kskifjaröarvollur kl. 20.00
Neskaupsstaóarv. kl. 20.00
Sevöisfjaróarvóllur kl. 20.00
Hreiódalsvóllur kl. 20.00
fara fram allmarKÍr leikir i 1. umferóinni.
Njaróvík— Reynir
Víóir —Leiknir
Oóinn—(írindavík
SkallaKr.-ínf
BolunKarv.—Armann
Árroóinn—DaK-shrún
VólsunKur —Majfni
Leiftur — IISI> h
Austri — Kinherji
I»róttur—Súlan
IIuKÍnn —Sindri
Hrafnkell —Leiknir
Þorsteinn hefur leikið fjora
leiki án þess að fá mark
ÍSLENDINGARNIR þrír sem
leika í 1. deildinni í Svíþjóð stóðu
sig með miklum ágætum í fyrra-
dag. þegar sjöunda umferðin fór
fram. IFK Gautaborg — IFK
Sundsvall 3—0, þriðji stórsigur
englanna frá Gautaborg í röð, og
langmesti áhorfendafjöldinn til
þessa, rúmlega 13.000. Þorsteinn
Ólafsson átti stóran þátt í sigrin-
um með því að verja mcistaralega
tvívegis á fyrstu mínútum leiks-
ins. Fyrst varði Þorsteinn vel er
einn framherji Sundsvall komst
frfr að markinu og skömmu síðar
var dæmd vítaspyrna á Þorstein
er hann felldi andstæðing innan
vítateigs. Þorsteinn gerði sér
hins vegar lítið fyrir og varði
vítið.
Blöðin spá miklu einvígi í sumar
á milli Malmö FF og IFK Gauta-
borgar um sigurinn í 1. deild. En
ekki má gleyma Öster. Öster—
Landskrona 2—0. Öster lék mjög
vel að þessu sinni og það var
aðeins frábær markvarsla Árna
Stefánssonar sem forðaði Lands-
krona frá stórtapi. Árni var eini
leikmaður liðsins sem fékk hrós í
sænsku blöðunum. Meðal annars
varði hann góð skot frá Teiti
Þórðarsyni, sem enn hefur ekki
skorað mark. Teitur átti góðan
leik og skapaði mörg tækifæri í
leiknum.
Ekkert íslendingaliðanna í 2.
deildinni (suðurdeildinni) bar sig-
ur úr býtum um helgina. Örgryte
gerði jafntefli við Sleipner á
útivelli og er nú í öðru sæti.
Jönköping tapaði heima 1—3 fyrir
Hacken, sem vann Grimsas í
síðustu viku 1—0. Um helgina
gerði Grimsas jafntefli 2—2 við
IFK Malmö. Eiríkur Þorsteinsson
stóð sig vel að venju. Stefán
Halldórsson gerði eitt mark í
jafnteflisleik Kristjanstad við
Nyköping 2—2.
AIK tapaði 2—1 fyrir Karlstad
um helgina að viðstöddum 6500
áhorfendum. Hörður kom inn á í
síðari hálfleiknum og fann ekkert
fyrir meiðslum og er orðinn góður.
HH
Mútuhneykslið á Italíu
Juventus hvítþvegið
FORSETI ítalska knattspyrnu-
félagsins Juventus, Gianpietro
Boniperti, var um helgina eýkn-
aður af ákæru um að hafa átt
þátt í mútuhneykslinu sem er í
algleymingi um þessar mundir.
Fyrir vikið var félag hans Ju-
ventus, ekki sent niður í 2. deild
eins og allt virtist um tima benda
til. Þjálfari liðsins, Giovanni
Trappatoni, sem einnig lá undir
grun, var einnig sýknaður.
Nokkrir knattspyrnumenn í við-
bót hafa fengið að súpa seyðið af
braskinu. Má þar nefna kunna
kappa eins og Guiseppi Savoldi og
Stefano Chiodi. Hins vegar voru
þeir Giusep Wilson, Lionello
Manfredonia og Bruno Giordano
sýknaðir, svo og félag þeirra
Lazío. Þá var Avellino hreinsað af
áburði um mútuþægni, að öðru
leyti en því, að Francesco Cordova,
30 ára gamall miðvallarleikmaður,
var dæmdur í eins árs bann. Enn
mun draga til tíðinda og ekki eru
öll kurl komin til grafar.
Tvö mörk Matta
gerðu gæfumuninn
RÚMLEGA þúsund manns mættu
í vetrargöllum á Laugardalsvöll-
inn I gærkvöldi og horfðu á lcik
Vals og UBK í 1. deild íslands-
mótsins í knattspyrnu. Þrátt
fyrir stólparok, var leikurinn
eins og þeir gerast bestir hér á
landi, hröð og oft vel leikin
knattspyrna gekk markanna á
milli og sýndu bæði liðin oft
stórskemmtilega sóknartakta.
Segja má að gangur leiksins hafi
skipst i kafla, UBK var sprækara
liðið fyrstu 15—20 mínúturnar
og síðustu 15 mínúturnar. Þar á
milli, voru Valsmenn heldur
sterkari.
Það var mikið skorað, en slíkt
hefur einmitt vantað í 1. deildina
til þessa. Við skulum renna yfir
mörkin til glöggvunar á gangi
leiksins.
Á 23. mínútu komst Hákon
Gunnarsson í gott skotfæri. Sig-
urður markvörður Haraldsson
varði mjög vel fast skot hans, en
hélt ekki knettinum sem hrökk út
til Ingólfs Ingólfssonar, sem þakk-
aði pent fyrir sig með fyrsta
marki leiksins.
Heldur færðust Valsarar í auk-
ana við mótlætið og þeir komust
jafnfætis UBK aðeins 7 mínútum
Valur:UBK
3:2
síðar. Hrikaleg varnarmistök áttu
sér þá stað í öftustu varnarlínu
UBK, Matti Hallgríms smeygði
sér í gegn og skoraði af öryggi,
1-1.
Fallegasta mark leiksins var
annað mark Vals og kom það á 39.
mínútu. Ólafur Danivalsson byrj-
aði sóknarlotuna á miðjum vall-
arhelmingi UBK, hann sendi góða
sendingu niður hægri kantinn þar
sem Guðmundur Þorbjörnsson tók
við knettinum. Guðmundur brun-
aði síðan upp að endamörkum,
sendi fyrir markið, þar sem Magn-
ús Bergs tók knöttinn á lofti og
sendi í netið með firnaföstu
hörkuskoti. Glæsimark, 2—1.
Á 64. mínútu virtust Valsmenn
síðan gera endanlega út um leik-
inn. Albert Guðmundsson gaf þá
fasta sendingu fyrir markið og
hinn ótrúlega markheppni Matthí-
as Hallgrímsson sendi knöttinn í
netið með skemmtilegri hæl-
spyrnu. Sjötta mark Matta í
þremur leikjum. Og litlu munaði
að hann krækti sér í þrennu, en
honum var brugðið gróflega rétt
utan vítateigs aðeins mínútu eftir
að þriðja markið var skorað.
Fimm mínútum fyrir leikslok
minnkaði Sigurður Grétarsson
muninn úr vítaspyrnu sem hann
fiskaði sjálfur. Var þá nýlega í
garð gengin stórkostleg orrahríð
við mark Vals, þar sem bjargað
var m.a. tvívegis af marklínu.
Valsmenn eru mjög sterkir, um
það er engum blöðum að fletta og
þeir verða örugglega í einu af
efstu sætum deildarinnar í haust.
Bestu menn liðsins voru Matti
Mark og Guðmundur Þorbjörns-
son. Annars er liðið ákaflega
jafnt. Albert sýndi mikla yfirferð,
en hefði mátt skila knettinum
betur frá sér. Lið UBK er afar
efnilegt, léttleikandi og baráttu-
glatt. Þeir Helgi Bentsson og
Sigurður Grétarsson tóku miklar
rokur á köntunum og léku vörn
Vals oft grátt. Þór og Vignir voru
einnig sterkir, svo og markvörður-
inn Guðmundur Ásgeirsson.
- g-þ.
• Örn Guðmundsson í þann mund að senda knöttinn i netið, sigurmark KR í leiknum. Ljósm. Júlíus.
KR-ingar fengu sín
fyrstu stig í mótinu
KR-INGAR unnu sinn fyrsta sig-
ur í 1. deildinni í ár er þeim tókst
að sigra lið ÍBK 1—0 á sunnudag
í Keflavik. Leikurinn fór fram
við slæmar aðstæður. Hávaðarok
og kuldi var og gekk leik-
mönnum beggja liða afar illa að
hemja boltann. Leikurinn bauð
þvi aldrei upp á mikla skemmtun
fyrir þá 904 áhorfcndur sem
mættir voru. Mikið var hins
vegar um spörk og hlaup sem
voru frekar tilviljanakennd en ef
eitthvað var þá voru leikmenn
IBK öllu skárri í leiknum. En
það eru mörkin sem gilda og bæði
stigin höfnuðu hjá KR. Fyrsta
skipti i 13 ár sem þeim tekst að
fara með bæði stigin heim frá
Keflavik eftir leik i íslandsmót-
inu.
Það var Örn Guðmundsson sem
skoraði eina mark leiksins. Á 80.
mínútu fá KR-ingar innkast og
Jón Oddsson sem ávallt skapar
ÍBK — KR
0—1
hættu við mark andstæðinganna
með löngum innköstum sínum
varpaði boltanum inn. Hann barst
fyrir markið og Jón markvörður
ÍBK ætlaði að slá boltann yfir
markið en ekki tókst betur til en
svo að hann sló boltann í þver-
slána og þaðan hrökk hann beint
fyrir fætur Erni Guðmundssyni
sem afgreiddi hann á öruggan
hátt beint í netið.
í fyrri hálfleiknum átti Birgir
Guðbjörnsson gott færi er hann
skallaði að marki ÍBK en Jón
markvörður missti boltann í
þverslána og þaðan hrökk hann út
á völlinn. Annars var fátt um
tækifæri í hálfleiknum. Síðari
hálfleikur var öllu betur leikinn af
hálfu beggja liða. Leikmenn
reyndu að halda boltanum við
jörðina og leika saman. Tókst það
á köflum en of sjaldan. Ólafur
Júlíusson átti tvö ágæt marktæki-
færi í síðari hálfleiknum en hitti
boltann illa og tækifærin runnu út
í sandinn.
Mjög erfitt er að dæma liðin
eftir þessum leik. Til þess voru
aðstæður til að leika knattspyrnu
of slæmar. Lið ÍBK var í heildina
nokkuð jafnt að getu, og sama er
að segja um lið KR-inga.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild. ÍBK-KR 0-1 (0-0).
Mark KR Örn Guðmundsson á 80.
mínútu.
Gult spjald: enginn.
Áhorfendur voru 904.
Dómari var Þorvarður Björnsson
og dæmdi hann leikinn vel. -- þr