Morgunblaðið - 28.05.1980, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1980
23
Fram tók
bæði stigin
Skammgóður vermir. Leikmenn ÍBV fagna marki ómars. En
fognuðu sigri.
lok leiksins voru það. leikmenn ÍA scm
Ljósm. Sigurg. Jónas.
Skagamenn jöfnuðu og skoruðu
sigurmarkið á síóustu 3 mín.
í knattspyrnu er oft á tíðum
skammt á milli gleði og sorgar.
Vestmannaeyingar fengu að
reyna þetta í leik sinum við ÍA í
1. deildinni i Eyjum á laugardag-
inn. Og þeir voru einnig á
eftirminniiegan hátt minntir á
aðra staðreynd. þá að enginn
leikur er unninn fyrr en dómar-
inn flautar til leiksloka. begar
aðeins 15. min voru eftir af leik
ÍBV og ÍA dönsuðu leikmenn ÍBV
um völlinn i gleðivímu eftir að
ómar Jóhannsson hafði skorað
fyrsta markið í leiknum. 15. mín
siðar gengu Eyjamenn af velli
niðurlútir og sársvekktir en
Skagamenn Ijómandi af sigur-
gleði enda höfðu þeir á siðustu
þremur mín. leiksins ekki aðeins
náð að jafna leikinn heldur einn-
ig skora sigurmarkið sem færði
þeim tvö dýrmæt stig. Já, svo
skyndilega geta veður skipast í
lofti.
Skagamenn fóru því burtu úr
Eyjum á laugardaginn með sigur,
2—1, en meistararnir sátu eftir
með sárt ennið og hafa enn ekki
hlotið stig eftir tvo fyrstu leiki
sína í mótinu.
Ahorfendur komu til þessa leiks
í von um að sjá góðan leik enda
hafa leikir þessara liða á undan-
förnum árum þótt bjóða upp á
góða knattspyrnu og skemmtileg
tilþrif. En í hálfleik voru menn
heldur óhressir því fyrri hálfleik-
urinn var ákaflega tilþrifalítill og
spil beggja liða í algjöru lágmarki.
Mest bar á langspyrnum og svo
þófi á miðjum velli og aðeins
tvisvar í öllum hálfleiknum sá
undirritaður ástæðu til þess að
bera penna að blaði minnisbókar-
innar.
Seinni hálfleikur var allur ann-
ar og betri. Skagamenn léku nú
með vindinn í skutinn en engu að
síður voru það Eyjamenn sem
náðu nokkuð góðum tökum á
leiknum og voru töluvert að-
gangsharðir. Jóhann Georgsson
átti stórfenglegt langskot á 49.
mín. sem sleikti stöngina utan-
verða og 8 mín. síðar skaut Ómar
Jóhannsson naumlega framhjá
eftir vel tekna hornspyrnu Óskars
Valtýssonar. Eyjamenn léku
ágætlega fyrsta hálftíma s.h. og
markið hlaut að koma fyrr en
síðar og það kom á 75. mín. Einir
Ingólfsson fékk þá góða sendingu
fram kantinn og hann geystist á
miklum hraða upp að endimörk-
um, gaf vel fyrir markið á Kára
Þorleifsson sem hafði rétt áður
komið inn á sem varamaður. Kári
skaut viðstöðulaust á markið en
Bjarni Sigurðsson varði skotið en
missti boltann frá sér fyrir fæt-
IBV-
ÍA
urnar á Ómari Jóhannssyni sem
hafði fylgt vel eftir. Slíkt tækifæri
lætur unglingalandsliðsmaðurinn
Ómar ekki fram hjá sér fara og
hann renndi boltanum auðveld-
lega í markið. Eyjamenn höfðu
tekið forustuna í leiknum.
Nú fór heldur betur að hitna í
kolunum, á skömmum tíma fengu
Skagamenn að skoða litakort í
öllum regnbogans litum, eða svo-
leiðis. Fyrirliðinn Árni Sveinsson
fékk að líta gult spjald og skömmu
síðar Sigurður Lárusson einnig.
Sigurður var ekki ánægður með
þetta og hélt áfram að mögla við
dómarann, Kjartan ólafsson, sem
endaði á þann eina hátt að Kjart-
an sýndi Sigurði rautt spjald og
varð Sigurður því að tölta í
snemmbúið bað.
Einhverjir hefðu nú lagt árar í
bát og talið leikinn glataðan. En
ekki Skagamenn. Við þetta mót-
læti tvíefldust leikmenn liðsins.
Eyjamenn urðu á hinn bóginn
heldur værukærir og töldu greini-
lega leikinn unninn og þeir áttu
eftir að fara flatt á því. í stað þess
að halda uppi stífri pressu á
Skagamenn þessar mín. sem eftir
voru drógu þeir sig aftur og
ætiuðu að halda fengnum hlut og
þegar þrjár mín. voru eftir var allt
útlit fyrir að það ætlaði að takast.
Á 87. mín. tekur Guðjón Þórðar-
son innkast á móts við vítateig
ÍBV, boltinn berst inn í þvögu
framan við mark Eyjamanna og
þar nær miðvörður ÍA, Sigurður
Halldórsson, til boltans og skorar
með hnitmiðuðu skoti alveg úti við
stöng. 1—1 og þögn sló á hina 700
áhorfendur á Hásteinsvelli.
Og fólkið hafði ekki jafnað sig á
þessu áfalli þegar reiðarslagið
skall á því. Aðeins ein mínúta til
leiksloka og enn fær ÍA innkast á
nær sama stað og áður. Guðjón
Þórðarson varpar inn að marki
ÍBV og um síðir berst boltinn til
ungs nýliða í liði í A sem rétt áður
hafði komið inn á sem varamaður,
Ástvalds Jóhannssonar. Og piltur-
inn sá var ekki að tvínóna við
hlutina heldur skaut glæsilega og
boltinn hafnaði upp í bláhorninu
hægra megin. Glæsimark og 2—1
sigur ÍA þar með innsiglaður.
Eyjamenn hafa farið illa af stað
í mótinu og tapað tveimur fyrstu
leikjum sínum en þeir hafa líka
átt við erfiðleika að etja vegna
meiðsla leikmanna og leikbanna.
Tómas Pálsson lék þennan leik
reifaður sem múmía og varð að
yfirgefa völlinn í s.h. Sigurlás
Þorleifsson sat af sér síðari leik-
inn í banni og Eyjamenn hafa nú
góðar vonir að geta teflt fram sínu
sterkasta liði í næsta leik. Þrátt
fyrir mótlætið var greinilegt á
liðinu á laugardaginn að það er að
sækja í sig veðrið. í s.h. náði það
að sýna ágæta knattspyrnu en
síðustu 15. mín. leiksins eiga eftir
að valda miklum umræðum í
herbúðum ÍBV. Besti maður ÍBV
var Gústaf Baldvinsson sem ætlar
heldur betur að spjara sig í stöðu
miðvarðar, stöðu sem hann hefur
aldrei áður leikið.
Skagamenn náðu ekki að sýna
það sem við var búist frá þeim og
liðið er greinilega ekki eins sterkt
og í fyrra. Léttleiki og gott spil,
sem hefur verið aðall liðsins á
undanförnum árum, var nú lítt
áberandi. Besti maður liðsins var
fyrirliðinn Árni Sveins, reyndi
allan tímann að koma á spili.
I stuttu máli.
1. dcild. Vestmannaeyjavöllur 24/5 1980.
tBV - ÍA 1—2 (0—0).
Mark tBV: Ómar Jóhannssun i 75. min.
Mörk ÍA: Sixuröur Halldórsson i 87. mín.
Ástvaldur Jóhannssan A 89. mín.
Spjöld: Árnl Sveinsson ÍA Kult spjald.
SÍKUrður Lirusson Kult spjald uk siðan
rautt. vísað af velli.
Áhorfendur: 686.
Dómari Kjartan Ólafsson. Linuverðir Gfsli
Guðmundsson ok l lfur Steindórsson.
- hkj.
FRAM bar sigurorð af Þrótti
1—0 siðastliðinn laugardag er
liðin mættust i íslandsmótinu i
knattspyrnu. Leikur liðanna
bauð ekki upp á mikla knatt-
spyrnu þrátt fyrir að veðrið væri
með alskásta móti. Þá hefði ekki
verið ósanngjarnt að Þróttarar
hefðu fengið annað stigið i leikn-
um þar sem þeir sóttu öllu meira
og sköþuðu sér ágæt tækifæri. En
vörn Fram var traust og Guð-.
mundur markvörður greip ávallt
vel inn í leikinn og þvi kom allt
fyrir ekki. Þrótturum tókst ekki
að skora mark i leiknum. Lið
Fram hefur nú leikið þrjá leiki
án taps og hefur fengið óskabyrj-
un í mótinu, og verður liðið ekki
auðunnið með þeirri sterku varn-
araðferð sem það leikur á kostn-
að sóknarinnar og miðjuspilsins.
Trausti skoraði eina
mark leiksins
Fyrri hálfleikur bauð upp á lítil
tilþrif hjá liðunum. Mikið var um
miðjuþóf og spörk út í loftið og á
mótherja. Það eina markverða
sem fyrri hálfleikur bauð uppá var
er bakvörðurinn Trausti Har-
aldsson tók á sig rögg á 39. mínútu
leiksins og brunaði upp völlinn og
er hann var kominn upp að
vítateigshorninu, skaut hann
þrumuskoti að marki og hafnaði
knötturinn undir þverslánni og
beint í netið. Glæsilegt mark hjá
Trausta.
Þróttur betri aðilinn í
síðari hálfleiknum
Lið Þróttar var mun betra og
sprækara í síðari hálfleiknum og
gerði þá oft harða hríð að marki
Fram. Sigurkarl Aðalsteinsson
átti ágæt tækifæri á 10. og 12.
mínútu hálfleiksins. En Guð-
mundur markvörður sá við honum
í bæði skiptin. Á 61. mínútu
leiksins skall hurð nærri hælum
við mark Fram er skallað var yfir
eftir hornspyrnu. Þróttur pressaði
nokkuð í síðari hálfleiknum og
varð það til þess að tvívegis i lokin
náðu Framarar skyndisóknum.
Guðmundur Steinsson komst
einn inn fyrir vörn Þróttar á 70.
mínútu en Jón markvörður bjarg-
aði vel með úthlaupi. Alveg á
síðustu mínútu leiksins var svo
Fram —
Þróttur
Pétur Ormslev i góðu færi en skot
hans var varið.
Bestu menn í liði Fram voru
þeir Marteinn Geirsson sem sjald-
an hefur leikið betur en nú, og
Guðmundur Baldursson mark-
vörður. Hjá Þrótti var Sverrir
Einarsson traustur og Sigurkarl
átti góða spretti.
Trausti Haraldsson skoraði mark
Fram.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild, Laugardalsvöllur.
Fram — Þróttur 1—0 (1—0).
Mark Fram: Trausti Haraldsson
á 39. mínútu.
Gul spjöld: Jóhann Hreiðarsson
Þrótti.
Áhorfendur voru 815.
Dómari var Rafn Hjaltalín.
- þr.
Heimsmet
AUSTUR-þýska sundkonan
Petra Schneider setti um helgina
nýtt heimsmet í 200 metra skrið-
sundi kvenna á miklu sundmóti
sem fram fór i Berlin. Schneider
synti vegalengdina á 2:13,00 og
var það stórum betri tími en
gamla metið sem átti Tracy
Caulkins frá Bandarikjunum.
Tími Caulkins var 2:13,69.
Einkunnag ofin
ÍBV: Páll Pálmason 6, Lið Fram: Lið ÍBK:
Guðmundur Erlingsson 5, Guðmundur Baldursson 7 Jón Örvar Jónsson
Viðar Eliasson 6, Símon Kristjánsson 5 Óskar Færseth
Þórður Hallgrimsson 6, Trausti Haraldsson 7 Guðjón Guðmundsson
Gústaf Baldvinsson 7, Jón Pétursson 6 Kári Gunnlaugsson
Snorri Rútsson 5, Marteinn Geirsson 7 Gísli Eyjólfsson
Jóhann Georgsson 6, Kristinn Atlason 5 Skúli Rósantsson
óskar Valtýsson 6, Rafn Rafnsson 4 Hilmar Hjálmarsson
ómar Jóhannsson 6, Guðmundur Torfason 4 Sigurjón Sveinsson
Tómas Pálsson 6, Pétur Ormslev 6 Ragnar Margeirsson
Sveinn Sveinsson 5, Guðmundur Steinsson 5 Þórir Sigfússon
Einir Ingólfsson (vm) 5, Kristinn Jörundsson (vm) 5 Ólafur Júlíusson
Kári Þorleifsson (vm innan við Gunnar Guðmundsson 4 Lið KR:
30 min.) ÍA: Lið Þróttar: Stefán Jóhannsson Guðjón Hilmarsson
Bjarni Sigurðsson 6, Jón Þorbjörnsson 5 Sigurður Pétursson
Guðjón Þórðarson 6 Ottó Hreinsson 5 Börkur Ingvarsson
Sigurður Harðarson 5, Þórður Theódórsson 5 Ottó Guðmundsson
Sigurður Lárusson 5, Rúnar Sverrisson 6 Jón Oddsson
Sigurður Halldórsson 6, Sverrir Einarsson 7 Sigurður Indriðason
Jón Gunnlaugsson 5, Jóhann Hreiðarsson 6 (vm) kom inn í stað Birgis G.
Kristján Olgeirsson 6, Ólafur Magnússon 5 Birgir Guðjónsson
Jón Askelsson 5, Þorvaldur Þorvaldsson 6 Sæbjörn Guðmundsson
Sigþór ómarsson 6, Páll ólafsson 6 Elías Guðmundsson
Kristinn Björnsson 5, Ágúst Hauksson 6 Wilhelm Frederikssen
Árni Sveinsson 7, Sigurkarl Aðalsteinsson 6 Örnólfur Oddsson
Ástvaldur Jóhannsson (vm. inn- Harry Hill (vm) 5 Örn Guðmundsson
an við 30 min.). Dómari: Dómari:
Dómari: Kjartan ólafsson 6. Rafn Hjaltalín 5 Þorvarður Björnsson
cn oi ai cn cn o* cn o> -q o> oiasojcnaiai.cnaicnai^