Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 47

Morgunblaðið - 28.05.1980, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ 1980 27 • Kappinn i dokku jakkafotunum mod yfirskoKitiA or onKÍnn annar on Mohammad AH ok var þossi mynd tokin af honum i Nýju Jórvik fyrir skommu. or hann Kaf sór tima til art ra'óa vió nokkra aódáondur sina oftir orfirta æfinKU. on som kunnuKt or hofur hoimsmoistarinn fyrrvorandi ákvortirt art soilast oftir titlinum á nýjan loik. „AJoha.“ SkíðakónKurinn Injfe- mar Stenmark dvelur nú í fríi á Hawaii eyjum, nánar tiltekið á Honuiulu. Hann fékk góðar mót- tökur við komuna, eins og sjá má á myndinni. Ingemar skildi skíð- in og skíðaskóna eftir heima en stundar nú íþrótt heimamanna «surfing“ af fullum krafti. Á myndunum tveimur hér að neðan má sjá Lenin-leikvanginn í Moskvu þar sem Ólympíuleikarn- ir fara fram í sumar. Og á þeirri efri má sjá mynd írá íverustað keppenda. á meðan á leikunum stendur. Ácjæt tugþraut hjá Eliasi og Þráni ELÍAS Sveinsson FH og Þráinn Hafsteinsson ÍR náðu ágætum árangri í tugþraut á frjáls- íþróttamóti í Kaliforníu um hvítasunnuna. Elías bar sigur úr býtum, hlaut 7,333 stig, og Þráinn stórbætti sinn fyrri ár- angur, þrátt fyrir óvenju slakan árangur i síðustu tveimur grein- um þrautarinnar. Hlaut Þráinn 7.266 stig og varð þriðji, tvcimur stigum á eftir Bandarikjamanni. Árangur Elíasar í einstökum greinum var sá, að fyrri daginn hljóp hann 100 metra á 11,2 sekúndum, stökk 6,36 metra í langstökki, varpaði kúlu 14,14 metra, stökk 1,95 metra í hástökki og hljóp 400 metra á 51,6 sekúndu. Elías hefur áður náð betri árangri fyrri dag tugþrautar, en fyrir þennan árangur hlaut hann 3,726 stig. Seinni daginn hljóp hann 110 m grindahlaup á 15,4 sekúndum, kastaði kringlu 44,28 metra, stökk „aðeins" 3,70 metra í stangar- stökki, kastaði spjóti 59,64 metra og hljóp loks 1500 metrana á 4:36,4 mínútum. Elías á 4,40 metra í stangarstökki og kom því árangur hans í þeirri grein að þessu sinni á óvart, en hins vegar hefur hann aldrei hlaupið 1500 metra betur. Þráinn hlaut 3,608 stig fyrri dag, hljóp 100 metra á 11,7 sekúndum, stökk 6,62 metra í langstökki, varpaði kúlu 14,08 metra, stökk 1,89 metra í hástökki og hljóp 400 metra á 51,7 sekúnd- um. Þráinn var óheppinn í lang- stökkinu, átti stökk upp á 6,90 metra er reyndist hárfínt ógilt. Seinni daginn hljóp hann 110 m grindahlaup á 15,6 sekúndum, kastaði kringlu 47,42 metra, stökk 4,10 metra í stangarstökki, kastaði spjóti 50,13 metra og hljóp 1500 metra á 4:31,6 mínútum. Þráinh hafði forystu í þrautinni eftir stangarstökkið, en í þeirri grein setti hann persónulegt met. Hon- um tókst hins vegar illa upp í tveimur síðustu greinunum, spjót- kasti og 1500 metra hlaupi, sem hann hefur hlaupið 20 sekúndum betur. Náði engu að síður sínum langbezta árangri í þrautinni, og á vafalaust eftir að gera betur við „hagstæðari“ skilyrði, en mikill hiti í Kaliforníu dró úr þeim Elíasi og Þráni. — ágás. Skautamenn ársins Hjá Skautafélagi Akureyrar hafa verið valdir skautamenn ársins og er það í fyrsta sinn sem slíkt er gert. Fyrir tveimur árum gaf Skúli Lórenzson brunavörður félaginu verðlaunagripi í þessu skini en þar sem skautaíþróttin hefur á undanförnum árum verið í mikilli lægð, af ýmsum orsök- um, hefur þetta val ekki getað farið fram fyrr. Óvenju mikið líf var hjá skautamönnum á síðast- liðnum vetri og er útlit fyrir að gróska sé að koma í skautaiþrótt- ina aftur og er það vel. íshokkvmaður ársins var út- nefndur Ömar Stefánsson. mark- vörður liðsins, en hann tók geysi- legum framförum á síðastliðnum vetri og átti drjúgan þátt í sigri S.A. á fyrsta íslandsmótinu í íshokký sem haldið var hér á Akureyri. llraðhlaupsmaður ársins var útnefndur Ágúst Ásgrímsson, 14 ára piltur, sem skaut mörgum hinna fullorðnu aftur fyrir sig á hlaupabrautinni. • Hinn góðkunni handknattleiksmaður og golfleikari Ágúst Svav- arsson hefur nýverið gert samning við vestur-þýska handknattleiks- liðið Göppingen og verður hann fjórði tslendingurinn sem leikur með því liði. Áður hafa þeir Geir Hallstéinsson. Gunnar Einarsson og bröðir hans Ólafur leikið með liðinu. Ágúst hefur getið sér gott orð sem handknattleiksmaður hjá 2. deildar liðum þeim, er hann hefur leikið með og síðasta keppnistimabil var hann langmarkahæsti leikmaður liðs síns. Ágúst fékk því góð tilboð frá ýmsum liðum og tók tilboði Göppingen. Á myndinni sést Ágúst fyrir framan félagsheimili Göppingen. I.jósm.: Klaus WoinKartnor. Heimsmet PÓLSKI hástökkvarinn Jacek Wzola setti á sunnudag nýtt heimsmet í hástökki á frjáls- íþróttamóti í bænum Heilbronn í Vestur-Þýzkalandi. stökk 2.35 metra. Wzola fór yfir þessa hæð í fyrstu tilraun. Gamla heimsmetið var 2,34 metrar, sett af Sovét- manninum V. Jaschenko 16. júní 1978 i borginni Tbilissi í Sovét- ríkjunum. Wzola sigraði í há- stökki á Ólympiuleikunum í Montreal 1976, en lítið hafði farið fyrir honum í millitíðinni, eða þar til að hann setti heims- metið á sunnudag. • \ irta orlondis or farirt art koppa a hjólaskautum. ok or mikil þátttaka. onda fara vinsældir hjóluskautaiþróttarinnar órt vaxandi. A myndinni hór art ofan má sjá nukkra þátttakondur vora art hita sík upp fyrir átókin. Dómur Óla Olsen var réttur í MBL. fyrir helgina var sagt frá landsleiknum i knattspyrnu eins og vera bar. Þarsagði m.a. að Óli ólsen hefði gert glappaskot er hann færði gróft brot gegn Pétri Péturssyni út fyrir vítateiginn, en ekki var annað að sjá en að brotið hefði verið framið innan teigs. í sjónvarpinu sást hins vegar að brotið hófst nokkrum sentimetrum fyrir utan teiginn, en bæði Pétur og sá norski köstuðust inn í teiginn. Óli dóm- ari hafði því rétt fyrir sér í þessu tilviki... — gg- „MÉR kom aldrei til hugar að ég væri ófrísk,“ sagði bandaríska körfuknattleikskonan Mary West, sem ól barn í heimabæ sínum í Flórída, Belle Glade, aðeins 31 klukkustundu eftir að hún hafði leikið erfiðan leik með liði sínu Central Raiders. Mary er aðeins 16 ára. Dóttur sína skírði hún Cassandra Olympia. Zagreb varö bikarmeistari DINAMO Zagreb varð júgó- slavneskur bikarmeistari í knattspyrnu um helgina. Liðið náði þá jafntefli á útivelli gegn Rauðu stjörn- unni. En í Júgóslavíu er leikið heima og heiman í úrslitum og Zagreb hafði áður unnið heimaleik sinn 1—0, síðan 1 — 1, Zagreb vann því samanlagt 2—1.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.