Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 22

Morgunblaðið - 28.05.1980, Page 22
30 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. MAÍ1980 Rektor Háskóla Islands: Mikilvægt að skólinn taki ábyrga afstöðu MORGUNBLAÐINU hefur borist leiðrétting frá Háskóla íslands vegna fréttaflutnings Þjóðviljans og Dagblaðsins, varðandi dönskukennslu í skólanum. Leiðréttingin er svohljóð- andi: í Þjóðviljanum og Dagblað- inu voru í síðastliðinni viku viðtöl við fulltrúa vinstrisinn- aðra stúdenta í háskólaráði, þar sem alrangt er farið með afgreiðslu ráðsins á beiðni heimspekideildar þess efnis að Peter Soby Kristensen verði áfram settur lektor í eitt ár frá 1. september nk. að telja. Háskólaráð samþykkti hinn 23. apríl sl. tillögu rektors þess efnis að þess verði farið á leit við menntamálaráðuneytið að það heimili að auglýst verði til umsóknar lektorsstaða í dönsku til tveggja ára út á fjárveitingu til prófessors- embættis í dönsku, enda að því stefnt að auglýsa þá próf- essorsembættið aftur. Þær ástæður sem ég tel að vegi þyngst í þessu sambandi eru þessar: 1. Prófessorsembætti í dönsku var auglýst árið 1973. Enginn hæfur umsækjandi fékkst. Menntamálaráðuneyt- ið heimilaði þá að auglýst yrði lektorsstaða í dönsku til 4—5 ára út á fjárveitingu til próf- essorsembættisins. Árið 1978 var umrætt prófessorsemb- ætti enn auglýst. Það fór á sömu leið og áður, enginn umsækjenda hlaut hæfnis- dóm. Peter Soby Kristensen var meðal umsækjenda. 2. Með auglýsingunni 1978 er greinilega ætlast til að lektorsstöðuheimildin sé úr gildi fallin og í fyrra voru þau 4—5 ár, sem heimildin náði til, liðin. Því hefði að réttu lagi átt að óska eftir nýrri heimild árið 1979 fyrir lektorsstöðu í dönsku. Sennilega var setning framlengd þar sem álit dóm- nefndar dróst á langinn og tryggja þurfti að ekki yrði kennaralaust. 3. Það er því ekki til nein lektorsstaða í dönsku og ósk heimspekideildar því formlega gölluð og það svo að telja má líklegt að ráðuneytið geti ekki fallist á slíka málsmeðferð. Verði ráðuneytið hins vegar við beiðni háskólaráðs er eðli- legt að staðan sé auglýst eins og skylt er um stöður hjá hinu opinbera. 4. 118. gr. reglugerðar fyrir Háskóla Islands er heimild til að skipa lektora og dósenta tímabundinni skipun til allt að 5 ára í senn. Eg tel að háskólinn eigi alltaf að tryggja sér sem hæfast starfs- lið og almennt eigi ekki að setja menn til langframa í stöður án þess að þær séu auglýstar. Með því er ekki verið að gagnrýna Peter Soby Kristensen persónulega. Hann getur að sjálfsögðu sótt um stöðuna og fengið hana verði hann talinn hæfastur. Hann fengi þá stöðuna meira að segja til tveggja ára í stað eins árs skv. tillögu heimspeki- deildar. 5. Skylt er að geta þess að menntamálaráðuneytið óskaði umsagnar rektors um bréf Peter Rasmussen, samkenn- ara og meðumsækjanda Peter Soby Kristenssen, þar sem hann átelur málsmeðferð heimspekideildar árið 1979 og færir rök fyrir því að auglýsa beri eftir kennara. 6. Ég tel ekki síst mikil- vægt í þessu máli að Háskóli Islands taki ábyrga afstöðu sjálfur en velti ekki ákvörðun yfir á ráðherra. Ég tel að svo veigamikil rök mæli með aug- lýsingu á stöðunni, ef hún fæst, að háskólinn hafi ekki haldbær gagnrök. 7. Þar sem ég taldi mér ekki fært að mæla með þessu erindi heimspekideidar taldi ég rétt að fá álit háskólaráðs í málinu, þar sem það fer með æðsta ákvörðunarvald innan háskólans. Þetta er kjarni málsins. Hvað sagt var í háskólaráði og hvernig einstakir menn greiddu atkvæði er trúnað- armál og því freklegt brot af hálfu þeirra er skýrðu frá því í Stúdentablaðinu. Mun það tekið fyrir á næsta háskóla- ráðsfundi. Hvernig unnt er að lesa pólitíska afstöðu út úr fram- angreindum athugasemdum hlýtur að verða mér hulin ráðgáta. Að lokum óska ég eftir því við Þjóðviljann og Dagblaðið sérstaklega að þau birti þessa leiðréttingu á jafnáberandi stað og hina staðlausu stafi. Með þökk fyrir birtinguna. Guðmundur Magnússon rektor. Sjálfsögð og eðli- leg ráðstöfun — segir Auðunn Svavar Sigurðsson „FORSAGA þessa dönsku- náms í Háskóíanum er sú að prófessorsembætti á að vera í dönsku, en aldrei hefur fengist hæfur umsækjandi í það“, sagði Auðunn Svavar Sigurðsson, fulltrúi Vöku í Stúdentaráði, í samtali við Mbl. „Vegna þess að enginn um- sækjandi um prófessorsstöð- una hefur hingað til verið talinn hæfur, þá var á sínum tíma búin til lektorsstaða í deildinni, en henni hefur Pet- er Soby Kristiansen gegnt. Ráðning hans rennur út í sumar, en Heimspekideild vildi ráða hann í eitt ár í viðbót. Samkvæmt venju þá sendir rektor bréf til ráðu- neytisins, þar sem farið er fram á að ráðning hans verði framlengd. Þetta gerði rektor hins vegar ekki í þetta sinn, heldur lagði til við Háskóla- ráð að staðan yrði auglýst laus til umsóknar", sagði Auðunn Svavar. „Rök rektors fyrir þessari ráðstöfun eru m.a. þau að hann vildi beita sér fyrir nýbreytni í þessum málum innan Háskólans. Samkvæmt þessu þá verða menn ekki endurráðnir sjálf- virkt, heldur verða þeir að sækja um stöðurnar eins og hver annar. Á Háskólaráðs- fundinum sem rektor kynnti þessa tillögu sína, kom fram tillaga frá deildarforseta Heimspekideildar um að til- lögu rektors yrði vísað frá. Sú tillaga var felld með sjö atkvæðum gegn sex. Því hef- ur verið ákveðið að auglýsa stöðuna og verður það gert,“ sagði Auðunn Svavar. „Það eru uppi hugmyndir hjá ákveðnum aðilum í Háskólan- Pólitískar of- sóknir á hend- ur Peter Soby — segir Stefán Jóhann Stefánsson Auðunn Svavar Sigurðsson um að rektor sé þarna að láta undan hægrimönnum, en það er ekki rétt. Þetta er sjálfsögð og eðlileg ráðstöfun og brýnt hagsmunamál fyrir nemend- ur og hefur raunar lengi verið baráttumál Vöku. Ekki er heldur vanþörf á að brydda upp á nýjungum innan Há- skólans", sagði Auðunn Svav- ar Sigurðsson. „AÐ MÍNU mati er ágrein- ingurinn um gildi hefðar- innar í meðferð þessara mála,“ sagði Stefán Jóhann Stefánsson, fulltrúi Vinstri manna í Háskólaráði og formaður Stúdentarfaðs, í samtali við Mbl. „Venjan hefur verið sú að þegar deild hefur samþykkt að framlengja setningu kennara þá hefur slík sam- þykkt farið til rektors og þaðan til ráðherra. Þetta hefur undantekningarlaust gengið þannig fyrir sig. í þessu tilfelli breytti rektor út af venjunni og ákvað upp á sitt eindæmi að setja málið Málið er ekki pólitískt segir Guðmundur Magnússon rektor „ÞAÐ er ekki ég eða Há- skólaráð sem erum að gera málið pólitískt, heldur er það ákveðinn hópur stúd- enta,“ sagði Guðmundur Magnússon rektor Háskóla íslands, í samtali við Mbl., en hann var spurður um ágreiningsmál sem upp hef- ur komið í Háskólanum og varðar dönskudeildina. „Þetta mál hefur ekki verið rætt á pólitískum grundvelli í Háskólaráði, enda er málið ekki þess eðlis,“ sagði Guð- mundur. „Á sínum tíma var auglýst prófessorsembætti í dönsku við Háskólann, en þá var ekki ráðið í stöðuna, vegna þess að enginn hæfur umsækjandi fékkst. Þá var gripið á það ráð að ráða í lektorsstöðu til fjögurra eða fimm ára. Nú er sá tími liðinn. Prófessors- embættið var auglýst á ný árið 1978 en þá fékkst heldur enginn hæfur maður í stöð- una. Þegar svo var komið þá hefði í raun réttri átt að auglýsa lektorsstöðuna, en það var ekki gert, heldur var sá sem í stöðunni var ráðinn í eitt ár til viðbótar," sagði Guðmundur. „Ég tel að menn eigi ekki að sitja lengur en fimm ár í stöðum sem þessum, enda er kveðið svo á um í lögum Guðmundur Magnússon Háskólans. Þegar prófessors- staðan var auglýst í fyrra þá sótti Peter Rassmunsen um stöðuna, ásamt Peter Soby Kristiansen, og fékk Peter Rassmunsen betri vanhæfis- dóm en hinn umsækjandinn. Því finnst mér óeðlilegt að honum sé ekki gefinn kostur á að sækja um stöðuna nú. Peter Soby hefur jafn mikla möguleika á að fá þessa stöðu og hver annar, hann getur sótt um þessa stöðu eins og aðrir. Ég endurtek að þetta mál er ekki pólitískt, heldur er það aðeins ákveðinn hópur stúdenta sem reynir að gera málið þannig," sagði Guð- mundur Magnússon rektor Háskóla íslands. á dagskrá í Háskólaráði. Á þeim fundi lágu fyrir tvær tillögur, tillaga rektors um að auglýsa stöðuna og frá- vísunartillaga á þá tillögu. Tillaga rektors gekk þvert ofan í vilja nemenda í dönsku og deildarráðs Heim- spekideildar. Tillaga rektors var samþykkt með 7 atkvæð- um gegn 6,“ sagði Stefán. „Rök rektors fyrir þessu eru m.a. þau, eftir því sem hann sagði á fundinum, að í hug- um margra væri þetta mál tengt svokölluðu „kærumáli“ í dönskudeildinni og umræð- um um dönskukennslu sem af því risu. Auglýsing stöð- unnar myndi hreinsa skól- ann af þeim orðrómi, að hann hlífði kennurum sem sakaðir væru um innrætingu í kennslustundum,“ sagði Stefán. „Ef þessi regla væri látin gilda almennt þegar slíkar ásakanir kæmu upp, t.d. ef kennarar létu uppi skoðanir sínar í kennslu- stundum, þá myndu kennar- ar ekki búa við neitt starfs- öryggi. Við teljum því að hér séu á ferðinni pólitískar of- sóknir á hendur Peter Soby Kristiansen," sagði Stefán. Af þessu leiðir að ég tel þessa aðferð rektors í málinu vera aðför að skoðana- og málfrelsi í skólanum og að- för að akademiskum starfs- háttum," sagði Stefán Jó- hann Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.